Morgunblaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 48
At vin n ii rekstra rt rygging RISC SYSTEM/6000 KEYRIR UNIX FRAMTÍÐARINNAR: IBM AIX Tryggöu öruggan \ atvinnurekstur MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Hugmyndir fiskkaupenda: Frjálst fiskverð gegn takmörkun á ísfiskútflutningi MEÐAL fiskkaupenda hefur komið upp sú hugmynd að samþykkja frjálst fiskverð frá 1. desember siðastliðnum gegn því að samið verði um að Aflamiðlun leyfi töluvert minni útflutning á óunnum fiski en nú er heimilaður. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vilja fisk- kaupendur einnig að samið verði á þann hátt að sjómenn geti ekki lagt niður störf vegna óánægju með fiskverð, eins og áhafnir á togur- um Sildarvinnslunnar hf. á Neskaupstað hafi til dæmis gert núna. Fundi í Verðlagsráði sjávarút- vegsins, sem halda átti í gær, var frestað til klukkan 15 í dag, mið- „ vikudag, þar sem Magnús Gunnars- Aðgerðir í að- sigi gegn þeim sem ekki nota sjóðsvélar ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra mun næstkomandi - *föstudag leggja fyrir ríkisstjórn- ina frumvarp þess efnis að fjár- málaráðuneytinu og öðrum stjórnvöldum verði heimilt að grípa til aðgerða gegn þeim aðil- um sem vanrækja að nota sjóðs- vélar í sínum rekstri. Það kom fram í umræðum á Al- þingi í gær um frumvarp tii fjáraukalaga að skil á virðisauka- skatti mættu vera betri. Ólafur Ragnar greindi frá því að í gildandi lögum væru ekki heimildir til að grípa til aðgerða gegn þeim sem vanræktu að útvega sér sjóðsvél, þótt skyldugt væri. Ráðherrann sagði frumvarp vera væntanlegt um þetta efni. Fjármálaráðherra upplýsti í sam- tali við Morgunblaðið að í smíðum hefði verið frumvarp þar sem gert væri ráð fyrir heimildum til aðgerða - með líkum hætti og gegn þeim sem ekki stæðu skil á virðisauka- skatti. Hann vildi ekki tilgreina nánar í hveiju þessar aðgerðir myndu felast en hann myndi greina ríkistjórninni frá því næstkomandi föstudag. Sjá fréttir frá alþingi bls. 28. son, framkvæmdastjóri Sölu- sambands_ íslenskra fiskframleið- enda og Arni Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Félags sambands- fiskframleiðenda, hafa verið erlend- is. Á fundi Verðlagsráðs síðastliðinn fimmtudag lögðu fulltrúar kaup- enda, sjómanna og útgerðarmanna, í ráðinu fram sameiginlega tillögu um að fiskverð verði gefið frjálst frá 1. desember síðastliðnum en fulltrúar fiskkaupenda tóku sér frest til að kanna hug fiskvinnslu- manna til fijáls fiskverðs. Jólatréð komið á Austurvöll Morgunblaðið/Júlíus Starfsmenn Reykjavíkurborgar unnu í gærkvöldi að því að setja jólatréð upp á Austurvelli. Á sunnudag, 9. desember, verða ljósin á því tendruð. Að venju er það Óslóarborg, sem færir Reykvíkingum þennan jólaglaðning í skammdeginu. Yfirfullir framhaldsskólar í Reykjavík: Hundruð umsækjenda um skólavist eru nú á biðlistum Nemendur sækja úr bekkjardeildum framhaldsskólanna yfir í áfanganám VAXANDI aðsókn er að framhaldsskólunum á höfuðborgarsvæðinu sem margir hverjir eru þegar yfirfullir og anna ekki umsóknum. Fjórir framhaldsskólar í Reykjavík, sem bjóða upp á áfangakerfi, hafa undanfarið verið að skrá nemendur til náms eftir áramót og er mikill fjöldi nemenda á biðlista. Hefur þurft að vísa nokkur hundr- uð umsækjendum frá. Að sögn Karls Kristjánssonar, deildarsérfræð- ings í framhaldsskóladeild menntamálaráðuneytisins, eru hér fyrst og fremst á ferðinni nemendur sem hafa ýmist flosnað upp úr námi í bekkjardeildum framhaldsskólanna eða vilja færa sig um set yfir í áfangakerfið. Sagði hann að þrátt fyrir vax- andi aðsókn nýnema í framhalds- skólana hefði tekist að veita þeim skólavist í haust. Fyrir skömmu var haldinn fundur um þetta mál með fulltrúum ráðuneytisins og skóla- * Ahugahópur um gerð jarðganga undir Hvalfjörð: Stofnun hlutafélags um jarðgöngin undirbúin Drög að samningi lögð fyrir ráðherra í næstu viku ÁHUGAHÓPUR um gerð jarðganga undir Hvalfjörð og fulltrúar samgönguráðuneytis hafa náð samkomulagi um undirbúning fyr- ir stofnun félags um rannsóknir og grunnvinnu fyrir gerð jarð- ganga undir Hvalfjörð. í gær var gengið frá drögum að samn- ingi sem verður lagður fyrir samgönguráðherra eftir helgina. „Við erum mjög ánægðir með þennan áfanga. Þarna er stigið stórt skref í þessu máli,“ segir Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra- nesi og einn nefndarmanna, í samtali við Morgunblaðið. Gísli sagði að samningurinn stöðu verður boðað til fundar í gerði ráð fyrir stofnun félags sem hefði rétt til rannsókna, fram- kvæmda og rekstrar ganganna í allt að 25 ár. „í framhaldi af þessari niður- næstu viku þar sem málið verður kynnt sveitarstjórnarmönnum og öðrum sem áhuga hafa á þessum framkvæmdum. Tækifærið verður jafnframt notað til að kanna áhuga á þátttöku í stofnun hluta- félags,“sagði hann. Gísli sagði engar kostnaðartöl- ur liggja í samningnum heldur gerði hann aðeins ráð fyrir heim- ild til handa félagi sem stofnað yrði til að ráðast í rannsóknir fyr- ir gerð jarðganga. „Þær verða bæði tímafrekar og kostnaðars- amar og engu er enn hægt að slá föstu um kostnað og staðsetningu fyrr en niðurstöður rannsóknanna liggja fyrir eftir eitt til tvö ár,“ sagði Gísli. stjórum þeirra skóla sem bjóða áfanganám en þar er vandinn hvað mestur. Það eru Menntaskólinn við Hamrahlíð, Iðnskólinn og fjöl- brautaskólarnir í Breiðholti og í Ármúla. Sverrir Einarsson, rektor Menntaskólans í Hamrahlíð, sagði • að aðsókn að skólanum í sumar hefði verið mjög mikil. Nemendur úr hverfinu gengu fyrir og var mörgum umsækjendum úr öðrum hverfum boðin skólavist í janúar en um eitthundrað unglingum var vísað frá skólanum. „í haust fóru umsóknir að streyma inn aftur og voru 78 umsækjendur settir á bið- lista en þegar til kom treystum við okkur ekki til að taka neinn þeirra inn því forföll úr skólanum eru mun minni nú en áður. Þeim hefur því öllum verið vísað frá,“ sagði hann. Sverrir sagði að fieiri væru við nám við skólann í dag en nokkru sinni áður eða rúmlega 900 nem- endur. „Við höfum boðist til að stækka skólann en það er pólitísk ákvörðun. Hér er stór lóð og við gætum tekið á móti 1.400 nemend- um eftir stækkun, sem er ódýrasta og fljótlegasta lausnin," sagði hann. Kristín Arnalds, skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, sagði að ástandið væri slæmt og þyrftu þau að neita allt of mörgum nemendum. Rúmlega 1.400 nem- endur eru við skólann, þar af eru 180 nýnemar. „Fjöldi nemenda á biðlista skiptir hundruðum og við höfum þegar hafnað 100 nemend- um um skólavist," sagði hún. Sagði hún jafnframt að stjórn- endur skólans vildu fá að stækka húsnæðið. „Það er í athugun og ég vona að af því verði því í dag eru allt of margir nemendur í skólanum miðað við eðlilega nýtingu hús- næðisins.“ Svipaða sögu er að segja úr Fjöl- brautaskólanum við Ármúla. Að sögn Hafsteins Lárussonar, skóla- meistara, eru um 80 umsækjendur á biðlista við skólann. Sagði hann ekki útséð um hvort tækist að veita einhveijum þeirra skólavist um ára- mót. Hafsteinn sagði að ásókn nem- enda úr framhaldsskólum sem búa við bekkjarkerfi yfir í áfangaskól- ana væri vaxandi vandamál. Ár- múlaskóli er ekki fullbyggður og sagði hanrí mikia þörf á að bæta við húsnæðið en því miðaði hægt. DAGAR TIL JÓLA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.