Morgunblaðið - 03.01.1991, Síða 10

Morgunblaðið - 03.01.1991, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991 JÓLAÓRATORÍAN ________Tónlist___________ Jón Ásgeirsson Kór Langholtskirkju, kamm- ersveit, einsöngvararnir Olöf Kolbrún Harðardóttir, Sólveig M. Björling, Michael Goldthorpe og Bergþór Pálsson fluttu þrjá þætti úr Jólaóratoríunni eftir J.S. Bach sl. laugardag i Langholts- kirkju, undir stjórn Jóns Stefáns- sonar. Það er að bera í bakkafullan lækinn að ræða um gerð þessa meistaraverks, þó hver kafli sé ærin freisting til umfjöllunar um formgerð, raddfærslutækni að ekki sé talað um innviðu þess skáldskapar meistarans, sem enn heillar tónelska menn svo að þeir fjölmenna á slíka tónleika sem þessa, þrátt fyrir ofgnótt menningarefnis í fjölmiðlum nút- ímans. Líklega er það bæði góð tónlist og góður flutningur sem hlustendur sækjast eftir og sú spenna sem fylgir því að sjá og heyra verkið verða til, í stað þess að hlusta á það í gegnum fjölmiðlamaskínur, sem magna allt upp og brengla. Kór Langholtskirkju söng mjög vel upphafskórinn (Jauc- hzet, frohlocketj óg kóralana í 1. þættinum. Michael Goldthorpe söng Tónles guðspjallamannsins (nr. 2 og 6) mjög vel. Tónles og altarían fræga, Bereite dich, var mjög vel sungin af Sólveigu Björling. Sjöunda atriðið er sálm- ur, sem Bach leikur skemmtilega með og er efni hans þrískipt. Fyrst er forspil hljómsveitarinn- ar, þá sálmur sem er fluttur í hlutum af sópranröddum kórs- ins, ein tónhending í einu og á milli er skotið tónlesi sungið af einsöngvara og forspilinu, sem síðar er fléttast fagurlega við sálminn. Tónlesið söng Bergþór Pálsson svo og eftirfylgjandi aríu (Grosser Herr) sem hann flutti mjög vel og með sérlega skýrum framburði. Fyrsta kafla lauk með sálmi, sem sunginn er á íslensku undir lagboðanum „Ofan af himnum hér kom ég“. Annar kaflinn hefst á „sin- fóníu“, hjarðljóðinu fræga og lýkur þessum kafla á því að stef úr hjarðljóðinu er ofið saman við breytta gerð á niðurlagssálmi 1.. þáttar. Hjarðljóðið var einum of hratt leikið og án hrynrænnar slökunar við hendingaskil. Gold- thopre söng aríuna „Frohe Hirt- en“ af glæsibrag en þessi aría er mjög erfið og ekki leikfang nema fyrir allra bestu óratoríu- söngvara. Sólveig Björling söng „vögguvísuna11,, Schlafe, mein li- ebster, mjög fallega. Ehre sei Gott, var annað stórnúmer kórs- ins. Þriðji þáttur hefst á glæsileg- um kór, sem 'er svo endurtekinn sem niðurlag þáttarins. Tvísöngsarían „Herr, dein Mit- leid“ var ágætlega sungin af Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og Bergþóri Pálssyni. Þriðja alt ar- ían „Schlisse, mein Herze“ var fallega flutt af Sólveigu Björling og konsertmeistaranum Júlíönu Elínu Kjartansdóttur. Til viðbót- ar tilgreinda þijá fyrstu þætti verksins var „bergmálsarían" flutt af Ólöfu Kolbrúnu Harðar- dóttur og var söngur hennar glæsilega útfærður á móti falleg- um óbóeinleiknum hjá Kristjáni Þ. Stephensen. Goldthorpe söng aríuna „Ich will nur dir zu Ehren leben“ og fór þar á kostum, bæði hvað snertir tækni og mús- ikalska mótun á þessu erfiða tónefni meistarans. Þessum glæsilegu tónleikum lauk svo með upphafskór íjórða þáttar (Ehre sei dir) og var söngur kórs- ins stórglæsilegur. Hljómsveitin var mjög góð. Trompettarnir léku frábærlega vel og sérstaklega Ásgeir H. Steingrímsson, sem lék á „Bach“-trompett. Þetta tón- bjarta hljóðfæri gegnir alveg sérstöku hlutverki í kórköflun- um. Óbóið (þijár gerðir) eru mik- ið notuð en sérstaklega þó í „hjarðljóðinu" og nokkrum aríum og var samleikur Kristj- áns, Daða Kolbeinssonar, Peter Thomkins og Hólmfríðar Þór- oddsdóttur mjög góður og hljóm- fagur. Flautuleikararnir voru Bernhard S. Wilkinson og Ás- hildur Haraldsdóttir. Bernhard átti frábæran einleik í tenor- aríunni „Frohe Hirten“. Nora Kornblueh og Gustaf Jóhannes- son sáu um „Continue“-undir- leikinn og fórst vel úr hendi. Jón Stefánsson orgelleikari er vaxandi stjórnandi og voru þess- ir tónleikar einkar jafnir að gæð- um, hljómsveitin mjög vel sam- stillt og lék á köflum glæsilega, kórinn frábær og einsöngvararn- ir einnig og óhætt að segja, að Langholtskirkja hafi gefið hjörð sinni fallega jólagjöf með þessum frábæni tónleikum. MÝRARENGL- ARNIR FALLA Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Sigfús Bjartmarsson: Mýrar- englarnir falla. (168 bls.) MM 1990. Á titilsíðu, fyrir neðan heiti bók- arinnar, stendur „Sögur“. Ekki smásögur, lygisögur, þjóðsögur — bara sögur. Deila má um hvort sagnaþátturinn sé nógu gildur í þessari bók til að réttlætanlegt sé að telja textann fremur epískan en lýrískan. Einhvers konar mæl- ing á slíkum eiginleikum texta er vísast hæpin. Þó er þess virði að tæpa á því að grannur söguþráður- inn í þessu verki hleypur yfirleitt afar þokkalega út undan sér, þannig að reglum eins og kynn- ingu aðstæðna, flækju og lausn er gefið býsna langt nef. Sögumar gerast allar í sveit fyrir norðan. Mælandinn í flestum sögunum virðist vera strákurinn Vigfús, ekki einhamur á köflum. Athafnir hans er margs konar, allt frá því að keyra dráttarvélina til þess að murka lífið úr fuglum. Jafnólíkir hlutir, sem að vísu mis- heppnast oft, eru gerðir af yfírveg- un og einhvers konar alúð, óhuggulegri alúð. Yfír sögunum er værðarleg du- lúð sem er þó ekki langt frá því að vera geðveikisleg. Það er eitt- hvað svart í sálinni sem dafnar í fásinninu, endurtekningunni og ósáttfúsri náttúrunni. Sjónarhom sagnanna er bundið fyrstu persónu, alls staðar talar þessi „ég“. Rökrétt væri að álykta að sálfræðilegar pælingar væru því í fyrirrúmi. Svo er þó ekki. Milli „mín“ og lesandans er sér- kennileg fjarlægð vegna þess að við kynnumst honum fyrst og fremst gegnum reynslu hans. Það Sigfús Bjartmarsson sem hann sér, heyrir og finnur verður uppspretta þankans. Um- hverfi og gerðir skilyrða hugsun hans en ekki öfugt. Dæmi: „En það er ekki gott að vera gamall. Mér datt það fyrst í hug í vetur, þegar ég var að lesa aftur fyrir kallinn um eilífðina og styttumar. Og ég hef stundum hugsað um það síðan /.../“ Annars staðar er það náttúran sem leiðir mæaland- ann til að rökræða við sjálfan sig: „Ég er bara hér, nákvæmlega í miðri kvínni milli Q'allanna og snýst þetta við að snúa. Yfirleitt hefur hafgolan betur en sólin, en hvorugt sér við úlpunni minni. Auðvitað hef ég ekki yfír neinu að kvarta.“ En þó hann kvarti .ekki em dimmir tónar ráðandi í frásögn- inni. Mýrardrullan, vargurinn og jafnvel landfastur hafís undir- byggja auðnartilfinningu sagn- anna. Á einum stað er imprað á mannshöfðinu þunga sem á öðrum stað hefur náð áfangastað sínum, sjálfri jörðinni. Allt sígur til jarðar. Eitt það allra laglegasta við þessa bók er það vald sem höfund- ur hefur á tungumálinu. Hann nær að magna vissar kenndir með markvissri mælsku. Einhæfni í orðavali er víðs fjarri. T.a.m. er umsögn eða frumlagi sleppt þegar hæfa þykir, líklegast til að forðast stagl, („Enginn á ferðinni /.../“, „Fljótur líka að fínna aftur /.../“). Stundum birtist frumleikinn í því að ákveðnu nafnorði fylgir nýstárlegt lýsingarorð, eða þá að setningar eru tvinnaðar saman úr orðum sem alla jafna standa ekki saman. Um er að ræða sérkenni- lega blöndu orða hlutlægrar og huglægrar merkingar. Sögumanni verður hugsað til kaláranna svo- kölluðu á þann hátt að eiginlegur kuldadoði læsir sig um sjálfa minninguna og færir að lokum sjálfum lesandanum hroll: „/.../ var dauflegt yfir þeim man ég, þegar við röltum saman upp í hlíðina að horfa út á hafísinn. // Mér þótti ég hafa setið þarna und- arlega lengi, og átti að vanda til háðuleg orð, því ekki var nú beinlínis lautahlýjan. En í minn- ingunni er þó yfír þessari stundu einhver kynlega bláglær svali sam- heldninnar, og slaki í ætt við æðru- lausa ró.“ Fáfengileikanum er stundum lýst gegnum það sem ekki er, með orðum sem lýsa skorti einhvers. Forskeytið „ó-“ er þá mikilvægt. Þetta sést á ýmsum lýsingar- og atviksorðum, s.s. „ólánlega", „ógæfulega", „ótrúlega“. Svona í lokin verður þá að nefna það sem kann að þykja aðfinnslu- vert. Eitt vil ég nefna öðru frem- ur. Fyrir kemur að mælskan, þótt hún hljómi vel, fari fram úr hugs- uninni. Dæmi: „Fyrir utan var sjórinn eins og blátær drullupollur og himinninn eftir því.“ Getur blát- ært verið drullugt? Þú svalar lestrarþörf dagsins Vestfirðir Annríki hjá Landhelgis- gæslunni yfir hátíðamar VARÐSKIPIÐ Ægir flutti tvo sjúklinga frá Þingeyri og Súganda- firði til ísafjarðar aðfararnótt miðvikudagsins í miklu fárviðri sem þá geysaði á þessum slóðum. Þetta var í annað sinn sem varðskip- ið flutti sjúklinga frá Þingeyri á fáeinum dögum en aðfararnótt sunnudagsins 30. desember voru tveir sjúklingar fluttir frá Þing- eyri til Isafjarðar. Norðaustanrok var á þessum slóðum þegar sjúkraflutningarnir fóru fram en ferðin gekk að ósk- um. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, fór sl. laugardag til að sækja sjúklingana á Þingeyri. Þar bilaði þyrlan en komst aftur i lag sl. sunnudag. Þyrlan fór síðan í sjúkraflug á gamlaárskvöld vestur í Reykjafjörð og flutti sjúkling þaðan á Borgarspítalann í Reykjavík. 911Cn 91 Q7H LARUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri k I I vv"L I 0 / V KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.löggiltubfasteignasali í sölu er að koma meðal annarra eigna: Ný einstaklingsíbúð Suðuríb. á 4. hæð um 40 fm í Selási. Laus strax. Óvenju hagstæðir greiðsluskilmálar. Á frábæru verði í Fellahverfi 6 herb. séríb. í lyftuh. á tveimur hæðum. 4 rúmg. svefnherb., tvöf. stofa, tvennar svalir. Sérinng. af gangsvölum. Sérþvottah. Bað- og gestasnyrting. Góður bílsk. Mikið útsýni. Frábær greiðslukjör. Skammt frá Háskólanum Nýendurbyggð 2ja herb. íb. á jarðh./kj. í Skerjafirði 54 fm nt. Tvíb. Allt sér (-inng., -hiti, -þvottah.). Laus strax. Stór eignarlóð. Nýtt steinhús - eignaskipti æskileg Einbhús í Garðabæ m/4ra-5 herb. íb. á hæð og rishæð ekki fullg. Góður, fullg. bílsk. Ræktuð lóð. Hitapottur. Sólskáli. Húsnlán kr. 4,5 millj. Skipti æskil. á góðri 3ja herb. íb. Ýmsir staðir koma til greina. Fyrir smið eða laghentan m.a. 5 herb. séríb. ÍTúnunum. Tilboð óskast. Laus strax. Vinsæll staður. Grafarvogur - Hraunbær - Breiðholt Þurfum að útvega traustum kaupanda góða 3ja-4ra herb. íb. Raðhús eða einbýlishús óskast í borginni eða nágr. Æskil. stærð 150-200 fm. Miklar og góðar greiðslur þar af 4,0-5,0 millj. v/undirritun kaupsamn. Losun í maí. • • • Góð sérhæð óskast i mið- eða vesturborginni. Rétt _______________________ eign verður borguð út. FASTEIGNtSAUH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 AIMENNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.