Morgunblaðið - 03.01.1991, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 03.01.1991, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991 25 Bandaríkin: Gestgjafar og barþjónar ábyrgir fyrir ijóni er ölv- aðir gestir þeirra valda Florida. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara í FLESTUM ríkjum Banda- ríkjanna gildir sú regla varð- andi áfengisveitingar að það er ekki gestanna einna að ákveða hvenær þeir hafa drukkið „nóg“ heldur verða gestgjaf- arnir, hvort sem er í heimahús- um eða þjónar á veitingastað, að hafa vit fyrir gestum sínum í þessum efnum. Gestgjafar eða veitendur áfeng- is verða að gera sér ljóst, að það er hugsanlega hægt að gera þá ábyrga ef gestir þeirra valda tjóni, t.d. á heimleið úr veislunni. í flestum ríkjum Bandaríkjanna er það lögbrot að veita nokkrum manni undir áhrifum áfengis meira vín. Dómur sem féll í New Jersey árið 1988 gerði gestgjafa ábyrgan fyrir tjóni sem gestur hans olli í umferðarslysi á leið heim úr veislunni. í flestum ríkjum Bandaríkjanna er þessi möguleiki á bótaskyldu fyrir hendi en í örf- áum ríkjum hafa dómstólar með dómum sínum fírrt gestgjafa ábyrgð á gjörðum gesta þeirra. Stjórn Umferðaröryggisráðs með akstri á bandarískum þjóð- vegum gefur út þá þumalfingurs- reglu að sama áfengismagn sé í 23 únsum, af bjór, 4 únsum af léttvíni og blönduðum drykk sem í er 1,5 únsa af vínanda með 50% alkóhól miðað við rúmmál. Ráðið segir að 0,05% alkóhólmagn í blóði leiði til þess að flestir finni til áfengisáhrifa; dómgreind slævist og viðbrögð séu hægari. Kaffí dregur ekkert úr áfengisáhrifum. Líkaminn þarf 90 mínútur til að „afgreiða" hvern drykk. Morgunblaðsins. Gífurlegt átak er nú í gangi víðast hvar í Bandaríkjunum gegn akstri undir áhrifum áfengis eða annarra fíkniefna. Lögreglan í Florida stöðvar oft alla bíla á fjöl- förnum götum til að stemma stigu við.áfengisneyslu ökumanna. Leið- ir þetta oft til mikilla umferðart- afa. Arangurinn lét ekki á sér standa nú um áramótin. Um sl. helgi fórust „aðeins“ 22 í umferð- arslysum í Florida en samkvæmt tölum frá fyrri árum var óttast að umferðin gæti hugsanlega krafist 42 mannslífa. ♦O Hætt við náðun herforingja Gríska stjórnin ákvað á gamlársdag að falla frá áformum sínum um að náða fyrrverandi herforingja og ofursta í gríska hernum. Ráðgerði hún að náða 13 menn sem stjórn- uðu valdaráni hersins 1967 en her- foringjastjórn réð ríkjum í Grikk- landi til ársins 1974. Var þessum áformum stjórnar Konstantíns Mit- sotakis harðlega mótmælt af hálfu stuðningsmanna stjórnarinnar sem og andstæðingum hennar og til þess að náðunin sundraði ekki þjóð- inni var frá áformunum fallið. A myndinni eru þrír forsprakkar bylt- ingarinnar (f.v.), George Papa- dopoulos, Nikolaos Makarezos og Stylianos Patakos. Ómar Eva Mjöll Ingólfsdóttir Glæsilegur nýársfagnaður Yeraldar á Hótel Islandi 4. janúar Hemmi ■ LUNDÚNUM. Um 8.000 unga- böm deyja á hveiju ári í Bretlandi vegna tóbaksreykinga foreldra þeirra. Þetta kemur fram í skýrslu þrýstihóps gegn reykingum, „Sam- taka um réttindi þeirra sem ekki reykja,“ sem birt var í gær. Samtök- in segja að af þessum 8.000 dauðs- föllum séu meira en 7.500 fóstur- lát. Rúmlega 450 börn déyja rétt fýrir, í eða rétt eftir fæðingu. ■ ISLAMABAD. Um 280 afgan- skra uppreisnarmanna er saknað eftir að þeir lentu í snjóbyl nálægt landamærum Afganistan og Pak- istan á sunnudag. Shabbir Ahmad aðstoðarfylkisstjóri S landmærafylk- inu Chitral í Pakistan sagði að 318 Afganir sem hefðu verið í samfloti frá Chitral til Badahkshan-héraðs í Afganistan hefðu lent í snjóbyl á leiðinni. Um 40 Afganir sneru aftur til Chitral og tilkynntu um hvarf félaga sinna. Stærstu skæruliða- hreyfingarnar í Afganistan hafa bækistöðvar sínar í Badahkshan- héraði. Þar eru einnig búðir flótta- manna úr stríðihu í Afganistan. Mikil snjókoma og miklir kuldar hafa verið í fjallahéruðunum á landamærum landanna síðustu daga og hafa a.m.k. 80 Afganir frosið í hel, flestir þeirra í bílum eða rútum sem hafði þurft að stöðva vegna ófærðar. Matseðill kvöldsins FordrykkurEl Cordobes. Rjómalögub sjávarréttaveisla Zarzuela Teinagrillub lambapipar- steik ab hcetti andalúsískra abalsmanna. Verð aðeins kr. 2.800 Aðgangseyrirog kvöldverður Borðapantanir og miðasala á Hótel Islandi kl. 9.00-17.00 alla dagaí síma 687111. Húsið opnað öðrum en matargestum kl. 23.30 Kr. 1.000,- Reuter Pétur Jónasson Veröld þakkar viðskiptavinum sínum og velunnurum frábærar móttökur á afstöðnu ferðaári og býður ferðaþyrstum listunnendum á glæsilegan nýársfagnað á Hótel íslandi þann. 4. janúar, fylltan dansi, söng, gleði, gríni og glensi, ásamt glæsilegri veislumáltíð að suðrænum hætti. ÚR DAGSKRÁ NYÁRSFAGNAÐAR Húsið opnað kl. 19.00 Veislutríóið gefur rétta hátíðarstemmningu. Ómar Ragnars, Hemmi Gunn og Haukur Heiðar rifja upp sumarstemmningu frá síðasta sumri á Spáni. Glæsilegt ferðahappdrætti. MYNDASÝNING - Ferðalög um víða Veröld. FLAMINGO - Dansarar frá Madrid með glæsilegan, spænskan dans. GÍTARLEIKUR Á HEIMSMÆLIKVARÐA -Pétur Jónasson. HEILLANDI KLASSÍK - Eva Mjöll Ingólfsdóttir. Hljómsveitin Stjórnin leikur fyrir dansi. iiýtt símanúnaer AUGLÝSINGADEIIDAR^ onn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.