Morgunblaðið - 03.01.1991, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANUAR 1991
Leikfélag Akureyrar:
Samningur um 18 millj
óna króna greiðslu
frá ríki og bæ árlega
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur milli ríkissjóðs, Akur-
eyrarbæjar og Leikfélags Akur-
eyrar, en í kjölfar samningsins
Arnaldur
Arnarson
leikur á g'ítar
FYRSTU • tónleikar Tónlistarfé-
lags Akureyrar á nýju ári verða
haldnir laugardaginn 5. janúar í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
og hefjast þeir kl. 17.
Á tónleikunum leikur Arnaldur
Arnarson gítarleikari, sem búsettur
er á Spáni en er staddur hér í jóla-
leyfi. Árnaldur er fæddur árið 1959,
^ en hann hóf gítarnám tíu ára gam-
all.
er tryggður áframhaldandi rekst-
ur leikhúss á Akureyri. Sam-
kvæmt samningnum mun ríkis-
sjóður árlega greiða 18 milljónir
króna til LA og Akureyrarbær
sömu upphæð, en upphæðin mun
hækka í samræmi við breytingar
sem kunna að koma upp á launav-
ísitölu á gildistíma samningsins.
Samningurinn er gerður til
þriggja ára og mun Leikfélag Akur-
eyrar sviðsetja þijú til fímm leikverk
árlega og tryggja hallalausan rekst-
ur leikfélagsins á tímabilinu.
I fjáraukalögum í iok ársins voru
samþykktar 6 milljónir króna til
Leikfélags Akureyrar, en það var
gert til að koma rekstri félagins á
réttan kjöl og til að koma í veg fyr-
ir lokun vegna skulda. Með þessum
samningi og fjáraukalögunum hefur
tekist að tryggja að áfram verður
rekið atvinnuleikhús á Akureyri.
Útköllum slökkvi-
liðs fjölgaði 1990
Á LIÐNU ári var Slökkvilið Akur-
eyrar kallað út 76 sinnum vegna
bruna, en það er þremur útköll-
um meira en í fyrra þegar þau
voru 73. Sjúkraútköll voru einnig
fleiri á síðasta ári en á árinu þar
á undan og bráðaútköll voru líka
nokkru fleiri.
Stærstu eldsvoðarnir á síðasta ári
voru voru allir í íbúðarhúsum, í
Smárahlíð 1 í janúar, í Lundargötu
10 í febrúar og í Hafnarstræti 86a
í nóvember, en samtals voru 14 út-
köll vegna elds í íbúðarhúsum á
árinu 1990. Slökkviliðið var kallað
út 6 sinnum vegna elds í ökutækjum
og 4 sinnum vegna elds í rusli eða
sinu. Eldur varð þrisvar sinnum laus
í iðnaðarhúsnæði og einu sinni í
skipi.
Oftast voru upptök eldsins rakin
til rafmagns eða rafmagnstækja,
óvarlega var farið með eld í fjórum
tilfellum og þrisvar var um íkveikju
að ræða. Tjón var í 15 skipti lítið
sem ekkert, í 13 skipti minna en
ein milljón króna, en í þrjú skipti
var tjónið meira en tvær milljónir.
Sjúkraútköll voru á liðnu ári alls
1.145, þar af 165 utanbæjar, en á
árinu 1989 voru útköllin alls 1.028
þar af 130 utanbæjar. Af þessum
1.145 sjúkraútköllum var 231 bráð-
atilfelli á móti 175 árið á undan.
Báðir sjúkrabílarnir voru úti
samtímis 40 sinnum á síðasta ári.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Nýársbarnið á FSA
Fyrsta barnið sem fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
á nýju ári var drengur sem vóg 17 merkur og var 55 senti-
metra langur. Drengurinn er sonur Guðnýjar Höllu Gunnlaugs-
dóttur og Guðmundar Ólafssonar en þau eru búsett á Árskóg-
strönd. Móður og syni heilsaðist vel, en pilturinn kom í heiminn
um kl. 7 í gærmorgun, 2. janúar. Miklar annir voru á fæðingar-
deild FSA á liðnu ári og hafa fæðingar aldrei verið jafnmargar
þar, en þær voru alls 461. Að jafnaði eru í kringum 400 fæðing-
ar á deildinni, þannig að aukningin er umtalsverð.
Magni á Grenivík 75 ára:
FÉLAGAR í Iþróttafélaginu
Magna á Grenivík minntust 75
ára afmælis félagins með tveggja
daga veislu á dögunum. Fyrri
daginn fór fram verðlaunaaf-
hending þar sem afhentir voru
alls 16 bikarar fyrir ýmis afrek
Atvinna ■ Atvinna ■ Alv'ma
Norðlendingar!
Opnið augun!
Okkur vantar sölufólk og kannskí
ert það einmitt þú sem við leitum að
Hefur þú:
★ Jákvæðni og drift?
★ Bíl og síma?
★ Aldur 20-45 ára?
★ Hreint sakavottorð?
★ Áhuga á góðum launum?
★ Metnað fyrir velgengni?
★ Góðan stuðning heiman frá?
★ Vilja til að vinna á kvöldin og um helgar?
★ Getu til að vera skipulagður í starfi?
★ Vilja og getu til að vinna í hópvinnu?
Við bjóðum:
★ Frítt sölunámskeið.
★ Góða framtíðarmöguleika.
Vekur þetta áhuga þinn? Hringdu þá í síma 96-11116
og fáðu viðtalstíma hjá Antoni Magnússyni kl. 9.00-
16.00 og föstudag kl. 9.00-16.00.
sem unnin hafa verið á árinu.
Einnig var þarna snædd ein
stærsta afmælisterta sem borin
hefur verið á borð í byggðarlag-
inu. Seinni daginn var svo aðal-
hátíðin, sem hófst með borðhaldi
kl. 20.30. Ýmislegt var til
skemmtunar og ræður fluttar.
Veislustjóri var Jón Þorsteins-
son, en formaður Magna, Björn
Ingólfsson sagði í stórum drátt-
um frá sögu félagsins.
Björn rakti söguna frá stofnun
þess og sagði frá þeim íþróttagrein-
um sem stundaðar hafa verið innan
íþróttafélagsins. Félagið var í fyrstu
kallað „Fótboltafélagið" eða
„Knattspyrnufélag Grýtubakka-
„ hrepps“, en upphaf félagsins má
rekja til þess er nokkrir ungir menn
í Laufássókn keyptu fótboltá og
komu saman í frístundum til að
æfa sig í kanttsparki.
Lengi vel snerist allt um fót-
bolta, en.næst honum gekk skíða-
íþróttin, voru fengnir kunnir skíða-
garpar til að leiðbeina. Þó svo sund
hafi aldrei verið stundað sem
keppnisgrein hjá félaginu átti
Magni um tíma innan sinna raða
íslandsmeistara í sundi sem var
Valgarður Egilsson. Ástundun
frjálsra íþrótta hafa gengið í bylgj-
um, þar til á síðasta ári er farið
var að æfa markvisst. Þá má nefna
að fyrir átta árum var byijað að
æfa hér borðtennis með ágætum
árangri, en félagið á fimm íslands-
meistara og tíu manns úr félaginu
hafa verið í unglingalandsliði.
Olafsfjörður:
Ný bókhalds-
skrifstofa
Ólafsfjörður.
OPNUÐ hefur verið ný bókhalds-
skrifstofa á Olafsfirði. Það eru
þeir Þorsteinn Ásgeirsson, sem
um árabil var framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Olafsfjarðar, og
Guðmundur Þór Guðjónsson, sem
var skrifstofustjóri hjá sama fyrir-
tæki, sem eiga og reka bókhalds-
skrifstofuna.
Þeir veita alla almenna bókhalds-
þjónustu og segja þeir félagar að
byijunin lofi góðu og viðskipti séu
fram úr björtustu vonum. í undir-
búningi er að þeir Þorsteinn og
Guðmundur yfirtaki útgáfu viku-
blaðsins Múla og rekstur prentstofu
Stuðlaprents á Ólafsfirði.
SB
Eyjafjarðarsveit:
Atta umsókn-
ir um stöðu
sveitarstjóra
ÁTTA umsóknir hafa borist um
stöðu sveitastjóra í Eyjafjarðar-
sveit, en umsóknarfrestur rann
út á gamlársdag.
Birgir Þórðarson á Öngulsstöðum
sem sæti á í sveitarstjóm sagði að
verið gæti að fleiri umsóknir væru á
leið í pósti, en enn hefur ekki verið
fjallað um umsóknirnar á fundi sveit-
arstjórnar. Birgir taldi líklegt að
boðað yrði til fundar eftir helgi þar
sem fjallað yrði um málið.
Mikilvægast að ge ra heil-
brigt fólk úr börnunum
- segir Björn Ingólfsson formaður félagsins
í ræðu sinni kom Björn einnig
inn á fjármálahliðina og sagði að
boginn væri þegar of hátt spenntur
í þeim efnum. Hann sagðist oft
hafa spurt sig þeirrar spurningar
hvort það svaraði kostnaði að halda
úti þessari starfsemi. „Hvort það
sé veijandi að eyða milljón krónum
til þess að nokkrir krakkar geti leik-
ið sér í borðtennis,“ eins og Björn
komst að orði. „Svarið er já. Það
er veijandi." Þarna væri verið að
byggja upp fólk, þeim gefið tæki-
færi á að glíma við holl viðfangs-
efni og í þeim efnum mætti ekki
til spara. „Ætli það sé ekki eftir
allt saman mikilvægasta hlutverk
Morgunblaðið/Haukur Ingólfsson
Frjálsíþróttamaður Magna 1990,
Vala Dröfn Björnsdóttir, keppti
á 13 mótum á árinu og tók alls
þátt í 26 greinum. í 1. sæti varð
hún 19 sinnum, fjórum sinnum í
2. sæti, þrisvar í 3. sæti og einu
sinni í því 4, en aldrei neðar.
Með henni á myndinni er Rakel
Gylfadóttir þjálfari hennar.
okkar í lífinu að gera heilbrigt fólk
úr börnunum okkar. Ef við yfirleitt
höfum þá nokkurt annað hiutverk,"
sagði Björn.
Iþróttamemi Ólafs-
fjarðar valdir
Ólafsfjöröiir.
SIGURGEIR Svavarsson var valinn íþróttamaður Ólafsfjarðar í flokki
fullorðinna á samkomu hjá íþróttafélaginu Leiftri á föstudag. Krislj-
án Hauksson var kjörinn íþróttamaður Ólafsfjarðar í flokki 13-16
ára og Albert Arason I flokki 12 ára og yngri.
Sigurgeir hefur keppt í göngu
og þríþraut fyrir Leiftur og sýnt
góðan árangur á síðasta ári, en
hann vann auk þess Esjugönguna
sem fram fór síðasta sumar. Bæði
Kristján og Albert stunda skíða-
íþróttina af kappi auk þess að leika
knattspyrnu og tennis. Þá urðu
þeir báðir sigurvegarar í þríþraut
sem efnt var til í Ólafsfirði á síðasta
ári.
Iþróttamönnunum voru afhentir
bikarar, bæði farandbikar og til
eignar og einnig fengu þeir blóm-
vendi.
SB