Morgunblaðið - 03.01.1991, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991
39
Steingrímur háskólanemi, Gunnur
Sif myndlistarnemi, Sölveig Ýr
menntaskólanemi og Embla.
Yngri dóttir Sigríðar og Gunnars
er Birna Eybjörg verslunarmaður,
fædd 2. febrúar 1948,, gift Jóhann-
esi Reykdal tæknistjóra og blaða-
manni á DV; börn þeirra eru einnig
fjögur: Helga Margrét stúdent,
Sigríður María nemi, Jóhannes
menntaskólanemi og Gunnar Þór —
dóttir Sigríðar Maríu Reykdal er
Iðunn Arna Björgvinsdóttir.
Gunnar, maður Sigríðar, lést
langt fyrir aldur fram 23. nóvember
1966 aðeins 48 ára'að aldri.
A tímamótum eins og þessum er
erfitt að ákveða hvað ,sótt skuli í
sjóð minninganna og fest á blað í
stuttri grein eins og þessari. Flest
sem þar er geymt er svo persónu-
legt að það á erindi til fárra ann-
arra en hinna nánustu. Allar minn-
ingar mínar um tengdamóður mína
eru góðar. Hún var hreinskiptin,
sanngjörn og góð manneskja, ætíð
reiðubúin til þess að leysa hvern
þann vanda sem við leituðum með
til hennar. Hjálp hennar varð meiri
en ég fékk nokkurn tíma endurgold-
ið henni; hún var veitandinn en ég
þiggjandinn í öllum okkar samskipt-
um. Blessuð sé minning hennar;
megi hún hvíla í friði.
Sigurgeir Steingrímsson
Það grunaði ekkert okkar, þegar
amma Sigríður kom til okkar á
Brekkustíginn síðla sumars og
sagði okkur frá niðurstöðum rann-
sóknanna sem hún hafði farið í
gegnum á Landspítalanum, að hún
myndi ekki vera með okkur um
þessi jól.
Hún amma var í okkar huga
óijúfanlegur hluti jólanna. Fyrstu
jólin okkar voru öll haldin hjá henni
á Laugateignum og jóladagsboð-
anna þar, þar sem við komum sam-
an öll barnabörnin hennar, ásamt
foreldrum og hundum, var ávallt
beðið með óþreyju. Þó að amma
Sigríður hafi oftast á seinni árum
verið hjá okkur á aðfangadagskvöld
var jóiadagurinn alltaf hennar dag-
ur í okkar hugum. Það brást heldur
aldrei að ef við vorum ekki mætt á
slaginu fimm hringdi síminn og hún
spurði hvort við værum ekk'i að
fara að leggja af stað. En það var
líka nokkurn veginn sama hversu
tímanlega við mættum, alltaf stóð
hún amma og beið óþreyjufull á
útidyratröppunum þegar við rennd-
um í hlaðið og var öllum undirbún-
ingi þá venjulega lokið fyrir mörg-
um klukkustundum — hlaðborðið
tiibúið inni í borðstofu og ananas-
frómasinn inni í ísskáp.
Ekkert okkar er ennþá búið að
átta sig á þeirri staðreynd að hún
amma sé ekki hjá okkur lengur.
Þetta gerðist allt svo hratt. Stund-
um þegar dyrnar opnast á maður
von á því að heyra röddina tilkynria
að hún sé komin í heimsókn eins
og hún átti til að gera reglulega.
Þá var hellt upp á te og sest niður
í eldhúsinu og spjallað stundum
tímunum saman. Og það er líka
undarlegt að geta ekki heldur kom-
ið óboðað í heimsókn á Laugateig-
inn og átt eina síðdegisstund með
ömmu Sigríði. Þessara stunda
minnurnst við nú með söknuði enda
amma einhver besti vinur okkar
barnannar
Þegar við vorum yngri var það
sjaldan vandamál ef mamma og
pabbi þurftu að bregða sér út í boð
eða leikhús því að þá kom amma
oft til að passa okkur. Að maður
tali nú ekki um hvað það var alltaf
spennandi að gista hjá ömmu.
Amma hafði alltaf gaman af sömu
hlutunum og við og sérstakt dálæti
hafði hún á bíóferðum. Áður fyrr
voru það teiknimyndir í Gamla bíói
sem við fórum að sjá með ömmu
og þurfti þá sú minnsta að sitja á
handtösku ömmu til að geta fylgst
með myndinni. Þessum sið reyndum
við að halda við þó að við yrðum
eldri og ávallt var amma til í að
fara í bió eða horfa á vídeó. Nú sér
maður eftir því að hafa ekki farið
með ömmu miklu miklu oftar á bíó
enda skemmti hún sér sjaldan betur
nema þá kannski þegar hún ferðað-
ist um heiminn. Ámma hafði unun
af ferðalögum og það var ekkert
óvenjulegt að fá póstkort frá henni
póstlagt í Miami eða París.
Þótt hún amma hafi þrátt fyrir
allt verið töluvert mörgum árum
eldri en við krakkarnir urðum við
sjaldan vör við neitt „kynslóðabil"
á milli okkar. Það gætu flestir ungl-
ingar verið stoltir af því að vera
eins ungir í anda og amma var. Það
hætti aldrei að koma okkur á óvart
hversu mikill prakkari hún gat
stundum verið. Hún tók líka af lífi
og sál þátt í öllu sem barnabörnin
gerðu og var ávallt innan handar.
Hvort sem það var að senda okkur
páskaegg á páskunum þegar við
vorum búsett í Uppsölum eða þá
að aðstoða Gunni og vinkonu henn-
ar við að fá sumarvinnu úti í Þýska-
landi að loknu stúdentsprófi.
Þær verða ekki fleiri stundirnar
sem við eigum með ömmu Sigríði
en hún mun ávallt eiga sinn vísa
stað í hjörtum okkar systkinanna.
Guð blessi minningu hennar.
Steingrímur, Gunnur Sif,
Solveig Ýr, Embla.
Fyrir um þremur áratugum hóf
Sigríður Einarsdóttir, er í dag er
kvödd, störf hjá Ferðaskrifstofu
ríkisins og vann eftir það ávallt í
tengslum við ferðamál.
Fyrsti starfsvettvangurinn var
Baðstofan, minjagripaverslun
ferðaskrifstofunnar, þar sem hún
auk afgreiðslustarfa hafði með
höndum innkaup á minjagripum og
umsjón með verzluninni á Keflavík-
urflugvelli. Þegar þeim rekstri var
hætt, tók Sigríður að sér almenn
skrifstofustörf hjá ferðasknfstof-
unni, en er Ferðamálaráð íslands
tók til starfa varð Sigríður meðal
fyrstu starfsmanna þess. Hjá
Ferðamálaráði vann hún síðan allt
fram á síðasta ár.
Sigríður Einarsdót'tir naut ætíð
fyllsta trausts yfirboðara sinna sak-
ir mannkosta, ástundunar og sam-
viskusemi í starfi. En við sem lengst
störfuðum með Sigríði kveðjum
fyrst og fremst góðan og einlægan
vin, vin sem ávallt var reiðubúinn
að deila með okkur sorgum jafnt
sem gleði. Bjartsýni hennal’ og já-
kvætt viðhorf til manna og málefna
var óbilandi. Hjálpaði það henni,
jafnt sem hún okkur, að takast á
við margan vanda. Við sendum
dætrum hennar, Helgu og Birnu,
og íjölskyldum þeirra innilegar
samúðarkveðjur.
Samstarfsfólk
Sérskólanem atliugið!
Stjóro BÍSN vill minna á jólaballið, sem hald-
ið verður laugardaginn 05.01.1991 kl. 15.00
í Hreyfilshúsinu, 3. hæð, Grensásvegi.
Ókeypis aðgangur fyrir alla BÍSN félaga og
börn þeirra.
Jólasveinar mæta á staðinn og allir fá óvænt-
an glaðning.
ÁW-3/IA/ Með jóla- og nýárskveðju,
▲▼▲▼▲▼ BANDALAG ÍSŒNSKRA SÉRSKÖLAN EMA
NÚTÍÐ - Faxafeni 14 -108 Reykjavík
Símar 687480 og 687580
Okkardansar
eru spennandi
Það
sem við
kennum
ívetur:
★ JAZZLEIKSKÓUNN
Spennandi leikdansarfyriryngstu börn-
in.
★ JAZZDANS-
DISCOJAZZ - FREESTYLE
Fyrir alla krakka við öll nýjustu lögin.
★ STEP Fyrir stelpurog stráka,
unga jafnt sem gamla. Ægilega gaman.
★ SAMKVÆMISDANSAR
Fyriralla, börn, unglinga, ungtfólkog
fullorðna.
Merkjapróf, BRONS - SILFUR - GULL.
Þjálfun fyrir danskeppnir vetrarins.
Hagnýta heimskerfið fyrir fullorðna.
Smáhópar og starfsmannahópar.
★ BARNADANSAR
Undirstaða fyrir allan samkvæmisdans.
Hringdansarog sungið með. Gamlirog
splunkunýirdansar.
★ NÝTT, NÝTT
Suður-amerískir dansar eins og SALSA
- MAMBÓ - SOCA - BOGGIE - ROCK.
Tímarsem enginn, erfylgist með, má
missa af
★ GÖMLU DANSARNIR Sér
flokkar, Ræll, polki, vínikrus, skottish,
masúrka, skoski dansinn o.fl. o.fl.
★ ROCK’N ROLL
Sérflokkar.
DANSINN ER ÓDÝRASTA TÓMSTUNDA-
GAMANIÐ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Endurnýjun skírteina hefst í dag fyrir þá nemendur sem voru fyrir jól.
Innritun nýrra nemenda stendur yfir og eru flokkar fyrir byrjendur og
framhald (lengra komna) á öllum aldri, börn, unglinga og fullorðna.
Innritun daglega frá kl. 13.00-19.00 í símum 68-74-80 og 68-75-80.
Kennsla hefst þriðjudaginn 8. janúar 1991.
Hittumst hress ogkát á nýju ári
Þad geta allirlcert ad dansa - dansinn lengirlífiö