Morgunblaðið - 03.01.1991, Page 44

Morgunblaðið - 03.01.1991, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANUAR 1991 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Hrúturinn blandar farsællega saman leik og starfi núna. í dag nýtur hann yndis af að fást við hugðarefni sin. Naut (20. apríl - 20. maí) Iffö Ferðalög og rómantík fara vel saman hjá nautinu í dag. Það kann að lenda upp á kant við ættingja sinn, en ætti að láta rökhyggjuna ráða ferðinni fremur en reiðina. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 4» Persónutöfrar tvíburans eru óvenjumiklir í dag, en þó er ýmislegt sem getur farið í taug- amar á honum. Hvernig væri að hann ræddi af hreinskilni við ástvini sína? * Krabbi (21. júní - 22. júlí) Krabbinn er ákaflega vel vinnu- fær núna. Hann kann að upplifa rómantík í dag, en honum sinnast við einhvern í kvöld út af peningamálum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ljónið ætti að varast að láta sömu gömlu lummuna einlægt valda sundurlyndi miili sín og ættingjanna. Því gengur vel í viðskiptum í dag. Meyja (23. ágúst - 22. september) <T.J Rómantíkin ætti að vera efst á blaði hjá meyjunni núna. Ein- hver þeirra sem hún á skipti við er þverúðarfullur. Hún ræðir einslega við einhvem í fjölskyld- unni. Vog (23. sept. - 22. október) Vogin býður tii sín gestum og kemst að samkomulagi við vin sinn í dag. Hún ætti að fara varlega með krítarkortið sitt núna. - Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) ^jjj0 Sporðdrekinn er á sömu bylgju- lengd og félagi hans. Hann ætti að leyfa rómantíkinni að komast að núna. Viljastyrkur hans er í veikara lagi. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Þetta verður góður fjárafladag- ur hjá bogmanninum: Hann sækir menningarviðburð seinni hluta dagsins, en ákveður einum of fljótt að hætta við verkefni sem hann hefur með höndum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það er rómantískt og skemmti- legt í kringum steingeitina núna. Hún ætti ekki að láta einn vina sinna koma sér úr jafn- vægi. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Vatnsberinn á indælan tíma með ástvinum sínum núna. Hann ætti að hafa taumhald á skapsmunum sínum þegar hann tekur þátt í hópstarfi i kvöld. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Fiskurinn tekur mikinn þátt í félagslífi núna. Hann ætti að láta skynsemina ráða ferðinni þegar hann stendur í viðskipt- um. Stj'órnusþána á aó lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vt'sindalegra stadreynda. DÝRAGLENS GRETTIR TOMMI OG JENNI LJÓSKA FERDINAND SMÁFÓLK BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Eftir opnun vesturs á einum tígli er borin von að svíningam- ar í tígli og spaða heppnist. En þá er að leita annarra úrræða. Vestur gefur; NS á hættu. Norður ♦ 9643 V K985 ♦ 63 + ÁDG Suður ♦ ÁD82 V ÁD107642 ♦ ÁD + - Vestur Norður Austur Suður 1 tígull Pass Pass Dobl Pass 2 tíglar Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass Útspil: Hjartagosi. Hvernig er best að spila? Auðvitað kemur til greina að reyna að fella spaðakónginn annan í vestur. En hugsanlega er hægt að fría spaðann á annan hátt. Sagnhafi tekur fyrsta slaginn á hjartakóng blinds, hendir spaða niður í laufás og aftur spaða í laufdrottningu: Vestur Norður ♦ 9643 ♦ K985 ♦ 63 ♦ ÁDG Austur ♦ KG5 ♦ 107 y g ¥3 ♦ KG10872 ♦ 954 ♦ K108 ♦ 9765432 Suður ♦ ÁD82 ♦ ÁD107642 ♦ ÁD *- Vestur tekur slaginn á lauf- kóng og gerir ekki betra en spila laufí. Spaðadrottningin fer þá niður og síðan er hægt að nota innkomumar á tromp til að fría spaðaslag. Tígulsvíningin verður þá óþörf. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á ólympíumótinu í Novi Sad um daginn kom þessi staða upp í skák finnska stórmeistarans Yijö Rantanen (2.420) og kínverska alþjóðameistarans Wang Zili (2.520), sem hafði svart og átti leik. 30. - Rg4+!, 31. Dxg4 (Hvítur varð að sleppa valdi á hróknum á d2, því 31. hxg4 - Dh4+, 32. Kgl - Hel+ var vonlaust með öllu) 31. — Dxd2 Með skiptamun yfir þvingaði svartur fram vinning í nokkrum leikjum: 32. Rxd5 - Dg5, 33. Df3 - Dd8, 34. f6 - Dd6+, 35. Kgl - Hd8, 36. Re7+ - Kh7 og hvítur gafst upp. Kínveijar tefldu við Finna í næstsíðustu umferðinni og unnu þá 3-1 og í síðustu umferð settu þeir stórt strik í reikninginn í topp- baráttunni, unnu Júgóslava 2'A-l'A og náðu þeim þar með að vinningum, heimamönnum til sárrar skapraunar. V

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.