Morgunblaðið - 06.01.1991, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1991
G 5
Sjávarháska varð að setja af stað
í hreinu blíðviðri.
kvæmir fyrir því hvernig þeir eru
myndaðir. Andlitin eru þeirra at-
vinnutæki, framar öllu öðru.
Anna lék príorinnu í nunnu-
klaustri, og voru atriðin tekin í eink-
ar vel varðveittum kastala í Suður-
Wales. Sagnfræðilega séð var það
kannski ekki alveg hárrétt bygging,
en hún var dramatískt rétt og þjón-
aði myndinni ljómandi vel. Hér tók-
um við nokkur þeirra atriða sem
mér fannst meðal þeirra veikari í
handriti. Ég lagði áherslu á tilfinn-
ingasamböndin á milli persónanna,
og leikararnir ungu túlkuðu af
næmni og þroska. Þegar upp var
staðið fékk ég þarna nokkur þeirra
atriða sem ég varð hvað ánægðast-
ur með.
I Hleiðru
Upptökum lauk í Danmörku,
nánar tiltekið í fornmannaþorpinu
Lejre, sem er í nokkurra kílómetra
fjarlægð frá Hróarskeldu. Þar
komst ég í kynni við hóp fólks sem
gjarnan klæðist fornmannafötum
og lætur sem það búi í þorpinu.
Ennfremur kemur fyrir að karl-
mennirnir vígbúist, auk þess sem
þeir eiga margir íslenska hesta og
ríða eins og hetjur um héruð og
láta ófriðlega. Þetta henti okkur
ágætlega. Við fengum þarna í ein-
um pakka þorp og þorpsbúa, kvikfé
og vopn, ásamt vænum skammti
af ribbaldahætti.
Þegar samið var við forsvars-
í mynd Dreyer um Geirþruði.
hljóma ævinlega eins og mikil tíð-
indi séu að gerast hjá viðmæland-
anum. Allan tímann gekk skipið upp
og niður og hvarf jafnvel alveg í
ölduganginum. Strandgæslunni var
gert viðvart og á fimm mínútum
var hraðbátur tilbúinn að leggja út
í brimgarðinn til bjargar írskum
víkingum.
Þetta þótti formanni þeirra ill
tíðindi og vildi alls ekki láta bjarga
sér, sagði eldinn smámál sem þeir
væru að kippa í liðinn. Sjálfur vildi
ég síst af öllu fá strandgæsluna að
ástæðulausu út í brimgarðinn, þar
sem það hefði eyðilagt þetta stórdr-
amatíska myndefni - og formann-
inum treysti ég fullkomlega til þess
að taka ekki óþarfa áhættu. Annar
aðstoðarleikstjóri þurfti mikið að
jagast í áfjáðum björgunarmönnum,
vegna þess að hafi þeir verið til
kallaðir, ber þeim að kynna sér
málið hið fyrsta og láta ekkert aftra
sér.
Með semingi hélt strandgæslan
sig rétt utan myndrammans og allt
náðist_ á filmu sem við sóttumst
eftir. írar voru hinir hressustu er
þeir náðu landi, þótt nokkuð þrek-
aðir væru. Sá slasaði hafði meitt
sig á fæti, en ekki reyndist um
brot að ræða.
Bardagar
Eftir að írar höfðu siglt sinn sjó
var röðin komin að stríðsglöðum
Dönum. í mikilvægu bardagaatriði
koma bræður tveir til sögu, en svo
heppilega vill til að bestu áhættu-
leikarar Danmerkur eru einmitt
bræður sem bæði hafa stundað
kvikmyndaleik auk þess sem mér
fannst þeir hafa nákvæmlega rétta
útlitið í hlutverkin. Nú fór í hönd
annasamt tímabil fyrir aðalleikar-
ana okkar sem þurftu að leggja á
sig erfiðar bardagaæfingar á kvöld-
in eftir að löngum vinnudegi lauk
fyrir framan myndavélina. Næstu
tveir sunnudagar fóru sömuleiðis í
slagsmál og skilmingar.
Stærsta bardagaatriðið vartekið
upp á bökkum ár einnar í Suður-
Wales. Þarna tók ég fleiri mynd-
skeið á einum degi en ég hef nokkru
sinni áður gert: fimmtíu talsins. Til
allrar lukku hélst ljósið nokkuð
stöðugt allan daginn, svo að ekki
reyndist nauðsynlegt að fara út í
flókna og tímafreka lýsingu.
Gengdarlausar kvöld- og helgaræf-
ingar komu að góðum notum.
Þegar tók að skyggja áttum við
enn eftir slagsmál við foss einn í
ánni. Ég vildi ekki eiga það á hættu
að þurfa að halda áfram með atrið-
ið á öðrum degi, fækkaði því pústr-
um og flýtti þannig fyrir endalokun-
um. Eftir hálftíma var komin öðru-
vísi endaslaufa á atriðið en getið
er um í handriti - raunar betri að
því er mér fannst nokkrum dögum
síðar, þegar klipparinn hafði sett
atriðið saman.
Kristið fólk
Ur bardögum fórum við Lkristin-
dóminn. Þá kom til sögunnar leik-
kona að nafni Anna Massey sem
líklega er þekktust leikara í mynd-
inni. Fyrst man ég eftir henni í
Frenzy eftir Hitchcock, þar sem hún
lék eitt fórnarlambið, en síðan hefur
hún leikið í fjölmörgum kvikmynd-
um og mjög komið fram í sjónvarpi
síðustu árin. Til dæmis var hún
einkar eftirminnileg í Hotel du Lac,
sem sýnt var hér í Sjónvarpinu
ekki alls fyrir löngu. Faðir hennar
var þekktur leikari í Hollywood,
Raymond Massey, lék meðal annars
föður James Dean í East of Eden,
ennfremur yfirlækninn í Doctor
Kildare. Bróður á hún, Daniel, sem
einnig er vel kunnur stéttarbróðir.
Anna er nokkuð sérstök útlits,
með hvasst nef og þunnar varir,
og kann vel að notfæra sér útlitið
í leik sínum. í einu atriðinu vildi
ég taka nærmynd
af henni með
gleiðlinsu, sem á Aldinn íri í stól
það til að fletja
fólk út og afmynda lítillega. Ég
sagði henni frá þessari fyrirætlun
minni, vegna þess að það er ekki
hægt að smygla tökuvélinni undir
nasavænginn á svona vönum leikur-
um án þess að þeir taki eftir því.
Henni fannst varla orð á þessu
gerandi, þótt ég merkti það líka á
henni að-henni þætti gott að ég
orðaði það við sig fyrst. Mér finnst
reyndar eðlilegt að leikarar séu við-
stýrimannsins.
menn hópsins var eina misklíðar-
efnið spurningin um það hvort veita
ætti bjór með hádegisverðinum eður
ei. Bretarnir drukku aldrei í hádeg-
inu, en Danirnir fengu ekki séð
hvernig þeir kæmu niður frikadell-
unum án öls. Á endanum lét ég
undan og samþykkti bjórdrykkjuna,
enda fyrirsjáanlegt að annars
mundi enginn vígbúast né stíga á
bak íslenskum gæðingi.
Minnisstæðasta atriðið frá Dan-
mörku var bálför höfðingja þorps-
ins. Hún var tekin í ljósaskiptunum,
sem þýddi að við þurftum að vinna
afar hratt. Ljósamannaliðið hljóp
til og frá með lampana hraðar en
nokkru sinni fyrr, á meðan leik-
myndaliðið hélt eldinum í bálkestin-
um við með bensíni. Með kvöldinu
fór að kula svo að fornmenn tóku
að skjálfa lítillega, einkum konur
og börn, þó að hetjurnar bæru sig
mannalega. Tunglið kom upp og
við reyndum að síðustu að blanda
því inn í atburðarásina með ríðandi
stríðsmenn í forgrunni, en þá var
orðið of dimmt.
Ég man enn eftir þreytunni í lík-
amanum þegar ég settist inn í bíl-
inn og horfði á aðstoðarmenn mína
taka saman þetta kvöld. Þetta hafði
verið mikil törn á stuttum tíma og
fimm vikna ofkeyrsla var farin að
segja til sín. Ég hugsaði með sjálf-
um mér: Nú get ég ekki meir.
Tívolí
Tívolí gegnir mikilvægu hlutverki
í ferli mínum. Þar endaði Með allt
á hreinu og þar endaði Sædrekinn
með vissum hætti líka vegna þess
að þar fór lokahófið fram. Tekin
var á leigu rúta sem ók með okkur
frá hóteli okkar í Hróarskeldu og
inn í Kaupmannahöfn. Ég komst
þó ekki alveg strax í veisluna því
að fyrst þurfti ég að stjórna hljóð-
upptökum á nokkrum setningum
frá dönsku leikurunum. Þeirri nýst-
árlegu aðferð var beitt að nota rút-
una sem hljóðver,'en fyrst þurftum
við að aka svolítið
um til að finna sæm-
ilega hljóðláta hlið-
argötu. Við höfnuð-
um á Vesturbrú rétt
við Istedgade þar
sem allar dónabúð-
irnar eru. Á meðan
víkingar létu kald-
hömruð orð falla í
rútunni tipluðu
vændiskonur um
fyrir utan ásamt
viðskiptavinum sín-
um.
Upp úr því hætti
heili minn að starfa
með eðlilegum
hætti, enda engin
þörf á iengur. Ég
hélt stystu og
ómerkilegustu loka-
hófsræðu mína til þessa og síðan
stormaði liðið í rússíbanann, fljúg-
andi teppið og önnur skemmtitól.
Kvöldið kórónaðist með flugelda-
sýningu, rétt eins og í lokaskoti
söngleiksins Með allt á hreinu, en
þessi flugeldasýning var okkur
Sædrekafólki til sérstakrar ánægju
vegna þess að við þekktuip þá sem
stóðu að henni. Þeir höfðu útvegað
okkur blysin í bálförina.
ALMENNAR KAUPLEIGUÍBÚÐIR
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur óskar eftir umsóknum um 10 almennar kaupleiguíbúðir.
íbúðir þessar eru tveggja herbergja íbúðir í nýbyggingu við Ásholt, Laugaveg, byggðar
af Ármannsfelli hf. íbúðunum fylgir bílskýli.
Um úthlutun íbúðanna gilda eftirfarandi reglur:
a) Umsækjandi skal hafa haft lögheimili í Reykjavík a.m.k. frá 1. des. 1989.
b) Umsækjandi skal hafa hærri tekjur en viðmiðunartekjur samkv. 80. gr. laga nr.
86/1988 með áorðnum breytingum.
c) Umsækjandi má ekki eiga íbúð fyrir eða samsvarandi eign í öðru formi.
d) Við úthlutun verður tekið tillit til fjölskyldustærðar og húsnæðisaðstæðna umsækjanda.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu húsnæðisnefndar, Suðurlandsbraut 30, og
verða þar veittar allar almennar upplýsingar.
Umsóknarfrestur rennur út 21. jan. nk.
Orðsending frá Húsnæðisnefnd
Auglýst verður eftir umsóknum um félagslegar eignaríbúðir (verkamannabústaði) um
miðjan jan. nk.