Morgunblaðið - 06.01.1991, Blaðsíða 6
6‘
MORGUNÖLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1991
eftir Rúnar Helga Vignisson
„ÞU ERT að veróa frægur fyrir bók sem
enginn getur lesið,“ segir samkennari
Tapio Koivukari þegar útsendara Morg-
unblaósins ber að garði. Tapio, hár og
grannur maður um þrítugt, afskaplega
finnskur í útliti eins og hann segir sjálf-
ur, brosir í Ijóst skeggið. Segir svo með
finnskum hreimi: „Svona væri þetta í Finn-
landi líka, Finnar eru líka smáþjóð og
eru ákaflega spenntir að vita hvað út-
lendingar skrifa um þá.“ Hann talar
hægt og skýrt og hefur ótrúlegan orðaf-
orða þótt hann hafi einungis dvalið inn-
an við ár á Islandi. Onnur skáldsaga
hans, Oðinnin Korppieóa Hrafn Oðins,
er nýkomin út í Finnlandi. Hún gerist öll
á Islandi, aðallega á Eyrareyri við
Sporðsfjörð!
/
Eg spyr Tapio fyrst þeirrar óskáldlegu
spurningar hvort hann sé nokkuð
skyldur Tapio-stígvélunum frá Nok-
ia. Hann lætur ekki slá sig út af
laginu og svarar á skáldlegan hátt
að þessi stígvél séu ætluð til skógar-
göngu; Tapio þýði skógarandi. Síðan
hefjum við göngu okkar um skóg-
arstíga Tapio Koivukari, guðfræð-
ings og rithöfundar frá bænum
Rauma skammt norðan við Turku.
Hann hefur ekki gengið einföldustu
leiðina gegnum skóginn, skógarand-
inn hefur leitt hann um tiltölulega
ótroðnar slóðir sé tekið mið af
fínnskum meðaljónum. Núna býr
hann á ísafirði og kennir smíðar og
. kristinfræði við grunnskólann.
Samuræjar skerjagarðsins
Rauma, heimabær Tapios, er 30
þúsund manna iðnaðar- og hafnar-
bær 100 km fyrir norðan Turku á
vesturströnd Finnlands. Þaðan er
mikil kaupskipaútgerð og faðir Tapi-
os var farmaður um skeið. Rauma
var að sögn Tapios mesti útgerðar-
, staður Finnlands skömmu fyrir
síðustu aldamót. En þótt sumir
skólabræðra Tapios hafi farið til sjós
ákvað hann að ganga á drottins
vegum; hann hélt til Helsinki og
lagði þar stund á guðfræði, útskrif-
aðist 1987.
„Ég fór í guðfræði af því mig
langaði að velta því fyrir mér hvað
fælist í því að vera maður í heimin-
um,“ segir Tapio og kveðst á tíma-
bili hafa séð eftir að hafa farið í
guðfræði. „Ég gat vel hugsað mér
að verða prestur, en ennþá hef ég
þó ekki starfað sem slíkur. Ég vildi
fyrst prófa að kenna. Þegar ég byij-
aði að skrifa sá ég að það yrði of
krefjandi að reyna fyrir sér sem
prestur og rithöfundur samtímis. Ég
ákvað því að byrja á skriftunum;
seinna get ég kannski sameinað
guðfræðina og skriftimar. Sem
stendur hef ég meiri áhuga á skrift-
- unum, þó mér finnist hausinn á mér
reyndar alveg tómur núna.“
FINNSKIGUÐFRÆÐINGURINN
TAPIO KOIVUKARI
GAF NÝLEGA ÚT í HEIMALANDISÍNU SKÁLDSÖGU
SEM GERIST Á ÍSLANDI