Morgunblaðið - 06.01.1991, Blaðsíða 8
8-C
MORGUNBLAÐIÐ
MANNLÍFSSTRAUMAR sunnudagur 6. janúar 1991
SKÓLAMAL/£r lýörœbiö í hœttu — Hafa skölamir brugöist?
Lýðræði — sögukennsla
AÐ UNDANFÖRNU hefur mik-
ið verið rætt og ritað um Iýð-
ræði og hvort almenningur og
jafnvel stjórnmálamenn væru
nógu vel að sér í grundvallar-
reglum þess. Sé lögum um
grunnskóla og aðalnámskrá
flett þarf ekki að ganga graf-
götur um að þar er lögð þung
áhersla á að kennd séu undir-
stöðuatriði lýðræðis og mann-
réttinda.
A
12. gr. segir að hlutverk grunn-
skólans sé „að búa nemendur
undir líf og starf í lýðræðisþjóðfé-
lagi“ og starfshættir skólans eigi
m.a. að mótast af lýðræðislegu
samstarfi.
Til að átta okk-
ur betur á til
hvers er ætlast í
þessum efnum,
hvernig á að
glæða skilning
nemenda á hvað
felst í hugtakinu
lýðræði, svo það
verði ekki í þeirra
hugum innantómur 17. júní, skul-
um við grípa niður í námsskrána.
Þar segir m.a. „Grundvöllur lýð-
ræðisþjóðfélags er að fólk sé fært
um að taka ákvarðanir bæði í eink-
amálum og í málum sem varða
almenningshag.“
Ennfremur: „Stefnt er að því
að nemendur öðlist þekkingu á: ...
íslensku samfélagi, helstu
stofnunum þess, réttindum og
skyldum íbúanna og grundvallar-
reglum stjórnarfars.“
Og enn: „Stefnt er að því að
nemendur: ... meti og virði lýð-
ræðisleg vinnubrögð og stjórnar-
hætti.“
„Stefnt er að því að nemendur
öðlist leikni í að: ... greina aðalat-
riði frá aukaatriðum og skoðanir
frá staðreyndum.“
Einnig er sagt í skilgreiningu
námsgreinarinnar mannkyns-
sögu): „Fortíð varpar ljósi á nútíð
og framtíð.“
I kaflanum um félagsfræði-
kennslu segir: „Stefnt skal að því
að efla kunnáttu og skilning nem-
enda — á íslensku nútímasamfé-
lagi, mótun þess og einkennum; á
sjálfum sér sem einstaklingum og
þegnum í þessu samfélagi.“
Um viðfangsefni í 10. bekk seg-
ir: „Fylgst með fréttum og leitast
við að skýra þær. Fjallað um ís-
lenska lýðveldið í samtíð og fram-
tíð, viðhorf og vanda, stjómmál
og stjórnmálaflokka." Loks er lögð
áhersla á að vekja áhuga nemenda
með krefjandi spurningum.
Framangreind atriði sýna ljóslega
að til mikils er ætlast. Umfjöllunin
hlýtur að verða hápólitísk — í
fræðilegri merkingu. Stefnt skal
að því að þroska stjómmálahugsun
ungs fólks. Verkið er bráðeldfimt
og krefst ofurmannlegra hæfileika
kennara í siglingalist um mjósyndi
hlutleysisins.
Við skulum íhuga hvaða leið
sögukennari gæti hugsanlega far-
ið til að nálgast verkefnið. Hann
gæti skýrt fyrir nemendum að
maðurinn sé eina lífveran á jörð-
unni sem getur fræðst um það sem
gengnar kynslóðir hafa reynt og
ætti því að geta lært af reynsl-
unni — sigrum og mistökum for-
feðranna.
Honum bæri að útskýra muninn
á fulltrúalýðræði, sem við búum
við nú, og t.d. beinu lýðræði í
Aþenu til forna og þeirri hættu
sem lýðræðinu var þá talin stafa
af lýðskrumurum og hentistefnu-
mönnum. Við hæfi væri að skoða
hvemig þjóðveldi okkar íslendinga
eftir Gylfa
Pálsson
VÍSINDI/Vvr aldrei sprenging?
Enn deilt um upp-
hafalheimsins
STEFNUR OG tískur, ismai? og straumar viðgangast í vísindum
eins og nánast á öllúm sviðum mannlegs starfs og hátternis. Flest-
ir vísindamenn munu sjálfsagt fullyrða að þeir hafi komist að
þessu eða hinu eða hallist að einu eða öðru eftir að hafa velt
máliriu fyrir sér á vísindalegan hátt. Engu að síður getur enginn
komist undan þeim áhrifum sem skoðanir meirihlutans hafa, þó
ekki sé nema í vali á viðfangsefni.
Eitt af því sem ekki ætti að
koma fyrir í vísindum er að
sannleikurinn sé ákveðinn með
handauppréttingum og að þar á
eftir gæti einungis áhrifa meiri-
hlutans. í við-
leitni sinni til að
draga úr áhrifum
jafn „lýðræð-
islegra“ starfs-
hátta hefur rit-
stjóri vísinda-
tímaritsins Nat-
ure innleitt nýjan
dálk í tímaritinu
sem hann nefnir „hypothesis". Á
þessum vettvangi er vísindamönn-
um gefinn kostur á að koma hug-
myndum sínum á framfæri sem eru
þess eðlis að önnur tímarit sjá sér
ekki fært að birta þær. Að sjálf-
sögðu verða greinarnar að uppfylla
ákveðin skilyrði og vera taldar
nægjanlega áhugaverðar fyrir góð-
an fjölda lesenda.
Það var vel við hæfí að fyrsta
greinin skyldi vera eftir stjarneðl-
isfræðingana H.C. Arp, C.
Burbidge, F. Hoyle, J.V. Narlikar
og N.C. Wickramasinghe. Þessir
fræðimenn hafa um nokkurra ára-
tuga skeið barist, með litlum ár-
angri, gegn frumsprengjukenning-
unni og í staðinn haldið fram svo-
kallaðri jafnstöðukenningu sem
þróuð var af Fred Hoyle og Thom-
as Gold fyrir rúmum 40 árum. Jafn-
stöðukenningin gerir ráð fyrir því
að alheimurinn hafí ætíð verið í
sama ástandi og hann er í dag.
Þeir telja að stöðug myndun efnis
haldi efnisþéttleika alheimsins
stöðugum þrátt fyrir stöðuga út-
þenslu. Þetta gerist með miklum
fjölda lítilla „poppkorn-spreng-
inga“ sem eiga sér stað hér og þar
í alheimsrúminu.
Frumsprengjukenningin er ein
af áhrifatnestu kenningum nútíma
raunyísin'da og sú sem líklega er
þekktust á meðal almennings.
Fyrstu drög að kenningunni voru
lögð af rússnesk-bandaríska eðlis-
fræðingnum (og húmoristanum)
George Gamow á fjórða áratugn-
um. Kjami kenningarinnar er að
alheimurinn hafi ekki alltaf verið
til heldur reki upphaf sitt til frum-
sprengingar sem átti sér stað fyrir
10—15 þúsund milljón árum. í
augnabliki sprengingarinnar var
öllu efni og orku alheimsins sam-
anþjappað í einn punkt sem nefnist
einstak.
Síðan frumsprengingin átti sér
stað hefur alheimurinn stöðugt
verið að þenjast út og fjarlægjast
vetrarbrautimar hver aðra með
hraða sem er í réttu hlutfalli við
fjarlægðina á milli þeirra. Á und-
anfömum ámm hafa margar upp-
götvanir staðfest .þessa mynd af
alheiminum, en mest munaði þó
um uppgötvun bakgrunnsgeislun-
arinnar svokölluðu árið 1965, en
frumsprengjukenningin hafði ein-
mitt sagt fyrir um tilvist hennar.
Þetta er samlei t geislasvið, 2,7
gráður yfir alki íi, sem fyllir allt
alheimsrúmið. Þetta em geislaleif-
ar þess eldhnoðra sem brann í
frumsprengingunni miklu.
Engu að síður hafa áðurnefndir
fimmmenningar aldrei getað sætt
sig við framsprengjukenninguna
og hafa stöðugt, af öllum mætti,
reynt að grafa undan stoðum henn-
ar með því að benda á mögulega
erfiðleika hennar. Nýjasta tilraun
þeirra varðar kvasa og óvissuna
um eðli þeirra.
Talið er að kvasar séu fjarlæg-
ustu ij< sgjafar alheimsrúmsins.
Ljósstvj ,[ur kvasa er gífurlegur,
iðuiega mörg hundmð sinnum
mciri en ljósstyrkur heilla vetrar-
brauta og talið er að sumir þeirra
fjarlægjist vetrarbrautina okkar
með hraða seni nemur meir en 93%
af ljóshraðanum! Þessar upplýsing-
eftir Sverri
Ólafsson
Kvasar eru vissulega Ijós-
sterkir — en hversu langt í burtu
em þeir?
ar fást með athugunum á litrófi
kvasa, en þættir þess hafa mikla
hliðrun til lengri bylgjulengda (fýr-
irbæri sem nefnist rauðvik). Sam-
kvæmt framsprengjukenningunni
bendir þetta eindregið til þess að
kvasarnir séu í mikilli fjariægð.
Margir stjarnfræðingar hafa
ekki verið ánægðir með þessa túlk-
un á kvösum og leitað eftir öðram
skýringum á eiginleikum þeirra. Á
undanförnum 20 áram hefur Arp
leitað eftir rökum og sönnunar-
gögnum fýrir því að kvasar séu
ekki jafn langt í burtu og talið er
og að rauðvikið komi til af öðrum
„nærtækari“ ástæðum. Sterkustu
málsgögn sem Arp hefur hingað
til lagt fram varða einn eða fleiri
kvasa sem virðast vera í tengslum
við vetrarbrautir sem era ekki mjög
langt í burtu og kvasa sem hafa
mismunandi rauðvik en senda frá
sér samtvinnað litróf. Annað sem
Arp nefnir varðar þyrpingu kvasa
umhverfís vetrarbrautir svo og vís-
bendingar um efnisflæði sem virð-
ist eiga sér stað á milli kvasa og
vetrarbrauta.
Vandamálið er að á meðan óháð-
ar fjarlægðarmælingar eru ekki
fyrir hendi er útilokað að segja
fyrir um það hvort kvasar, sem
virðast nálægt ákveðnum vetrar-
brautum, era í raun nálægt þeim
eða hvort um er að ræða tilviljunar-
kennda samstöðu. Fjarlægðarmæl-
ingar era á meðal erfiðustu mæl-
inga nútíma stjamfræði og því er
óvíst að úrskurður fáist í málinu á
næstunni. En þegar úrskurðurinn
fæst gæti hann dæmt frum-
sprengjukenninguna úr leik, eða
það sem líklegra er bætt enn einni
stoðinni í tignarlega byggingu
hennar. A.m.k. fimm menn leggja
hart að sér við lausn þessa vanda-
máls.
Hlutverk skóla er að búa nem-
endur undir líf og starf í lýðræð-
isþjóðfélagi.
molaðist m.a. vegna skorts á
ábyrgu framkvæmdavaldi og
hvernig flokkadrættir urðu til þess
að hagsmunahópar, eins og þeir
myndu nefndir í dag, tóku sér
vald og beittu því sér í hag án
tillits til viðurkenndra leikreglna.
En hveijar eru leikreglurnar,
hornsteinar lýðræðis?
í frönsku stjórnarbyltingunni
voru svokölluð mannréttindi sett á
oddinn. Trú- og tjáningarfrelsi,
réttur til að fylgja skoðunum sín-
um eftir og síðast en ekki síst jafn-
rétti gagnvart lögunum.
Hvemig hafa menn reynt að
tryggja þessi réttindi?
Beinast liggur við að vitna til þrí-
skiptingar valdsins, þeirra stofn-
ana sem fara með löggjafarvald,
framkvæmdavald og dómsvald/
Einkanlega þótti varhugavert ef
fulltrúar framkvæmdavalds
hlutuðust til um málefni hinna
valdsviðanna. Sagan sýnir að slíkt
hefur leitt til harðstjórnar annað
hvort einstaklings og hirðar hans,
flokks eða stétta og er þá her og
svokölluð lögregla jafnan á
næsta leiti.
Þá hlýtur að verða að gera nem-
endum ljóst að hér á landi er for-
setinn þjóðkjörinn. Honum er, auk
þess að vera sameiningartákn,
ætlað að gæta hagsmuna þegn-
anna fari ríkisstjórnir offari að
hans dómi. Þá getur hann sagt
hingað og ekki lengra, neitað að
undirrita lög og hindrað að ólög
nái fram að ganga.
Þá má ekki láta undir höfuð
leggjast að kenna væntanlegum
kjósendum að þingræði er eins
konar öryggisloki í stjórnmálum
lýðvelda. Meginreglan er þessi:
Áð baki ríkisstjórn skal vera þing-
meirihluti svo að tryggt sé eftir
því sem hægt er, að sjónarmið
meiri hluta kjósenda séu höfð í
heiðri. Gliðni þingstuðningurinn á
kjörtímabilinu ber ríkisstjórn að
segja af sér og hreinlegast er að
efnt sé til kosninga svo að kjósend-
ur fái tækifæri til að sýna hug
sinn á ný.
Sýna ber fram á að stjórnmála-
menn í lýðræðisríki komast ekki
upp með að stjórna eftir óreglunni
„tilgangurinri helgar verknaðinn“.
Stjórnarskráin kveður á um hvem-
ig stjórna skuli. Leiki t.d. vafi á
trúnaði ráðherra við þessi grund-
vallarlög hlýtur hann að glata
trausti þegna sem kunna leikregl-
ur lýðræðis og er því ekki fulltrúi
þeirra lengur.
Af öllu þessu má ráða að kosninga-
rréttur er einhver mikilvægasti
réttur einstaklings — ekki aðeins
fyrir hann sjálfan heldur fyrir lýð-
ræðið í landinu og framkvæmd
þess. Það er, skv. lögum og verk-
lýsingu, hlutverk skólanna að upp-
lýsa væntanlega kjósendur hveijar
eru skyldur þeirra og réttindi sem
virkra þegna í lýðræðisríki og það
er ætlast til þess að þeir geri það
undanbragðalaust.
VETRARTILBOÐ
Gisting, 3 réttaður kvöldverður,
morgunverður og akstur upp á flugvöll.
Geymsla á bílnum í upphitaðri
og vaktaðri bílageymslu.
Allt þetta fyrir 4.500,- kr. á mann
(m.v. 2ja manna herb.).
Hjá okkur fá ferðamenn
fyrsta flokks þjónustu - alltaf.
FLUGHÓTEL er hótelið við flugvöllinn.
Vel búin herbergi og svítur, veitingasalur,
bar og ráðstefnusalur. Bílageymsla í kjallara
og akstur til og frá flugstöðinni.
A I R P O R T
HAFNARGATA 57
SÍMI: 92-15222
KEFLAVÍK
230*KEFLAVÍK
FAX: 92-15223
HÓTELIÐ VIÐ FLUGVÖLLINN