Morgunblaðið - 06.01.1991, Qupperneq 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANUAR 1991
Fabio Ochoa: gaf sig fram.
Medellin-hringurinn íKólombíu í upplausnf
FABIO Ochoa, yngsti bróðirinn af þremur sem hafa stjórn-
að hring kókaínglæpamanna í borginni Medellin í Kólombíu,
gaf sig fram skömmu fyrir jól. Uppgjöf hans er talin mesti
árangur, sem forsetinn, Cesar Gaviria, hefur náð í tilraun-
um til að semja frið við samtök eiturlyfjasala, sem hafa
myrt hundruð manna síðan þeir sögðu ríkinu stríð á hend-
ur í ágúst 1989, fimm árum eftir að kókaínstyrjöld brauzt
út í landinu.
Erfið barátta: Kókaín gert upptækt á býli eins Ochoa-bræðranna í Norður-Kólombíu.
Ochoa fór að dæmi fjögurra
minni glæpamanna, sem
ákváðu að ganga að til-
boði stjórnarinnar um að
gefast upp og játa gegn
því að þeir yrðu ekki
framseldir til Banda-
ríkjanna og fangelsis
dómar þeirra yrðu styttir um allt
að helming.
Fabio Ochoa er 33 ára gamall
og stjórnaði kókaíndreifingu í
Miami á Florida á áratugnum
1970-1980. Reynt hefur verið að
hafa hendur í hári hans síðan hann
var ákærður fyr-
ir að hafa reynt
að smygla kók-
aíni að verðmæti
um einn milljarð-
ur dollara til
Bandaríkjanna. .
Hann var einnig ákærður í New
Orleans fyrir að skipuleggja morð
á uppljóstrara bandarísku eiturly-
fjalögreglunnar (DEA) 1986.
Bandarísk yfirvöld lýstu líka eft-
ir bræðrum Fabios, Jorge Luis, sem
er 41 árs gamall og kallaður „sá
feiti“, og Juan David, sem er einu
ári eldri. Faðir Ochoa-bræðranna,
Fabio Ochoa eldri, sagði daginn
eftir að yngsti sonurinn gafst upp
á ijýli eins bróðurins í Caldas, rétt
sunnan við Medellin, að hann vildi
að hinir synir hans tveir gæfust upp
líka.
Síðan Fabio yngri gaf sig fram
hefur verið bollalagt hvort bræður
hans og fjöldi annarra eituriyfjasala
í Kólombíu muni fara að dæmi hans
— með öðrum orðum hvort Medell-
in-hringurinn sé í upplausn. Þær
vonir vöknuðu. að takast mætti að
binda enda á eiturlyfjastríðið í
Kólombíu, en of snemmt var talið
að lýsa yfir endalokum Medellin-
hringsins. Engin ákæra hefur verið
lögð fram gegn Fabio yngra í
Kólombíu og talið er að mál hans
kunni að vera sérstaks eðlis.
Eiturlyfjasalar klofnir
Oft hefur verið talað um klofning
í Medellin-hringnum. Æðsti yfir-
maður hringsins, Pablo Escobar,
hefur verið leiðtogi „harðlínu-
manna“ og Fabio Ochoa yngri hefur
verið talinn tilheyra þeim armi, sem
hefur fylgt sveigjanlegri stefnu.
Sjálfur sagði Ochoa í yfirlýsingu
að hann einn hefði ákveðið að gef-
ast upp.
Skömmu áður hafði Medellin-
hringurinn sagt að allt að 300 eitur-
lyfjasalar mundu gefa sig fram, ef
stjóm Gaviria forseta breytti friðar-
skilmálum sínum. Stjórnin endur-
skoðaði þá fyrrá friðartilboð sitt,
en Ochoa sagði að margir eiturlyfja-
salar væru ekki ánægðir með hið
nýja tilboð stjórnarinnar.
Talið er að aðrir kókaínsalar
muni lfta á meðferð þá sem Ochoa
hlýtur sem prófstein á stefnu Gavir-
ia forseta gagn-
vart eiturlyija-
hringunum í
landinu. Kókaín-
salamir í
Kólombíu muni
fylgjast ná-
kvæmlega með máli Ochoa og ekki
fara að dæmi hans fyrr en þeir sjái
hvaða meðferð hann fái. Þeir vilji
vera vissir um að lagaleg réttindi
hans verði virt, að hans verði svo
stranglega gætt að hann þurfí ekki
að óttast um líf sitt, að hann þurfi
ekki að óttast mannréttindbrot og
að hann fái ekki of þungan dóm.
Til þess að njóta góðs af friðartil-
boði stjórnarinnar verður Ochoa áð
játa glæp, sem fangelsisdómur ligg-
ur við. Þar sem hann hefur ekki
verið ákærður í Kólombíu lítur út
fyrir að málið gegn honum verði
aðallega byggt á sönnunargögnum
frá Bandaríkjunum. Bandarískir
embættismenn sögðu að þungur
dómur yfir Ochoa yrði ,jákvætt
skref“. Viðbrögð þeirra við uppgjöf
hans lýstu gætni.
Kókaínglæpamenn í Kólombíu
hafa árum saman reynt að kúga
stjórnvöld til hlýðni með morðum
og hótunum. Um hveija helgi eru
tugir myrtir í borgum landsins,
margir vegna hagsmunatogstreitu
andstæðra fylkinga kókaínsala, að-
allega hringsins í Medellin og ann-
arra öflugra sölusamtaka í borginni
Cali.
Um 100 manns er rænt í hverjum
mánuði og í mörgum tilfellum eru
sökudólgarnir ungir glæpamenn,
sem hafa misst atvinnuna vegna
baráttu stjórnarinnar gegn kókaín-
sölu. Á sama tíma hafa vinstrisinn-
aðir skæruliðar stáðið fyrir árásum
á bæi á landsbyggðinni, en herafl-
inn hefur svarað með loftárásum á
bækistöðvar þeirra í fjöllunum.
Gagnsókn eiturlyfjasala
Gaviria forseti hefur því ekki átt
sjö dagana sæla síðan hann tók við
embætti í ágúst. Hann er 43 ára
hagfræðingur úr Fijálslynda
flokknum og gat þakkað sigur sinn
í forsetakosningum í maí loforði um
að breyta stjórnmálakerfmu, sem
,er talið að hafi valdið auknu áhuga-
leysi meðal kjósenda og vaxandi
ofbeldi, þótt herforingjar fari ekki
lengur með völdin. í kosningunum
lýsti Gaviria yfir fylgi við tillögu,
sem kjósendur höfðu samþykkt í
maí þess efnis að stjórnlagaþing
yrði kallað saman.
Forsetinn og aðrir þeir sem styðja
breytingar á stjórnarskránni vilja
að komið verði á fót nýjum stofnun-
um ti! að stuðla að því að friður
komist á eftir borgarastyijöld, sem
geisað hefur í Kólombíu í 40 ár.
Áður en Gaviria tók við embætti
komst hann að samkomulagi við
helztu stjórnmálaflokkana þess efn-
is að aðeins fimm eða sex kaflar
stjórnarskrár Kólombíu frá 1886
yrðu endursamdir til að afmá mestu
gallana á stjórnarfarinu og að ekki
yrði sett inn ákvæði um bann við
framsali kókaínsala til Banda-
ríkjanna.
Virgilio Barco fyrrverandi for-
seta hafði tekizt að valda eiturlyfja-
sölum í Medellin þungum búsifjum
með stórfelldum sóknaraðgerðum.
Síðan virðist hringurinn hafa verið
endurskipulagður undir stjórn Pabl-
os Escobar. Flestir aðstoðarmenn
hans eru látnir eða í fangelsi og
verðlaun, sem var heitið fyrir upp-
lýsingar er leitt geta til handtöku
hans voru hækkuð í haust í tæpa
eina milljón Bandaríkjadala.
Medellin-hringurinn lýsti einhliða
yfir vopnahléi í eiturlyfjastríðinu
seint í júlí og morðum í borginni
fækkaði skyndilega úr 40 í 12 á
dag. Ástandið færðist því í svipað
horf og áður en Escobar sagði
ríkinu stríð á hendur 1989. Til þess
að treysta stöðu sína enn frekar
rændu eiturlyfjasalar átta blaða-
mönnum seint í ágúst og sex eru
enn í haldi.
Einvígi kókaínbarónanna
í lok september gerðu menn úr
Medellin-hringnum skotárás á bú-
garð Francisco Herrera, eins helzta
leiðtoga Cali-hringsjná, í suðvestur-
hluta Kólombíu. Árásarmennirnir
komu í þremur vörubílum þegar
veizla stóð yfir á búgarðinum.
Nítján biðu bana og tugir særðust,
en Herrera slapp.
Árásin virtist sýna að Escobar
vildi koma í veg fyrir að Cali-
hringnum tækist að auka hlutdeild
sína í kókaínviðskiptunum á kostn-
að Medellin-hringsins vegna þess
að hann hefur verið í öldudal síðan
hin mikla herferð Kólombíustjórnar
gegn hringnum hófst. Eiturlyfjasal-
arnir í Medellin hafa glatað stórum
hluta viðskipta sinna, einkum í
Evrópu, sem er vaxandi markaður.
„Medellin-hringurinn hefur verið
að missa völdin yfir dreifingunni í
heiminum," sagði alþjóðalögreglan
Interpol í haust. „Hlutdeild hans
var áður 70%, en kann að hafa
minnkað í 40%.“
Cali-hringurinn hefur yfirleitt
forðazt ofbeldi, en reynt að múta
valdamönnum. í október mættu
tveir af leiðtogum hringsins, bræð-
urnir Gilberto og Miguel Rodriguez
Orejuela, í veizlu áhrifamanna í
Cali. Þeir hafa ekki þurft að óttast
að verða handteknir, þótt eituriyfja-
lögreglan DEA telji þá í hópi 12
hættulegustu eiturlyfjasala heims
og vorii að þeir verði framseldir til
Bandaríkjanna.
Escobar hefur opinberlega sakað
Cali-samtökin um að útvega lög-
reglunni upplýsingar um starfsemi
Medellin-hringsins. Hann telur að
ERLEND
HRINGSfÁ
eftir Guöm. Halldórsson