Morgunblaðið - 06.01.1991, Side 15
MQfiGUÚBLAÐIQ gUNNUDAGUR 6, J ANÚAK 1991
G 15
félagi sinn, Gonzalo Rodríguez
Gacha, hafi verið myrtur í desemb-
er 1989 vegna ábendingar frá Cali-
hringnum.
Árásir á Escobar
Erjur Medellin- og Cali-hringsihs
hófust þegar samtökin i Medellin
gerðu pólitísk morð að einni helztu
baráttuaðferð sinni 1994. Fyrir
tveimur árum stóð Cali-hringurinn
fyrir gífurlegri sprengingu við svo-
kallaða Monaco-byggingu Escobars
skammt frá Medellin, að því er virð-
ist til að hefna tilrauna Medellin-
hringsins til að ná fótfestu á mark-
aðnum í New York, þar sem Cali-
samtökin höfðu tögl og hagldir.
Escobar svaraði með sprengju-
árásum á fyrirtæki Rodriguez
Orejuelas. Brezkir málaliðar voru
ráðnir í þjónustu Cali-samtakanna
1989 til að myrða Escobar, en árás
þeirra fór út um þúfur þar sem
tvær þyrlur þeirra fórust.
í október sl. skipulagði Kól-
ombíustjórn árás á flugbraut og
kókaínverksmiðjur Cali-hringsins í
frumskóginum, en Cali-menn eru
hræddari við eiturlyfjasalana í Med-
ellin en ríkisstjórnina. „Við sitjum
á púðurtunpu," sagði embættis-
maður í Cali í haust. „Hér ríkir
sæmilegur friður, en allt getur far-
ið í bál og brand."
Frá upphafi hefur Gaviria forseti
lagt áherzlu að baráttan gegn eitur-
lyijakaupmönnum sé alþjóðleg, það
er aðallega bandarísk. Hann hefur
gert greinarmun á „hryðjuverka-
mönnum“, sem storki ríkinu, og
„eiturlyfjasölum", sem séu fremur
kaupsýslumenn, og lagt á það meg-
ináherzlu að uppræta hryðjuverka-
starfsemi.
Lengi vel neitaði Gaviria að
semja við eiturlyfjasalana. Síðan
gaf hann út tilskipun þess efnis að
þeir sem gæfust upp yrðu ekki
framseldir til Bandaríkjanna og
mundu fá vægari dóma, ef þeir
segðu frá samstarfsmönnum sínum.
Sigur vinstrisinna
Rúmri viku áður en Fabio Ochoa
gaf sig fram fyrir jólin höfðu farið
fram kosningar til stjórnlagaþings-
ins, sem á að gera breytingar á
stjórnarskránni frá 1886.
Úrslitin virtust treysta stöðu eit-
urlyfjasala og vinstrisinna. Samtök
fyrrverandi skæruliða vinstrisinna
juku fylgi sitt og fylgisaukning
þeirra virtist benda til þess að marg-
ir Kólombíumenn væru að gefast
upp í baráttunni gegn kókaínglæpa-
mönnunum og margra ára innan-
landsófriði.
Flokkur Gaviria, Fijálslyndi
flokkurinn, fékk slæma útreið, þótt
hann hlyti flest atkvæði. Kjörsókn
var svo dræm að innan við þriðjung-
ur 14 milljóna kjósenda greiddi at-
kvæði.
Stjórnarflokkurinn gekk klofinn
til kosninganna og fékk aðeins 24
þingsæti af 70, eða 28% atkvæða
miðað við 60% í þingkosningum í
marz sl. Aðalsigurvegari kosning-
anna að þessu sinni var Antonio
Navarro, leiðtogi skæruliðasamtak-
anna M-19, sem lögðu niður vopn
í marz 1989 eftir 25 ára baráttu.
Listi hans hlaut 27% atkvæða og
19 sæti. Tveir listar íhaldsmanna
fengu 20 sæti.
Fijálslyndi flokkurinn og íhalds-
flokkurinn hafa skipzt á um að fara
með völdin í Kólombíu í eina og
hálfa öld. Vinstrihreyfing hefur
aldrei áður fengið eins mikið fylgi.
Blóði drifinn ferill M-19 var gagn-
rýndur í kosningabaráttunni og
Navarro flúði frá höfuðborginni
Bogota á kjördag vegna morðhót-
ana. Úrslitin þykja benda til þess
að honum hafi tekizt að sannfæra
marga um að hann sé tiltölulega
hægfara, m.a. með yfirlýsingum um
stuðning við „lýðræðislegan kapít-
alisma“ og þörf á einkavæðingu.
Nýtt friðartilboð
Enginn einn flokkur verður í
meirihluta á stjórnlagaþinginu og
staða Gaviria forseta mun veikjast
ef störf þess fara út um þúfur.
Leiðtogar fijáislyndra kenna forset-
anum um ófarirnar í kosningunum
IVIýtt friðartilboð: Gaviria forseti ásamt fjölskyldu og lífvörðum.
Samkemi nra
byggiamki fyrir
Reykhálahregg
Hreppsnenfd Reykhólahrepps auglýsir sam-
keppni um gerð merkis fyrir hreppinn. Hug-
myndir skulu (sendar undir dulnefni og) póst-
lagðar í síðasta lagi 31. janúar 1991, og
sendar skrifstofu Reykhólahrepps, 380 Króks-
fjarðarnesi.
Hugmyndirnar verða til sýnis á skrifstofu
hreppsins til loka mars, og gefst íbúum hans
þá kostur á að segjá álit sitt. Þann 13. apríl
1991 verða niðurstöður skoðanakönnunar og
dómnefndar kynntar og þá veitt viðurkenning
vegna bestu hugmynda, kr. 50.000,- fyrir
bestu hugmyndina, og kr. 15.000,- fyrir aðrar
þrjár.
Sveitarstjóri Reykhólahrepps.
og vilja ekki breyta núverandi kerfij
sem hefur að miklu leyti byggzt á
fyrirgreiðslupólitík og spillingu og
tryggir þeim völd. Hægfara menn
í báðum gömlu flokkunum telja að
draga megi í efa að þingið hafi
'nægilegt umboð frá kjósendum, þar
sem kjörsókn var dræm.
Fy.rir kosningarnar sögðu kóka-
ínbarónarnir að þeir vildu að bann-
að yrði samkvæmt nýju stjórnar-
skránni að framselja grunaða eitur-
lyfjasala til Bandaríkjanna. Til þess
að tryggja að slíkt ákvæði yrði sett
í stjórnarskrána lögðu þeir fram
tilboð sitt um að allt að 300 harð-
svíruðustu eiturlyfjasalarnir — los
extradibles eins og þeir eru kallaðir
— gæfu sig fram við yfirvöld ef
stjórnin breytti friðartillögum
sínum. Það skilyrði fylgdi að eitur-
lyfjasalarnir yrðu ekki neyddir til
að segja frá samstarfsmönnum
sínum.
Gaviria forseti svaraði með því
að bjóðast til að sýna los extrad-
ibles vægð ef þeir játuðu, en neit-
aði að útiloka framsal til Banda-
ríkjanna.
Einum degi áður en Fabio Ochoa
gaf sig fram sendi stjórnin síðan
frá sér endurskoðað friðartilboð,
þar sem því var heitið að eiturlyfja-
salar, sem gæfust upp og játuðu,
yrðu ekki framseldir til Banda-
ríkjanna, að fulltrúar mannréttinda-
hópa mundu fýlgjast með meðferð
þeirra og að þeirra yrði gætt í
traustum fangelsum. Eiturlyfjasal-
ar, sem játuðu, mundu ekki fá
meira en 15 ára fangelsi.
Forsetinn hafði sagt að hann vildi
ekki semja við eiturlyfjasalana og
virðist ekki hafa rætt við þá beint.
Hins vegar hafa lögfræðingar kóka-
ínbarónanna átt fundi með nefnd,
sem er skipuð fyrrverandi forsetum,
erkibiskupi og öðrum „málsmetandi
mönnum".
Áróðursherferð
Eiturlyfjasalarnir hafa haldið
uppi hörðum áróðri fyrir málstað
sínum. Þeir hafa staðið í nær dag-
legu sambandi við blöð í Kólombíu.
Mál þeirra hefur fengið ítarlega
umfjöllun og umræður um það hafa
að miklu leyti snúizt um sjónarmið
þeirra. Lögi’eglan hefur verið sökuð
um pyntingar og yfirgang og því
hefur verið haldið fram að framsal
jafngildi broti á mannréttindum.
„Blöðin leyfa fjöldamorðingjum að
tala um mannréttindi," sagði er-
lendur stjórnarerindreki.
Samningaumleitanir Kólombíu-
stjórnar og eiturlyfjasala eru taldar
áfall fyrir baráttu bandarísku
stjórnarinnar gegn eiturlyfjasmygli
frá Rómönsku Ameríku til Banda-
ríkjanna og Vestur-Évrópu, á sama
tíma og athygli hennar beinist að
ástandinu við Persaflóa. Fulltrúar
hennar hafa lagt áherzlu á að ótti
eiturlyfjasala við framsal til Banda-
ríkjanna „sé það eina sem þeir
skilji".
Luis Fernando Jaramillo sagði
hins vegar eftir jólin að Bandaríkja-
stjórn hefði opinberlega lýst yfir
stuðningi við hina nýju stefnu
Kólombíustjórnar gegn eiturlyfja-
sölum og kvaðst ekki telja að
bandarískri aðstoð yrði hætt. Nýja
stefnan hefur hins vegar verið
gagnrýnd í bandarískum blöðum.
Bandaríkjastjórn veitti Kólombíu-
stjórn 89 milljóna dollara aðstoð
1990, aðallega til að beijast gegn
kókaínglæpamönnum.
Borgarstjórinn í Medellin, Juan
Gomez Martinez, hefur verið einn
helzti leiðtogi baráttunnar fyrir
banni við framsali. „Ef til vill þykir
sú lausn bera.vott um eigingirni,"
sagði hann nýlega. „En hvert land
fyrir sig verður að reyna að finna
sína eigin lausn á þessu vandamáli.
Blóðbaðið í Kólombíu hefur staðið
alltof lengi og það erum við sem
þjáumst."
Talið er að fáir fulltrúar á ný-
kjörnu stjórnlagaþingi muni styðja
kröfuna um framsal kókaínglæpa-
manna. Margir munu hins vegar
styðja kröfu þeirra um að þeir fái
sömu meðferð og pólitískir glæpa-
menn. Þar með gæti komið til
greina að þeir yrðu náðaðir og það
virðist næsta takmarkið í baráttu
þeirra.
Eitt helzta vopn eiturlyfjasalanna
í baráttunni eru gíslar þeir^sem
þeir hafa á sínu valdi og hóta að
myrða, ef ekki verði gengið að kröf-
um þeirra. Andstæðingar eiturlyfja-
salanna hafa barizt gegn því að
mál þeirra verði tekið fyrir á stjórn-
lagaþinginu fyrr en gíslunum hafi
verið sleppt.
Sókn gegn skæruliðum
Meðan þessu fer fram er stríðinu
gegn leifunum af sveitum vinstri-
sinnaðra skæruliða haldið áfram.
Ýmsir yfirmenn hersins eru lítt
hrifnir af hugmyndum um breyting-
ar á stjórnarskránni, en á kjördag
lét herinn til skarar skríða gegn
skæruliðum, sem hafa ekki viljað
samþykkja umbótatillögur stjórnar-
innar.
Þetta var mesta sókn gegn
skæruliðum í nokkur ár. Stjórnar-
hermenn náðu á sitt vald fjallabæki-
stöðvum fjölmennustu og elztu
skæruliðasamtaka Kólombíu, svo-
kallaðs Byltingarherafla (FARC),
eftir harðar loftárásir. Pablo Esc-
obar og Medellin-hringurinn virðast
hafa komizt að samkomulagi við
Önnur samtök skæruliða, Þjóðfrels-
isherinn (ELN).
Þrír fámennari hópar skæruliða
urðu við áskorun stjórnarinnar um
að leggja niður vopn fyrir kosning-
arnar og fá að launum tvö sæti á
stjórnlagaþinginu. Byltingarherafl-
inn er skipaður 7.000<mönnum og
hóf gagnsókn um jólin. Árásir voru
gerðar á afskekktar lögreglustöðv-
ar víðs vegar um landið og 24 féllu .
TILBOÐ OSKAST
í Ford Bronco II XLT 4x4, árgerð '88 (ekinn 18
þús. mílur), Toyota P/U 2 W/D Extra Cab, árgerð
'86 og aðrar bifreiðar, er verða sýndar á Grensás-
vegi 9 þriðjudaginn 8. janúar kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
Sala varnarliðseigna