Morgunblaðið - 06.01.1991, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ
rispur BUNNUDAGUR 6.
JANUAR 1991
MORGUNBLAÐIÐ
RISPUR SUNNUDAGUR
6. JANUAR 1991
FAGUR
FAGUR
Steinbíturinn hringar sig á sérstæðan hátt í kring um hrognin sín og býr til eins konar hreiður.
Sækónguló úr Eyjadýpi.
Ljósmyndir: Sigurgeir Jónasson
Fagur fagur fiskur í sjó segir
í þulunni gömlu og víst eru
fagrir fiskarnir í sínu rétta
umhverfi. í Fiskasafninu í
Vestmannaeyjum er litskrúð-
ugt líf úr heimi sjávarflór-
unnar, enda nýtur safnið að-
dáunarfólks hvaðanæva úr
heiminum. Sigurgeir Jónasson
Ijósmyndari Morgunblaðsins í
Vestmannaeyjum hefur um
árabil tekið reglulega myndir
f safninu, enda hefur margt
forvitnilegt komið þar upp í
búskap undirdjúpanna á
grunnsævinu í safninu. Á hinn
bóginn er það í sjálfu sér ótrú-
legt að mannskepnan viti í
raun meira um himingeiminn
helduren hafdjúpin. Hingað
til hafa menn komist nær óra-
víddum sólkerfanna helduren
lífinu sem hrærist í djúpum
úthafanna og þó eru dýpstu
höf aðeins um 5.000 metra
djúp.
I Fiskasafninu í Eyjum eru
allir helstu nytjafiskar íslend-
inga, auk margskonarsjávar-
gróðurs og dýrategunda.
Hversdagsbaráttan í sjónum
er heimur út af fyrir sig og
margt forvitnilegt hefur komið
í Ijós í lifandi fiskasafninu í
Vestmannaeyjum, ástirog
ævintýr, eins og gengur og
gerist í lífkeðjunni. Ftauðmag-
inn eldroðnar þegar hann sér
grásleppuna, risakrabbinn á
jaað til að halda kvendýrinu
föstu í allt að þrjá mánuði, eða
þangað til jáið kemur, félags-
lyndi steinbítanna kemurá
óvart og þannig mætti lengi
telja. Það þarf ekki að fara
djúpt undiryfirborð sjávartil
þess að nálgast undrin sem
þar búa. í leynum hyldýpisins
býr margt sem enginn veit,
en í þessu efni sem ýmsu
öðru sannast hiðfornkveðna
að ekki er ástæða til þess að
leita of langt yfir skammt.
- á.j.
Loðna í Fiskasafninu í Eyjum, glitfagur fiskur.
Augnsvipur skötunnar og munnur setja serkennilegan svip á þessa
sérstæðu fisktegund.
Grásleppan vakir yfir hrognum sínum, sem aðrir
fiskar sækja í til átu og jafnvel grásleppan sjálf.
Ýmis sæblóm og lindýr setja svip á fiskasafnið í
Vestmannaeyjum.
Steinbíturinn hefur orðið.
Þorskar.
Tröllakrabbinn hefur sinn stíl í ástamálunum. Hann heldur kvendýrinu eins og sjá má í
allt að 3 mánuði, eða þangað til hún játast honum. Hins vegar gefur hann henni að
éta allan tímann með sér, en takinu sleppir hann ekki.
Grásleppuseiði komin á legg í safninu í Eyjum.
FISKUR
ÍSJÓ