Morgunblaðið - 06.01.1991, Page 19
Ik
MITSUBISHI
MOTÖRS
PICKUP TRUCK
<0F THE YEAR>
1990
FQUH WHEELER MAGAZINE
PALLBÍLL ÁRSINS
í U.S.A.
□ 70 ha. Dieselhreyfill
□ Aldrif
□ Burðargeta = 1200 kg.
□ Flatarm. vörupalls = 2,8 m2
□ Milligírkassi með tvö
niðurfærsluhlutföll
□ Rúmgóð og vönduð
innrétting
□ Nýtískulegt mælaborð-
þægileg stjórntæki
Verð kr. 1.320.000.- stgr.
'l\' r r - r \\' r r~ i I
fc Y ^ B ix G !
MORGUNBLAÐIÐ
FJOLMiÐLAR SUNNUDÁGÚR 6. JANÚAR 1991
-
Murdoch í
erfiðleikum
HLUTABRÉF í fyrirtækinu News
Corporation, „flaggskipi“ ástr-
alska fjölmiðlakóngsins Ruperts
Murdochs, lækkuðu um 20% í ás-
trölsku kauphöllinni fyrir jólin og
sögusagnir eru á kreiki um að
fyrirtækið eigi við vaxandi erfið-
leika að stríða á nokkrum
vígstöðvum.
Greiðsluvandi News Corp. hefur
aukist og breskur sjónvarps
þáttur hefur vakið spurningar í sam-
bandi við samn-
inga um hluta-
bréf í fyrirtæk-
inu. Þar munu
annaðhvort
Murdoch sjálfur
eða ijárfesting-
arfélag í eigu
hans koma við
sögu.
I sjónvarps-
þættinum var RUPERT MURDOCH
einnig sýnt hvernig fyrirtæki
Murdochs kemur sér undan að
greiða skatta — á fullkomlega lög-
legan hátt — með því að koma sér
fyrir á stöðum þar sem skatta er
ekki krafist. Einnig var skýrt frá
því hvernig fyrirtækið notfærði sér
hagstæðar, ástralskar bókhaldsvenj-
ur.
Murdoch hefur reynt að draga úr
ugg um að illa gangi í viðræðum
um greiðslufrest á 10,53 milljarða
dollara bankaláni News Corp. Hann
segir að forsvarsmenn fyrirtækisins
séu mjög ánægðir með viðræðurnar,
sem hafa dregist, og að þeim miði
vel áfram.
Fjölmiðlakóngurinn kvaðst telja
að staða News Corp. væri góð, þótt
mörg fjölmiðlafyrirtæki hefðu orðið
óþyrmilega fyrir barðinu á efnahags-
legum samdrætti í heiminum.
Sú saga komst á kreik í Ástralíu
fyrir jólin að stjórnin þar hygðist
krefja News Corp. um einn milljarð
Ástralíudala í skatta. Nokkrum dög-
um síðar var því haldið fram að fyrir-
tækið skuldaði breskum skattyfir-
völdum að minnsta kosti 1,6 millj-
arða Ástralíudala.
Land og
Folk logn-
ast út af
Síðasta tölublað málgagns
kommúnista í Danmörku,
Land og Folk, kom út 28. des-
ember. Stjórn blaðsins sagði
að ekki hefði tekizt að afla
þriggja millióna danskra króna
til þess að\halda rekstrinum
áfram. Áskrifendur blaðsins
voru aðeins 5.000 þegar út-
gáfan var stöðvuð.
Elsta sápu-
óperan stendur
á fertugu
Peggy
Archer
(June Spen-
cer) giftist
Jack Wool-
ley (Arnold
Peters).
UM áramótin var þess minnst í
Bretlandi að 40 ár eru síðan elsta
sápuópera heims, þættirnir um
Archer-fjölskylduna (The Arch-
ers), hóf göngu sína. Hápunktur-
inn í afmælisþættinum 1. janúar
var brúðkaup Jack Woolley og
Peggy Ashcroft, sem koma við
sögu í þáttunum.
Þættirnir voru fyrst sendir út'í
landshlutaútvarpi í mars 1950,
en útsendingar um allt Bretland hóf-
ust 1951. Síðan hafa þættirnir um
Archer-fjölskylduna heyrst í mest-
allri Evrópu, Israel, Nepal, Malasíu,
Borneó, Hong Kong, Belize og á
Faþklandseyjum.
Áheyrendur þáttarins urðu flestir
1953: Peggy og fyrsti eiginmaður
um 20 milljónir upp úr 1960. Nú
munu sjö og hálf milljón manna
hlusta á þáttinn í viku hverri.
Þættirnir gerast í sveitaum-
hverfi.„Þegar þeir hófust voru bænd-
ur hvattir til að auka framleiðsluna,“
sagði Godfrey Baseley, sem upphaf-
lega átti hugmyndina að þáttaröð-
inni. „Nú á dögum offramleiðslu
þyrfti að leggja áherslu á alvarleg
mál í báttunum, eins og umhverfís-
hennar, Jack (Dennis Folwell).
vernd.“
Tony Shryanne, sem stjórnaði
upptökum fyrstu þáttanna, harmaði
að ekki væri eins algengt og áður
að mál, sem væru ofarlega á baugi,
væru tekin fyrir. „Ef forsætisráð-
herrann hefði sagt af sér hefði strax
verið minnst á það í einhverjum
þættinum. Archer-fjölskyldan ræddi
um fjárlögin 1953 45 mínútum eftir
að umræðum um þau lauk.“
LAUGAVEGI 174
SÍMI 695500
5 MANNA FÓLKSBÍLL
MEÐ VÖRUPALLI