Morgunblaðið - 06.01.1991, Blaðsíða 20
20 G>
MORGUNBMÐIÐ MENNINGARSTRAUIVÍAR sunnudag ur 6. JANÚAR 1991
ENDURGERÐ
SCORSESE
NÆSTA mynd Martins Scorseses verður endurgerð
á sakamálamyndinni „Cape Fear“ frá árinu 1962, sem
hasarmaðurinn J. Lee Thompson leikstýrði með Rob-
ert Mitchum og Gregory Peck í aðalhlutverkum.
Þetta er fyrsta mynd
Scorsese eftir Góða
gæja og sú fyrsta sem hann
gerir í samvinnu við Steven
Spielberg. Eins og í fyrri
Robert De
Niro; sjö-
undaScors-
esemyndin.
myndinni segir af fyrrum
fanga sem eltir uppi lög-
fræðinginn sinn frá því í
gamla daga og vill honum
illt en lögfræðingurinn
snýst til vamar.
Robert De Niro leikur
fangann en Robert Redford
hafnaði hlutverki lögfræð-
ingsins og Nick Nolte kom
t\ hans stað. Jessica Lange
leikur eiginkonu lög-
fræðingsins og búast
má við að Mitchum
og Peck muni
fara með ör-
lítil hlutverk í
myndinni,
svona til
gamans.
Samstarf
Scorsese og
De Niros
hefur gefið
af sér
margar frá-
bærar
myndir en
þetta er sjö-
unda Scors-
esemyndin
sem De
Niro leikur
Hamlet; leikaraiiðið ekki af verri endanum.
BRJÁLAÐI
MEL HAMLET
NÝJASTA bíóútgáfan um Danann ráðalausa, Hamlet,
er með engum öðrum en Mel (Bjálaða Max) Gibson í
aðalhlutverkinu. Óvenjulegt hliðarspor það en leikstjór-
inn Franco Zéffirelli fékk hann til að fara með hlutverk-
ið og ef ZeffireJli bregst ekki, er hér örugglega um
verulega íburðarmikla framleiðslu að ræða.
|^r Hamlet ekki einmitt ilega hinnar marglofuðu
rétta leikritið nú þeg
ar í tísku er að hafa drauga
í hverri mynd? Móður Ham-
lets leikur Glenn Close en
hún hefur gifst Alan Bates
aðeins of fljótt eftir dauða
föður Hamlets, er birtist
sem draugur í iíki þunga-
vigtarmannsins Paul Scofi-
elds. Helena Bonham Cart-
er ieikur Ófelíu.
Bíómyndin um Hamlet
kemur í kjölfar annarar
Shakespearemyndar, nefn-
Hinrik V. eftir Kenneth
Branagh. Ljóst er að Zeffi-
relli tekur talsverða áhættu
með því að ráða Gibson í
hlutverk Hamlets; Gibson
hefur næstum eingöngu
fengist við hasarmyndir hin
síðustu ár, er ábyggilega
farinn að ryðga í klassík-
inni og gæti litið kindar-
lega út í augum aðdáenda
sinna, sem líklega er í lagi
því varla fara þeir að sjá
Shakespeare hvort sem er.
ALEINN
HEIMA
ÞÆR gera sjaldnast boð á undan sér metsölumyndirnar
í Bandaríkjunum og er Draugar ein sönnun þess. Nýj-
asta og besta sönnunin er þó gamanmyndin „Home Al-
one“ eða Aleinn heima en hún er metsölumyndin vestra
um þessi jól öllum á óvart, komin vel yfir hundrað millj-
ón doliara markið.
Fæstir höfðu heyrt um
myndina þangað til hún
fór að hala inn milljónirnar
enda ekki í henni ein einasta
stórstjarna. Hún segir frá
því þegar McCallister-fjöl-
Skilinn eftir heima; Culkin í hlutverki
Kevins.
KVIKMYNDIR"'™
Hvemigvar í bíó árid 1990f
ÁrSigutjóns
Bandariska vikuritið „Newsweek“ kallaði árið 1990
ár David Lynch sl. sumar. Fyrir íslendinga er það ár
Sigurjóns Sighvatssonar. Þess verður minnst, kvik-
myndalega séð, fyrst og fremst vegna velgengni Sigur-
jóns í Los Angeles sem náði hámarki þegar mynd á
vegum hans og félaga í Propaganda Films, Tryllt ásb
(„Wild at Heart“) eftir David Lynch, hreppti gullpálm-
anníCannes.
Menn munu ekki síður
minnast sjónvarps-
þáttanna Tvídranga á Stöð
2, sem Siguijón á þátt í að
framleiða, og loks var 1990
árið sem
fyrsta ís-
lenska bíó-
myndin
sem hann
framleiðir,
Ryð eftir
Lárus Ými
eftir Arnald Indriðosor
Óskars-
son, var
frumsýnd. Það var önnur
af aðeins tveimur íslenskum
myndum sem frumsýndar
voru á árinu, hin var bama-
og íjölskyldumyndin Papp-
írs-Pési. Ein og í mesta lagi
tvær bíómyndir virðist vera
framtíðin í ísleriskri kvik-
myndagerð og benti fátt til
þess á árinu að það mundi
breytast í bráð.
Annars var bíóárið 1990
næsta venjulegt. Fyrsta
myndin sem varið var í á
árinu kom strax í janúar.
Bekkjarfélagið („Dead Po-
ets Society") eftir Peter
Weir var ósennileg metsölu-
mynd um ljóðafélag í heima-
vistarskóla en hún sló í gegn
bæði hér og erlendis enda
einkar ljúfsár og falleg. Það
var Víetnammynd Brian De
Palmas, sem fylgdi í kjölfar-
ið, hins vegar ekki, heldur
hryllileg en sérlega áhrifa-
mikil og eftirminnileg lýsing
á raunverulegum atburðum
sem áttu sér stað í Víetnam-
stríðinu þegar hópur banda-
rískra hermanna nauðgaði
innfæddri stúlku.
Margar bestu myndir árs-
ins komu um vorið um það
leyti sem Óskarinn var af-
hentur í Los Angeles. Þar
má frægar telja Ekið með
Daisy, sem fjallar um vin-
áttu sómafólks í Suðurríkj-
unum, Fæddur fjórða júlí,
sem sannaði að Tom Cruise
getur verið magnaður leik-
ari, Paradísarbíóið var stór-
kostlegur“o'ður til bíómenn-
ingarinnar á Ítalíu um og
eftir seinna stríð og Vinstri
fóturinn var frábærlega
leikin og gerð saga um hinn
fjölfatlaða írska listamann
Christy Brown og var Dani-
el Day Lewis vel að Óskarn-
um kominn fyrir bestan leik
í aðalhlutverki.
Þrjár mjúkar og róman-
tískar myndir nutu mikilla
vinsælda hér og geta verið
til marks um áherslubreyt-
ingu vestra en það voru
Stórkostleg stúlka, Pott-
ormur í pabbaleit og Draug-
ar. Sumarið einkenndist
sem fyrr af hasarmyndun-
um frá Bandaríkjunum og
voru þar fremstar í flokki
Fullkominn hugur, dúndr-
andi öflugur framtíðarþrill-
er Paul Verhoevens og Á
tæpasta vaði 2, sem gaf
fyrri myndinni lítið eftir í
sprengikrafti. Dick Tracy
leit stórkostlega út og var
frábærlega leikin en skildi
sáralítið eftir og framhalds-
myndir eins og Aðrar 48
stundir, RoboCop 2 og Aftur
til framtíðar III ollu von-
brigðum. Stærsta og besta
mynd haustsins var tvímæl-
alaust Góðir gæjar Martins
Scorseses.
Bandarískar myndir voru
í yfirgnæfandi meirihluta
eins og áður og ógnar ekk-
ert veldi þeirra hér í bíóun-
um. Hingað bárust þó ein
og ein Evrópu-mynd aðal-
lega í gegnum átgk hjá
Háskólabíói og eru þeirra
minnisstæðastar Krays-
bræðumir og Hinrik V.
Meðfylgjandi eru listar
kvikmyndagagnrýnerida
Morgunblaðsins yfír bestu
myndir ársins. Myndunum
er raðað af handahófi.
Ein af þeim bestu; Paradísarbíóið.
BESTU MYNDIRNAR
óíóið („Ci-
- nema Paradiso", e.
íus eppe Tomatore).
(„Enemies, a Love
Story“, e. Paul Mazur-
sky).
Góðir gæjar („Goodfell-
as“, e. Martin Scorsese).
Ekið með Daisy („Dri-
ving Miss Daisy“, e.
Bruce Beresford).
Ryð (e. Láms Ými
Óskarsson).
Heiður og hollusta
(„Glory“, e. Edward
Zwick).
Hinrik V („Henry V“,
e. Kenneth Branagh).
Draugar („Ghost", e.
Jerry Zucker).
Tryllt ást („Wild at He-
art“, e. David Lynch).
Litla hafmeyjan („The
Little Mermaid", e. Ron
Musker og Ron Clem-
ente).
Sæbjörn
Valdimarsson
Bekkjarfélagið
(„Dead Poets Soci-
ety“, e. Peter Weir).
Stríðsógnir („Casualti-
es of War“, e. Brian De
Palma).
Fæddur 4. júlí („Born
on the Fourth of July“,
e. Oliver Stone).
Paradísarbíóið („Ci-
nema Paradiso", e. Gius-
eppi Tornatore).
Vinstri fóturinn („My
Left Foot“, e. Jím
Sheridan).
Heiður og hollusta
(„Glory“, e. Edward
Zwick).
Tryllt ást („Wild at He-
art“, e. David Lynch.
Ekið með Daisy („Dri-
ving Miss Daisy“, e.
Bmce Beresford).
Hinrik V („Henry V“,
e. Kenneth Branagh).
Draugar („Ghost", e.
Jerry Zucker).
Arnaldur
Indriðason
skyldan heldur í jólafrí til
Parísar þremur dögum fyrir
jól og kemst að því að hún
hefur skilið yngsta soninn,
Kevin, eftir heima í öllu fát-
inu. Til að bæta gráu ofan
á svart hafa
tveir heldur
kauðalegir
innbrotsþjófar
augastað á
húsinu og
lendir Kevin í
hörkubardaga
við þá þegar
hann reynir að
veija heimili
sitt.
Það er ungl-
inga- og gam-
anmyndahö-
fundurinn
John Hughes
sem skrifar
handritið að
myndinni og
framleiðir en
leikstjóri er
Chris Colum-
bus. Með aðal-
hlutverkin
fara Macaulay
Culkin, sem leikur þann
stutta, Joe Pesci og Daniel
Stem, sem leika innbrots-
þjófana, og John Heard og
Catherine O’Hara, sem leika
hina veralega áhyggjufullu
foreldra Kevins.
Bíóhöllin/Bíóborgin mun
framsýna Aleinan heima
núna um eða eftir helgi en
varla er liðinn nema rúmur
mánuður síðan myndin var
framsýnd í Bandaríkjunum.
Fólk
■ Woody Allen er byijaður
á nýrri mynd, sem ekld hefur
enn fengið nafn. Leikhópurinn
er hinn forvitnilegasti sem
fym Madonna, John
Malkovich, Jodie Foster,
Donald Pleasence, Kate
Nelligan og auðvitað Mia
Farrow og Woody Allen
sjálfur leika öll í myndinni.
■ Lftið lát virðist á fram-
haldsmyndafárinu vestra. Nú
er unnið að framhaldsmynd-
inni um stökkbreyttu skjald-
bökumar, sem sýnd er í Há-
skólabíói, og á hún að kosta
litlar 20 milljónir dollara (fyrri
myndin kostaði átta). Skjald-
bökumar reynast miklir um-
hverfisvemdarsinnar í fram-
haldinu og finna út hvaðan
efnaúrgangurinn kemur sem
breytti þeim.
■ Langmest leigða erlenda
myndin í Bandaríkjunum á síð-
asta ári kom frá Svíþjóð og
heitir Hundalíf eða „Mit liv
som en hund“ og er eftir Lasse
Hallström.
■ Zalman King, sem gert
hefur nokkrar óttalega lélegar
myndir með erótísku yfir-
bragði (Hálf tíunda vika), er
við sama heygarðshomið í
sinni nýjustu mynd, „Blue
Movie BIue“. Hún segir frá
17 ára stúlku sem lendir í
hágæða hórukassa. Robert
Davi, illvirkinn úr síðustu
Bondmynd, leikur bjargvætt
hennar.