Morgunblaðið - 06.01.1991, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMINGAR SUNNUDAGUR -6. JANÚAR 1991
C 23
Minning:
Helga Jensen
Fædd 8. júní 1902
Dáin 27. desember 1990
Með nokkrum orðum langar mig
að minnast og kveðja kæra frænku
mína og móðursystur. Kynni mín af
Helgu urðu fyrst eftir að móðir mín
Kristín fór til hótelnáms í Dan-
mörku. Jóhannes kaupmaður, bróðir
þeirra, skaut þá skjólshúsi yfir mig,
er ég var við nám í Verzlunarskólan-
um. Það var heldur lítið til hnífs og
skeiðar þá, sem oftar hjá námsmönn-
um og auralítið til lífsfóðurs. Helga
blessunin fékk af þessu áhyggjur og
var ekki við annað komandi, en ég
hefði hjá henni alla aðhlynningu. Var
heimili hennar og Sofusar manns
hennar mér sem annað heimili um
tveggja vetra skeið og lýsir sú ábót
nokkru um hjartaþel Helgu. Þeim
fer, að ég held fækkandi, sem slíka
ábót vilja á sig leggja. Þykir flestum
nóg með sitt, enda mikill hluti kvenna
orðinn útivinnandi húsmæður. Um
greiðslu mátti aldrei ræða hvorki
fyrr né síðar til hvorugs þeirra systk-
ina.
Helga var mikill og góð móðir og
húsmóðir og afbragðs matreiðslu-
kona, hefur enda ugglaust notið
kunnáttu frá manni sínum, ,sem
bæði var matreiðslumaður og „kond-
itor“. Man ég að oft var margréttað
á eldavélinni hennar.
Helga fæddist á Goddastöðum í
Laxárdal, ein margra systkina, er sjö
komust til fullorðinsára, dóttir hjón-
anna Ingibjargar Jóhannesdóttur og
Jóhanns Jóhannssonar bónda þar.
Hún var þeirra léttust í lund, prakk-
arinn, eins og þau gjaman nefndu
hana og hélt sínum meðfædda „húm-
or“ alla ævi sína, þó oft hafi verið
erfiðleikar og gefið á bátinn. Munum
við hjónin alla tíð minnast ánægju-
stundanna og góðlátlegrar kímni
Helgu og smáskota til systkina sinna
í svokölluðum „skötupartíum", sem
við höfum haft árvisst fyrir hver jól
um langan tíma, og mun Helgu víst
verða saknað við skötuborðið.
Helgá fluttist til Reykjavíkur
1921, skömmu eftir fráfall móður
sinnar, er lést úr berklum á Vífils-
stöðum árið 1920. Hún starfaði að
ýmsu. Fyrst til Landakotsspítala,
síðan fiskvinnu og einnig sauma-
skap, sem hún lærði, reyndar mest
af sjálfri sér, en saumaði þó og sneið
marga kjólana.
Manni sínum Sofus Jensen kynnt-
ist hún 1929. Þau giftust 1931 og
hófu sinn búskap í Bankastræti 14.
Árið 1933 fluttust þau til ísafjarðar,
þar sem Sofus starfaði við Norska
bakaríið í þijú ár,_ er þau aftur sneru
til Reykjavíkur. Árið 1939 hófu þau
eigin rekstur með bakaríið á Þing-
holtsstræti 23«,Þar komust þau til
efna, enda hafði Sofus mikil við-
skipti m.a. við setulið stríðsáranna
enda þótti bakkelsið mikið lostæti.
Keyptu þau sér þá íbúð á Víðimel
23, þar sem þau bjuggu saman þar
til Sofus féll frá 26. júní 1968, en
hann var fæddur 10. janúar 1903 í
Svendborg í Danmörku. Helga bjó
áfram á Víðimelnum, þar til hún fór
á hjúkrúnarheimili síðustu árin og
andaðist á Skjóli, þar sem hún hafði
haft frábæra umönnun.
Tvo drengi eignuðust þau hjónin.
Inga Steinar, sem dó á barnsaldri
og var Helgu mesta lífssorg og Cec-
il Viðar, sem nú býr á Víðimel 23.
Það er óhætt að fullyrða, að fátítt
er jafn náið og kært samband og var
með þeim mæðginum og hreint ein-
stök umhyggja Cecils með móður
sinni í hennar veikindastríði.
Helga varður jarðsungin á morg-
un, mánudaginn 7. janúar kl. 15.00
frá Fossvogskapellu. Hún hlýtur að
fá góða heimkomu, og við hjónin
biðjum Guð að blessa vegferð hennar.
Haraldur Lýðsson
Guðrún Eggertsdóttir
Waage - Minning
Fædd 2. febrúar 1915
Dáin 24. desember 1990
Um viðáttu landsins vaxa strá,
sem vetrarins fannir hylja.
Svo fölnaði eins þín bjarta brá,
sem blómin að Drottins vilja,
en minningar ljóssins merla skær
og myrkvaðan hugann ylja.
E.J.E.
Hvað er lífið og hvert er farið? í
dagsins önn og erli, hugsa fæstir
mikið um dauðann og er það að von-
um, svo kaldur og hlífðarlaus, sem
hann virðist. Samt er hann stöðugt
nálægur og eftir því sem árum manns
fjölgar, slær hann sífellt tíðar til
þeirra, sem maður hefur verið sam-
ferða um lengri eða skemmri tíma.
Engu að síður kemur andlátsfregn
góðs vinar okkur flestum yfirleitt
alltaf jafn mikið að óvörum.
Þannig var um lát Guðrúnar E.
Fædd 23. júlí 1943
Dáin 30. desember 1990
Leitaðu að sál dauðans í líkama lífsins; því
að líf og dauði er eitt eins og fljótið og
særinn. I djúpi vona þinna og langana felst
hin þögla þekking á hinu yfirskilvitlega, og
eins og fræin, sem dreymir undir snjónum,
dreymir hjarta þitt vorið. Trúðu á draum
þinn, því hann er hlið eilífðarinnar.
(Kahlil Gibran)
í ljóma ljósa og skrauts sem við
höfum í kringum okkur á hátíð
ljóssins, fæðingarhátíð frelsarans,
koma áramótin. Þá hugsum við
gjarnan meira en í annan tíma um
það liðna og reynum að skynja það
ókomna. Við lítum á þetta sem
tímamót þó að í rauninni breytist
ekkert nema stafir ártalsins. En til
eru tímamót sem marka dýpri spor.
Áður en síðustu áramót gengu í
garð eða aðfaranótt 30. desember
sl. urðu tímamót í lífí Fríðu Guð-
mundsdóttur fóstru. Þá nótt yfirgaf
hún sjúkan líkama sinn og það líf
Waage, sem lést á aðfangadag jóla,
sama dag og hún átti að koma heim.
Guðrún var gift Ölveri Waage, sem
er látinn. Þijá syni átti Guðrún: Karl
Birgir og Viðar látnir, en Valur lifír
móður sína og býr hér í borg. Hann
er kvæntur Helenu Brynjólfsdóttur
og eiga þau eina dóttur, Guðrúnu
Lind, og mun nú litla Stefanía Lind
sakna langömmu sinnar, sem hún
var mjög hænd að.
Það er erfitt að festa þessar minn-
ingar við dagsetningar og ár, þær
koma fram í hugann eins og leiftur-
myndir, ekki alltaf í réttu samhengi,
en skýrar og bjartar.
Ekki ætla ég mér að fara að skrifa
hér ævisögu þessarar hugþekku
konu, heldur aðeins að minnast henn-
ar með nokkrum orðum til þess að
þakka henni fölskvalausa vináttu og
tryggð, sem hún og maðurinn hennar
hafa sýnt mér um áratugaskeið og
aldrei hefur borið skugga á.
sem við lifum hér á jörðu.
Fríða er sú fyrsta út okkar hópi
sem fer í ferðina sem fyrir okkur
öllum liggur og er í raun það eina
sem við göngum að sem vísu er við
lítum fram á við. Óvissuatriðin í
því eru aðeins hvenær og með hvaða
hætti þessa ferð ber að.
Áður en Fríða fór hafði hún um
nokkurt skeið tekist á við krabba-
mein og í annarri atlögu hafði sá
skæði sjúkdómur betur.
Fríða bar nafn með rentu, ef svo
má segja, því hún var falleg kona.
Hún bar með sér mikla birtu og
gleði. Glaðværðin og jafnlyndið ein-
kenndi allt hennar fas. Hún hafði
fagra útgeislun og góðvildin
streymdi frá henni alveg áreynslu-
laust að því er okkur virtist. Hún
var gamansöm og lagði alltaf gott
til málanna, og kunni þá list að
vera. Allir þessir góðu eiginleikar
nýttust henni í ríkum mæli í fóstru-
starfinu. Fríða hafði sérstaklega
góða nærveru. Hanni fylgdi frískur
andþ|^i;,<?g,jjVj^egt yið^mþt. Ijjjn yar
Hún var ein af þessum hógværu
góðu konum, sem fóma öllu starfs-
þreki sínu fyrir heimili sitt og ástvini.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég votta mína innilegustu samúð til
allra ástvina hennar. Hvíli mín góða
vinkona í friði.
Guðrún
jákvæð og umtalsfróm. í erfiðum
veikindum komu þessir eðliskostir
hennar sér vel.
Nú kveðjum við hana Fríðu sem
var okkur svo kær, þökkum sam-
fylgdina og biðjum henni blessunar
Guðs.
Við sendum Gunnari, Unni Erlu
og fjölskyldu innilegar samúðar-
kveðjur og biðjum Guð að styrkja
þau á þessum erfiðu tímum.
Bekkjarsystur úr
Fósturskóla Islands.
Fríða Guðmunds-
dóttir - Minning
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
FAIMIVIEY SVEIIMBJÖBNSDÓTTIR,
Týsgötu 6, Reykjavík,
sem andaðist á Grensásdeild Borgarspítalans þann 29. desem-
ber, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 7. janúar
kl. 15.QO.
Ásgeir Gunnarsson, Guðrún S. Guðmundsdóttir,
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Sigfús Ö. Erlingsson,
Elín Gunnarsdóttir, Bernd Hammerschmidt,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Móðir mín og amma okkar,
HELGAJENSEN,
Víðimel 23,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 27. desember sl.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 7. janúar
kl. 15.00.
Cecil Viðar Jensen,
Helga Jensen, Gunnar Þór Jensen,
Ingi Steinar Jensen.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
JÓNJÓSEPSSON,
Furugerði 7,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 7. janúar kl.
13.30.
Edda Sturlaugsdóttir,
Hallfríður Hruna' Jónsdóttir, Arnar Vignisson,
Ólafur Jónsson, Soffía R. Guðmundsdóttir,
Liv Gunnhildur Stefánsdóttir, Snæbjörn Þórðarson,
Sigrún Stefánsdóttir, Jón Ólafsson
og barnabörn.
......-...................\.........
t
Útför
ÞÓRUNNAR KRISTINSDÓTTUR,
Hverfisgötu 102A,
fer fram þriðjudaginn 8. janúar kl. 13.30 frá Fossvogskapellu.
Aðstandendur.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir og amma,
FRÍÐA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Espigerði 14,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. janúar kl.
15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast
hennar, er vinsamlegast bent á Krabbameinsfélagið.
Gunnar Malmquist,
Unnur Erla Malmquist, Kjartan Sigurðsson,
Harpa Mjöil Kjartansdóttir,
t
Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Arnarholti,
Hrísateigi 13,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8. janúar
kl. 15.00. Sætaferð frá Sæmundi, Borgarnesi kl. 12.00.
Sævar Guðmundsson, Sólveig Guðmundsdóttir,
Birgir Guðmundsson,
Hulda Guðmundsdóttir, Sigurður Jónasson,
Elinborg Guðmundsdóttir, Friðgeir Stefánsson,
Guðmundur Guðmundsson, Sigríður Ólafsdóttir,
Kristný Björnsdóttir, Kristinn Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
BIRNA STEINGRÍMSDÓTTIR
frá Sandhólum,
Drápuhlíð 2,
Reykjavík,
sem lést 30. desember verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
mánudaginn 7. janúar kl. 10.30.
Bergþóra Sigfúsdóttir,
Friðrik Sigfússon, Alexía M. Gunnarsdóttir,
Steingrímur Sigfússon, Auður Vilhelmsdóttir,
Sigfús Grétarsson, Margrét S. Sigbjörnsdóttir.