Morgunblaðið - 06.01.1991, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI .SUNNUDAGUR 6. JAI^ÚAR 1991
C 29
Brautskráð í Eyjum
Framhaldsskólinn í Vestmanna-
eyjum brautskráði nokkra nemend-
ur fyrir jól. 12 stúdentar voru brautr
skráðir, átta vélaverðir, einn nem-
andi á iðnbraut húsasmíða og einn
með verslunarpróf.
Útskriftin fór fram á hefðbund-
inn hátt. Skólameistari flutti ávarp,
viðurkenningar voru veittar og
síðan voru nýstúdentarnir tólf
brautskráðir
Eðvarð Matthíasson flutti ávarp
stúdents fyrir hönd nýstúdentanna.
Pyrsti stúdentinn sem stundað
hefur allt sitt nám við skólann
Framhaldsskólinn á Húsavík út-
skrifaði sex nemendur 20. desember
þar af einn stúdent af málabraut,
Ernu Bjömsdóttur, og er hún fyrsti
stúdentinn sem stundað hefur allt
sitt stúdentsnám við skólann og
lauk því á þremur og hálfu ári.
Einn nemandi útskrifaðist með
verslunarpróf, einn af iðnbraut bak-
ara og þrír úr grunndeild rafiðnað-
ar.
Við skólaslitin talaði Guðmundur
Birkir Þorkelsson, skólameistari um
kosti áfangakerfisins sem gildir við
skólann. Hann sagði að nemendur
hefðu tök á að laga námshraða að
getu sinni, hægara væri að skipta
um námsbrautir og jafnvel um
skóla. Nemendur, sem hæfu nám
eftir langt hlé, gætu með því að
velja sér tiltölulega fáar greinar náð
betri tökum á náminu í byijun og
góðir möguleikar væru á því fyrir
allan almenning að stunda nám í
einstökum greinum sem áhuga
vektu. Skólameistari gat einnig um
nokkrar nýjungar í skólastarfinu,
svo sem kennslu þroskaheftra, sem
skipulögð er af Jónínu Hallgríms-
dóttur, sérkennara. Hann gat um
öldungadeildarkennslu á Raufar-
höfn, sem starfrækt er í samvinnu
við kennara grunnskólans þar. Þá
sagði skólameistari frá Farskóla
Þingeyinga, sem er samstarfsverk-
efni framhaldsskólanna á Húsavík
og Laugum, og á næstu önn mun
hefjast verkleg kennsla á sjúkra-
liðabraut í samvinnu við Sjúkrahú-
sið á Húsavík.
Björgvin Leifsson, áfangastjóri,
gat þess að á þeim þremur og hálfu
ári, sem skólinn hefur starfað, hefði
hann útskrifað 35 nemendur, þar
af 21 iðnnema, 10 með verslunar-
próf og 4 stúdenta.
Aðskókn að skólanum hefur vax-
ið með ári hveiju og nú er rekin
heimavist í sambandi við hann og
er hún rekin við Hótel Húsavík.
HVAÐ
Oft ratast kjöftugum satt á
munn. Sem leikmanni leyfist
mér væntanlega að leggja orð í
belg þegar talið berst að list, því
einnig gagnrýnendum getur skjátl-
ast. Van Gogh var aldrei matvinn-
ungur og seldi víst aldrei nema tvær
myndir og það fyrir skít og ekki
neitt. Ekki voru gagnrýnendumir
samtíðarmenn hans á því að hann
væri neitt „geni“. Sussu nei. Svo
líða tímar og smekkurinn breytist
og nýlega fór svo málverk eftir Van
Gogh á hæsta verði sem hingað til
hefur verið greitt fyrir málverk á
upgboði í London.
Eg sá „þekktan“ listamann að
verki nýlega. Sá var með einar sex
málningardollur milli fótanna. í um
1 'k metra fjarlægð var svo strengt
léreft sem hann sletti á úr penslun-
um sem hann dýfði til skiptis í
málningardollumar. Bravó. Öðrum
listamanni tókst að selja bæjarfé-
laginu ryðgaðan og niðurníddan
barnavagn. Því listaverki var komið
fyrir á torgi bæjarins, bæjarbúum
til augnagamans.
Ég vissi nú aldrei hvað var upp
eða niður á öllum þessum „ismum",
„surreralisma“, „futurisma", „ex-
pressionisma", „kubisma“, „dada-
Hæpið reykingabann
Til Velvakanda.
etta e hugleiðing varðandi al-
gert reykingabann á ríkissp
ítölum sem gekk í gildi um áramót.
Allir gera sér ljóst nú til dags að
reykingar eru skaðlegar. Hitt er
annað mál að margir hafa ánetjast
þeim. Hjá mörgum eru þær hluti
af daglegum venjum. Flestir vilja
hætta en komast að því að það er
oft meira en að segja það. Best er
að byija aldrei neyslu tóbaks og
held ég að flest reykingafólk sé
sammála því.
En nú ætla þeir sem valdið hafa
á ríkisspítölunum aldeilis að skrúfa
fyrir slíkan ósóma. Hvort sem fólki
líkar betur eða ver á bann þetta
að gilda um starfsfólk og sjúklinga.
Ég hef frétt að aðeins dauðvona
sjúklingar eigi að fá undanþágu til
þess að reykja. Þeir sem ætla að
hætta að reykja vilja eflaust ráða
því sjálfir, hvenær þeir gera það
án þess að vera skikkaðir til þess.
Arum saman hefur sú venja ver-
ið viðhöfð að starfsfólk sjúkrahúsa
og einnig sjúklingar hafa haft af-
markað svæði til að reykja, sem
hvorki truflar reyklausa sjúklinga
né starfsfólk. En burtséð frá því
get ég varla ímyndað mér að það
fólk sem ætlar að setja þessaf regl-
ur geri sér grein fýrir á hveijum
þetta bitnar verst. Sjálfsagt hefur
það aldrei sjálft ánetjast tóbaksfíkn
eða öðru slíku. Og víst er að það
þarf ekki sjálft að fást við ánetjaða
tóbaksfíkla. Sem útúrdúr vil ég
benda á að það er ekkert ólöglegt
við að hafa orðið tóbaksfíkninni að
bráð. Enda veit ég ekki til þess að
til dæmis refsiföngum _sé meinað
að reykja í afplánun. Ég get að
minnsta kosti ekki öfundað fólk af
starfi sínu, sem t.d. þarf að standa
yfir eiturlyfjasjúklingi í bullandi
fráhvarfi og þurfa að meina honum
að fá sér smók, sem er þó næsta
saklaust miðað við öll þau efni sem
hann hefur verið á. Ég get hugsað
mér kvöl sjúklinga sem lengi þurfa
að dveljast á geðdeildum og jafnvel
ævilangt, þegar ef til vill eina án-
ægjan sem eftir er í lífinu verður
frá þeim tekin. Verður ef til vill
viðkvæðið: Þú verður að sanna að
þú sért dauðvona! Þá verður ef til
vill lagt undir nefnd hvort viðkom-
andi fær að reykja síðustu sígarett-
una eða pípuna á undanþágu frá
yfirstjórn ríkisspítalanna.
Að lokum vil ég segj'a það að
þeir sem slíka ákvörðun taka mega
sjálfsagt vel við una er sjálfsvígum
fjölgar. Þá losna líklega fleiri rúm
fyrir óánægða sjúklinga. Viðbúið
er að ekki veiti af að fækka sjúkra-
rúmum þegar starfsfólk sem ekki
unir við slíka kúgun leitar á önnur
mið. Með von um að þetta verði
tekið til nánari athugunar.
Brynhildur Björnsdóttir
Bama- og iuiglingabækur
Til Velvakanda.
Fyrir nokkru hlustaði ég á há-.
degisfréttir í Ríkisútvarpinu.
I fréttatímanum voru Islensk
bókatíðindi kynnt. Þar var getið
margra góðra bóka eftir þekkta
höfunda og er það vel. En það
olli mér miklum vonbrigðum að
ekki heyrði ég nefnda eina einustu
barna- og unglingabók, sem þó
eru mjög áhugaverðar. Má þar
nefna Undan illgrésinu eftir Guð-
rúnu Helgadóttur og Gegnum fjal-
lið eftir Ármann Kr. Einarsson,
og margar fleiri góðar bækur eru
nýútkomnar, sem ætlaðar eru
ungu kynslóðinni.
Ég vænti þess að útvarpið sjái
sér fært að kynna barna- og
unglingabækur ekki síður en bæk-
ur fyrir fullorðna. Nú er ár gegn
ólæsi og ekki veitir af að vekja
áhuga barna á bóklestri.
Hlustandi
ÞAKKIR
Kæri Velvakandi
Mig langar. til að koma á fram-
færi þökkum fyrir lipra ai
greiðslu hjá LÍN. Ég er umboðs-
maður námsmanns erlendis og hei
því samskipti við sjóðinn. Sú sem
einkum annast okkar mál heitir
Elín og er einstaklega þægileg í
viðmóti og fær í sínu starfi. Óll
framkoma starfsfólks sjóðsins er til
hreinnar fyrirmyndar.
Steinunn Stefánsdóttir
ER LIST?
isma“ og hvað þeir allir hétu eða
heita. Einnig get ég hreinskilnislega
sagt orðið rangeygur á að horfa á
myndir eftir Salvador Dali. Ég fæ
martröð þegar ég sé „Guernica"
eftir Picasso og ég tek þetta sem
dæmi um minn vanþróaða lista-
smekk.
En það er nú með þessa „isma“
í listinni sem í „pólitíkinni", þetta
eru tískufyrirbrigði að mínu mati
og ég myndi a.m.k. aldrei ráðleggja
vinum mínum að fjárfesta í slíkri
list.
Efnuð kona hringdi í mig til að
sýna mér „Kjarval" sem hún hafði
keypt. Myndin var frekar lítil og
litir mjög dökkir. Það var erfitt að
greina „motivið“. Það gerði þó ekk-
ert því hún hafði keypt „nafnið".
Þegar ég svo sagði henni að ég sæi
alls ekki að myndin væri „signer-
uð“, lá henni við yfirliði. Skítt með
myndina, nafnið var fyrir öllu.
Allir þekkja söguna um apakött-
inn sem fékk 1. verðlaun á mál-
verkasýningu. Sönn er aftur sagan
um gagnrýnandann sem hrósaði
hrafnasparki sex ára skólatelpu
sem bæði frumlegu og þroskuðu
innsæi.
Það er sjálfsagt erfitt að yera
gagnrýnandi og létt að gagnrýna
gagnrýnandann, því hvað er list?
Er náttúran sjálf ekki mesti lista-
maðurinn? Er hægt að gera betur
en náttúran? Þarna kom ég víst upp
um sjálfan mig, því ég er „natural-
isti“, og þarf helst að sjá hvað er
upp og hvað niður á mynd og þó
heldur betur. Áuðvitað leyfist lista-
mönnum að gera gys að okkur,
bæði lærðum og leikum. Við eigum
það skilið þegar við greiðum hégóm-
ann háu verði.
Nýjasta sagan og ekki sú lakasta
var um „listamanninn" sem gerði
þarfir sínar og kom skammti af
niðurganginum fyrir í gömlum tób-
aksdósum. Þetta „einstæða" lista-
verk fór svo á uppboð í London.
Ekki mun hafa fengist viðunandi
verð fyrir listaverkið í fyrstu lotu.
Síðar bauð sig þó fram listaverka-
sali á Ítalíu sem hreppti hnossið
fyrir litlar kr. tvær milljónir íslensk-
ar. Aðspurður sagði þó uppboðs-
haldarinn að erfitt myndi reynast
að koma restinni af skammtinum í
verð! Já, flest er nú orðið að heyi,
þegar fýlan er metin til fjár.
Richardt Ryel
Utsala
Útsalan heffst á morgun
Allt aó 40% afsláttur
Verslunin Glugginn y Laugavegi 40.
Prentvél
Til sölu
ROLAND REKORD
Pappírsstærö 64x96
Uppl. í síma 45333
VIÐ BERGSTAÐASTRÆTI
B B
FJOLBREYTT
VETRARSTARF
KRAMHÚSSINS HEFST
9. JANÚAR!
1 Dansleikfími. Sannkölluð upplyfting og heilsubót.
Kennarar: Hafdís Ámadóttir, Elísabet Guðmundsdóttir.
2 Afró / Carabian. Tímarfyrir dansglaða. Kennari: Clay Douglas.
3 Jass / Funk. Fyrsta flokks fjör. Kennari: Clay Douglas.
4 Nútímadans. Kraftur, tœkni, kröfur. Kennari: Hany Hadaya.
5 Leiksmiðja Kramhússins. Unnið með form, rými, spuna, texta,
raddbeitingu. Kennarar: Silvia von Kospoth og Ámi Pétur.
6 Argentínskur tangó. Kennari: David Höner.
LISTASMIÐJA BARNA:
7 Tónlist / Leiklist. 6-9 ára. Söngur, kór, blokkflauta,
nótnalestur, leikspuni. Kennarar: Margrét Pálmad.
Jóhanna Þórhallsdóttir og Harpa Amandóttir.
8 Leiklist. 7-9 ára og 10-13 ára.
Kennari: Harpa Amardóttir.
9 Leikir.Dans.Spuni. 4-6 ára.
Kennarar: Harpa og Ásta Amardæmr.
10 Jass / Dansspuni. 7-9 ára og 10-12 ára.
Kennarar: Silvia von Kospoth og Clay Douglas.
Tímabókanir standa yfir
í símum 15103 og 17860.
Höfum það virkilega gott í vetur.
HÚSI&