Morgunblaðið - 06.01.1991, Síða 30
f£ D
30 C
MORGUNBLAÐIÐ
SAMSAFNIÐ .
R 6. JANUAR 1991
ÆSKUMYNDIN...
ERAFEYJÓLFIG. SVERRISSYNI, KNATTSPYRNUMANNI
Var alltafmeð
boltann á tánum
Útivera, veiðiferðir, ævintýraferðir og einstaka
prakkarastrik áttu upp á pallborðið hjá honum.
Hann gekk undir nafninu Jolli og gerir reyndar enn
meðal vina sinna og félaga og úti í Þýskalandi hef-
ur hann fengið viðurnefnið „Jolli joker“ hvað svo
sem það merkir. Iþróttir hafa verið eins og rauður
þráður í lífi hans frá því hann var smápolli og fyr-
ir ári gerðist hann atvinnumaður á sviði knatt-
spyrnu, þá aðeins 21 árs gamall, hjá Stuttgart í
Þýskalandi þar sem Vestmanneyingurinn Asgeir
Sigurvinsson hefur gert garðinn frægan undanfarin
ár.
Eyjólfur Gjafar Sverrisson, eins
og hann heitir fullu nafni, er
fæddur á Sauðárkróki 3. ágúst árið
1968. Foreldrar hans eru Sverrir
Björnsson húsasmíðameistari og
Guðný Eyjólfsdóttir. Eyjólfur er
næstyngstur fimm systkina. Hann
á þijá bræður og eina systur. Þau
eru Hallfríður, sem er elst. Síðan
kemur Björn, Eiríkur, Eyjólfur og
Sverrir og öll hafa þau stundað
íþróttirnar af kappi. Á tímabili voru
bræðurnir fjórir allir saman í knatt-
spymuliði þeirra Sauðkrækinga,
Tindastóli. Eyjólfur gekk í skóla á
Sauðárkróki og lauk stúdentsprófi
frá félagsfræðibraut Fjölbrauta-
skólans þar í bæ fyrir tæpum tveim-
ur árum. Eftir að hafa sett upp
stúdentshúfuna gerðist Eyjólfur
verkstjóri í unglingavinnunni á
Sauðárkróki sumarlangt og um
haustið fór hann að vinna við af-
greiðslustörf í vefnaðar- og sport-
vörudeild Kaupfélags Skagfirðinga,
Skagfirðingabúð. Fyrir ári gerði
hann samning til eins og hálfs árs
við kriattspyrnuliðið Stuttgart og
rennur sá samningur út í júní næst-
komandi. Eyjólfur segir framtíð
sína með öllu óráðna að afloknum
þeim tíma. Hann býr skammt fyrir
utan borgina Stuttgart ásamt unn-
ustu sinni Önnu Pálu Gísladóttur
og nýfæddum syni Hólmari Emi.
„Hann hefur alla tíð verið mjög
ákveðinn og vissi alltaf hvað hann
vildí. Hann er fæddur leiðtogi enda
var hann meðal okkar félaganna
mjög vinsæll," segir Gunnar Bragi
Sveinsson bensínafgreiðslumaður á
Ábæ og æskuvinur Eyjólfs. Björn
Jóhann Björnsson, annar æskuvinur
Jolla, segir það ekki hafa skipt
máli hvaða íþróttagrein hann snerti.
Það hafi bara verið á hann kallað
þegar það vantaði sterka menn í
keppni. „Hann var með boltann á
tánum frá því að hann fór að labba
og lengi vel spiluðum við félagarnir
saman á grasvelli á Sauðárkróki
sem í daglegu tali gekk undir nafn-
inu Wembley," segir Björn Jóhann.
„Okkar tími fór mikið í íþróttirn-
ar og svo gerðum við auðvitað hin
ýmsu prakkarastrik, eins og við er
að búast af ungum og hressum
strákum," segir Gunnar Bragi.
„Ævintýraferðir áttu töluvert upp
á pallborðið hjá okkur og einna
helst minnist ég hrafnaveiðanna,
sem við stunduðum af miklum eld-
móði þó yfirleitt bærum við lítið úr
býtum. Veiðisvæðið var hinn svo-
kallaði gamli flugvöllur, sem er hér
rétt hjá, og þangað fórum við vopn-
aðir bogum og örvum. Stundum
áttum við líka til ýmis miður falleg
uppátæki. Við laumuðumst t.d. í
skjóli nætur og fengum okkur gul-
rætur og gulrófur út nágrannagörð-
unum sem mæltist ekkert sérlega
vel fyrir hjá húsmæðrunum sem þar
bjuggu. Við stunduðum líka sverða-
bardaga, hjóluðum mikið saman og
fórum á skíði og snjóþotur í svokall-
aðri Grænuklauf. Ég er handviss
um að Jolíi á eftir að standa sig vel
í atvinnumannaboltanum á komaridi
árum. Þetta er rétt að byija hjá
honum. Manni flaug það reyndar í
hug fyrir löngu síðan að hann ætti
ef til vill eftir að verða atvinnumað-
ur. Hann var alltaf nokkrum metr-
um á undan okkar hinum,“ segir
Gunnar Bragi.
UR MYNDAS AFNINU
ÓLAFUR K. MAGNÚSSON
Vígsla
Þjóðleikhússins
Vígsla Þjóðleikhússins á sumar-
daginn fyrsta árið 1950 var
merkur og eftirminnilegur viðburð-
ur í menningarlífí
íslensku þjóðarinnar. í
Morgunblaðinu frá
þessum tíma er ítarlega
fjallað um vígsluhát-
íðina og þar segir meðal
annars: „Þó hlustend-
um útvarpsins gæfíst
kostur á að heyra það
sem þar fór fram, gat það ekki
orðið annað en svipur hjá sjón, sam-
anborið við það, að eiga þess kost,
að vera meðal fyrstu gestanna í
hinu nýja Þjóðleikhúsi. Flestir
þeirra, er þar voru gestkomandi
þetta kvöld, munu aldrei áður hafa
komið þar inn fyrir dyr. Og þeim
mun flestum hafa hafa farið svo,
að þeir hafí undrast,
hve húsakynni Þjóðleik-
hússins voru vegleg,
þegar inn er komið.“ -
Fyrsta leiksýning Þjóð-
leikhússins var Nýárs-
nóttin, til heiðurs Ind-
riða Einarssyni, sem
kallaður var „faðir“
Þjóðleikhússins og þótti sýningin
einkar „fögur og skrautleg" svo
vitnað sé í samtíma heimildir. Með-
fylgjandi myndir tók Ólafur K.
Magnússon í tengslum við þennan
mérka menningarviðburð.
Nýr og glæsilegur salur Þjóðleikhússins, hálftima áður en fyrstu
gestirnir gengu til sætis.
SUNNUDAGSSPORTIÐ...
BÓIiIN
ÁNÁTTBORDINU
MYNDIN
ÍTÆKINU
PLATAN
ÁFÓNINUM
Skíöaganga
Skíðagöngu er nánast hægt að iðka hvar sem er svo framarlega sem
snjór er á jörðu. Óskafæri skíðagöngumannsins er nýfallin jólasnjór
og vægt frost. Lauslega áætlað stunda um tuttugu Islendingar skíða-
gönguæfingar að kappi og er stór hópur þeirra nú við æfingar úti
í Svíþjóð.
A
Arleg keppni fer fram í öllum
flokkum. Fullorðið fólk fær
sitt tækifæri á landsmóti. Ungling-
ar keppa í skíðagöngu á unglinga-
meistaramóti, sem yfírleitt er haldið
viku fyrir landsmót og yngstu kyn-
slóðirnar fá sitt tækifæri á Andrés-
ar Andar-leikunum, sem fram fara
árlega á Akureyri. Næsta
landsmót fer fram á
ísafírði i kringum páskana
og unglingameistaramót á
Akureyri helgina áður.
Óskar Jakobsson æfír
skíðagöngu reglulega.
Hann er Isfírðingur og hef-
ur æft sig af kappi í Selja-
landsdal þar sem hann seg-
ir að sé mjög góð aðstaða
til skíðagönguiðkana og nú
sé unnið að byggingu nýs
skála fyrir skíðagöngufólk.
Á Akureyri segir hann að
aðstaða sé einnig góð. „Ég
flutti fyrir hálfu öðru ári
til Reykjavíkur ásamt fjöl-
skyldu minni og hef ég
síðan ekki verið nógu dug-
legur við æfingar. Mér
finnst fólk hér fyrir sunnan
alls ekki nógu duglegt að
stunda þetta því skíðaganga er jú
mjög holl og frekar ódýrt sport.
Meðalútbúnaður kostar ekki nema
10 til 15 þúsund krónur 'og nóg
landflæmi er hér allt í kring. Ég
og félagi minn einn höfum hugsað
okkur að halda einhver kvöldnám-
skeið í vetur og jafnframt hefur
skíðadeild
Fram boðið
mér mjög
góða aðstöðu
til þjálfunar
við Fram-
heimilið í
Álftamýri.
Ætli menn
sér á annað
borð að taka
skfða-
gönguna al-
varlega og
hugsa til þess
að ná langt,
er best að
byija á því að
byggja upp
þrek að sumri
til með hlaup-
um og
skokki."
Ingvar
Hólmgeirs-
son skipstjóri
Bókin „Hafrannsóknir við ís-
land“ eftir Jón Jónsson, 2.
bindi, er á náttborðinu hjá mér sem
stendur. Ég fékk hana í jólagjöf og
fjallar hún um helstu þætti hafrann-
sókna við ísland og. árangur þeirra
undanfarin 50 ár. Einnig er lýst
friðunaraðgerðum Islendinga. Ég
hef mesta ánægjú af lestri sann-
sögulegs efnis og les nánast allt
nema skáldsögur.
Bjarki Heið-
ar Bjarna-
son 7 ára
Eg horfí mikið á það sem amma
mín tekur upp úr Sjónvarpinu,
til dæmis Hemma Gunn-þættina.
Svo hef ég verið að horfa á Tinna-
myndirnar hjá vini mínum. Þessar
myndir heita: Tinni og hákarlavat-
nið, Dularfulla stjarnan, Fjársjóður
Rögnvalds rauða og Svaðilför í
Surtsey. Þær eru mjög skemmtileg-
ar og við erum búnir að horfa á
þær mörgum sinnum.
Bubbi finnst mér vera langbest-
ur. Nýja platan hans er þræl-
góð. Svo finnst mér Laddi líka rosa-
lega góður. Hann gaf út tvær plöt-
ur fyrir jólin. Þær eru báðar fínar.
*
Eg las um jólin endurminningar
Megasar „Sól í Norðurmýri“
sem skrifuð er af honum og Þó-
runni Valdimarsdóttur og fannst
mér það hin ágætasta bók. Þar
áður las ég Gunnlaðarsögu eftir
Svövu Jakobsdóttur og nýlega las
ég Fávitann eftir Dostojevskíj.
Skáldsögur eru í miklu uppáhaldi
hjá mér, bæði íslenskar og þýddar.
Eg horfi á allt barnaefnið í Sjón-
varpinu oftar en einu sinni.
Við tökum það upp á myndbands-
spólur svo ég get séð það aftur og
aftur. Mér finnst Tinni líka ágætur.
Svo fékk ég myndbandsspólu frá
Englandi í jólagjöf sem er sagan
um Stilkisbeija-Finn.
Mér fínnst Valgeir Guðjónsson
mjög góður og svo eru Ladda
lögin líka ofsalega skemmtileg. Ég
fékk eina plötu í jólagjöf - nýju plöt-
una með Rokklingunum, en mamma
ætlar að skipta á henni og kasset-
tunni af því að ég á ekki plötuspil-
ara.