Morgunblaðið - 16.03.1991, Page 12

Morgunblaðið - 16.03.1991, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARZ 1991 Það er nú ekki meira mál eftir Steinar Steinsson Að undanförnu höfum við verið áhorfendur að ótrúlegu bruðli. Ráða- menn virðast hafa nóg af almannafé til að veita sjálfum sér kaupauka í ýmsum myndum. Hér má t.d. nefna það furðulega fyrirbæri að veita ráð- herrum bónus fyrir að vera erlendis í tíma og ótíma. Þá mætti einnig nefna lífeyrissjóðsmál ráðherra og þingmanna og fleiri mál sem ekki verða tíunduð hér enda er tilgangur þessa greinarkoms annar. Þegar kemur að málefni er varðar björgun úr lífsháska og flutning sjúkra er hinsvegar lítið um aura og málið verulega vandasamt. Nefndir á þingi þjóðarinnar eyða miklum tíma til að fínna lausn á þessu flókna máli. Þingmenn koma fram í fjölmiðl- um til að tjá sig um málið. Rauna- svipurinn á þeim er með eindæmum enda þung ábyrgð er þeir axla. Við óbreyttir borgarar og þolendur kerf- isins eru hinsvegar áhorfendur að þessu sjónarspili og fullviss um að þingmennirnir hljóti að vera of marg- ir fyrst ekki er unnt að bjóða uppá merkilegri sýningu. Mörg nauðsynjamál eru ekki ijár- frek og unnt að fjármagna þau ein- faldlega með ráðdeild og aðhaldi í rekstri og svo er einnig um þyrlumál- ið. Við skulum t.d. líta á eftirtaldar fjármögnunarleiðir, sem byggja á ráðdeild og aðhaldi í æðstu stjóm landsins: Dæmi: Á fyrsta fundi nýrrar ríkisstjórnar er ákveðið að panta þegar í stað 1 stk. björgunarþyrlu með afísingar- búnaði. Verð áætlað kr. 800.000.000 er greiðist á 12 árum. Og aðra sams- konar þyrlu að tveim árum liðnum með sömu kjörum. Fjármögnun þyrlu nr. 1: Sparnaður í yfírstjórn. Þak verði sett á fjölda ráðherra svo þeir verði eigi fieiri en sex. Spamaður: Núverandi ráðherraíjöldi og að- stoðarmenn þeirra 22. Ráðherraljöldi í nýrri stjórn og aðstoðarmenn þeirra 12. Spamaður á stöðugildum 10. Meðalkostnaður af hveiju starfi áætlaður 8.000.000 kr. Spamaður til þyrlukaupa 108.000.000 = 80.000.000 kr. p.a. Fjármögnun þyrlu nr. 2: Spamað- ur í þingstörfum. Þingmönnum verði fækkað um tvo í hveiju kjördæmi. Fjármögnun: Núverandi þingmannafjöldi er 63. Þingmannaijöldi eftir fækkun 47. Spamaður á stöðugildum 16. Meðal kostnaður af hveiju starfi áætlaður 5.000.000 kr. Spamaður til þyrlukaupa 165.000.000 = 80.000.000 kr. p.a. Svo er bara að spara ennfrekar í kerfínu og sýna meiri ráðdeild og Vélsmiðjur mm ERCOLE 280 HJAKKSAGIR RÚSCH HBS 250 BANDSAGIR - par semgœdi oghagkvœmnifara saman... Til afgreiðslu nú þegar G.J.Fossberg vélaverzlun hf. Skúlagötu 63 - Reykjavík- Símar 618560-613027 Telefax 625445 Steinar Steinsson „Mörg- nauðsynjamál eru ekki fjárfrek og unnt að fjármagna þau einfaldlega með ráð- deild og aðhaldi í rekstri og svo er einnig um þyrlumálið.“ þá er unnt að gera enn fleiri góða hluti. Gleymum þeirri hugmynd að klóra fé uppúr happdrættismarkaðn- um, sem fjármagnar nú þegar mörg merkileg viðfangsefni. Manni verður um og ó þegar landsfeðurnir fara að seilast í happadrættisaura til að fjármagna verkefni sem að sjálf- sögðu falla undir sameiginlegan sjóð landsmanna. Leyfum því fólki sem vinnur af þegnskap og ósérhlífni að merkum málefnum að sækja fjár- hagslegan stuðning í happdrættisfé án samkeppni ríkisvaldsins. Höfundur er tæknifræðingvr. Kaup á björg- unarþyrlu eftir Inga Björn Albertsson ,Allt frá því að undirritaður tók fyrst sæti á Alþingi hefur hann barist fyrir því að þjóðin eignaðist fullkomna björgunarþyrlu, útbúna með afísingarbúnaði og meiri burð- ar- og fluggetu en stærri þyrla Landhelgisgæslunnar hefur. Síðastliðinn þriðjudag steig Al- þingi stórt skref í átt til þess að þessi stóri draumur rættist, með samþykkt þingsályktunartillögu undirritaðs, um að ríkisstjórnin skuli á árinu 1991 gera samning um kaup á fullkominni björgunar- þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. Þessa ályktun Alþingis ber ríkis- stjóminni að virða og framkvæma, og má því fullyrða að kaupsamning- ur verði gerður á þessu ári. Þessu bera að fagna. Það er ekki ætlunin að rökstyðja málið í þessu greinarkorni, það er öllum ljóst hversu brýnt það er, þessar fáu línur eru eingöngu ritað- ar til þess að þakka þeim ijölmörgu sem lögðu hönd á plóginn, sjómönn- um, sjómannskonum, nemendum Stýrimannaskólans, félögum og ýmsum samtökum, og alveg sér- staklega starfsmönnum Landhelg- isgæslunnar og fleiri aðilum. An stuðnings þeirra hefði niðurstaðan hugsanlega orðið önnur og verri. Höfundur er alþingismaður Sjáifstæðisflokksins fyrir Reykjavík. Ingi Björn Albertsson „Síðastliðinn þriðjudag steig Alþingi stórt skref í átt til þess að þessi stóri draumur rættist, með samþykkt þings- ályktunartillögu undir- ritaðs, um að ríkis- sljórnin skuli á árinu 1991 gera samning um kaup á fullkominni björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. “ ASTIKROSS ________Leiklist____________ Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Thalía, leikfélag Menntaskól- ans við Sund, sýnir Þrettánda- kvöld eða Hvað sem þér viljið eftir William Shakespeare. Leiksfjóri: Hávar Siguijónsson. Tónlist: Siguijón Axelsson og Bjarki Marínósson. Lýsing: Hjörleifur Jónsson og Halldór Kristinn Júliusson. Harmræn örlög og mikilfeng- legar persónur eru kannski það fyrsta sem mörgum dettur í hug þegar þeir hugsa um Shakespe- are; Hamlet, Macbeth, Lér kon- ungur, Rómeó og Júlía. En kímn- in og skopið er ekki síður aðal þessa leikskálds allra tíma. Þess vegna er það mjög miður ef fólk gengur með þá grillu í kollinum að leikrit Shakespeare séu þung og leiðinleg og einungis ætluð menningarvitum. Gamanleikir Shakespeares eru margir hverjir afburðafyndnir og skopið hefur lítið látið á sjá í gegnum aldirnar; það er reyndar oft stutt í skopið í harmleikjunum enda ekki alltaf svo langt milli hláturs og gráturs. Þrettándakvöld eða Hvað sem þér viljið segir frá ástum í kross í landi sem nefnist Iliría. Orsínó hertogi er yfir sig ástfanginn af Ólivíu greifynju en hún hefur ný- lega misst bróður sinn og streng- ir þess heit í sorg sini að láta karlkynið lönd og leið. Víóla dul- býst sem karlmaður, Sesaríó, í þjónustu Orsínós og ber ástarorð hans til Ólivíu en verður sjálf hrif- in af hertoganum. Því miður tekst ekki betur til en að Ólavía verður ástfangin af Sesaríó/Víólu. Til að bæta gráu ofan á svart á Víóla bróðir og eru þau systkinin ná- kvæmlega eins í útliti en þau vita ekki hvort af öðru þarna í Iliríu. En eins og í góðri lygasögu fer allt saman vel að lokum eftir mik- inn misskilning, fum og fát. Gam- ansemin felst þó ekki einungis í sögunni sjálfri heldur ekki síður í textanum sem er á tíðum skop- legur í meira lagi og fullur af skemmtilegum tilsvörum og orða- leikjum. Sýning krakkanna í Thalíu og leikstjórans Hávars Sigurjónsson- ar á Þrettándakvöldi er prýðilega úr garði gerð og útfærslan skemmtileg. Leikmyndin er enföld og er lýsingin stór hluti hennar. Aðal leiksvæðin voru á þremur stöðum í salnum þ.e. heimili Ors- ínós, Ólivíu og bústað Tóbíasar sem er sukksamur frændi Ólivíu. Vinstra megin í salnum er stigi og á stigapallinum er heimili Ors- ' ínós. Með því að nota svona stig- ann og pallinn kemur meira upp- brot og líf í uppsetninguna en ella hefði orðið ef allt hefði verið leik- ið á sama fleti. Leikurinn er býsna jafn og tæpast rétt að tína þar út úr ein- hver nöfn, reyndar sýna flestir leikaranna góða takta og fram- sögnin er yfirleitt með besta móti. Sum hlutverkin eru þess eðlis að leikararnir fá tækifæri til að sprella dálítið og þeir nýta það vel en alls ekki yfirgengilega. Búningar eru fijálslegir en flestir með rómantísku hippayfirbragði enda geta íbúar Iliríu verið uppi á hvaða tíma sem er. Það þarf ekki að táka það fram að leiklistin á öruggt athvarf í _ framhaldsskólum. Eg held að það ' sé varla til sá skóli í landinu sem ekki á sér leikfélag með duglega og áhugasama meðlimi. En hversu vel nær leiklistaráhuginn út fyrir þann hóp til hins almenna nem- enda? Það er sjálfsagt eitthvað misjafnt eftir sýningum og skól- um en ég held að hann mæti að ósekju vera meiri. Það er því spurning hvort ekki mætti nota þetta starf skólaleikfélaganna til þess að kynna fyrir hinum al- menna nemenda innviði og töfra leikhússins. Kannski mætti taka verkin sem sýnd eru hveiju sinni og fjalla um þau í íslenskutímum. Þá er um að ræða veruleika sem er krökkunum nálægur, sköpun sem á sér stað í þeirra eigin skóla en ekki bara hjá viðurkenndum stofnunum úti í bæ. Ástin í höfn. Leikarar (talið frá vinstri): Þ. Agla Magnúsdóttir, Pétur Örn Guðmundsson, Jónina Þórólfsdóttir og Páll L. Guð- mundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.