Morgunblaðið - 16.03.1991, Page 14

Morgunblaðið - 16.03.1991, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARZ 1991 Litið um öxl Myndlist BragiÁsgeirsson Yfírlit, eða Litið um öxl, nefnist yfirgripsmikil málverkasýning Kjartans Guðjónssonar í Hafnar- borg, menningarmiðstöð þeirra Gaflara, sem opnuð var mars og lýkur hinn sautjánda. Hér er um að ræða úrval mynda, sem listamaðurinn hefur sjálfur tekið saman og spannar allan feril hans, og að auki er hann með aðra sýningu í gangi um leið í List- húsi á Vesturgötu 17 hér í borg, þar sem hann sýnir einungis nýleg verk. Sýningar af þessu tagi eru ekki algengar hérlendis, enda mjög erf- iðar og yfirleitt margra manna verk að koma þeim saman á löng- um undirbúningstíma. En þá þurfa gerendur helst að gjörþekkja til æviverks viðkomandi listamanns, því að annars vilja útkomumar verða æði undirfurðulegar, bera meiri keim af þeim sem setja þær upp og skoðunum þeirra, en lista- manninum sjálfum. Og þeir eru víst ekki margir núlifandi fræðingarnir, sem gjör- þekkja til listar Kjartans Guðjóns- sonar, enda kom hann mörgum á óvart með gömlu myndunum sínum á sýningunni September — Septem á Kjarvalsstöðum í fyrra. En sjálfur er maðurinn vel þekkt stærð á íslenskum myndlistarvett- vangi og myndlistammræðu, því að hann er vanur að setja skoðan- ir sínar fram á fádæma hispurs- lausan hátt, sem er nær einsdæmi meðal hérlendra málara. í Frans eru slíkir nefndir „en- fant terrible", sem útleggst sam- kvæmt orðabókinni „óhemjandi barn“ (sem kjaftar frá einhveiju þegar verst gegnir). Einnig loðir þessi nafnbót iðulega við reiða unga menn, og þá einkum af þeir fást við listir. íslenzka myndlistarumræðu í dag má stundum skilgreina sem „músina sem læðist", og rökræðu sem hnútakast og er þá gott að hafa heilræði dönsku heimskon- unnar í huga, sem hún gaf Jóni Engilberts forðum daga: „Ef þú þarft að öskra, öskraðu þá meðal ljóna.“ Og samkvæmt því hefðu þeir Jón og Kjartan hvorugur átt að ílendast á heimaslóðum, því að í þessu Iitla landi er það stórhættu- legt að hafa munninn fyrir neðan nefið, eins og sagt er. Myndlistarmenn verða að skilja það, að þeir verða sjálfir að gefa tilefni til heilbrigðrar, hispurs- lausrar rökræðu á myndlistarvett- vangi og að opinber málþing á nokkurra ára fresti, sem enda á glasaglaumi hjá ráðherra, hafa nákvæmlega ekkert að segja. Það er rökræða dagsins sem gildir og skelegg skoðanaskipti á opinberum vettvangi í hvert sinn sem tilefni gefst til. Og það er, að árum, ungum listamönnum, til umhugsunar, að nær sjötugur listamaður skuli gjör- samlega slá þeim við í hressilegri ádeilu á menn og málefni — bæði í formála sýningarskrár og í við- tali í Lesbók. Látum það liggja á milli hluta, hvort hann hafi rétt eða rangt fyr- ir sér, en hitt er margfalt mikils- verðara, að hann þorir að láta í ljósi skoðanir, sem annars heyrast hvergi nema í þröngum hópi á kaffihúsum, öldurhúsum og annars staðar, þar sem listamenn koma saman, og þeir sem liggja undir hvössum ádeilunum eru örugglega utan sjónmáls og áheymar. Og þar eru margir kóngar og keisarar í ríki sínu. þörf hjá Kjartani til að umbreyta formunum og fara frjálslega með það sem túlkað er. Slíkt nefnist á fagmáli að færa í stílinn, eða jafn- vel „stílisera“, eins og danskurinn segir. Frá þessu tímabili eru unggæð- islegar en mjög fallegar myndir, mettaðar rómantík og fyrirheitum til lífsins. Liturinn í þeim er sam- ræmdari og mildari en síðar varð Rigning, olía á striga 1984, í eigu Flughótelsins í Keflavík. Að lesa slíkt viðtal er líkast hressilegri og ferskri golu í logn- mollu og hitasvækju, eða v'atns- gusu í þurrki! Auðvitað er fjarri því að ég sé sammála öllu því sem Kjartan seg- ir, og lít ég t.d. allt öðrum augum á eðli yfirlitssýninga og svo hef ég mjög gaman af stórum mynd- listarsýningum, en hann segir sig vera kominn með sjónleiða eftir 55. mynd, það er þó býsna há tala í nútímanum, en ungir virðast vera í sömu spórum eftir 5-10 myndir hvað marka má af sýningum þeirra. En hér er aðalatriðið, að skoða einungis það sem vekur áhuga manns eftir fyrsta hraða yfirlit. í skógarferð skoða menn ekki öll trén, heldur leita uppi áhugaverðar gönguleiðir, fagra staði og unaðs- lundi til að æja í. Um annað ræði ég ekki hér, því að það er annars vettvangs og sumt af því skarar umræðu mína á næsta Sjónmenntavettvangi í Menningarblaðinu. Mikilsverðast er, að það er bein- skeyttur broddur í öllu því sem Kjartan segir og mæli hann heill. Á sýningunni í Hafnarborg er mikill fjöldi mynda og teljast þær elstu, sem eru frá stríðsárunum, fígúratívar eins og þekkjanlegt form mannsmyndar er skilgreint. En frá upphafi kemur fram rík og formin opnari og fijálslegri. Tímabilið fram að strangflatalist- inni, eða geometrísku abstraksjón- inni, eins og Kjartan kýs að nefna það, er eitthvað hið lífrænasta í öllum ferli hans, og þótt að hann væri undir sterkum áhrifum frá stórstirni aldarinnar, Pablo Pic- asso, og ýmsum öðrum, þá búa þessar myndir iðulega yfir sterkum persónueinkennum, sem eru ger- andans. Er mikill skaði að Kjartan skyldi ekki allur og óskiptur geta einbeitt sér að málverkinu á þessu mikilvæga þroskaskeiði, en hann varð að afla sér skotsilfurs með kennslu við Handíða- og myndlist- arskólann samfara listiðkun. Var greinarhöfundur einn þeirra sem nutu kennslu hans á árunum 1947-49 og getur staðfest, að það var leit að dugmeiri og fórnfúsari kennara. Má jafnvel segja að hann hafi gengist full mikið upp í kennsl- unni í gegnum árin, því að þetta er vafasamt hliðarstarf með skap- andi vinnu, í því formi, sem það hefur því miður þróast hér á landi. Kjartan fann sig svo ekki í þræl- skipulegri flatalistinni, er flæddi yfir, og hefði átt að láta það ógert að koma nálægt henni ásamt nær öllum sem ánetjuðust henni hér á landi. En þó kom fram hjá honum mjög lífrænt tímabil í abstraktinu upp úr árinu 1970 og á því tíma- bili gerði hann ýmsar af sínum stemmningaríkustu myndum. Síðan sækir fígúran á hann aftur og hefur verið ríkjandi þáttur í list- sköpun hans fram á daginn í dag, og þá oft með myndefnum úr ver- inu. Hin gömlu myndaefni kreppu- áranna eru hér komin aftur en í nýjum búningi, litirnir og formin eru öll hávaðasamari og hvellari en í æskumyndunum og úrfærslan staðlaðri. Það er líkast sem að rökvís kuldi strangflatalistarinnar hafi fylgt listamanninum, allt frá því að hann ánetjaðist henni, og þannig nær hann marktækustum árangri er ííonum tekst að tendra skynrænt listasamspilið innra rafmögnuðu lífí og yfírgnæfa með því rökhugs- unina. Kannski gerir Kjartan sér þetta manna best ljóst sjálfur, og í ljósi þess eru hin harkalegu ummæli hans um þetta tímabil réttlætanleg og hann var fyrstur manna til að gera uppreisn gegn stefnunni á opinberum vettvangi, var ekki heilsað á götu í langan tíma á eft- ir. En þetta kom frá útlandinu, svo sem margt illt sem gott. Níðþröng viðhorf og miðstýring, sem pólitísk öfl notfærðu sér og beittu lista- mönnum fyrir vagn sinn, eða reyndu það í öllu falli, Frakka dreymdi um alþjóðlegt mál listar- innar, sem að sjálfsögðu átti uppr- una sinn í Frakklandi og öll önnur tungumál listarinnar voru dæmd ógild um leið — hreinlega ekki til. Svipað því að þeir neita helst með öllu að læra önnur tungumál en sitt eigið, og líta niður á alla sem hafa ekki vald á því. Eftir hinar miklu hræringar í Evrópu á allra síðustu árum getum við litið hlutina í öðru ljósi og víðara samhengi, því að þær hafa kallað fram nýtt gildismat og upp- stokkun á fortíðinni, ekki einungis í stjórnmálum heldur einnig í list- um. Við verðum að líta á bakgrunn- inn, en ekki einungis skella skuld- inni á það nærtækasta. En þetta hafði slæmar afleiðing- ar hér í einangruninni og margur þorði bókstaflega ekki að mála neitt þekkjanlegt á striga árum saman og mannsmyndin var for- dæmd. Svolítið undarlegt í ljósi þess, að fram hefur komið að mannslíkaminn er einhver snilldar- legasta „geometría" sem náttúran hefur getið af sér og leysir fyrrum óleysanlega reiknisþraut, hvað snertir þrískiptingu hornsins, tvö- földun teningsins og ferskeytingu hringsins, hin svonefndu klassísku vandamál Forn-Grikkja. Hér eru þannig samankomin öll helstu frumformin, sem geometrían gengur útfrá í einu! Það var einkennandi við þá, sem ánetjuðust, að þeir voru slegnir blindu á nær allt annað í mynd- list, sem gert var í samtíðinni og fyrir marga er það beiskur biti að kyngja, er litið er til baka. Á öllum tímabilum listar sinnar hefur Kjartan gert athyglisverð verk, svo sem glögglega kemur fram á þessari sýningu, en þessi verk virðast oft spretta fram alveg óforvarandi, en ekki eftir rökrétta þróun eða sköpunarferli, þannig eru það nokkrar myndir á sýning- unni, sem skera sig úr á auga- bragði eins og t.d. frá þroskaárun- um: „Vor“ 1946 (5), „Kvöld í sjáv- arþorpi“ 1947 (8), „Fjölskyldan" 1947 (10) og „Kona með spegil" 1951 (13). Seinni tíma myndir eins og „Gnúpur" 1973 (27), „Dagmál" 1980 (35), „Rigning“ 1984 (39), „Dökkhærða stúlkan" 1988 (52) og „Glit“ 1963-65 (55). Það hefur verið. haft fyrir satt, að Kjartan gegni um margt svip- uðu hlutverki í myndlistinni og Jón úr Vör í Ijóðlistinni og má það vera rétt, því að auðsæ er sam- kennd hans með alþýðunni, óbreyttu fólki í leik og dagsins önn, og myndefni sitt sækir hann óspart í vörina að segja má. Á sýningunni eru 66 myndverk og eru þau öll að tveim undantekn- um unnin í olíu, en elsta myndin er teikning frá 1944 og svo er ein lakkmynd frá 1953. Margir munu sakna þess að sjá ekki markvisst úrval af teikningum og rissum á þessum sýningum Kjartans, en þar er hann oft í sér- flokki. Myndasaga hans við sögu Haralds konungs harðráða, sem hann gerði á árunum 1955-59 og taldi 500 riss, birtist í Þjóðviljanum á sínum tíma og vakti mikla at- hygli, var brautryðjandaverk og mikið afrek. Stærri og þroskaðri menningarheildir hefðu vísast ævi- ráðið hann á þeim vettvangi. Slík viðbót við sýninguna hefði ekki einasta gert hana fjölbreýtt- ari, heldur aukið á áhrifamátt hennar. Sumar myndir vilja vekja meiri viðbrögð hjá fólki en aðrar, og þannig varð ég meira en var við, að hið sérkennilega málverk „Rigning", sem er af þrem stúlkum með regnhlífar, vakti óskipta at- hygli við opnun sýningarinnar. Sterk mynd og sérkennilega mál- uð, hreinasta perla frá hendi lista- mannsins, sem ætti hvergi heima annars staðar en á Listasafni ís- lands. Málarinn Kjartan Guðjónsson hefur nú þegar skilað dtjúgu lífsverki, verið virkur á mörgum vígstöðvum, og nú er hann stendur á sjötugu, virðist hann vígreifari en nokkru sinni fyrr og af honum gustar eldmóður og vjlji til átaka. Mál er að samgleðjast og minna á sýninguna, en henni lýkur á sunnudag. Jakob í Stöðlakoti Myndlist Eiríkur Þorláksson Stöðlakot við Bókhlöðustíg lætur lítið yfir sér, þar sem það stendur í brekkunni upp frá Lækjargötu, með byggingar Menntaskólans í Reykjavík handan götunnar. Því má ætla að þrátt fyrir að þetta sé fallegt hús og vel frágengið geri ekki allir sér grein fyrir að innan dyra er að,fínna,eiLt af listgalleríum Keykjavkm', og e,U Larra þar sem innrétting hússins tekur mið af þessu hlutverki. Því býður Stöðiakot upp á talsverða möguleika fyrir litl- ar sýningar, bæði á veggjum og á gólfí, uppi og niðri. 2. mars opnaði Jakob Jónsson sýningu á 15 myndverkum í Stöðla- koti, en þau eru öll unnin á pappír. Jakob er enginn nýgræðngur í myndlistinni, og mun þetta sjötta einkasýning hans, en sú fyrsta var í Bogasal.Þjóðminjasafnsins 1976. sótti sína listmenntun til Danmerkur, þar sem hann var í Ny Carlsberg Glypotek 1965-67, en fékk þá inni í Konunglegu dönsku listaakademíunni, þar sem hann var við nám frá 1967-71. Verkin á sýningunni eru öll unn- in með olíupastel og álímingum á hvítan pappír. Um viðfangsefni þeirra segir listamaðurinn í sýning- arskrá: „Gestum er boðið í göngu- ferð um landið okkar og við blasir himinn, haf og hauður. Sú kvöð ein fylgir boðinu, að gestir líti um- hverfi sitt augum leiðsögumanns- ins. Að leiðarlokum er gerður stanz 'í Hruna og stiginn dans ..." Það er ef til yill talsverð kvöð að ætla gestum að nota augu lista- mannsins við skoðun umhverfisins, því að hver hefur sínar kenndir, sem lita nokkuð viðhorfin til þess fyrir augu ber. En með þessu er Jakob búinn að benda gestum í átt til sín, og það gerir eftirleikinn við athugun myndanna ögn viðráðanlegri. Öll útfærsla verkanna er afar þröngt skorðuð, þannig að hvítur pappírinn og hugarflug áhorfand- ans ráða mestu um útkomuna. Þó má í öllum tilvikum fylla út í mynd- ina frá þeim vegvísum sem listmað- urinn gefur: „Blikur á lofti“ (nr. 3) lýsa þessu náttúrufyrirbæri vel, og „Sól tér .sortna (Völuspá)“ (nr. 9) fyigir viðfangsefnmu á litríkan hátt. Á svipaðan hátt nær hrynjand- inn í „Dansinn í Hruna“ (nr. 11) að túlka þann fræga þjóðsögulega atburð í íslenskri sögu ágætlega. Þó er það í einföldustu myndun- um sem myndmálið og vinnuaðferð listamannsins komast best til skila, og má einkum nefna „Ein bára er stök“ (nr. 7) sem gott dæmi um þetta. Þar koma saman góð efnistök og skýrt myndmál, sem stundum hefur vikið fyrir fjölbreyttari að- ferðum í öðrum verkum. Sýning Jakobs Jónssonar í Stöðlakoti stendur til sunnudagsins 17, mars, • • ' - - - ■ ■ ’. ' * : ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.