Morgunblaðið - 16.03.1991, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 16.03.1991, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARZ 1991 SENDUM Málþóf er réttur þingmanna eftirHarald Blöndal Það er raunalegt, að forseti sam- einaðs þings, frú Guðrún Helgadótt- ir, skuli brigsla þeim þingmönnum, sem notfæra sér þann rétt, er stjórnarskráin gefur þeim, um fjandskap við lýðræði, alþingi, þing- ræði og íslenzku þjóðina. Enn og aftur sannar hún, að hún er ekki starfi sínu vaxin, — því miður. Það vita allir, sem vilja vita, að bæði hér á landi og í öllum öðrum lýðræðisríkjum er það viðtekin venja, að minnihluti beitir málþófi, þegar honum fínnst brotinn á sér réttur af meirihlutanum. Þetta er hluti af þingræðislegri hefð, og er til þess að koma í veg fyrjr, að meirihluti flengist með mál í gegn- um þingið af offorsi og án þess að minnihlutanum takist að skýra sjónarmið sín. Þetta er áratuga sið- venja. Þetta vita allir. Yfirleitt skiptir málþófið engu máli, því að með skipulegum þing- störfum er hægt að ljúka umræðum og afgreiða mál án þess að lenda í tímaþröng. En þegar ríkisstjórnir draga fram á síðustu stundu að leggja mál sín fram, m.a. vegna innbyrðis ágreinings, lendir allt í flækju og málin hrannast upp óaf- greidd. Þá þýðir lítið fyrir ráðherra að kvarta undan skilningsleysi þingmanna, þegar þeir sjálfir eiga sök á tímaþrönginni. Og staðreynd- Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar: Mótmæli gegn verð- hækkunum AÐALFUNDUR Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar hefur mótmælt verðhækkunum fjár- magnskerfisins og tryggingafé- laga og leggur áherslu á að í næstu kjarasamningum verði kaupmáttur launa aukinn veru- lega. Á yfirstandandi samningstímabili hefur launafólk lagt sitt af mörkum með öflugu verðlagseftirliti til að koma verðbólgu niður og treysta stöðugleika, segir í fréttatilkynn- ingu frá starfsmannafélaginu. Þar segir ennfremur að dijúgur tími samningstímans sé eftir og launa- fólk eigi þá kröfu á fyrirtæki og stofnanir, bæði í einkarekstri 0g opinberum rekstri, að verðlagi verði haldið niðri í samræmi við markmið kjarasamninga og að sömu skyldu hvíli á viðsemjendum starfsmanna- félagsins, sem er einn stærsti vinnu- veitandi landsins. „Það vekur athygli að mörg fyrir- tæki og stofnanir sem búa við góð- an fjárhag og mikla arðsemi hafa gengið lengst í verðhækkunum. í því sambandi er sérstaklega bent á hávaxtastefnu fjármagnskerfisins og óhóflegar hækkanir trygginga- fyrirtækja að undanförnu. Aðal- fundur St.Rv. mótmælir þessum hækkunum sem svo augljóslega hafa farið langt fram úr markmið- um þeirra kjarasamninga sem gerð- ir voru á síðasta ári og krefst þess að þær verði teknar til endurskoð- unar,“ segir í fréttatilkynningunni. & Ármúla 29 símar 38640 - 686100 1». ÞORGRÍMSSON & CO Armstrong LDFTAPLCTrUR KOPKOPLAVT GÓLFFLÍSAR !!§§§Í§| KORKFLÍSAR BMF VINKLARÁTRÉ in er sú, að þingmenn leggja sig yfirleitt fram, jafnvel um of, til þess að greiða fyrir málum, sem ríkisstjórnir óska að nái fram fyrir þinghlé eða þinglok. Frú Guðrún Helgadóttir veit það ósköp vel, að Hjörleifur Guttorms- son er langorður. Hann hefur fullt leyfi til þess að vera það. Þó held ég að hann tali skemur en póli- tískar fyrirmyndir frú Guðrúnar, sjarmorinn Sjáseskú, heitinn, eða Fidel Castró. En ef frú Guðrúnu leiðist að hlusta á Hjörleif Gutt- „Frú Guðrún Helgadóttir veit það ósköp vel, að Hjörleifur Guttormsson er langorður. Hann hefur fullt leyfi tii þess að vera það. Þó held ég að hann tali skemur en pólitískar fyrirmyndir frú Guðrún- ar, sjarmörinn Sjáseskú, heitinn, eða Fidel Castró.“ ormsson tala lengi getur hún ein- faldlega beitt 38. gr. þingskapar- laga og stytt umræður, enda hefur umræðan þegar náð þremur tímum. Leggi forseti þingsins þetta til, skal tillagan þegar í stað lögð undir at- kvæði. Sama rétt hafa 9 þingmenn í sameinuðu þingi. En það er náttúrlega ekki við því að búast, að frú Guðrún Helgadótt- ir kunni þingsköpin. Höfundur er hæstaréttarlögmadur. Haraldur Blöndal #/x ■ JM/fr *K m %' ' T A N A SPEOAUZm TREK USA OLL TQPP MERKIN I DAG Allar gerðir reiðhjóla, varahluta og fylgihluta. STÖÐUM Nú bætist við ný glæsileg verslun & reióhjólaverkstæói í Skeifunni 11 Reióhjolaverslunin RAÐGREIÐSLUR OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10 - 14 SPITALASTIG 8 VIÐ OÐINSTORG SIMI 14661 POSTKROFU UM ALLT LAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.