Morgunblaðið - 16.03.1991, Síða 21

Morgunblaðið - 16.03.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARZ 1991 21 Þórdís Alda Sigurðardóttir Þórdís Alda í Asmundarsal ÞÓRDÍS Alda Sigurðardóttir opnar sunnudaginn 17. mars kl. 14.00 sýningu í Asmundarsal við Freyjugötu. A sýningunni verða myndir unnar á pappír með olíuk- rít, vatnslitum, kolum, prent- svertu, sparsli og pressuðum vír. Auk þess skúlptúr unnin í vír, járni og pappa. Þétta er önnur einkasýning Þórdís- ar Öldu en sú fyrsta var 1987 í Reykjavík. Síðan þá hefur hún mikið notað vír til myndmótunar og nú einnig yfirfært hana með þrykki á' tvívíðan flöt. Þórdís er fædd 1950 og býr í Mosfellssveit. Hún nam 3 vetur í Myndlistarskóia Reykjavíkur, 4 ár við MHÍ og útskrifaðist þaðan úr myndmótunardeild árið 1984. Eftir það var hún einn vetur við nám í Akademie der Bildénde Kunste í Munchen. Sýningin í Ásmundarsal ber yfir- skriftina: Forleikur í dýrum og vírum. Opið verður daglega frá kl. 14-18 meðan á sýningunni stendur, en það verður aðeins í 8 daga. Síðasti sýn- ingardagur verður pálmasunnudag 24. mars. ------------ Leikdómur leiðréttur í LEIKDÓMI Guðrúnar Þóru Gunnarsdóttur um „Bræður munu berjast" sem birtist sl. þriðjudag var meinleg villa. Viðkomandi kafli úr leikdómnum er réttur þannig: Kreppan „Kreppan. Þetta er máttugt orð og felur í sér dökka sögu. Fátækt og eymd eru býsna íjarlæg okkar daglegu lífi, sem betur fer auðvitað og stundum mætti ætla að hún væri bara til í útlöndum. En minningin um þennan ömurlega tíma upp úr 1930 hefur varðveist því til eru ófáar frásagnir og margar listagóðar um kreppuárin hér á landi, s.s. bækur Tryggva Emilssonar. Þá eins og nú stóðu yfir miklir búferlaflutningar af landsbyggðinni til höfuðborgar- innar, menn flýðu eymd í sveit fyrir sult á eyri. í dag er þessi tími skáld- legur í hæsta máta, allar þessar and- stæður: ríkir og fátækir, vinnandi menn og atvinnulausir, borgarar og verkalýður. Þegar þessum andstæð- um svo lýstur saman gneistar tilfinn- ingabálið. Allt verður sterkara en venjulega, sársaukinn dýpri og hatrið meira.“ ♦ ♦ ♦ Tónlistarskóli Hafnarfjarðar: Söngnemendur með Mozartónleika SÖNGDEILD Tónlistarskóla Hafnarfjarðar stendur fyrir Moz- art-dagskrá í Hafnarborg sunnu- dagskvöldið 17. mars nk. kl. 20.00. A tónleikunum koma fram níu nemendur söngdeildarinnar en undirleik annast kennarar og nemendur skólans. Fyrir hlé verður flutt Ave verum corpus fyrir kór og strengjasveit. Einnig ljóð, dúettar og tersettar. Eftir hlé verða fluttar aríur og dú- ettar úr óperum eftir Mozart, m.a. úr Töfraflautunni og Brauðkaupi Fígarós. Atriðin verða flutt á leik- rænan hátt og söngvararnir verða í búningum. Reynt verður að skapa Mozart stemmningu í Hafnarborg þetta kvöld m.a. mun kaffistofan verða opin og hafa eitthvað í anda Mozarts á boðstólum. Eins og fyrr segir hefjast tónleik- arnir kl. 20 næstkomandi sunnudag og er aðgangur ókeypis. Tveir nemendur söngdeildar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. ■ FRAMBOÐSLISTI Alþýðu- flokksins á Norðurlandi vestra við Alþingiskosningarnar hefur ver- ið ákveðinn. 1. Jón Sæmundur Sigurjónsson, alþingismaður, Siglufirði, 2. Jón Karlsson, form- aður verkalýðsfélagsins Fram, Sauðárkróki, 3. Steindór Haralds- son, framkvæmdastjóri, Skaga- strönd, 4. Agnes Gamalíelsdóttir, formaður verkalýðsfélagsins Ár- vakurs, Hofsósi, 5. Friðrik Frið- riksson, skipstjóri, Hvammstanga, 6. Sigurlaug Ragnarsdóttir, full- trúi, Blönduósi, 7. Sigurjón Guð- bjartsson, skipstjóri, Skagaströnd, 8. Gyða Ölvisdóttir, hjúkrunar- fræðingur, Blönduósi, 9. Guð- mundur Davíðsson, kaupmaður, Siglufirði, 10. Helga Hannesdótt- ir, verslunarmaður, Sauðárkróki. Frumsýning á KAM - innréttingum í Metró! KAM - eldhús- og baðinnréttingar, innihurðir og fata- skápar. KAM - innréttingar eru vönduð íslensk framleiðsla á ótrúlega góðu verði. KAM - er ný lína f innréttingum, sem aðeins fœst í Metró. KAM - innréttingar eru smíðaðar í einingakerfi, svo þú rœður hve stórar þœr eru. Þú getur Ifka látið sérsmíða KAM - innréttingarnar. KAM - innréttingar fást f mörgum litum og mörgum viðartegundum. Munið hin frábœru kjör hjá BYGGINGAVELTUNNI, þar sem unnt er að skipta greiðslum niður á langan tíma, og láta þannig drauminn um fallegra heimili rœtast. INNRETTINGAR Verið velkomin í Metró því sjón er sögu ríkari. M MHTBÖ nvHini ALFABAKKA 16-109 REYKJAVlK - SlMI 670050

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.