Morgunblaðið - 16.03.1991, Page 26

Morgunblaðið - 16.03.1991, Page 26
26 MOKGUNBLABIÐi MUGARDAGURí MJ 'M'ARZ i 1991 Helmingi minni loðnuafli en á síðustu vertíð; Utflutningsverðmæt- ið 2,4 milljarðar kr. LOÐNUAFLI 32ja íslenskra skipa er um 288 þúsund tonn í vetur, þar af um 84 þúsund tonn á haustvertíðinni. Útflutningsverðmæti aflans er um 2,4 milljarðar króna, eða um helmingi (100%) minna en útflutningsverðmæti loðnuaflans á síðustu vertíð. Úr þessu^i 281 þúsund tonnum fást um 50 þúsund tonn af mjöli fyrir 1.540 mdljón- ir króna og um -25 þúsund tonn af lýsi fyrir 473 milljónir, eða sam- tals um 2 milljarðar, sem er rúmlega 2 milljörðum minna en útflutn- ingsverðmæti loðnumjöls og -lýsis á síðustu vertíð. Á þessari vertíð hafa verið fryst kvóta Grænlendinga. Eftir áramót- hér um 2.600 tonn af loðnuhrognum fyrir um 360 milljónir króna, eða um 138,60 fyrir kílóið. Þar af eru um 200 tonn sjófryst um borð í Grindvíkingi GK og um 300 tonn fryst hjá íslenskum sjávarafurðum hf. íslendingar fá 330 jen fyrir kíló- ið, eða 15 jenum minna en í fyrrá, en Norðmenn selja Japönum loðnu- hrogn fyrir 14 norskar krónur kíló- ið, eða 129,50 íslenskar krónur. Þá voru heilfryst hér 130 tonn af loðnu í vetur fyrir um 7 milljónir króna, eða 55,70 krónur kílóið. Japanir vildu hins vegar kaupa héðan allt að 4 þúsund tonn af loðnuhrognum og 820 tonn af heilfrystri loðnu. Á síðustu vertíð voru framleidd hér 2.233 tonn af loðnuhrognum fyrir um 255 milljónir króna og 2.133 tonn af heilfrystri loðnu fyrir um 105 milljónir króna. Á þessari vertíð var loðna einungis heilfryst á Neskaupstað og í Eyjum en loðnu- hrogn voru fryst í Reykjavík, Njarðvík, Keflavík, Grindavík, Vestmannaeyjum, á Reyðarfírði, Eskifirði, Neskaupstað, Þórshöfn, í Bolungarvík og á Akranesi. Nú fást 290 sterlingspund, eða 30.800 krónur, fyrir tonnið af mjöli og 330 bandaríkjadalir, eða 18.900 krónur fyrir tonnið af lýsi. í haust voru framleidd hér 15 þúsund tonn af loðnumjöli fyrir 462 milljónir króna og 12 þúsund tonn af loðnu- lýsi fyrir 227 milljónir króna. íslensk skip veiddu 83.654 tonn af loðnu í haust og þar af veiddi Júpiter RE 2.744 tonn af loðnu- in fengu 9 íslensk skip að veiða samtals 21.980 tonn af loðnu sem greiðslu fyrir loðnuleit og 13. febrú- ar síðastliðinn fengu 43 íslensk skip samtals 182.028 tonna loðnu- kvóta en 45 íslensk skip fengu loðnukvóta á þessari vertíð. í haust veiddu norsk skip 23.060 tonn af eigin loðnukvóta í okkar lögsögu og færeysk skip 4.530 tonn af loðnukvóta Grænlendinga. Sam- tals veiddu því íslensk, norsk og færeysk skip 315.252 tonn af loðnu hér í vetur. Loðnukvóti íslendinga var 284.918 tonn, eða 90,4% af heildarkvótanum, loðnukvóti Norð- manna 7,3% og Grænlendinga 2,3%. Loðnukvóti Norðmanna má vera allt að 11% af heildarkvótanum og loðnukvóti Grænlendinga 11%. í ár hefur verið tekið á móti 25 þúsund tonnum af loðnu á Neskaup- stað og Eskifírði, 23.500 tonnum hjá FES í Eyjum, 23 þúsund tonnum hjá FIVE í Eyjum, 14 þúsund tonn- um á Akranesi og Siglufírði, 13 þúsund tonnum í Grindavík, 12 þúsund tonnum á Þórshöfn, 11.600 tonnum í Reykjavík, 11 þúsund tonnum í Bolungarvík, 7 þúsund tonnum hjá Hafsfld á Seyðisfírði, 5.800 tonnum hjá Sfldarverksmiðj- um ríkisins á Reyðarfírði, 5 þúsund tonnum í Njarðvík, 4.800 tonnum á Vopnafírði, 4.300 tonnum í Sand- gerði, 2.800 tonn hjá SR á Seyðis- fírði, 2.700 tonnum á Akureyri, 2.400 tonnum á Raufarhöfn og 1.050 tonnum á Höfn í Homafirði. Gunnar Birgisson um Þjóðhagsstofnun: Er ekki í tengslum við raunveruleikann Á AÐALFUNDI Verktakasam- bands íslands, sagði Gunnar Birg- isson fráfarandi formaður sam- takanna, að embættismenn Þjóð- hagsstofnunar væru úr tenglsum við raunveruleikann þegar þeir héldu því fram að ástæðulaust sé að flýta opinberum framkvæmd- um, eftir að ljóst varð að virkjun- arframkvæmdum vegna álvers verði frestað. Davíð Oddsson borgarstjóri, sagði að enn hefði ekki verið tekin ákvörun um röð- un verkefna á vegum borgarinnar eða hvort þeim verði flýtt. í ræðu Gunnars Birgissonar kom fram, að stjórn Verktakasambands- ins hefði lagt til við forsætisráðherra og borgargstjóra að vegna seinkunar á framkvæmdum vegna byggingu álvers yrði opinberum framkvæmd- um flýtt á árið 1991. Þannig mætti tryggja næga atvinnu og mæta þeim margvíslegu neikvæðu áhrifum sem annars kæmu fram. Sagði Gunnar, að í umsögn Þjóð- hagsstofnunar um tillöguna sem unnin var fyrir forsætisráðherra kæmi fram að stofnunin gæti ekki mælt með því að hið opinbera stæði fyrir að framkvæmdum yrði flýtt á árinu, þar sem búið væri að móta efnahagsstefnuna á grundvelli áætl- ana sem ekki gerðu ráð fyrir virkj- anaframkvæmdum vegna álvers á þessu ári. Jafnframt hafí Þjóðhags- stofnun bent á að atvinnuástandið sé í jafnvægi um þessar mundir og að ekkert útlit sé fyrir að það versni þegar á árið líður. „Svo virðist sem hinir ágætu emb- ættismenn sem þarna hafa lagt mat á ástand og horfur í atvinnumálum séu úr tengslum við raunveruleikann eins og svo oft áður,“ sagði Gunnar, sem sagði ástæðu til að benda á að þegar væru umsóknir skólafólks um vinnu hjá verktökum í sumar orðnar fleiri en menn muna eftir í seinni tíð og færi þeim ört fjölgandi. Símamynd/Carol Powers Hvíta húsinu Hópurinn í Hvíta húsinu. Krjúpandi frá vinstri eru Valdís Ásgeirsdóttir, Elsa Grétarsdóttir, Val- geir Kjartansson og Heiðar Bjarnason. Standandi frá vinstri eru Lára Margrét Ragnarsdóttir, farar- stjóri, Sveinn Sveinsson, Ólafur Stephensen, fararsljóri, Sigríður Árnadóttir, Sigurjón Ásbjörnsson, fararstjóri, Dögg Mósesdóttir, Reynir Reynisson, Svanborg Kjartansdóttir, vinningshafinn, Kolbrún Reynisdóttir, kennari, Barbara Bush, forsetafrú, Hermann Þórsson, Ragnheiður Þórarinsdóttir, kennari, Margrét Níelsdóttir, Haildóra Guðmundsdóttir, móðir Svanborgar, Sigmar Eyjólfsson og Dóra Haraldsdóttir, umboðsmaður Flugleiða í Grundarfirði. Grunnskólanemar úr Grundarfirði: Heimsóttu Hvíta húsið og hittu Barböru Bush Keflavík. „ÞAÐ var mest gaman að koma í Hvíta húsið og hitta forseta- frúna Barböru Bush og svo fengum við að klappa liundum þeirra,“ sagði Sigurborg Kjartansdóttir í 7. bekk Eyrarskóla í Grundarfirði sem bauð bekkjarsystkinum sínum í 4 daga ævintýraferð til Bandaríkjanna. Ferðin var verðlaun í spurn- ingakeppni um Leif heppna og tengsl íslands og Bandaríkj- anna sem Íslensk-ameríska félagið stóð að í tilefni af 50 ára afmæli þess í október sl. Allir nemendur í 5.-10. bekk í grunn- skólum landsins tóku þátt í spurningakeppninni. Meira en 6.000 rétt svör bárust og hafði Sigurborg heppnina með sér þegar dregið var um ferðina úr réttum lausnum. Flogið var til Baltimore á mánudag og daginn eftir skoðuðu börnin m.a. höfnina þar sem þau fóru um borð í gamlan kafbát frá síðari heimsstyijöldinni sem þar er til sýnis og kom nafn hans kunnuglega fyrir því hann heitir Torsk. Daginn eftir var svo hald- ið til Washington þar sem Hvíta húsið var heimsótt og tók forset- afrúin, Barbara Bush, á móti börnunum. Þau færðu forseta- frúnni að gjöf fyrsta eintakið af fallegri bók um sögu íslensk- ameríska félagsins í 50 ár sem áritað var af forseta íslands, Vig- dísi Finnbogadóttur. Þá var snæddur hádegisverður í boði ís- lensku sendiherrahjónanna í Washington og loks var hið fræga flugminjasafn borgarinnar skoðað. Með börnunum fóru þrír full- trúar íslensk-ameríska félagsins sem fararstjórar, Ólafur Stephensen formaður, Lára Margrét Ragnarsdóttir og Sigur- jón Ásbjömsson. Auk þess var móðir Sigurborgar með í ferðinni og umsjónarkennari bekkjarins. BB Ferðakynning í Kringlunni Morgunblaðið/K.C í dag verða tólf stærstu ferðaskrifstofur landins með ferðakynningu í Kringlunni. Kynningin hófst í gær og líkur í dag. Hún er opin milli klukkan 10 og 16. Miljo 91: 700 hafa skráð sig UM 700 þátttakendur hafa nú skráð sig á norrænu umhverfis- fræðsluráðstefnuna Miljo 91, sem haldin verður í Reykjavík 12.-14. júní næstkomandi. Auk þessara 700 taka um 150 manns þátt í undirbúningi, flestir íslendingar. Frá hverju hinna Norðurland- anna koma 125 þátttakendur, nema frá Noregi. Norðmenn fóru fram á aukinn kvóta og senda 300 manns. Miljo 91 verður haldin í Haga- skóla og Melaskóla. Á ráðstefnu- svæðinu verður umfangsmikil sýn- ing, þar sem skólum, dagvistar- heimilum, stofnunum, félagasam- tökum og fyrirtækjum gefst kostur á að sýna hvað þau leggja af mörk- um til umhverfísfræðslu. Sýningin verður öllum opin, að því er segir í fréttatilkynningu frá menntamála- ráðuneytinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.