Morgunblaðið - 16.03.1991, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 16.03.1991, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARZ 1991 Borgarneskirkja: Kvöldstund með Mozart Reykjavíkurkvartettinn held- ur nk. þriðjudagskvöld 19. mars kl. 21.00 tónleika í Borgarnes- kirkju á vegum Tónlistarfélags Borgarfjarðar. Meðlimir í Reykjavikurkvartett- ■ NEMENDVR Söngskólans í Reykjavík munu standa fyrir köku- basar laugardaginn 16. febrúar í Blómavali, Sigtúni. Þetta er gert í fjáröflunarskyni til kaupa á mynd- bandstökuvél og skjá fyrir skólann, -^en þessi kennslutæki hefur sárlega vantað hingað til. Basarinn stendur frá kl. 13.00-16.00 og á því tíma- bili verður boðið upp á söngatriði sem nemendur og undirleikarar þeirra flytja. (Fréttatilkynning) ■ FUNDUR um skólamál verður haldinn laugardaginn 16. mars kl. 14 í Súlnasal Hótels Sögu. Fram- bjóðendur til alþingiskosninga munu hafa þar stutta framsögu og segja frá stefnu flokkanna í skóla- málum. Á eftir verða almennar umræður. Til fundarins boða Kenn- arafélag Reykjavíkur, Samband sérskóla, Félag tónlistarskóla- kennara og Samtök foreldra- og J^kennarafélaga. UM HELGINA verður kynning- arstarf á vegum Nýju postula- kirkjunnar á íslandi. Guðsþjónusta verður haldin á sunnudag kl. 11.00, en biskup kirkj- Tinnar hér á landi, Karlheinz Schumacher, mun þjóna. Á laugar- dagskvöld kl. 20.00 og á sunnudag kl. 16.00 verða haldnir tónleikar með kór og strengjahljómsveit trú- systkina frá Bremen og nágrenni. Gestir eru boðnir velkomnir á ofangreindar samkomur sem haldn- ar eru í kirkjusal Nýju Postulakirkj- unnar Háaleitisbraut 58-60, 2. hæð. Á laugardaginn verður í Kola- portinu kynningarbás þar sem gest- um gefst tækifæri á að taka kynn- inum eru: Rut Ingólfsdóttir, Zbigni- ew Dubik, Guðmundur Kristmunds- son og Inga Rós Ingólfsdóttir. Auk þeirra koma fram að þessu sinni þeir Martial Nardeau flautuleikari og Kristján Stephensen óbóleikari. Tónlistarfélagið fer ekki ein- göngu troðnar slóðir í starfi sínu, en reynir að skapa sem mest aðlað- andi stemmningu með sérstæðu tónleikahaldi. Er verið að reyna að koma meira til móts við þá mörgu tónlistarunnendur sem vilja tónlist sem lætur kunnuglega og þýðlega í eyrum. Tónleikar þeir sem hér um ræðir eru blanda af bókmenntum og tónlistarflutningi. Mun Gunnar Eyjólfsson leikari leggja hljóðfæra- leikurunum lið með upplestri úr bréfum þeim sem eftir Mozart liggja, en þau þykja með fallegustu perlum sögunnar. Hér mun á allan hátt leitast við að kynna Mozart svo að flestum líki. Á efnisskránni verður meðal annars Eine kleine Nachtmusik, sem flestir þekkja. Næsta verkefni tónlistarfélagsins á þessu starfsári eru árvissir tón- leikar listamanna úr heimahéraði á sumardaginn fyrsta. Að þessu sinni er það Theodóra Þorsteinsdóttir sem kemur fram á ljóðatónleikum ingarbæklinga um starf kirkjunnar og fá upplýsingar hjá safnaðar- presti kirkjunnar hér. ELSTA ölgerð landsins, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, hefur sett sérstakan páskabjór á markað- inn. Páskabjór ölgerðarinnar er bruggaður af þýska ölgerðar- meistaranum Klaus Schmieder. Páskabjórinn er í dökkum gler- flöskum og á flöskumiðum er falleg mynd af páskaliljum. Páskabjór öl- gerðarinnar er einn liður í vöruþró- við undirleik Ingibjargar Þorsteins- dóttur. ■ ÍSLENSKA ljósmyndasýning- in 1991 opnuð laugardaginn 16. mars að Kjarvalsstöðum. Sýningin er haldin á vegum Skyggnu Mynd- verks hf. Þar eru sýndar 180 ljós- myndir eftir 43 Ijósmyndara. Sýn- ingunni er skipt upp í 9 mismun- andi flokka. í hveijum þeirra eru á bilinu 15-20 myndir. Veitt eru verð- laun fyrir bestu myndina í hveijum flokki og ræður þar mat dómnefnd- ar. Auk þess gefst sýningargestum kostur á að velja mynd sýningarinn- ar og verða úrslit í þeirri atkvæða- greiðslu kynnt 2 dögum áður en sýningunni lýkur. Veitt verðlaun verða alls að andvirði kr. 550.000. I tengslum við sýninguna mun Ljós- myndasafn Reykjavíkurborgar sýna Ijölda ljósmynda frá fyrri tíð. Elsta myndin frá 1846 er talin vera ein fyrsta mynd sem tekin er á ís- landi, tekin aðeins 7 árum frá upp- götvun ljósmyndunar. Sýning Ljós- myndasafnsins er í vesturforsal Kjarvalsstaða. Einnig ber að nefna sýningu á ljósmyndavélum úr safni séra Arnar Friðrikssonar. Örn lánar á sýninguna 35 myndavélar, sem flestar eru á einhvern hátt óvenjulegar. ■ MÁLÞING íslandsdeildar Amnesty International verður haldið í Hlaðvarpanum sunnudag- inn 17. mars kl. 14.00. Allir félagar eru hvattir til að mæta. Rætt verð- ur um starfssvið og uppbyggingu samtakanna og 30 ára afmæli Amnesty 28. maí næstkomandi. un fyrirtækisins, þar sem sífellt er leitast við að auka fjölbreytnina án þess þó á nokkurn hátt að slaka á ströngustu gæðakröfum. Við fram- leiðslu á páskabjórnum er til að mynda einungis notað fyrsta flokks hráefni og engum aukaefnum er bætt út í bjórinn. (Fréttatilkynning) Kynningarhelgi í Nýju post- ulakirkjunni á Háaleitisbraut (Fréttatilkynning) Páskabjór frá ölgerðinni Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Stúlkurnar 8_ sem keppa um titilinn fegurðardrottning Suður- nesja 1991. í aftari röð frá vinstri eru: Telma Birgisdóttir, Keflavík, Margrét Blöndal, Keflavík, María Jónasdóttir, Keflavík, og Sigrún Eva Kristinsdóttir úr Innri- Njarðvík. í fremri röð frá vinstri til hægri eru: Hildur María Gunnarsdóttir úr Grindavík, Þyri Ásta Hafsteinsdóttir úr Grindavík, Bryndís Jónsdóttir úr Keflavík og Bryndís María Leifsdóttir úr Keflavík. Fegurðardrottning Suðurnesja: Átta stúlkur í úrslitakeppni Keflavík. FEGURÐARDROTTNING Suðurnesja 1991 verður valin 23. mars nk. og fer keppnin fram í Veitingahúsinu við Vestur- braut 17 í Keflavík eins og undanfarin ár. Að þessu sinni keppa 8 stúlkur um titilinn fegurðardrottning Suðurnesja 1991 og mun sigurvegarinn síðan taka þátt í keppninni um titilinn feg- urðardrottning tslands. Þetta er sjötta árið í röð sem keppt er um titilinn fegurðar- drottning Suðurnesja og stúlk- urnar sem taka þátt í keppninni í ár eru: Bryndís María Leifsdótt- ir, 19 ára úr Keflavík, Bryndís Jónsdóttir, 22 ára úr Keflavík, Hildur María Gunnarsdóttir, 18 ára úr Grindavík, Margrét Blöndal, 20 ára úr Keflavík, María Jónasdóttir, 23 ára úr Keflavík, Sigrún Eva Kristins- dóttir, 19 ára úr Innri-Njarðvík, Telma Birgisdóttir, 18 ára úr Keflavík, og Þyri Ásta Hafsteins- dóttir, 19 ára úr Grindavík. Ágústa Jónsdóttir umboðs- maður keppninnar á Suðurnesj- um sagði að stúlkurnar hefðu verið valdar fljótlega eftir ára- mót eftir ábendingum. Þær væru nú þegar búnar að leggja á sig mikla vinnu við að vera sem best undirbúnar fyrir sjálfa keppnina og óhætt væri að segja að þetta væri góður hópur. Ágústa sagði ennfremur að hún vildi koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem bæði beint og óbeint hefðu lagt hönd á plóg- inn og þar mætti nefna líkams- rækt Ónnu Leu og Bróa, Apótek Keflavíkur og Höllu Harðardótt- ur hjá Hársnyrtingu Harðar Guð- mundssonar. BB Opna mótið í Bad Wörishofen: Rússar í þremur efstu sætum ___________Skák______________ Margeir Pétursson ÞRÍR Rússar urðu í efstu sætun- um á opna mótinu í Bad Wöris- hofen í Þýskalandi, sem lauk á mánudaginn. Að sögn mótshald- arans var mótið öflugasta opna mót sem fram hefur farið þar í landi, en af 330 keppendum í efsta flokki voru 20 stórmeistar- ar og fjölmargir aiþjóðameistar- ar. Þrír Islendingar voru á með- al þátttakenda. Undirritaður varð í 4.-15. sæti á eftir Rússun- um með sjö vinninga af níu mögulegum, og þeir Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson komu þar á eftir með sex og hálfan vinning. Bad Wörishofen er einkar vina- legur smábær í Bæjaraiandi, klukkustundar lestarferð í vestur- átt frá Miinchen. Skákáhugi er allmikill í Þýskalandi og á hveiju vori leggja skákmenn bæinn undir sig í tíu daga. Lokastaðan á mótinu varð þessi: 1. Dautov, Sovétríkjunum 8 v. af 9 mögulegum 2. -3. Kovalev og Aseev, Sovétr. 7‘/2V. 4.-15. Margeir Pétursson, Bönsch, Mainka, Gutman og Maus, Þýska- landi, A. Ivanov, Bandaríkjunum, Meduna, Tékkóslóvakíu, Farago, Ungveijalandi, Hoi, Danmörku, Disdar, Júgóslavíu, Wojtkiewics, Póllandi og Tsjutsjelov, Sovétr. 7 v. Þeir Dautov og Kovalev fóru báðir frábærlega vel af stað, unnu sex fyrstu skákirnar og gerðu síðan stutt jafntefli í sjöundu um- ferð. Þá náði Aseev þeim með sigri yfir Jóhanni, sem átti mjögslæman dag. Hann og Kovaiev létu síðan stutt jafntefli duga í lokaumferð- unum tveimur, en Dautov var hins vegar nokkuð heppinn með and- stæðing í síðustu umferð, fékk þýska alþjóðameistarann Sönke Maus með hvítu og tókst að not- færa sér glæfralegan stíl Þjóðveij- ans og vinna skákina og mótið. Þessir þrír Rússar eru fremur lítt þekktir en þó allir nokkuð stigaháir, með vel yfir 2.500 stig. Dautov er einn af efnilegustu stór- meisturum Sovétmanna, en hann er aðeins 25 ára gamall. Ég byrjaði vel á mótinu, vann fimm fyrstu skákirnar, þ. á m. stórmeistarana Gutman og Wojtki- ewics, en sá síðarnefndi gerði mér þó þann grikk að setja koltapaða stöðu í bið og raskaði þar með bæði uppröðun í sjöttu umferð og svefnró minni, en biðskákir voru tefldar á morgnana. í sjöttu um- ferð átti ég síðan mjög slæman dag gegn Bönsch og tapaði. í næstu umferðum missti ég af rökt- um vinningsleiðum gegn alþjóða- meisturunum Hoi, Danmörku, og Pahts, Þýskalandi, og það var ekki fyrr en í síðustu umferð að mér tókst að rétta aftur úr kútnum með því að vinna þýska stórmeist- arann Espig. Jóhann fór rólega af stað en náði síðan að vinna pólska alþjóða- meistarann Adamski og Gutman og var þá kominn með fimm vinn- inga af sex mögulegum. En þá tefldi hann langt undir styrkleika með hvítu gegn Aseev eins og áður segir. Jóhann fékk síðan einn og hálfan vinning úr tveimur síðustu skákunum eftir langar og leiðigjarnar viðureignir við fremur stigalága þýska andstæðinga sem tefldu stíft upp á jafntefli. Jóhann teflir um þessa helgi í Þýskalandi með félagi sínu, Bayern Miinchen, sem á góða möguleika á að verða Þýskalandsmeistari, annað árið í röð. Hannes Hlífar gerði sér auðvitað vonir um að eiga kost á að ná áfanga að stórmeistaratitli en fór svo klaufalega að ráði sínu að tapa strax í annarri umferð og fékk eftir það riokkra stigalága and- stæðinga í röð. Hann var þó kom- inn með fimm og hálfan vinning eftjr sjö umferðir, en eftir að hafa teflt góða skák við ungverska stór- meistarann Farago og ná allt að því vinningsstöðu lék hann gróf- lega af sér og tapaði. Það má segja að Lev Gutman, sem flutti frá Sovétríkjunum til ísrael fyrir u.þ.b. tíu árum, en tefl- ir nú fyrir Þjóðverja, hafi verið besti viðskiptavinur okkar Jóhanns á mótinu: Hvítt: Gutman, Þýskalandi Svart: Margeir Pétursson Slavnesk vörn 1. d4 - d5, 2. c4 - c6, 3. Rf3 - Rf6, 4. Rc3 — dxc4, 5. a4 — Bf5, 6. a5 - e6, 7. Da4?! Hvítur teflir frumlega að venju, en hefði átt að bíða með þennan leik þangað til eftir 7. e3 — Bb4, því eftir svar svarts vofir hótunin 8. - Rb4 yfir. 7. — Ra6, 8. Bg5 — Be7, 9. Bxf6 — Bxf6, 10. e4 — Bg4, 11. Bxc4 - Bxf3, 12. Bxa6 Nú vonast hvítur eftir 12. — Bxg2? 13. Hgl - 0-0 13. Be2 og vinnur mann, og 13. — bxa6 14. Dxc6+ er ekki heldur gott. En svartur á millileik sem leysir öll vandamál. 12. - 0-0! 13. Be2 Hvítur reynir með þessu að af- stýra flækjum og lir enn í voninni um að svartur leiki af sér manni með 13.. — Bxg2? 14. Hgl - Bh3 15. Hg3. Eftir 13. Bxb7 - Hb8 14. Bxc6 - Bxg2 15. Hgl - Bf3 getur hvítur í hvoruga áttina hrók- að og staða hans er alltof losaraleg. 13. - Bxe2, 14. Rxe2 - e5, 15. dxe5 — Bxe5 Hvítur er ennþá í miklum varjd- ræðum, því hrókun er svarað með hinum nytsama leik 16. — Dc7!, en eftir hann standa hvít peð á h2 og b2 í uppnámi og svartur hefur valdað eigið peð á b7. Hvítur kemst ekki með góðu móti hjá peðstapi í stöðunni, en í framhald- inu gefur hann það ekki á réttan hátt. 16. Hdl - Dc7, 17. g3 - Bxb2!, 18. f4? - b5,19. axb6 - Dxb6! Nú hefur Gutman örugglega dauðséð eftir að hafa ekki hrókað í 18. leik. Hvíta staðan er nú alveg gjörtöpuð, en hann dregur uppgjöf- ina í lengstu lög. 20. Dc2 - a5, 21. Hd2 - Hfb8, 22. Kfl - a4,-23. Kg2 - a3, 24. Rcl - Hd8 Það væri alveg út í hött að hirða mann með 24. — a2, 25. Rxa2 — Hxa2 því biskupinn á b2 er þá leppaður í bak og fyrir. 25. He2 - Hd4, 26. Ra2 - Had8, 27. Hfl - c5, 28. Hf3 - c4, 29. g4 - Hdl, 30. g5 Svarar hótuninni 30. — Hgl+ 31. Kh3 — Dh6 mát 30. - c3, 31. Rxc3 - IIcl, 32. Da4 - Dgl+, 33. Kh3 - Hxc3 og hvítur gafst upp. Tveimur um- ferðum síðar tapaði Gutman einnig fyrir Jóhanni með hvítu, en hann náði að vinna allar aðrar skákir sínar á mótinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.