Morgunblaðið - 23.03.1991, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
Þrjú aívarleg umferðarslys:
Kona fékk heila-
blóðfall undir stýri
FÓLKSBIFREIÐ valt á Eyrarbakkavegi á sjöunda tímanum í gær-
kvöldi þegar kona, sem var ein í bilnum, fékk heilablóðfall undir
stýri. Lenti billinn á hvolfi ofan í skurð. Var konan flutt meðvitundar-
laus á Borgarspítalann í Reykjavík og var líðan hennar eftir atvikum
í gærkvöldi. Þá slasaðist ung kona alvarlega í gærkvöldi þegar fólks-
bifreið var ekið á brúarstólpa skammt frá Höfn. Var hún flutt með
sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Konan var farþegi í bílnum en
ökumaður slasaðist einnig talsvert
og var lagður inn á Heilsugæslu-
stöðina á Höfn. Bar óhappið að með
þeim hætti, að bíllinn lenti í lausa-
Hækkuná
neyðarleyf-
rnn mótmælt
SKRIFSTOFA viðskiptalífsins
hefur farið fram á það við fjár-
malaráðuneytið að afturkölluð
verði hækkun á gjaldi svokall-
aðra neyðarleyfa í tolli sem.
nýverið var hækkað úr 500 kr.
í_ 1.000 kr. Að sögn Marðar
Árnasonar, upplýsingafulltrúa
ráðuneytisins, er hækkun þessi
til komin vegna nýendurskoð-
aðrar reglugerðar en gjald
þetta hefur ekki tekið breyting-
um frá árinu 1982.
í bréfi Skrifstofu viðskiptalífs-
ins til fjármálaráðherra segir að
tvöföldun þessa gjalds sé ansi
rífleg hækkun á þjóðarsáttartím-
um. „Ekki þarf að spyija um af-
leiðingamar fyrir rekstur fyrir-
tækja og verðlag í landinu, ef all-
ur rekstrarkostnaður íýrirtækja
hækkar jafn myndariega og þessi
gjaldtaka nú. Félag ísienskra stór-
kaupmanna og Verslunarráð ís-
lands fara því liér með fram á að
hækkun þessi verði afturköliuð og
íjármálaráðunevtið sýni meiri hóg-
værð í gjaldtöku sinni framvegis,"
segir í bréfinu.
Að sögn Marðar er um að ræða
sérstakt þjónustugjald sem greitt
er þegar um bráðabirgðaaf-
greiðslu í tolli er að ræða. „Gjald-
hækkunin er í tengslum við endur-
skððun fyrri reglugerðar, sem ekki
hefur breyst frá árihu 1982. Því
er er hér um eðlilega uppfærslu
gjaldsins að ræða þar sem það
hefur verið óbreytt í níu ár. Erindi
Skrifstofu viðskiptalífsins verður
að sjálfsögðu tekið til gaumgæfi-
legrar ^.thugunar í fjármálaráðu-
neytinu eins og önnur erindi,“
sagði Mörður.
möl þegar hann var að mæta öðrum
bíl sem var ekið út af brúnni. Rakst
bíllinn á brúarstólpann og hvolfdi
ofan í árfarveginn. Er hann ónýtur
eftir áreksturinn.
Um miðjan dag í gær varð harð-
ur árekstur hjá Fagranesi í Langa-
dal þegar ökumaður fólksbfls missti
stjórn á honum með þeim afleiðing-
um að hann rann í veg fyrir jeppa-
bifreið. Þrennt var í fólksbílnum en
ökumaður var einn í jeppanum. Að
sögn lögreglunnar á Blönduósi
slapp fólkið furðu vel við meiðsli
en þó munu báðir ökumenn og far-
þegar hafa skorist talsvert. Var
fólkið flutt í sjúkrahúsið á Blöndu-
ósi. Er fólksbíllinn talinn ónýtur
eftir áreksturinn.
Þjóðdansar í Kringlunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Peysufatadagur var í Kvennaskólanum í gær og prúðbúnar stúlkur og piltar notuðu góða veðrið, fóru um
bæinn og dönsuðu og sungu. Hér taka þau nokkur þjóðdansaspor í Kringlunni, og upphlutssvuntur og
jakkalöf sveiflast.
BHMR áfrýjar launadeilu
við ríkið til Hæstaréttar
Selfossi.
BANDALAG háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna áfrýjaði í gær
dómi Borgardóms um launadeilu þess við ríkisvaldið til Hæstarétt-
ar. A aðalfundi bandalagsins i gær kom meðal annars fram að
bandalagið hefur gengið á eigið fé sitt vegnaaukins rekstrarkostn-
aðar en lögfræðikostnaður þess á síðasta ári nam ríflega 2,2 millj-
ónum króna og gert er ráð fyrir svipuðum kostnaði á þessu ári.
Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður sagði á fundinum að niður-
staða Borgardóms bryti í bága við eignarréttarákvæði stjórnar-
skrárinnar og væri algjör fingurbijótur. Viðar Már Matthíasson
lögmaður sagði að með dómnum væri engin trygging fyrir því
að kjarasamningum við ríkið yrði ekki breytt eftirá.
Á aðalfundi félagsins í gær var
þess meðal annars krafist að
samningsréttur væri virtur af
ríkisvaldinu og að það efndi gerða
samninga og gengi fram með góðu
fordæmi fyrir aðra atvinnurekend-
ur. Þess var krafist að réttur til
setningar bráðabirgðalaga yrði
þrengdur eða felldur niður. Einnig
var þess krafist að samningsfrelsi
yrði varið með stjómarskránni.
„Allt tal um trúnað og traust
var hjóm eitt,“ sagði Páll Halldórs-
son formaður BHMR meðal annars
á aðalfundinum. Hann sagði að
dómur Félagsdóms hefði verið við-
spyrna í launabaráttunni en það
væri ijóst nú að ef kjarasamningar
stönguðust á við stefnu ríkisins
þá viki samningurinn. „Það var
ömuriegt að horfa upp á.einstaka
verkalýðsforingja biðja um bráða-
birgðalög,“ sagði Páll. Hann sagði
að ef aðför gegn samningsrétti
yrði ekki stöðvuð blasti við hrun
íaunþegafélaga.
Pál sagði að baráttan fyrir
samningsrétti og launaleiðréttingu
yrði aðalmálið á næstunni. „Setn-
ing bráðabirgðalaganna var
pólitísk ákvörðun og í kosningun-
um eftir mánuð gefst fólki kostur
Frumvarp tíl stjórnskipunarlaga:
Pappírsmagn í þingsölum
gæti minnkað um 20-30%
Litlar breytingar fyrirhugaðar á þingsölum
EKKI er gert ráð fyrir að breytingar verði gerðar á þingsölum
í Alþingishúsinu þótt frumvarp til stjórnskipunarlaga verði sam-
þykkt í vor. Heildarendurskoðun mun fara fram í sumar á allri
starfsemi þingsins með tilliti til skjalavörslu og skipulagningar á
þingmálasviði. Friðrik Ólafsson skrifstofustjóri Alþingis telur að
pappírsmagn í þingsölum gæti minnkað um 20-30% í kjölfar breyt-
inganna.
í frumvarpi til stjómskipunar-
laga er gert ráð fyrir einni mál-
stofu í stað tveggja, og sagði Frið-
rik að breytingar innanhúss yrðu
ekki aðrar en þær að salur efri
deildar yrði ekki notaður undir
þingfundi og líklega komið þar
fyrir aðstöðu fyrir þingmenn.
„Það þarf að færa allt skipulag
til samræmis við þá starfsemi sem
verður. Starfsemin mun snúast í
kringum eina málstofu í stað
tveggja áður og í raun þriggja,
þ.e. efri og neðri deildar og sam-
einaðs þings. Þetta einfaldar
starfsemina og gerir hana hnit-
miðaðri og markvissari. Þetta ein-
faldar nefndaskipulagið, nefnd-
imar verða 11 í stað 25 sem leið-
ir til þess að ekki þarf að endur-
prenta skjöl jafnoft. Það verður
gengið í það í sumar að endur-
skoða starfsemina í þeirri vissu
að frumvarpið verði samþykkt,“
sagði Friðrik.
Hann sagði að salur efri deildar
yrði ekki notaður undir þingfundi
og gæti hann nýst undir aðstöðu
sem skortir núna, t.a.m. setustofu
fyrir þingmenn þar sem unnt er
að koma fyrir tímaritum og upp-
sláttarbæklingum. Húsgögn sem
þar em inni fæm í geymslu. „Að
vísu væri æskilegt að þingsalurinn
yrði stærri en það er erfitt að
koma því við, auk þess sem allar
útlitsbreytingar innanhúss stang-
ast á við friðunarlög. Þingsalurinn
hefur dugað ölium þessum þing-
mönnum þótt hann sé nokkuð
þröngur," sagði Friðrik. ‘
á að svara fyrir sig,“ sagði Páll.
Lögmennimir Viðar Már Matt-
híasson og Jón Steinar Gunnlaugs-
son íjölluðu um dóm Borgardóms
á aðalfundinum. Þeir vom sam-
mála um að niðurstaða dómsins
væri ekki rökrétt. Jón Steinar
sagði greinilegt að íslenskir dóm-
stólar væm í fjötrum við tiltekin
skilyrði. Fjötramir birtust í því að
ef niðurstaða dóms yrði ríkinu í
óhag þá þýddi það vá fyrir þjóð-
ina. En það væri einmitt válegt
fyrir þjóðina að slík niðurstaða
yrði. .
Jón benti á að heimild til setn-
ingar bráðabirgðalaganna hefði
verið misnotuð því beðið hefði ver-
ið með hana þar til störfum Al-
þingis lauk. Ekki væri unnt að
setja bráðabirgðalög um eitthvað
sem ætti eftir að gerast.
Þeir Jón Steinar og Viðar sögðu
að ein af forsendum dómsins hefði
verið að stöðva víxlhækkun iauna
en það hefði mátt gera með því
að setja bráðabirgðalög á aðra.
Það hefði hins vegar ekki verið
gert vegna þess að ráðherrar
hefðu verið hræddari við önnur
launþegafélög en BHMR.
Jón Steinar sagði það aðalatriði
í málinu að launaauki BHMR í
samningunum hefði fært þeim
eignarrétt og að dómstóllinn hefði
fallist á þetta. Til að standast hefði
dómurinn orðið að komast að þeirri
niðurstöðu að skerðingin væri al-
menn og beindist einnig gegn öðr-
Sjö árá dreng
var bjargað
frá drukknun
SJÖ ára drengur úr Mýrarhúsa-
skóla var hætt kominn í skóla-
sundi í Sundlaug Selljarnarness
í gærmorgun. Sást hann liggja
hreyfingarlaus á botni sundlaug-
arinnar og stakk sundkennarinn
sér eftir honum og þurfti að
blása í hann lífi.
Hafði drengurinn misst meðvit-
und en var kominn til meðvitundar
þegar sjúkrabfll kom á vettvang og
var fljótur að hressast. Var hann
fluttur á Landspítalann til skoðun-
ar.
um launþegum. Rök dómsins um
réttindi annarra byggðust hins
vegar á því sem þeir hefðu féngið
síðar. Þar væri ekki um eignarrétt-
indi að ræða sem stjórnarskráin
vemdaði. í því fælist fingurbijótur
dómsins.
Miklu'skipti að kjarasamningur
BHMR hefði legið fyrir þegar
samningar annarra voru gerðir,
án þess að að honum væri vikið.
„Það er sama hvemig á þetta er
litið, þetta gengur ekki upp,“ sagði
Jón Steinar Gunnlaugsson. Hann
sagði nauðsynlegt að áfrýja mál-
inu og hann væri viss um að
BHMR hefði réttinn sín megin.
Urn stöðu BHMR ef máiið ynn-
ist í Hæstarétti sögðu þeir að þá
reiknaðist 4,5% hækkun á laun frá
þvi bráðabirgðalögin vom sett.
Viðar Már sagði hugsanlegt að
málflutningur hæfist í Hæstarétti
í júní 1992 og dómur yrði hugsan-
lega kveðinn upp í júlí það ár.
Sig. Jóns.
Sovésk stjórnvöld:
Vilja hlýða
á skýringar
íslendinga
KRASAVIN, sendiherra Sov-
étríkjanna á íslandi, mun
hlýða á skýringar íslenskra
stjórnvalda varðandi stuðn-
ing þeirra við Eystrasaltsrík-
in.
I fréttatilkynningu frá so-
véska sendiráðínu segir, að Jón
Baldvin Hannibalsson, utanrík-
‘isráðherra, hafi óskað eftir
skjótum fundi með utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna. Slíkum
fundi hafi hins vegar ekki verið
hægt að koma á.
„Þar sem íslensku aðilamir
em tilbúnir að gefa skýringar
þær sem beðið var um, höfum
við tekið þá ákvörðun að senda
I.N. Krasavin, sendiherra Sov-
étríkjanna á íslandi, til
Reykjavíkur og hefur honum
verið falið að hlýða á skýringar
íslensku aðilanna," segir í til-
kynningu sendiráðsins.