Morgunblaðið - 23.03.1991, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
13
■■■■ ■■■: ■
sem voru að gerast í Miðausturlönd-
um á þessum tíma. Eitt skiptið
a.m.k. var hún raunar beinlínis send
af Morgunblaðinu. En ferðalag
hennar var samt öðru vísi en ann-
arra fréttamanna. Hún hafði komið
á flesta þessa staði áður. Átti marga
vini og kunningja, jafnvel í áhrifa-
stöðum. Hún fór sínar eigin götur,
slóst ógjarnan í hóp annarra frétta-
manna. Áður en varði var hún kom-
in inn á gafl á ólíklegustu stöðum,
þar sem aðrir fengu ekki að stíga
fæti. Hún sat brúðkaup í Jemen,
fór í skógarferð með innfásddum,
var boðin í mat til arabískra vina
sinna, átti langar einkaviðræður við
vin sinn ritstjóra stærsta dagblaðs-
ins í Bagdad, komst inn á meðlimi
furstafjölskyldunnar í Kúveit o.fl.
o.fl. Þannig frétti hún margt sem
ekki lá á lausu. Henni var sýndur
mikill trúnaður og traust. Síðasta
ferðin var raunar næsta einkenni-
leg. Það má næstum segja að írak-
ar hafi boðað hana til Bagdad í
ákveðnum tilgangi. Heim kom hún
með Gísla Sigurðsson lækni.
Á bókarkápu segir að Jóhanna
sé einn helsti sérfræðingur Islend-
Jóhanna Kristjónsdóttir
inga um Miðausturlönd. Ekki er ég
dómbær á það. Víst er þó að þessi
heimshluti og fólkið sem þar býr
er kjörlendi hennar sem hún sækir
gjarnan til og þar þekkir hún mörg
grös. I bók hennar er viss dýpt og
lesanda býður í grun áð hún viti
stundum talsvert meira en hún seg-
ir. Það eru góðar bækur þegar ekki
sér til botns í hyljunum.
Bók hennar gerði mér síður en
svo auðveldara að mynda mér skoð-
un um ýmis málefni þessa heims-
hluta. Ef eitthvað var, skaut upp
fleiri flötum sem fram til þess höfðu
verið ósýnilegir. Ég hygg að Jó-
hanna geti verið ánægð með þá
útkomu, því að mér virðast skilaboð
hennar til lesandans einmitt hafa
verið að vara við fljótræðislegri ein-
földun flókinna málefna.
Eins og aðrar bækur Jóhönnu
Kristjónsdóttur er þessi bók fjörlega
rituð á lipru og lifandi máli. Hún
er full af gamansemi innan um alla
alvöruna. Jóhanna hefur jafnan
myndavélina með í tuðru sinni og
bregður upp svipmyndum þegar það
er leyfilegt. Allmargar þeirra
mynda eru í bók hennar og er gam-
an að sumum þeirra.
Sómasamlega er að útgáfu staðið
og þarf ekki yfir neinu að kvarta í
því efni.
Sara Jóhanna Vilbergsdóttir við
eitt verka sinna.
Sýnir í
FIM-salnum
SARA Jóhanna Vilbergsdóttir
opnar laugardaginn 23. mars
sýningu á olíumálverkum í FÍM-
salnum, Garðastræti 6.
Sara stundaði nám við málunar-
deild Myndlista- og handíðaskólans
á árunum 1981-’85 og framhalds-
nám við Statens Kunstakademi í
Ósló árin 1985»’87.
Hún hefur tekið þátt í samsýn-
ingum hérlendis í Noregi, Svíþjóð
og Bandaríkjunum og haldið tvær
einkasýningar í Slunkaríki á
ísafirði. Sýningin í FÍM-salnum er
fyrsta einkasýning hennar í Reykja-
vík. Hún stendur til 14. apríl nk.
og er opin daglega frá kl. 14-18.
Uppskrift
leiðrétt
í páskamatarblaði Daglegs lífs í
gær misritaðist uppskrift af páska-
tertu á blaðsíðum 6 og 7.
í tertu I á að standa ananasmús
en ekki jarðarberjamús. í tertu II
er uppskrift af jarðarberjamús,
sem á að vera svohljóðandi:
Tvö egg
4 msk sykur
141 rjómi, þeyttur
4-5 matarlimsblöð
'Adós jarðarber
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
Fjoldi moguleika
Ymsar gerðir
9-12m fólksbíll/sendlt>íll
Háþekja
Pallt>íll m 6m. husi
PallDill. lengri gerö
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI 695500
Vængjanuröir aö aftan
Rennihuröir á hliöum
Sama gólfhæð afturúr
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Jóhanna Krisfjónsdóttir:
Flugleiðin til Bagdad.
Almenna bókafélagið hf.
Reykjavík 1991. 208 bls.
Ferðabækur Jóhönnu Kristjóns-
dóttur eru með nokkuð sérstökum
hætti og engum líkar nema sjálfum
sér. Þær eru ekki reisubækur í þeim
skilningi að athafnir og upplifanir
ferðamanns séu raktar frá morgni
til kvölds. Þær eru ekki saga, landa-
fræði eða pólitík þeirra- þjóðlanda
sem Jóhanna sækir heim. Þær eru
eitthvað allt annað en samt brot
af öllu hinu. Svo skrítið er það að
Jóhanna hefur lag á því að taka
lesandann með í ferðalagið og hann
fær að sjá og heyra eitt og annað
sem í fyrstu virðist ómerkilegt og
ekki ástæða til að veita athygli en
safnast svo smám saman fyrir í
huganum og sest þar að svo að þar
að kemur að manni finnst maður
fara að þekkja fólk og þykja vænt
um það. Höfundi tekst þannig að
miðla einhveiju næstum ósýnilegu
til lesandans, skilningi, innsæi,
umburðarlyndi og mennsku eða
hvað réttast er að kalla það. Stjórn-
arfarið og valdhafarnir geta verið
andstyggilegir, en fólkið er samt
við sig. Engin hætta er á að maður
rugli þessu saman þegar maður er
í för með Jóhönnu. Kannski er dulít-
il rómantík í þessu, en hún ruglar
ekki dómgreindina að ráði. Sérstak-
lega verður þetta áberandi í síðustu
bók Jóhönnu, enda voru aðstæður
þannig að mikið reyndi á og til
þess fallnar að skerpa andstæðurn-
ar í huga ferðamanns.
Þar segir frá þremur ferðum til
Miðausturlanda sem allar voru
farnar á seinni hluta síðasta árs.
Hin fyrsta var farin í ágúst sl. rétt
eftir innrás íraka í Kúveit. Þá var
farið til Jórdaníu, ísraels, Sýrlands,
Egyptalands og Jemens. Onnur
ferðin var svo í október til ísraels
og Egyptalands. Þriðja og síðasta
ferðin var til Bagdad í desember.
Jóhanna fór ekki í þessar ferðir
sem venjulegur fréttahaukur frá
Vesturlöndum. Auðvitað var hún
og er blaðamaður við Morgunblaðið
og sendi blaðinu reglulega fréttir
og frásagnir. Ferðir hennar stöfuðu
einnig af þessum miklu viðburðum
V.W. „Rúgbrauöiö" þekkja allir. Þaö er bíll sem hefur veriö lítiö
breyttur í rúm 40 ár.
NÚ ER ALLT BREYTT NEMA NAFNIÐ
Ný innrétting - 5,4m3
Nýr vélbúnaöur - Hreyfill frammí
sambyggöur viö gírkassa og drif
Ný yfirbygging - Vindstuðull = 0,36
1 Nýir aksturseiginleikar - Framhjóladrif
1 Nýir notkunarmöguleikar - Meö eöa án vsk.
1 Nýtt og hagstætt verð: m. vsk. frá kr. 1.316.889
vsk. kr. 259.137
ánvsk. kr. 1.057.752
Meðal Araba