Morgunblaðið - 23.03.1991, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
15
Álmálið og sljórn Landsvirkjunar
eftir Halldór Blöndal
Landsmenn hafa fylgst með
síðustu dögum þinghaldsins með
mikilli undrun. Ríkisstjórnin talaði
um þjóðarsátt í öllum málum til
þess að reyna að breiða yfir þá stað-
reynd, að þingsalirnir höfðu breyst
í markaðstorg, þar sem ráðherrar
voru aðalkaupahéðnarnir. Þessi
hefur löngum verið endir vinstri
stjórna.
Merkasta mál þingsins var áreið-
anlega sú breyting á stjórnar-
skránni að leggja niður deildaskipt-
ingu Alþingis. Þetta er grundvallar-
breyting, sem felur í sér meiri
verkaskiptingu milli þingmanna og
vandaðri vinnubrögð í þingnefndum
en möguleg eru með deildaskipting-
unni. Samkomulag er um að kalla
Alþingi saman að loknum kosning-
um til þess að staðfesta þessar
breytingar.
Af mörgum þýðingarmiklum
málum, sem bíða nýrrar ríkisstjórn-
ar, ber álmálið einna hæst. í ljósi
þess verður að skýra þann ágrein-
ing, sem á síðustu dögum þingsins
kom upp um það, hvenær ný stjórn
Landsvirkjunar skyldi kosin, en
umboð núverandi stjórnar rennur
út 1. júlí nk. Okkur sjálfstæðis-
mönnum þótti eðlilegt, að kosning-
arnar biðu vorþingsins, þannig að
ný stjórn Landsvirkjunar yrði í sam-
ræmi við þann þingmeirihluta, sem
þá hefði verið kjörinn. Það er mikil-
vægt, að góð samvinna og gagn-
kvæmt traust sé á milli nýrrar ríkis-
stjórnar og nýrrar stjórnar Lands-
virkjunar í þeim erfiðu samninga-
viðræðum, sem framundan eru um
nýtt álver hér á landi.
Á hinn bóginn getur það ekki
komið neinum á óvart, að hörðustu
andstæðingar stóriðju óttist um
sinn hag eftir næstu kosningar.
Alþingi kýs fjóra menn í stjórn
Landsvirkjunar frá 1. júlí nk.
Halldór Blöndal
Kvennalistinn með sínar sex þing-
konur hafa helgað sér eitt stjórnar-
sæti og með tilstyrk Alþýðubanda-
lagsins átti annað að falla í hlut
Borgaraflokksins. Við þessar kring-
umstæður var eðlilegt, að þing-
flokkur Alþýðuflokksins legði til,
að stjórnarkjörinu yrði frestað til
vorþingsins og jafn sjálfsagt, að
þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
styddi það.
Gegn slíkri frestun töluðu auk
fulltrúa Kvennalista Hjörleifur
Guttormsson, Ólafur Þ. Þórðarson
og Stefán Valgeirsson harðast. Það
eru kannski bestu rökin fyrir því,
að stjórnarkjörinu var frestað,
þangað til nýtt þing kemur saman
eftir kosningar. Þessum þingmönn-
um gekk það ekki til að greiða fyr-
ir samningum um nýtt álver hér á
landi. En til þess stendur sterkur
vilji okkar sjálfstæðismanna.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra.
STAND
LAMPAR
Rafkaup
ÁRMÚLA 24, SlMAR 681518 - 681574
Tvær þotur
of nærri
hvor annarri
FLUGSTJÓRAR tveggja er-
lendra farþegaþotna telja að vél-
ar þeirra hafi verið of nærri
hvor annarri þejgar þær voru á
flugi suður af Islandi í janúar.
Rannsóknarnefnd flugslysa hef-
ur málið til rannsóknar.
Það var föstudaginn 25. janúar
sem tvær flugvélar, Boeing 747 frá
British Airways og Íljúshín 67 frá
Aeroflot í Sovétríkjunum, voru á
vesturléið suður af Islandi. Vélarnar
voru í sömu hæð og töldu flugstjór-
ar að vélarnar hefðu verið of ná-
lægt hvor annari. Rannsóknarnefnd
flugslysa hefur málið til rannsóknar
og mun senda samgönguráðuneyt-
inu skýrslu um málið þegar rann-
sókn er lokið. Málið var líka athug-
að af hálfu flugmálastjórnar og er
þeirri athugun lokið og skýrsla send
samgönguráðuneytinu.
Læknafélag
Reykjavíkur:
Fundur um
börn, heilsu
og samfélag
LÆKNAFÉLAG Reykjavíkur
boðar í dag, laugardaginn 23.
marz, til fundar í samvinnu við
Landlæknisembættið. Fundurinn
verður í Háskólabíói kl. 13 og
ber yfirskriftina „börn, heilsa og
samfélag". Fudnurinn er öllum
opinn.
Högni Óskarsson, formaður LR,
setur fundinn. Frummælendur
verða Valgerður Baldursdóttir,
barna- og unglingageðlæknir, Pétur
Lúðvígsson, barnalæknir, Vilborg
Guðnadóttir, skólahjúkrunarfræð-
ingur, Bryndís Siguijónsdóttir,
kennari, Sigmundur Sigfússon,
yfirlæknir og Þórólfur Þórlindsson,
prófessor.
Að loknum framsöguerindum eru
pallborðsumræður, sem framsögu-
menn taka þátt í. Auk þeirra ræða
málin stjórnmálamennirnir Ásta R.
Jóhannesdóttir, Geir H. Haarde,
Guðmundur Ágústsson, Guðrún
Halldórsdóttir, Ólafur Ragnar
Grímsson og Valgerður Gunnars-
dóttir. Umræðustjóri er Ellert B.
Schram, ritstjóri.
Ólafur Ólafsson landlæknir slítur
fundi.
MEÐ KRANSAKÖKUBOTNl
... bara í ganni.
MEÐ MARENGSBOTNl