Morgunblaðið - 23.03.1991, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
Jllltööur
r
a
morgun
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Jón Mýrdal. Mið-
vikudag: Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 16.30. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Flutt
verður „Jesu meine Freude" eftir
Buxtehude. Flytjendur Kórskóli
Estherar H. Guðmundsdóttur,
Kirkjukór Áskirkju og strengja-
sveit. Einsöngvarar Ellen Freydís
Martin, Inga Dóra Hrólfsdóttir
og Björn Björnsson. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Daníel Jón-
asson. Þriðjudag: Bænaguðs-
þjónusta kl. 18.30. Sr. Gísli Jón-
asson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta í Bústöðum kl. 11 í
umsjón Guðrúnar Ebbu Ólafs-
dóttur og Sigurðar Grétars Sig-
urðssonar. Fermingarmessur kl.
10.30 og kl. 13.30. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Sr.
Pálmi Matthíasson.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma ísafnaðarheimil-
inu við Bjarnhólastíg kl. 11. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Kl. 11. Messa.
Prestur sr. Jakob Ágúst Hjálm-
arsson. Dómkórinn syngur, org-
anleikari Marteinn H. Friðriks-
son. Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu á sama tíma. Miðviku-
dag: Hádegisbænir í kirkjunni kl.
12.15.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl.
13. Organleikari Birgir Ás Guð-
mundsson. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Cecil Har-
aldsson.
FELLA- og Hólakirkja: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón Jó-
hanna Guðjónsdóttir. Kl. 14. Hát-
íðarguðsþjónusta í tilefni af
vígsludegi kirkjunnar. Sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson þjónar
fyrir altari, sr. Hreinn Hjartarson
prédikar. Nemendur Ragnheiðar
Guðmundsdóttur í Söngskóla
Reykjavíkur syngja einsöng og
tvísöng, Kristín R. Sigurðardóttir,
Svava Á. Sigurðardóttir, Metta
Helgadóttir, Sigurlaug Arnar-
dóttir og Bjarni Thor Kristinsson.
Kirkjukór Fella- og Hólakirkju flyt-
ur „Þýska messu" eftir Franz
Schubert undir stjórn organist-
ans, Guðnýjar M. Magnúsdóttur.
Þriðjudag: Fyrirbænir í Fella- og
Hólakirkju kl. 14. Sóknarprestar.
GRAFARVOGSSÓKN: Messu-
heimili Grafarvogssóknar, Fé-
lagsmiðstöðinni Fjörgyn. Barna-
messa kl. 11. Skólabíllinn fer frá
Húsahverfi kl. 10.30 í Foldir og
síðan í Hamrahverfi. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Sigríður
Jónsdóttir. Sóknarprestur.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Eldri börnin uppi í
kirkjunni, yngri börnin niðri.
Messa kl. 14. Sr. Halldór S.
Gröndal. Organisti Árni Arin-
bjarnar. Þriðjudag: Biblíulestur
kl. 14. Miðvikudag: Helgistund
fyriraldraða kl. 13.30. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Laugar-
Guðspjall dagsins
Lúk. 19.:
Innreið Krists
í Jerúsalem
dag: Samvera fermingarbarna kl.
10. Sunnudag: Messa og barna-
samkoma kl. 11. Sr. Sigurður
Pálsson. Þriðjudag: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum. Kvöldbænir með
lestri passíusálma mánudag,
þriðjudag og miðvikudag kl. 18.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Kl. 10: Morg-
unmessa sr. Tómas Sveinsson.
Kl. 11: Barnaguðsþjónusta.
Kirkjubíllinn fer um Suðurhlíðar
og Hlíðar fyrir og eftir guðsþjón-
ustuna. Kl. 14: Hámessa sr.
Arngrímur Jónsson. Kvöldbænir
og fyrirbænir eru í kirkjunni á
miðvikudögum kl. 18. Sóknar-
nefndin.
HJ ALLAPREST AKALL: Messu-
salur Hjallasóknar Digranes-
skóla. Barnamessur kl. 11. For-
eldrar eru hvattir til að fylgja
börnunum til messu. Ferming í
Kópavogskirkju kl. 13.30. Barna-
kór Hjallasóknar og Hjallakórinn
syngja, stjórnendur Friðrik S.
Kristinsson og Elías Davíðsson.
Sr. Kristján Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum
sunnudag kl. 11. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 11. Organisti
Guðmundur Gilsson. Sr. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðþrands biskups. Óskastund
barnanna söngur, sögur, leikir.
Þór Hauksson guðfræðingur og
Jón Stefánsson annast stundina.
Ferming kl. 13.30. Prestur sr.
Sigurður Haukur Guðjónsson.
Organisti Jón Stefánsson. Sókn-
arnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Drengjakór Laugar-
neskirkju syngur. Barnastarf á
sama tíma. Heitt á könnunni eft-
ir messu. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: J3arnasamkoma kl.
11. Umsjón Sigríður Óladóttir.
Ferming kl. 11. Ferming kl. 14.
Sr. Frank M. Halldórsson og Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
SELJAKIRKJA: Laugardag 23.
mars. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Ath. breyttan tíma vegna ferm-
inga í kirkjunni. Pálmasunnudag-
ur: Fermingarguðsþjónustur ki.
10.30 og kl. 14. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESKIRKJA: Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Organisti
Gyða Halldórsdóttir. Prestur sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Barnastarf á sama tíma í umsjón
Kristínar Þórunnar Tómasdóttur
og Eyrnýjar Ásgeirsdóttur.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN; Ferm-
ingarguðsþjónusta kl. 14. Jónas
Þórir og Jónas Dagbjartsson sjá
um tónlist. Kaffiveitingar eftir
messu. Safnaðarprestur.
FRÍKIRKJAN í RVÍK: Guðsþjón-
usta kl. 14. Orgelleikari Violeta
Smid. Kirkjan er opin í hádeginu
virka daga. Sr. Cecil Haraldsson.
KFUM og KFUK: Almenn sam-
koma í kristniboðssalnum kl.
20.30. Jesús kemur til þín (Lúk.
19, 29-40). Upphafsorð Herdís
Gunnarsd. RæðumaðurSr. Jónas
Gíslason.
KRISTSKIRKJA Landakoti: Lág-
messa kl. 8.30. Stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18 nema á laugar-
dögum þá kl. 14. Á laugardögum
kl. 20 er ensk messa.
MARÍUKIRKJA Breiðholti:
Messur sunnudaga kl. 11. Virka
daga kl. 18.30 nema fimmtud.
kl. 19.30 og laugardaga kl. 14.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálp-
ræðissamkoma kl. 16.30. Kaft.
Elisabeth Henne frá Noregi talar.
Major Daniel Óskarsson stjórn-
ar. Sunnudagaskóli á sama tíma.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Kristileg samkoma kl. 17.
NÝJA Postulakirkjan: Guðsþjón-
usta kl. 11. Hákon Jóhannesson
safnaðarprestur.
GARÐASÓKN: Fjölskylduguðs-
þjónusta í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli kl. 13. Bænastund og
Biblíulestur í Kirkjuhvoli laugar-
dag kl. 13. Sóknarprestur.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Álftaneskórinn
syngur, stjórnandi John Speight.
Organisti Þorvarður Björnsson.
Sóknarprestur.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
Messan er lesin á þýsku.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14. Aðalsafnaðarfundur að
lokinni guðsþjónustu. Kaffiveit-
ingar. Sr. Einar Eyjólfsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Þórhildur
Ólafs.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga
daga lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl. 8.
KÁLFATJARNARSÓKN: Barna-
samkoma Stóru Vogaskóla kl.
11. laugardag.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Ferming-
arguðsþjónustur kl. 10.30 og kl.
14. Kór Keflavíkurkirkju. Organ-
isti EinarÖrn Einarsson. Sóknar-
prestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Börn úrTónlist-
arskólanum leika á hljóðfæri.
Síðasta samvera vetrarins.
Ferming kl. 14. Fermdur verður
Kjartan Ásmundsson, Baðvöllum
9, Grindavík. Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA: Sunnudaga-
skóli í grunnskólanum í Sand-
gerði kl. 11. Biblíufræðslukvöld í
gamla prestssetrinu á Útskálum
næstu þriðjudagskvöld kl. 20.30
og eru þau öllum opin. Sr. Hjört-
ur Magni Jóhannsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Síðasti
sunnudagaskóli vetrarins kl. 14.
Verðlaun veitt fyrir góða ástund-
un í vetur. Góður gestur kemur
í heimsókn. Biblíufraéðslukvöld
verða næstu þriðjudagskvöld í
gamla prestssetrinu á Útskálum
kl. 20.30 og eru opin öllum. Sr.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl.
14. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli
yngstu barnanna í safnaðarheim-
ilinu laugardag kl. 13. Sunnudag:
Barnaguðsþjónusta í kirkjunni kl.
11 og messa kl. 14. Flutt mótett-
an: Hoseanna Davíðssyni, eftir
E.F.T. Telemann. Sr. Árni Páls-
son á Borg messar. Tónlistar-
stund á föstu nk. miðvikudag kl.
20.30. Fluttir orgelforleikir efir
J.S. Bach. Organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Sr. Björn Jónsson.
Maríusóley
(Anemone coronaria)
Blóm vikunnar
Ágústa Björnsdóttir
Þáttur nr. 198
Anemonur þær sem jafnan
ganga undir nafninu „franskar
anemonur“ (ekki anemon„í“ur)
og valið hefur verið íslenska
heitið maríusóley eru meðal
okkar vinsælustu og harðgerð-
ustu blómjurta. Hér á landi eru
man'usóleyjar oftast ræktaðar
sem einærar, enda eru hnýðin
sem flutt eru til landsins seinni
hluta vetrar tiltölulega ódýr og
tæplega hægt að treysta á full-
komna blómgun nema á fyrsta
ári, þó vitaskuld séu á því undan-
tekningar. Erlendis eru franskar
anemonur mikið ræktaðar til
afskurðar og í hvers konar
skreytingar og bendir latneska
heitið coronaria tii þess að þær
hafí fyrrum verið notaðar í
kransa og sveiga. Maríusóleyin
er eitt af okkar bestu garðblóm-
um, um það er engum blöðum
að fletta. Auðveld ræktun, en
þó þarf að hafa svolítið fyrir
hénni, blómin eru fögur, stór og
litskrúðug, og eru þau ýmist ein-
föld eða hálffyllt. Auk þess að
vera fallegar eru þær - sem
fyrr segir - afar harðgerðar,
t. d. virðast þær þola sunnlensku
rigninguna mörgum jurtum bet-
ur. Þá má einnig telja þeim til
ágætis hve langur blómgun-
artími þeirra er og er ekki óal-
gengt að sjá þær skjóta fagurlit-
um kollunum óskemmdum upp
úr snjóskafli fyrri hluta vetrar.
Þannig að oft er hægt að ná sér
í útsprungna maríusóley í nóv-
ember. Hæð þessara jurta er
u. þ.b. 30 cm og njóta þær sín
best í þyrpingum eða breiðum.
Maríusóleyjarnar eru hnýðisjurt-
ir sem þurfa aillangan vaxt-
artíma og til þess að þær geti
blómstrað um mitt sumar, þarf
að forrækta þær, þ.e. leggja
hnýðin í mold inni t.d. um miðj-
an aprílmánuð og gróðursetja
síðan úti um mánaðamótin maí-
júní. I sólreit má planta hnýðun-
um þegar moldin er orðin þíð
og farin að hlýna, sömuleiðis er
hægt að láta þær beint á þann
stað sem þeim er ætlaður um
miðjan maí, en í báðum þeim
tilfellum þarf að skýla ef fro-
stakafli kemur, t.d. með dag-
blöðum eða pappa. Gott er að
leggja hnýðin í bleyti í nokkra
klukkutíma áður en þau eru Iögð
í moldina. Gæta verður þess að
moldin sé ekki of biaut á meðan
þær eru að spíra, því þá geta
hnýðin orðið eins og grautur.
Mörgum gengur erfiðlega að
átta sig á því hvernig hnýðin
eiga að snúa vegna þess að þau
eru mjög óreglulega löguð, en
lítil dökk ör eftir stilkinn eru
öruggasta vísbendingin og varla
er þörf á að taka það fram að
örið á að snúa upp. Best er að
sjá örið þegar hnýðin hafa legið
um stund í bleyti. Mikilvægt er
að hnýðin snúi rétt þegar þau
eru sett niður, en séu menn í
vafa má setja þau niður upp á
rönd. Maríusóleyjar þrífast best
í léttum fijóum jarðvegi og þurfa
talsverðan raka. Blanda af mó-
mold, rifnum mosa, garðmold
og sandi hæfir þeim vel. Þungur
þéttur jarðvegur getur orsakað
rotnun hnýðanna. Maríusóleyin
hefur lengi verið vinsæl hér, og
var kjörin blóm ársins 1975 af
félögum GÍ.
Umsj.