Morgunblaðið - 23.03.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
21
Á rauðu ljósi
RAUTT / RAUTT
L/OS
LJOS!
eftirÞórð E.
Halldórsson
Undit' þessurn einkunnarorðum
ferðuðust tvær stjórnmálahetjur um
landið fyrir nokkru. Höfðu þeir ekki
erindi sem erfiði enda aldrei talað
um „á rauðu ljósi“ síðan, nema sem
sneypulega för.
A sama hátt fer þeim er forsmá
íslensk umferðarlög og m.a. aka
yfir gatnamót gegn rauðu ljósi. Svo
gróf eru þessi lögbrot orðin að lög-
reglan telur sig ekki komast hjá
því að stofna til sérstaks átaks til
að kveða þennan lögbrotafaraldur
niður. Ég hef nokkrum sinnum
stungið niður penna um umferðar-
mál. Ástand þeirra finnst mér frek-
ar fara versnandi en hitt. Orsak-
anna til þess er hugsanlega ekki
svo langt að leita, ef fólk gefur sér
tíma til að hugsa.
Miðað við þann lögbrotafaraldur
sem hér viðgengst í umferðinni
hlýtur sá, er hefur áhyggjur af
þessu, að staldra við og leita orsak-
anna. Eftir langa búsetu erlendis
rekur mann í rogastans að horfa
uppá íslenska umferðarómenningu.
Fyrsta spurningin er þessi:
Hvernig er staðið að umferðar-
kennslunni? Henni hlýtur að vera
mikið ábótavant.
Þar sem ég hef búið erlendis eru
ökuskólar þar sem nemendur eru í
skóla nokkra mánuði og fá ekki
ökuréttindi fyrr en að loknu bóklegu
og verklegu námi. Samt sem áður
er nemandinn ekki talinn fullæfður
í akstri bifreiðar. Fyrsta árið, eftir
að hafa lokið prófi og fengið öku-
skírteini, ber honum skylda til að
merkja bíl þann er hann ekur, á
sérstakan hátt, þannig, að allir sjái
að þar er óvanur ökumaður á ferð.
Þetta er gert með stóru „L“ í aftur-
glugga. Þetta er ekki gert til að
nemandinn finni til minnimáttar,
eins og eflaust væri talið hér á
landi, eða einhver persónuskerðing.
Þetta eru lög í landinu til að sýna
að hér er í umferðinni aðili sem
ekki er fullvanur akstri og beri öðr-
um í umferðinni að sýna honum
tilliþssemi.
Ég ætla að nefna tvö dæmi sem
mér finnst ótvírætt sanna slaka
ökukennslu hér á landi. Það fyrra
er notkun stefnuljósa. Þeir fáu sem
sjást nota stefnuljós hér í umferð-
Þórður E. Halldórsson
„Engum ökumanni
liggur svo mikið á að
með því þurfi hann að
stofna eigin lífi og
ótaldra samborgara í
hættu.“
inni setja ljósið á þegar þeir eru
byijaðir að beygja og kemur það
þá að engu gagni fyrir þann sem á
eftir ekur.
Það síðara er, hvað margir temja
sér að læðast úr hliðargötu inná
umferðargötu í veg fyrir aðsteðj-
andi umferð. Þeir menn eru ennþá
til sem telja sig í fullum rétti sé
ekið aftaná bíl. þeirra við slíkar
aðstæður.
Ég kem þá að „hetjunni" sem
ekur yfir gatnamótin á rauðu ljósi.
Engum ökumanni liggur svo mikið
á að með því þurfi hann að stofna
eigin lífi og ótaldra samborgara í
hættu.
Hvers vegna er þá svona mikið
um þetta? Orsakanna er víða að
leita. Margir ungir menn á kraft-
miklum bílum eru að sýna einhvern
„töffara", kalda karla, með dýrara
og betra ökutæki en hinn við hlið-
ina. Margir eru svo sofandi í um-
ferðinni að þeir fylgjast ekki með
því sem er að gerast í kringum þá.
Flest lögbrot í umferðinni eru gerð
í skjóli þess að lögreglan er mannfá
"og ekki í stakk búin til að fylgjast
svo með umferðinni sem vera ber.
Þar sem umferðarlagabrot eru
svo mörg og almenn • sem hér er
staðreynd er sterkasta meðalið
gegn þessu siðferði að beita nógu
háum fésektum, því eins og gamalt
máltæki segir; „Þar sem ijársjóður
þinn er þar mun og hjarta þitt vera“.
Á rauðu ljósi er rangt að fara
reyndu ekki að gera það.
Haltu þig þar sem hyggnir fara
og hugsaðu hvernig þeir fara að.
Höfundur er fyrrverandi
lögregluþjónn.
Hallgríms-
kirkja gef-
ur út Passíu-
sálmana
FORLAG Hallgrímskirkju hefur
sent frá sér Passíusálmana á
íslensku, en forlagið hefur áður
gefið þá út á ensku, þýsku, ung-
versku og nýnorsku. Dr. Sigur-
björn Einarsson biskup sá um
útgáfuna, sem er til þess ætluð
að auðvelda nútímafólki lestur
Passíusálmanna, en þetta er 79.
prentun þeirra á íslensku.
Píslarsagan er prentuð á undan
sálmunum go er skipt í 50 kafla,
en einn sálmur er ortur út frá hveij-
um kafla. Orðaskýringar fylgja og
skrá er um þá ritningarstaði utan
Píslarsögunnar, sem vitnað er til í
sálmunum. Upphaf allra versa
• sálmanna eru skráð í stafrófsröð.
Þá er skrá um allar prentanir
Passíusálmanna, hvar og hvenær
þeir voru prentaðir og þýðingar
þeírra, en sálmarnir hafa verið
prentaðir oftar en nokkur önnur
íslensk bók.
Áður fyrri voru valdar bækur
eins og biblían prentaðar með rauð-
um lit á forsíðu og er þessum gamla
sið haldið — orðið Passíusálmar er
prentað í rauðum lit á titilsíðu, en
annað í svörtum. Hin hefðbundna
mynd af Hallgrími Péturssyni prýð-
ir útgáfuna.
Bókin, sem kostar 2.500 krónur,
er prentuð hjá Prentstofu G. Ben.
í Kópavogi.
(Úr fréttatilkynningu).
H MÁLSTOFA í hjúkrun verður
haldin mánudaginn 25. mars nk.
og hefst kl. 12.15 í setustofu á 1.
hæð í Eirbergi, húsnæði náms-
brautar í hjúkrunarfræði, Eiríks-
götu 34. Jóna Ingibjörg Jónsdótt-
ir hjúkrunarfræðingur B.S., kyn-
fræðingur M.S.Ed., flytur erindi
sem nefnist Kynheilbrigði og
kynlífsvandamál kvenna. Erindið
fjallar um fræðsluhlutverk hjúkr-
unarstarfsins með tilliti til eflingar
á kynheilbrigði og kynnir jafnframt
á hvern hátt sjálfshjálparformið
getur stuðlað að úrlausn á helsta
kynlífsvandamáli kvenna.
Ný afskomar og ferskar páskaliljur
Nú er páskalegt í Blómavali. Allt í gulu og grænu.
Mikið úrval af páskavöndum, allskonar
skreytingum, skreytiefhi og skrautmunum.
Komið í Blómavai, sjáið páskana.
Ný afskorin og fersk blóm.
PÁSKAVENDIR
Páskaliljur með birkigreinum (sjá mynd.)
Verð frá 395.-
PÁSKALIUUR I POTTI
10-15 blóm. (sjá mynd.) Skemmtileg nýjung.
Upplagt er að setja laukana síðan út í garð.
Verð aðeins
295.
Opið alla daga frá kl. 9 - 22. sími 689070