Morgunblaðið - 23.03.1991, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
25
Stefnumörkun í samgöngumálum:
Tíundi áratugurinn verði kennd-
ur við samgöngur og fjarskipti
NEFND, sem samgönguráðherra skipaði fyrir tæplega tveimur árum
til að móta samgöngustefnuna til lengri tíma, lagði fram skýrslu
um starfið á ráðstefnu samgönguráðuneytisins um framtíðarskipulag
samgangna, sem haldin var í gær. Skýrslan greinir frá þróun mála
síðasta áratug og spáð er fyrir um gang mála til ársins 2010. Lögð
er fram tillaga um stefnumörkun í samgöngumálum til lengri tíma
og lagt til að tíundi áratugur aldarinnar verði kenndur við samgöng-
ur og fjarskipti.
Stefnumörkunin miðar að því að
treysta byggð um landið og ná auk-
inni hagkvæmni og arðsemi út úr
framkvæmdum í samgöngumálum.
Lagt er til að hið opinbera leggi
sérstaka áherslu á uppbyggingu og
framfarir í sambandi við samgöng-
ur og fjarskipti.
í fjarskipta- og póstmálum eru
niðurstöður nefndarinnar að brýnt
sé að rammaáætlun um starfsemi
póst- og símamála til 12 ára verði
gerð. Lagt er til að verðlagning á
þjónustu Póst- og símamálastofn-
unar verði þannig háttað að allir
geti notið hennar á ámóta hátt
burstséð frá hvar þeir búi. Hlúa
þurfi að gagnaflutningum gegnum
símakerfið með uppbyggingu fjar-
vinnslustofa á landsbyggðinni,
stefnt verði að því að hringtengingu
ljósleiðarakerfisins verði lokið árið
1994 og bent er á að reisa þurfi
varajarðstöð fyrir Skyggni á Norð-
ur- eða Austurlandi.
í vegamálum þykir nefndinni
sennilegt að hugað verði meira að
vegagerð á hálendinu en gert hefur
verið. Lagt er til að unnið verði
áfram að 12 ára áætlun um vega-
gerð, framhald verði á stórverkefn-
um, þar sem jarðgangagerð skipi
veglegan sess, bundið slitlag verði
lagt á alla helstu vegi fyrir næstu
aldamót og hugað verði að tvöföld-
un fjölfarinna þjóðvega.
Varðandi almenningssamgöngur
vill nefndin að stefnt verði að því
að allt almenningsvagnakerfí á höf-
uðborgarsvæðinu verði eitt fyrir-
tæki og huga beri að möguleika
þess að nýta innlenda orkugjafa til
að reka almenningssamgöngutæki.
Bent er á að vinna þurfi að því að
styrkja almenningssamgöngur í
dreifbýli og stefna þurfi að því að
tengja akstur almenningsvagna og
umferðarmiðstöðvar við flugsam-
göngur, þar sem því verði við komið.
Nefndin leggur til að vegagerð
til þéttbýliskjarna á landsbyggðinni
verði gerð með tilliti til flutninga-
tækja samkvæmt staðli Efnahags-
bandalags Evrópu og sveitarfélög
og opinberir aðilar stuðli að upp-
byggingu vöruafgreiðslustöðvá fyr-
ir almenning í stærri byggðarlög-
um.
í flugmálum er lagt til að að-
staða fyrir innanlandsflug verði á
Keflavíkurflugvelli innan fárra ára,
tengiflug frá landsbyggðinni við
millilandaflug verði aukið og að
styrkja þurfí hlutverk Keflavíkur-
flugvallar sem skiptistöðvar í vöru-
flutningum milli landa og að út-
flutningur með ferskar vorur verði
auðveldaður. Stefnt verði að því að
Reykjavíkurflugvöllur verði aðeins
notaður fyrir áætlunarflug til
Reykjavíkur og beint fiug milli
landsfjórðunga verði aukið, en gert
er ráð fyrir að beint flug frá lands-
byggðinni til útlanda aukist á næstu
árum.
í sambandi við hafnarmál og sigl-
ingar eru niðurstöðurnar þær að
vinna þurfi áæltun um stóraukið
samstarf hafna, að fjögurra ára
hafnaáætlun skipi svipaðan sess og
veg- og flugmálaáætlun, að unnið
verði að 10-12 ára framkvæmda-
áætlun fyrir hafnir og að stefnt
verði að því að skapa íslenskum
kaupskipaútgerðum sambærilegan
rekstrargrundvöll og erlendir keppi-
nautar þeirra búi við.
Nefndin bendir á að samgöngur
séu einn af undirstöðuþáttum ferða-
þjónustu og leggur til að sam-
gönguáætlanir taki tillit til hags-
muna ferðaþjónustunnar.
Nefndin telur að leitast eigi við
að tryg;gja sem hlutlausasta þróun
og eðlilega innbyrðis samkeppni
einstakra samgöngugreina. Lagt er
til að skipað verði ólaunað sam-
gönguráð, sem verði ráðherra til
ráðgjafar og aðstoðar við stefnu-
mótun og nefndin telur brýnt að
stofnaður verði rannsókna- og
vísindasjóður samgöngumála til að
treysta og örva rannsóknir og
vísindastörf í þágu samgangna,
fjarskipta- og ferðamála.
Mannvirkjaþing 1991;
Gæðaráð færir okkur betri og
verðmætari hús í framtíðinni
- sagði formaður Meistara- og verktakasambands byggingamanna
INGVAR Á. Guðmundsson formaður Meistara- og verktakasambands
byggingamanna fjallaði um gæðaátak sem er í undirbúningi i islensk-
um byggingariðnaði á Mannvirkjaþingi, sem haldið var í gær á veg-
um Byggingaþjónustunnar. Til að sjá um gæðaátakið hefur verið
stofnað gæðaráð, sem 15 aðilar eru aðilar að, fulltrúar hagsmuna-
hópa bæði neytenda og byggingamanna, auk kennara í bygginga-
greinum og fleiri. „Sú vinna sem nú fer í hönd innan gæðaráðs
byggingariðnaðarins er ærin, en nýög verðug og mun án efa færa
okkur betri og verðmætari hús í framtíðinni til hagsbóta fyrir íslensk
byggingafyrirtæki og íslenska þjóð,“ sagði Ingvar.
Ingvar greindi frá aðdraganda
að stofnun gæðaráðs byggingariðn-
aðarins og tilgangi gæðaátaksins.
Hann sagði það vera gífurlega
víðfeðmt mál og margslungið að
koma á gæðastjórnun í íslenskum
byggingariðnaði, þar sem hún felist
í samræmingu margra þátta eins
og allrar hönnunar, efnisfram-
leiðslu, vinnubragða iðnaðarmanna,
gerð efnis og verklýsinga.
Hann minnti á að gallar á bygg-
ingum hefðu verið mjög til umræðu
árið 1985 og næstu ár þar á eftir,
þegar steypu- og múrskemmdir í
húsum komu víða i ljós. Innan sam-
taka byggingamanna hafi verið
kannað sérstaklega hvaða ástæður
hefðu verið fyrir þessum skemmd-
um og niðurstöðurnar voru þessar:
— Vinnubrögð iðnaðarmanna þar
sem finna mátti að vissum verkþátt-
um.
— Mjög takmarkaður fram-
kvæmdatími og kröfur um hámarks
afköst, oftast af völdum útboða.
— Breytt hönnun í gerð og útliti
húsa, nýjar og Iítt grundaðar lausn-
ir þar af leiðandi.
— Ómarkviss gerð verklýsinga
og ónákvæm úrvinnsla byggingar-
efna.
Sú aðferð sem ein var talin koma
til greina til þess að bæta úr, var
að sögn Ingvars að stofna gæða-
ráð, sem ynni markvisst að gerð
gæðakerfa og að kynna áhrif þeirra
á meðal byggingaraðila. Gæðaráð
byggingariðnaðarins var stofnað
17. janúar 1991.
Aðilum að gæðaráði má skipta í
6 flokka:
— Byggingaraðilar, meistarar og
fyrirtæki þeirra, fyrirtæki í fram-
leiðslu húshluta svo og iðnsveinar.
— Hönnuðir, það er arkitektar,
verkfræðingar, iðn- og tæknifræð-
ingar.
— Framleiðendur byggingarefna.
— Kennarar í byggingargreinum.
— Rannsóknaaðilar.
— Neytendur.
Aðilar gæðaráðs leituðu sam-
starfs við Dani, þar sem þar hafði
verið framkvæmt mikið gæðaátak
á þessu sviði að frumkvæði íslend-
ings er þar starfar hjá dönsku iðn-
tæknistofnuninni, Halldórs Guð-
mundssonar verkfræðings. Halldór
kcm hingað til lands og aðstoðaði
við undirbúninginn.
Ingvar nefndi ýmislegt af reynslu
Dana á þessu sviði sem hann sagði
athyglisvert. Færst hafi í vöxt að
aðeins þau fyrirtæki sem viðhafa
gæðakerfi í sinni framleiðslu séu
gjaldgeng í opinberum verkútboð-
um og stefni raunar í að allur bygg-
ingariðnaðurinn innleiði slíkar regl-
ur.
„Einnig hefur verið sýnt fram á
að hagnaður fyrirtækja af gæða-
stjórnun hafí numið 2-6% miðað við
veltu, sem skýrist meðal annars af
því að verkfeilum á byggingartíma
fækkar og/eða þeir hverfa, tafír á
afhendingu efna og húshluta
hverfa, efni standast kröfur og úr-
bætur vegna galla eftirá minnka
og/eða hverfa,“ sagði Ingvar Á.
Guðmundsson.
Kristján Jóhannsson hlýtur lof
fyrir frammistöðu sína í Flórens
í BYRJUN mars hófust sýningar á Cavelleria rusticana eftir
Mascagni í óperuhúsinu í Flórens. í umsögn ítalska blaðsins
Corriera della sera er talað um að það hafi glampað á banda-
ríska tenórinn Kristján Jóhannsson. Látum þetta með banda-
ríska tenórinn liggja milli hluta, en um rödd hans er sagt að
hún sé heit og áköf, en kannski ofurlítið einlit. Það er skemmst
að minnast hve Kristján fékk ógnar góðar viðtökur fyrir söng
sinn í sömu óperu í Napólí í desember, bæði hjá gagnrýnendum
og áhorfendum. í Flórens virðist sama uppi á teningnum.
í gagnrýni blaðsins er í upp-
hafi fjallað um þá örðugleika sem
óperan í Flórens hefur átt við að
etja. Sem stendur er ekki sýnt í
sjálfu óperuhúsinu, II communa-
le, sem er verið að gera við, held-
ur í Verdi-leikhúsinu. Auk þess
hafa verið mannaskipti í stjórn
hússins og allt þetta hefur haft
áhrif á listræn afköst óperunnar.
Til að stjórna var fenginn áttræð-
ur öldungur, Gianandrea Gavaz-
zeni, og honum tókst að smita
þátttakendur með ástríðu sinni
og gáfum, svo hreint kraftaverk
var hvernig til tókst og hve allt
var í góðu jafnvægi. Cavelleria
rusticana hefur einstakt aðdrátt-
arafl fyrir áhorfendur, en Gavaz-
zeni lætur ekki óperuna renna
yfír sviðið á neinn vanabundinn
hátt, lætur rútínuna lönd og leið,
en stjórnar henni eftir eigin sann-
færingu.
Af öðrum söngvurum, sem
einnig hljóta lof, eru Giovanna
Casolla í hlutverki Santuzzu og
Fedora Barbieri sem Mama Luc-
ia, Silvano Caroli sem Alfio og
Katia Litting sem Lola. Leik-
stjóri er Lamberto Puggelli. Á
eftir óperunni, sem er stutt, var
sýndur ballett, La giara, sem
þýða má Krukkan, eftir Alfredo
Casella. Einnig þar stjórnaði
Gavazzeni tónlistinni á sama ör-
ugga hátt og óperunni og tók í
lokin við áköfum fagnaðarlátum
áhorfenda. í gagnrýni ítalska
blaðsins er látin í ljós von um
að Gavazzeni takist að bjarga
starfsemi óperunnar og finna
aftur þann fjölda óperuunnenda
sem borgin eigi og að hann láti
sér ekki nægja málamiðlanir, sem
menningarsaga borgarinnar eigi
sannarlega ekki skilið.
Sigrún Davíðsdóttir
Ragnar Björnsson orgelleik-
ari.
Norðurland;
Tónleikar
Ragnars
Bjömssonar
RAGNAR Björnsson heldur
fimm orgeltónleika á Norð-
urlandi í Dymbilviku.
Öll orgelin sem Ragnar leik-
ur á í tónleikaferð þessari eru
annaðhvort alveg ný eða mjög
nýleg. Á Olafsfirði, þar sem
fyrstu. tónleikarnir verða,
mánudaginn 25. mars, er nýtt
íslenskt orgel smíðað af Björg-
vini Tómassyni. Á Dalvík, en
þar leikur Ragnar þriðjudaginn
26. mars, er mjög nýlegt danskt
orgel og svo er einnig í Hóla-
dónikirkju, en þar leikur Ragn-
ar á skírdag. Á miðvikudags-
kvöld leikur Ragnar í kirkjunni
á Sauðárkróki, en síðustu tón-
leikarnir verða á Hvammstanga
á föstudaginn langa, en þar er
einnig nýlegt danskt orgel.
Efnisskrá á tónleikunum verður
mjög fjöibreytileg, allt frá gam-
alli barokktónlist til nútíma-
verka íslenskra og erlendra.
Reyndar leikur Ragnar aldrei
sömu efnisskrána tvisvar á tón-
leikaröð þessari, fer efnisvalið
eftir hljóðfæri á hveijum stað
og verkefnin valin þegar á stað-
inn er komið. Ragnar mun út-
skýra verkin nokkuð á tónleik-
unum. Stundum er kvartað yfir
því að áheyrendur sjái ekki or-
gelleikarann á tónleikunum,
þar sem orgelið er venjulegast
staðsett bak við áheyrendur, á
Hvammstanga er ætlunin að
reyna að bæta nokkuð úr því
með sjónvarpsskermi sem kom-
ið verður fyrir fyrir framan
áheyrendur og verður fróðlegt
að sjá hvernig fólk tekur því,
en ekki er vitað til þess að slíkt
hafi verið reynt fyrr hérlendis.
Isafjörður;
Slys við skíða-
lyftu á Selja-
landsdal
MAÐUR slasaðist tölvert þegar
verið var að lagfæra skíðalyftu
á Seljalandsdal á fimmtudaginn.
Verið var að reisa endamastrið
uppi á Gullhól, sem hrundi þegar
snjóflóð féll á það á mánudaginn.
Þegar mastrið var komið upp féll
það aftur og með þeim afleiðingum
að endi þess slóst í andlit manns-
ins. Hann var fluttur á sjúkrahú-
sið og var þar í rannsókn í gær-
kveldi. Vitað var að hann hefði
að minnsta kosti kjálkabrotnað.
jnnlent
TT
L'J f! i'!