Morgunblaðið - 23.03.1991, Side 32
"32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARZ 1991
1 THúsnæðisskrifstofan á Akureyri opnuð;
Þjónusta á sviði
húsnæðismála
aukin o g bætt
HÚSNÆÐISSKRIFSTOFAN á Akureyri var formlega opnuð á fimmtu-
dag, en að rekstri hennar standa Húsnæðisstofnun ríkisins og Akur-
eyrarbær. Með tilkomu útibús frá Húsnæðisstofnun er ætlunin að auka
og bæta þjónustu stofnunarinnar við landsbyggðina, en skrifstofan
mun annast margvísleg verkefni fyrir hana, auk þess að hafa umsjón
með verkefnum á sviði húsnæðismála fyrir Akureyrarbæ. Skrifstofan
er við Skipagötu 12.
Á skrifstofunni verður veitt ráð-
gjöf í húsnæðismálum og vegna
greiðsluerfiðleikalána, kauptilboð
eru metin og gengið frá fasteigna-
veðbréfum auk annarra verkefna.
Þá verður höfð umsjón með byggingu
og' kaupum á félagslegum eignar-
íbúðum, félagslegum og almennum
kaupleiguíbúðum og félagslegum
leiguíbúðum og eftirlit með fram-
kvæmdum. Einnig getur bærinn
samkvæmt samningi falið starfsfólki
skrifstofunnar að vinna önnur verk-
efni sem upp kunna að koma.
Dan Brynjarsson hagsýslustjóri
Akureyrarbæjar sagði í erindi við
opnunina, að hún ætti sér langan
aðdraganda, eða allt aftur til ársins
1986, en í kjölfar breytinga á lögum
um Húsnæðisstofnun sem veittu lán
til lengri tíma en áður myndaðist
mikil biðröð. Flestir landsbyggðar-
menn lentu aftarlega í röðinni og er
leitað var skýringa kom í ljós að
erfiðlega gekk í fyrstu að fá gögn
frá stofnuninni og lentu því umsókn-
ir þeirra aftar í röðinni. Fram kom
tillaga um að auka þjónustu við
landsbyggðina með opnun skrifstofu
á Akureyri fyrir tveimur árum, en á
sama tíma var hafin í bæjarráði
umræða um á hvem hátt félagsleg-
um húsnæðismálum yrði best fyrir
komið, en þau voru í höndum þriggja
aðila. Síðan hafa mál þróast á þann
veg að samningur hefur verið gerður
milli Húsnæðisstofnunar og Akur-
eyrarbæjar um rekstur skrifstofunn-
ar, en þar munu starfa fjórir starfs-
menn og sinna áðurnefndum verk-
efnum fyrir þessa aðila.
Morgunblaðið/Guðmundur Bryi\jarsson
Eldur í Kjötiðnaðarstöð KEA
Eldur kom upp í djúpsteikingarpotti í vinnslusal
Kjötiðnaðarstöðvar KEA laust fyrir kl. 13 í gær.
Nokkrar skfemmdir urðu, einkum af völdum sóts og
reyks. Starfsfólk var í mat er eldurinn kom upp,
en áður hafði verið kveikt upp í pottinum og náði
feitin að ofhitna áður en þeir urðu þess varir. Eldur
komst í skilrúm umhverfis pottinn og skemmdir
urðu þar nokkrar. Að sögn Óla Valdimarssonar slát-
urhússtjóra var sót um allt hús og fyrirsjáanleg
mikil þrif um helgina. Hann sagði að vinnsla hefði
verið í lágmarki þar sem vinnuvikunni var að ljúka
og því ekki orðið miklar skemmdir á matvælum.
Sjómenn ísfisktogaranna ræða við ÚA;
Mikil samstaða ríkjandi og*
enginn bilbugur á mönnum
- sagði Hannes Kristjánsson stýrimaður á Kaldbak
hækkaði heimalöndunarálagið á
síðasta ári upp í 30%. „En við
erum eingöngu að hugsa um
kjarabætur okkur til handa. Það
helst enginn á togurunum lengi,
menn sitja um pláss á öðrum tog-
urum sem gefa betur,“ sagði
Hannes.
Sjómenn á Dalvíkurtogurunum
Björgvin og Björgúlfi funda með
forráðamönnum Útgerðarfélags
Dalvíkur í dag, laugardag. Rögn-
valdur S. Friðbjörnsson útibús-
stjóri KEA á Dalvík sagðist von-
ast til að málin leystust í sátt og
samlyndi, en sagði aðspurður að
vissulega skapaði þessi kjaraum-
ræða sjómanna óróa í landverka-
fólki.
Hlóðir:
Þrír kröfðust
gjaldþrots
ÞRÍR aðilar hafa farið fram á
að hlutafélagið Kólumbíska-
íslenska, sem rekið hefur veit-
ingastaðinn Hlóðir á Hótel
Norðurlandi verði tekið til
gjaldþrotaskipta.
Málið var tekið fyrir hjá bæjar-
fógetaembættinu á Akureyri í gær
og kröfðust eigendur Hlóða þess
að skiptaráðandi viki sæti vegna
fyrri afskipta sinna af málefnum
fyrirtækisins. Skiptaráðandi hafn-
aði því að víkja sæti og kærðu þá
forsvarsmenn úrskurð hans til
Hæstaréttar. Málinu er frestað í
héraði á mgðan það fer fyrir
Hæstarétt.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Lokatónleikar músíkviku
LOKATONLEIKAR Kammer-
músíkviku Tónlistarskólans á
Akureyri verða haldnir í dag
laugardag, 23. mars kl. 17 í Akur-
eyrarkirkju og sal Safnaðar-
heimilis.
Flutt verða fjölmörg verk, m.a.
Brandenborgarkonsert nr. 6 eftir
J.S. Bach, Homafantasía, orgel-
verk, flaututnó, saxófónkvartett og
jasskvartett. í hléi verður boðið upp
á kaffi og eru allir boðnir velkomnir.
„ÞAÐ virðist ríkja mikil samstaða og enginn bilbugur á mönn-
um,“ sagði Hannes Kristjánsson annar stýrimaður á Kaldbak EA
eftir fund sem áhöfn skipsins átti með framkvæmdastjórum Út-
gerðarfélags Akureyringa í gær. Fundað hefur verið með áhöfnum
þriggja ísfisktogara félagins, auk Kaldbaks, Hrímbaks og Sval-
baks. Farið hefur verið fram á það við sjómenn að þeir dragi
uppsagnir sínar til baka eða fresti þeim, en einhugur virðist ríkja
um að verða ekki við því fyrr en lausn finnst í kjaradeilunni er
sjómenn sætta sig við, að sögn Hannesar. Sjómenn á togurum
Útgerðarfélags Dalvíkinga, þeirra Björgúlfs EA og Björgvins EA,
hitta forráðamenn félagsins að máli í dag, laugardag, þar sem
kjaramálin verða rædd. Ahöfn Björgvins hefur ekki sagt upp störf-
um, en Björgúlfsmönnum var sagt upp er skipið fór í slipp fyrir
nokkru.
Konráð Alfreðsson formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar sagði
Fjórar nýútkomnar
ALLT STAKAR SÖGUR ii
ásútqáfan
Askriftarsími 96-24966
Glerárgötu 28 - 600 Akureyri - Sími 24966
að biðstaða væri í málinu. Sjómenn
á þremur togurum ÚA hefðu fun-
dað með framkvæmdastjórum þar
sem farið hafi verið fram á það
að uppsagnir yrðu dregnar til baka
eða þeim frestað. Sjómenn vildu
ekki ljá máls á því fyrr en komið
yrði til móts við kröfur þeirra um
hærra fiskverð.
„Það virðist allt stefna í stóra
stoppið, maður heyrir ekki annað
en menn ætli að sýna samstöðu
og láta engan bilbug á sér finna.
Launin eru alltof lág, en það sem
við viljum ræða er hækkun 4
skiptaverði. Þessi 10% hækkun á
heimalöndunarálagi sem ákveðin
var í síðustu viku er að okkar
mati ekki nægileg," sagði Hannes
Kristjánsson á Kaldbak.
Harðbakur EA kemur inn á
mánudag og Sólbakur degi síðar,
á þriðjudag, en þann dag taka
uppsagnir sjómanna gildi. Tveir
togarar verða á sjó er uppsagnirn-
ar taka gildi, Kaldbakur og
Hrímbakur, en Svalbakur er í
slipp.
„Við erum vissulega hræddir
um að fáum við kjarbætur muni
þær innan tíðar verða hafðar til
hliðsjónar um landið allt,“ sagði
Hannes, eij sú var^ raunin er UA