Morgunblaðið - 18.04.1991, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991
«13
írena mjög ólík. Hún er meðvituð
um sjálfa sig og pólitískt, hefur
lesið og skrifað mikið. Er menntuð
kona. Hún er óhrædd við að láta
afstöðu sína I ljós og gerir það
málefnalega. Óli aftur á móti segist
enga afstöðu hafa en siðgæðisvit-
und hans er kristalstær. Hann á
erfitt með að koma orðum að hlut-
unum, tekur tilfinningalega afstöðu
en hann hefur ábyrgð sína á öxlun-
um.“
— Má skilja þetta þannig að
hugsjónir og sannfæring eldist af
fólki? Verða Óli og írena einsog og
Karlotta og ráðherrann eftir tutt-
ugu og fimm ár?
„Alls ekki. Enda tekur Karlotta
sína afstöðu loksins á þessum
punkti í lífi sínu samkvæmt sann-
færingu sinni. írena er heldur ekki
gijóthörð efnishyggjumanneskja,
hún sér ekki veröldina í svörtu og
hvítu. Hún sér allt sem hluta af líf-
inu, listina þar með talda. Hún teng-
ir saman orð ráðherrans um frelsi
og lýðræði við lífið sjálft og vekur
okkur til umhugsunar um að orð
einsog frelsi og mannúð er ekki
hægt að negla niður endanlega. Þau
þarf stöðugt að skilgreina upp á
nýtt og beijast fyrir þeim. Frelsi
og mannúð eru orð sem auðvelt er
að binda í slagorð og hengja uppá
vegg en hváð er mannúð? Er það
ekki mannúð að skapa fallegt um-
hverfi þar sem við erum meðvituð
um að öllum líður bærilega og að
færri líði skort, að allir hafi tæki-
færi til að afla sér menntunar og
lifa sómasamlegu lífi.“
Leikarar í sýningunni eru þau
Bríet Héðinsdóttir, Baltasar Korm-
ákur, Erla Rut Harðardóttir og
Erlingur Gíslason. Leikmynd og
búninga hannar Messíana Tómas-
dóttir, lýsingu hannar Ásmundur
Karlsson og Vigfús Ingvarsson
stjórnar leikhljóðum og segulbönd-
um.
Gunnar Guðnason baritonsöngv-
ari.
Einsöngs-
tónleikar
í Garðabæ
TÓNLEIKAR verða í Kirkjuhvoli
í Garðabæ á vegum Tónlistar-
skóla Garðabæjar sunnudaginn
21. apríl.
Gunnar Guðnason baritonsöngv-
ari og Lára Rafnsdóttir píanóleikari
flytja Ijóð og aríur eftir Schubert,
Strauss, Poulenc, Mendelssohn,
Mozart o.fl.
Gunnar Guðnason hefur verið
nemandi skólans sl. 4 ár undir hand-
leiðslu Sieglinde Kahmann og er
þetta lokapróf hans frá skólanum.
Tónleikarnir á sunnudaginn heijast
kl. 17.00 og er öllum heimill að-
gangur.
Rauð áskriftarröð Sinfóníuhljómsveitar íslands:
Norræn tónlist
eftir Rafn Jónsson
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
Islands í rauðri áskriftarröð
verða haidnir í Iláskólabíói
fimmtudagjnn 18. apríl og hefjast
kl. 20.00. Á efnisskrá verða þrjú
verk eftir norræn tónskáld:
Jó eftir Leif Þórarinsson, Sinfónía
nr. 2 eftir Cari Nielsen og Fiðlukon-
seit eftir Jean Sibelius.
Einleikari verður rúmenski fiðlu-
leikarinn Eugene Sarbu og hljóm-
sveitarstjóri Petri Sakari.
Jó eftir Leif Þórarinsson var frum-
flutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveit-
arinnar í október 1975 og aftur
1978. Um verkið hefur Leifur sagt
m.a.: Hljómsveitareinþáttungurinn
Jó er einskonar hliðarspor frá all-
langri sinfóníu, sem var í smíðum
1975. Skýringar á nafninu geta þeir,
sem nenna, leitað í fornri goðafræði
en sagan um Jó og Júpiter er grát-
brosleg — á sinn hátt. Einhveijum
gæti líka dottið í hug að leika sér
að því að bæta einum staf eða at-
kvæði framan við nafnið, enda væri
sú aðferð náskyld þeirri, sem beitt
er við myndbreytingar stefja og
hljóma sem heyrast á þessum fáu
mínútum.
Sinfónía nr. 2, „De fire tempera-
menter“, eftir Carl Nielsen var frum-
flutt í Kaupmannahöfn í desember
1902. Hann sótti fyrirmyndir sínar
I upphafi til rómantískra tónskálda
19. aldar en varð síðar frumkvöðull
nútímatónlistar i Danmörku. Hann
hefur stundum verið kallaður Siebel-
ius Danmerkur. í rauninni eiga þessi
tónskáld ekki margt sameiginlegt,
því á meðan Nielsen leitaði fanga í
erlendum straumum, sótti Sibelius
efnivið sinn í finnska þjóðtrú og
menningu. Fiðlukonsertinn skrifaði
Eugene Sarbu fiðluleikari.
Sibelius 1903 og var hann frumflutt-
ur í upprunalegri mynd í Helsinki
1904 undir stjórn tónskáldsins.
Hann endurskoðaði svo verkið og
var það frumflutt í endanlegri mynd
í Berlín síðla árs 1905. Um þetta
leyti settist hann að í Jarvenpaa, þar
sem hann dvaldist nánast sleitulaust
til dauðadags 1957.
Einleikarinn á tónleikunum verður
rúmenski fiðluleikarinn Eúgene
Sarbu. Hann hóf fiðlunámið aðeins
fimm ára gamall. Hann kom fyrst
fram sem einleikari sex ára og átta
ára hlaut hann verðlaun á þjóðartón-
listarhátíðinni í Búkarest. Hann hef-
ur hlotið öll tónlistarverðlaun, sem
veitt eru í Rúmeníu. Eftir nám í
Búkarest og París hlaut hann náms-
styrk fyrir atbeina Yehudis Menu-
hins í Institute of Music í Fíladelfíu
í Bandaríkjunum. Jafnframt stund-
Petri Sakari aðalhljómsveitar-
syóri Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands.
aði hann nám í New York, Lundún-
um og Zurich. Árið 1978 hlaut hann
Paganini-verðlaunin í Genúa í Sviss,
auk fjölda annarra verðlauna.'Hann
hefur leikið einleik á fiðlu með flest-
um þekktustu hljómsveitum heims-.
ins og er álitinn einn besti fiðluleik-
ari heimsins af yngri kynslóðinni.
Hann leikur á Stradivarius-fiðlu,
sem smíðuð var I Cremona árið 1729.
Petri Sakari er aðalhljómsveitar-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Hann stundaði nám í fiðluleik í
heimabæ sínum Tampere en nam
svo hljómsveitarstjórn í Helsinki.
Auk þess að vinna með Sinfóníu-
hljómsveitinni stjórnar hann hljóm-
sveitum víða á Norðurlöndum og
ieikur á fiðlu í finnsku tríói.
Höfundur er kynningarfulltrúi
Sinfóníuhijómsveitar íslands.
NÝ BMW 3 LÍNA
r
AUKASENDING
Nýi BMW þristurinn er einn
eftirsóttasti bíll Evrópu og biötími
eftir honum í Þýskalandi er um 12
mánuöir.
Þeir flölmörgu hérlendis sem ekki
hefur veriö hægt aö lofa afgreiöslu
á undanförnum vikum geta nú
fengiö ósk sýna uppfyllta.
Aukasending af BMW 3 línunni
er komin. Þeir sem ekki hafa skráö
sig á biölista eru beðnir aö staöfesta
pantanir.
BMW 3 er fyrirmynd nútíma
ökutækja og í honum er að
finna blik af framtíðar hönnun
á sígildum bíl
sem aldrei fer úr tísku.
Bílaumboðið hf„
Krókhálsi 1-3 110 Reykjavik Simi 91-686633
Engum
likur
BLIKAF FRAMTIÐINNI