Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 20

Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991 KOSNINGAR Áfengisútsölur: Atkvæðagreiðslur á þremur stöðum GREIDD verða atkvæði um heimild til opnunar áfengisútsölu í að minnsta kosti þremur kaupstöðum samhliða alþingiskosningunum næstkomandi laugardag. Þessar firði og Bolungarvík. Atkvæðagreiðsla um heimild til opnunar áfengisútsölu skal fara fram í kaupstöðum samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar, einnig geta íbúamir krafist slíkrar at- kvæðagreiðslu ef einn þriðji kosn- ingabærra manna lýsir sig sam- þykkan þvi. í kaupstöðunum þrem- ur þar sem nú er kosið er það gert að kröfu íbúanna. Fjármálaráðherra er ekki bundinn af því að opna áfengisútsölu í kaupstöðunum þó íbúamir veiti slíka heimild í at- kvæðagreiðslunum. I nokkrum kaupstöðum hefur opnun útsölu verið heimiluð án þess að ÁTVR hafi opnað útsöiu. Á Eskifirði hafði atvinnumála- nefnd óskað eftir slíkri atkvæða- greiðslu en tillaga nefndarinnar var kosningar eru á Eskifirði, Ölafs- felld í bæjarstjórn. 354 íbúar skrif- uðu hins vegar undir áskorun um að atkvæðagreiðslan færi fram og samþykkti bæjarstjórn þá að fela kjörstjórn framkvæmdina. Kjósend- um verður afhentur gulur atkvæða- seðill sem þeir verða að skila í sér- stakan kassa á kjörstað. Hvergi eru greidd atkvæði um sameiningu sveitarfélaga samhliða þessum alþingiskosningum, svo vit- að sé, að sögn Húnboga Þorsteins- sonar skrifstofustjóra félagsmála- ráðuneytisins. Bæjarstjóm Kópa- vogs fékk áskorun 443 íbúa um að láta fara fram atkvæðagreiðslu um byggingu íþróttahallar' í bænum. Bæjarráð taldi ótímabært á þessu stigi málsins að efna til slíkrar at- kvæðagreiðslu og hafnaði beiðninni. Utlit fyrir skaplegt veður á kjördaginn Rætt um bráðabirgðalög um tvo kjördaga ÚTLIT er fyrir skaplegt veður á kjördag, næstkomandi laugar- dag, miðað við þau gögn sem Veðurstofan hefur nú. Komið hefur til tals í ríkisstjórninni að hún afli sér heimildar með setningu bráðabirgðalaga til þess að hafa kjördagana tvo um helgina, ef slæmt útlit verður með veður. Nákvæmari veðurspá fyrir kjördag- inn verður gerð i dag og væntanlega verður ákveðið í dag hvort sett verða bráðabirgðalög. Veðurstofan hefur gert spá fyr- ir kjördag samkvæmt þeim gögn- um sem fyrir lágu í gær og vildi Markús Á. Einarsson veðurfræð- ingur nefna spána lauslegar horf- ur. Samkvæmt þessu verður vest- læg átt víðast hvar á landinu. Skýjað og ef tii vill lítilsháttar úrkoma á Suður- og Vesturlandi. Léttskýjað á Austurlandi. Ef til vill verður norðvestlægari vindur og einhver él Norðaustanlands. Samkvæmt þessu ætti veður og færð hvergi að hamla því að fólk geti kosið eða framkvæmd alþing- iskosninganna að öðru leyti. „Það kynni að vera að ríkis- stjómin þyrfti að afla sér heimild- ar til þess að hafa kjördagana tvo með setningu bráðabirgðalaga. Við viljum auðvitað helst ekki þurfa að gera það, en við ákváðum að skoða það frekar á fimmtudag- inn,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra eftir ríkisstjórnarfund í fyrradag þar sem málið var rætt að hans frum- kvæði. Fundurinn á þriðjudag var sá síðasti á þessu kjörtímabili. Hvers vegna vaxtar- svæði á landsbyggðinni? eftir Lárus Jónsson Sjálfstæðismenn hafa mótað nýja stefnu í byggðamálum. Þessi stefna fehir ekki síst í sér nýjar áherslur í atvinnu- og sam- göngumálum landsbyggðarinn- ar. Hún byggist á þeirri grund- vallarforsendu að stjómvöld eigi að rétta frumkvæði og framtaki einstaklinga og fijálsra félaga- samtaka örvandi hönd, rekstur vel rekinna fyrirtækja skili arði og hlúð sé að þróun og nýsköpun í atvinnulífinu. Sérstök áhersla er lögð á að svonefnd vaxtarsvæði séu mynd- uð eða efld á landsbyggðinni. Með þessu hugtaki er átt við þéttbýlisstaði, sveitir og sjávar- pláss, sem tengjast öraggum samgöngum. Fólk, sem býr á vaxtarsvæðunum á að geta haft dagleg samskipti og sótt frá heimili sínu atvinnu eða þjónustu innan viðkomandi svæðis. Sveit- arstjórnir eiga jafnframt að geta haft meiri og nánari samvinnu um öll framfaramál á viðkom- andi svæði. Þetta krefst þess að samgöngubætur á landi innan héraða og landshluta fái aukinn „Skilyrði til þess að fleira fólk taki sér búsetu á landsbyggð- inni eru að iðnaður og þjónustugreinar at- vinnulífsins nái þar betri fótfestu við hlið sjávarútvegs og land- búnaðar.“ forgang frá því sem verið hefur, þar á meðal jarðgangagerð eða aðrar nauðsynlegar ráðstafanir, sem meta má arðbærar, þegar mat er lagt á áhrif þeirra til þróunar byggðar í landinu til frambúðar. Ný störf í atvinnulífi ráða mestu um búsetuval fólks Hvers vegna leggja sjálf- stæðismenn svo mikla áherslu á vaxtarsvæði á landsbyggðinni? Meginástæðan er sú að ný störf í atvinnulífinu hafa orðið og verða í framtíðinni fyrst og fremst til í almennum iðnaði og Lárus Jónsson þjónustu. Þetta má glöggt sjá á meðfylgjandi mynd, en þar kem- ur fram að bein fækkun starfa hefur orðið í fiskveiðum, fiskiðn- aði og landbúnaði á síðasta ára- tug. Þetta era, sém kunnugt er, hefðbundnir atvinnuvegir lands- byggðarinnar. Öll fjölgun nýrra starfa hefur orðið í iðnaði og þjónustugreinum. Þessir at- vinnuvegir blómgast best þar sem margt fólk býr á einu at- vinnu- eða þjónustusvæði. Fjölbreyttara atvinnulíf - Betra mannlíf Skilyrði til þess að fleira fólk taki sér búsetu á landsbyggðinni eru að iðnaður ogþjönustugrein- ar atvinnulífsins nái þar betri fótfestu við hlið sjávarútvegs og landbúnaðar. Á þetta hefur hvergi nærri verið lögð nægileg áhersla í framkvæmd byggða- stefnu á undanförnum áratug- um. í því mikilvæga efni hefur byggðastefna að undanförnu brugðist, þótt fj arri lagi sé að halda því fram að öllu hafi verið illa til skila haldið í þeim efnum. Öflug vaxtarsvæði á lands- byggðinni treysta allt umhverfi atvinnuveganna þar. Fólki gefst kostur á fjölþættara atvinnuvali og þau eru auk þess forsenda grósku í félags- og menningar- málum í byggðum landsins eða með öðrum orðum betra mann- lífs í landinu. Fjölmennari og fleiri vaxtarsvæði á landsbyggð- inni hafa í för með sér hag- kvæma þróun byggðar í landinu fyrir þjóðina alla og eru af áður- nefndum ástæðum kjarni nýrrar byggðastefnu Sjálfstæðisflokks- ins. Höfundur er framk væm dastjóri ogá sætí íbyggðanefnd Sjálfstæðisflokksins. FJÖLGUN NtRRA STARFA Á VINNUMARKAÐI 1981-88 20 Þúsund ný störf 15 10 -5 Þjónusta: + 18.200 störf Sjávarútv. Iönaður og landbún. +2.208 -2.037 störf —i vwwmmw vfm?, Landbúnaöur Aörar framl.greinar NsjNSM Sjávarútvegur ■B Þjónustugreinar BJÓÐUM ÚRVALS ÚTSÆÐI - GULLAUGA, RAUÐAR ÍSLENSKAR, PREMIER, BINTJE OG HELGA ÁBURÐ, KALK, YFIRBREIÐSLUR OG ÖLL VERKFÆRI SEM TIL ÞARF REYNSLA - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMA NNA SMIÐJUVEGI 5. 200KÓPAVOGUR. SÍMI 43211

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.