Morgunblaðið - 18.04.1991, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18; APRÍL 1991
33
N G
N G A R
Ráðast úrslit álmálsins í
upphafi nýs kjörtímabils?
eftir Guðmund Sv.
Hermannsson
UMRÆÐA um nýtt álver og stór-
iðju á íslandi hefur verið áber-
andi á því kjörtímabili sem nú
er að ljúka. Og í upphafi þess
næsta mun væntanlega koma í
ljós hvort verður af byggingu
álvers Atlantalshópsins á Keilis-
nesi. Um það mál hafa verið
skiptar skoðanir. Stuðnings-
menn álversins benda meðal
annars á þjóðhagslega hag-
kvæmni og þjóðartekjur sem það
muni skapa, aukna atvinnu og
kaupmátt og mikla innlenda
fjárfestingu í virkjunum. And-
stæðingar þess benda meðal ann-
ars á að með tilkomu álversins
verði ál of stór hluti útflutnings
þjóðarinnar og áhrif erlendra
stórfyrirtækja verði of mikil
hérlendis, áhætta við orkusölu
til áversins sé of mikil og það
valdi mengun. Enn aðrir styðja
byggingu álversins en óttast að
Islendingar gefi of mikið eftir í
samningunum.
Aðdragandi þeirra samninga,
sem riú standa yfir um álversbygg-
ingu, er langur og spannar nánast
tvö síðustu kjörtímabil. Árið 1983
var byrjað að ræða við Alusuisse
um stækkun álversins í Straum-
svík. Snemma ársins 1987 gaf
Alusuisse hugmyndina upp á bát-
inn, en þá um vorið var komið á
viðræðum við evrópska álframleið-
endur uni möguleika á byggingu
nýs álvers á Islandi, sem myndi
rísa í Straumsvík, en yrði óháð
ISAL-álverinu. Gert var ráð fyrir
að það gæti framleitt allt að 200
þúsund tonn á ári, eða tvöfalt meira
en álverið í Straumsvík. Tilgangur-
inn var aðallega sá, að sögn Frið-
riks Sophussonar þáverandi iðnað-
arráðherra, að finna markað fyrir
raforku frá Blönduvirkjun, sem
kæmist í gagnið síðar á
kjörtímabilinu.
Erlendu álfyrirtækin sýndu
þessu máli áhuga, og í mars 1988
hófust könnunarviðræður við hol-
lenska fyrirtækið Beheer, sem var
dótturfyrirtæki Hoogovens, og
Austria Metall. Um þessar mundir
var álverð mjög hátt á heimsmark-
aði, sem ýtti undir áhuga fyrirtækj-
anna.
Atlantalhópurinn stofnaður
Fleiri fyrirtæki sýndu þessu
máli áhuga og var m.a. rætt við
franska fyrirtækið Pecheney,
Norsk Hydro og Rio Tinto Zink,
sem áður hafði komið við sögu kísil-
málmverksmiðju sem fyrirhugað
var að byggja á Reyðarfirði. Einnig
vaknaði áhugi Alusuisse á málinu
aftur, og í júní 1988 var haldinn
formlegur fundur viðræðunefnda
Teikningin sýnir álver, svipað og niun rísa á Keilisnesi ef samningar nást.
frá Alusuisse, Beheer, sænska fyr-
irtækinu Granges og Austria Met-
all, þar sem rætt var um að þessi
félög tækju höndum saman um að
byggja nýtt álver á Islandi eða að
stækka álverksmiðju Alusuisse í
Straumsvík.
Mánuði síðar stofnuðu fyrirtæk-
in formlegt samband undir heitinu
Atlantalhópurinn, og iðnaðarráð-
herra skrifaði undir samkomulag
við hópinn um hagkvæmniathugun
á fyrirhuguðu álveri.
Tveimur mánuðum síðar, eða í
september, urðu stjórnarskipti, og
ný stjórn var mynduð þar sem Al-
þýðubandalag kom í stað Sjálf-
stæðisflokks, Jón Sigurðsson tók
við embætti iðnaðarráðherra.
Flokkur hans, Alþýðuflokkurinn,
lagði mikla áherslu á að samningar
um nýtt álver héldu áfram óhindr-
að. En í Alþýðubandalaginu var
greinileg andstaða ýmissa þing-
manna við nýtt álver.
Alusuisse hættir enn við
í febrúar 1989 lauk hagkvæmni-
athugun á nýju álveri og þá kom
í ljós, að framkvæmdir yrðu mun
kostnaðarsamari en áður var talið.
I kjölfar þess fór Atlantalhógurinn
aftur að ræða um stækkun ÍSAL-
álversins úr 90 þúsund í 200 þús-
und tonna ársframleiðslugetu. En
þegar líða tók á sumarið og haus-
tið kom í ljós að ágreiningur var
innan hópsins. Austria Metall hætti
þátttöku og síðan Alusuisse. En
Granges og Hoogovens, sem hafði
nú yfirtekið Beheer, lýstu áfram
áhuga á að byggja nýtt álver á
Islandi ef þriðja fyriitækið fengist
í hópinn.
í febrúar 1990 gekk bandaríska
fyrirtækið Alumax til liðs við Atlan-
talhópinn, en Alumax hafði raunar
í 30 ár haft það bak við eyrað að
byggja álver á Islandi. Mánuði síð-
ar undirrituðu forstjórar fyrirtækj-
anna þriggja og iðnaðarráðherra
yfirlýsingu um vilja til að ljúka
samninguih um byggingu álvers
þá um haustið. Álverið átti að taka
til starfa 1994 og vera fullbúið
1997.
Jafnframt var hafist handa við
undirbúning nýrra virkjana svo
Landsvirkjun gæti framleitt næga
orku fyrir álverið. í apríl 1990 lagði
iðnaðarráðherra fram frumvarp um
virkjanaröð þar sem Fljótsdals-
virkjun var efst á listanum og
næst kom stækkunBúrfellsvirkjun-
ar.
Umdeild undirskift
Um sumarið þokuðust samning-
ar áfram milli iðnaðarráðuneytis
og Atlantalhópsins. í september
lýsti iðnaðarráðherra því yfir að
fyrir lægju ákveðnar hugmyndir
um orkuverð til álversins og skatta-
mál. Þessar hugmyndir voru þó
umdeildar og ráðherrar og þing-
menn Alþýðubandalagsins, voru
meðal þeirra sem gagnrýndu orku-
samnignsdrögin. Þeir gagnrýndu
einnig þegar iðnaðarráðherra stóð
fyrir því að sanningsaðilar stað-
festu í októberbyijun áfanga í
samningunum, þar sem m.a. var
kveðið á um meginatriði orkusö-
lusamnings, og að álverið myndi
rísa á Keilisnesi.
Þá var orðið ljóst að heildar-
samningarnir tækju lengri tíma en
áður var vonast til. Á svipuðum
tíma lýsti stjórn Landsvirkjunar því
yfir að hún hefði ekki fjallað um
eða staðfest þær hugmyndir um
orkusölusamning sem þá var rætt
um. I kjölfar þessa skipaði Lands-
virkjunarstjórn eigin samninga-
nefnd um orkusölumál.
Árs töf á framkvæmdum
I janúar setti Persaflóastríðið
strik í reikninginn. í febrúar gáfu
samningsaðilar út sameiginlega
fréttatilkynningu þar sem sagði að
útvegum fjármagns fyrir álverið
muni taka lengri tíma en upphaf-
lega var gert ráð fyrir vegna
óvissuásstands sem ríki á fjár-
magnsmörkuðum sökum stríðsins.
Jafnframt hafði álverð lækkað mik-
ið, og afkoma álfyrirtækja árið
1990 var ekki eins góð og búist
hafði verið við.
Einnig kom í ljós að samningar
voru komnir styttra áleiðis en áður
var talið, og fyrirsjáanlegt var að
bygging álversins myndi a.m.k.
tefjast um 6-12 mánuði. Og við
þinglok í mars kom fram veruleg
andstaða frá þingmönnum Kvenna-
lista og einstökum þingmönnum
Alþýðubandalagsins gegn álmál-
inu, sem kom í veg fyrir afgreiðslu
þingsályktunartilögu iðnaðarráð-
herra um stuðning þingsins við al-
verssamninga.
Dregur til tíðinda í maí?
Vegna kosninganna liggja samn-
ingaviðræður um álmálið nú að
mestu niðri en næstu samninga-
fundir eru fyrirhugaðir um miðjan
maí. Síðustu fundir samninga-
nefnda voru fyrir tveimur vikum,
en árangur af þeim mun hafa verið
lítill. Þó er, samkvæmt upplýsing-
um frá iðnaðarráðuneytinu, stefnt
að því að ljúka gerð álverssamning-
anna í lok maí. Þar er orkusölu-
samningurinn einn sá mikilvægasti
fyrir íslendinga, en þar liggur ekki
enn fyrir samkomulag um endur-
skoðunarákvæði, tryggingar eða
greiðsluskuldbindingar.
Atlantalsmegin stendur aðallega
á fjármögnun verksins. Áður hefur
verið minnst á Persaflóastríðið, en
einnig munu bankar vera ófúsari
en ella að leggja fé til verksins,
vegna þess að álfyrirtækin þijú
hafa stofnað sitt hvert eignarhalds-
fyrirtækið um hlutafé í fyrirtækinu
Átlantsáli hf. sem síðan kemur til
með að eiga álverið. Með þessu
móti verður áhs^tta móðurfyrir-
tækjanna við framkvæmdina
minni, en lánastofnana meiri, og
þær hafa því krafist hærri vaxta
af lánum. Þetta hefur um leið
hækkað áætlaðan kostnað við
byggingu álversins og því álfyrir-
tækin halda að sér höndum meðan
þau bíða eftir að kjörin lagist.
En um leið er bent á, að þetta
eigi ekki að þurfa að standa álvers-
byggingu á íslandi fyrir þrifum,
þar sem fyrirtækin stæðu frammi
fyrir þessu sama vandamáli, hvar
í heiminum sem þau vildu fjárfesta.
Afstada
flokkanna
Hl áivers
Sty5ur samninga um nýtt álver.
Hlynntur samstarfi viS erlenda
aSila um frekari uppbyggingu
orkufreks iSnaSar.
FRAMSÓKNARFLOKKUR
StySur byggingu álvers, náist
viSundandi samningar um
orkuverS, skatta og
mengunarvarnir.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
Telur orkufrekan iSnaS verSa aS
þrefaldast á þessum áratug. Vill
aS óhikaS verSi gengiS til
samstarfs viS erlenda aSila um
iSnvæSingu landsins meS orku
frá fallvötnum og jarShita.
VERKAMANNAFLOKKUR
Hlynntur byggingu álvers. Vill
aS stuSlaS sé aS smáiSnaSi um
allt land, jafnvel fullvinnslu áls.
FRJÁLSLYNDIR
Vilja aS haldiS verSi áfram aS
kanna möguleika á samstarfi
viS erlendi iSnfyrirtæki og reynt
aS fullgera samninga um álver
á Keilisnesi, en ávallt verSi
gerSar ítrustu kröfur um
mengunarvarnir.
ALÞÝÐUBANDALAG
Telur aS hagvöxtur og
lífskjarabati framtíSar byggist
óhjákvæmilega á nýtingu á orku
og jarShita, en orkusala til
stóriSju verSi aS uppfylla skilyrSi
um hagnaS af raforkusölu,
mengunarvarnir og íslenska
lögsögu.
HEIMASTJÓRNARSAMTÖKIN
Vilja fjölþætta
atvinnuuppbygginu íslenskrar
framleiSslu en ekki risaálver.
ÖFGASINNAÐIR
JAFNAÐARMENN
Eru alfariS á móti álveri á
Keilisnesi og vilja aS þar verSi
sett upp aSstaSa fyrir íslenska
uppfinningamenn. Þá eigi aS
þjóSnýta álveriS í Straumsvík.
KVENNALISTI
Hafnar mengandi stóriSju en
leggur áherslu á nýtingu gæSa
lands og sjávar.
GRÆNT FRAMB0Ð
Lýsir algerri andstöSu viS
byggingu annars álvers á
Islandi og telur iSnvæSingu af
því tagi skaSlega landi og þjóS
W ÓÐARFLOKKUR
/FLOKKUR MANNSINS
Gegn álveri og
mengunarvaldandi iSnaSi.
Samanlögð ársverk vegna ál-
versins á framkvæmdatíman-
um eru talin verða um 4.700,
mest 1.500-1.700 áóri.
Áætlaður kostnaður við bvggingu 200 þúsund
tonna álvers er um 50 milljarðar króna.
Nauðsvnlegar virkjanaframkvæmdir kosta um
29 milljarða þar af er áætlaður kostnaður við
Fljótsdalsvirkjun um 20 milliarðar og
kostnaður við stækkun Búrfellsvirkjunor,
Þórisvatnsni'iðíumSir0um Ámdljarðqr. króna. ^ ólveF verður komið ífullan reks,ur'1 samDnburði við
Ef ólver verður byagt, er kaupmóttur
taiinn verða 4,5%nærri árið 1995 en
ella, og atvinnuieysi 0 5% minna. Hins
vegar er verðbólga taíin aukast um 1%.
igar
nú.
Reiknað er með að nýtt álver auki landsframleiðslu
varanlega um 3% en hafi minni áhrif á þióðnrtel
sem arðgreiðslur til útlanda koma til fráaráttar.
Erlendor skuldir aukast verulega á framkvæmda-
tímanum og ná hámarkil995, verða 57% af
landsframleiðslu. Annars er aert ráð fyrir að
erlendar skuldir verði 40% at landsframleiðslu.
Mengun frá álverinu yrði aðallega af völdum
flúors, brennisteinstvíildis og kolsýru. Reiknað er
með að 0,5 kíló af flúor fari út í andsrúmsloftið
fyrir hvert tonn af áli, 4.800 tonn af
brennisteinstvíildi á ári sem er um 35% aukning
fró því sem nú er; og 286 þúsund tonn af kolsýru,
sem eru 11% viðbót við kolsýrumengun á Islandi.
íiiau--------------------------------- ; i I i.'.u »i !