Morgunblaðið - 18.04.1991, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR-18. APRIL 1991
þjóðarinnar sem ég verð hvarvetna
var við í þessari kosningabaráttu
skil ég vel að Alþýðuflokkurinn og
formaður hans sjái eftir þessu og
vilji nú draga í land. í stað þess að
ganga heiðarlega til verks og viður-
kenna að hér þurfi flokkurinn að
breyta um stefnu reynir utanríkisráð-
herra að þyrla upp moldviðri varð-
andi þetta mál og ræðst að mér með
ómaklegum hætti í tilvitnaðri grein
fyrir tilraunir mínar til að afla mál-
stað íslands í fiskveiðimálum skiln-
ings meðal aðildarríkja Evrópuband-
alagsins og innan framkvæmda-
stjórnar þess.
Staðreyndin er sú að enginn samn-
ingur er í gildi milli Evrópubanda-
lagsins og Islands um samvinnu á
sviði sjávarútvegsmála. Hafa viðræð-
ur um slíkan samning átt sér stað
af og til alveg frá því að bókun 6
öðlaðist gildi 1976. Hin seinni ár
hefur fyrst og fremst verið um að
ræða óformlegar viðræður og könn-
un á því hvort mögulegt sé að koma
á slíkum samningi til að opna greið-
ari aðgang fyrir íslenskar sjávaraf-
urðir að markaði Evrópubandalags- •
ins. Krafa Evrópubandalagsins hefur
eins og kunnugt er jafnan verið sú
að gegn aðgangi fyrir sjávarafurðir
að markaði bandalagsins þurfi að
koma aðgangur skipa bandálagsins
að fiskimiðum. Að sjálfsögðu hefur
aldrei af hálfu okkar Islendinga kom-
ið til greina að ljá máls á þeirri kröfu
og höfum við utanríkisráðherrar ver-
ið sammála um að hafna öllu slíku
af fullri einurð. Allt hefur verið lagt
undir til að hindra þessar ósann-
gjörnu kröfu. Á undanförnum árum
hef ég reynt að hitta sem flesta
starfsbræður mína í ríkjum Evrópu-
bandalagsins að máli til að afla mál-
stað okkar fylgis og tel ég mér óhætt
að fullyrða að þær viðræður hafa
aukið skilning á sérstöðu okkar. í
þessum óformlegu viðræðum hef ég
að sjálfsögðu lagt á það áherslu að
ísland væri tilbúið til samvinnu við
Evrópubandalagið á jafnréttisgrund-
velli. Hefur það m.a. komið fram að
auk víðtækari samvinnu á vísinda-
sviðinu þurfi að sjálfsögðu að semja
um skiptingu sameiginlegra stofna,
en þar er einkum um kolmunna að
ræða eftir að Grænland gekk úr
Evrópubandalaginu. Þá hefur að sá
möguleiki verið ræddur hvort skipta
mætti á jafngildum veiðiheimildum
ef gagnkvæmur áhugi og hagur
væri fyrir hendi. Evrópubandalagið
hefur hins vegar ekki upp á nein þau
fiskveiðiréttindi að bjóða sem eftir-
sóknarverð eru fyrir okkar flota enda
eru flest þeirra fiskimið ofnýtt. Ekk-
ert hefur því komið fram sem bendir
til þess að slík skipti séu raunhæfur
kostur. Það eru glefsur úr fundar-
gerðum sem lúta að þessum að þess-
um þáttum sem utanríkisráðherra
tekur úr samhengi og telur sér sæm-
andi að leggja út af undir fyrirsögn-
inni „Vill framsókn selja fiskimiðin?"
í fyrrgreindri blaðagrein.
Eins og meðfylgjandi kafli úr frá-
sögn af fundi með Manuel Marin,
sem fer með sjávarútvegsmál innan
Evrópubandalagsins, í mars 1989 ber
með sér eru þær úrklippur sem ut-
anríkisráðherra birti með grein sinni
teknar úr samhengi og gefa enga
mynd af því sem um var rætt.
Sjá úrklippu.
Kjarni málsins er sá að það er
utanríkisráðherra og hans ráðuneyti
sem umboð hafa til samninga við
erlendar þjóðir fyrir íslands hönd.
Þær óformlegu viðræður sem ég hef
staðið í hafa haft það markmið að
skapa skilning fyrir sérstöðu okkar
íslendinga og þeirri staðreynd að við
munum aldrei geta fallist á að láta
fiskveiðiréttindi fyrir aðgang að
markaði. Ég hef ávallt skýrt ríkis-
stjórninni frá þessum viðræðum og
ráðherrar farið viðurkenningarorðum
um þær og aldrei gert neinar athuga-
semdir. Eg tel að þessar viðræður
hafi skilað árangri og væri utanríkis-
ráðherra nær að viðurkenna það í
stað þess að ráðast að samstarfsað-
ila í ríkisstjórn með jafn ódrengileg-
um hætti og hann gerir í marg-
nefndri grein.
Höfimdur er
qjá varútvegsráðherra og skipnr
1. sæti B-listnns á Austurlandi.
k85
Landsbank-
inn opnaðurí
Hafnarfirði
Landsbankinn hóf formlega starf-
semi i Hafnarfirði þann 8. apríl
sl. þegar nafni Samvinnubankans
á útibúinu á Strandgötu 33 var
breytt í Landsbanka Islands. Þar
er nú í boði öll bankaþjónusta
Landsbankans og Sapivinnubank-
ans en stöðugildi við útibúið eru
11 talsins. Á myndinni er starfs-
fólk og útibússtjóri nýja útibúss-
ins, Þorkell Jónsson, ásamt form-
anni bankaráðs, Eyjólfi K. Sigur-
jónssyni, Kristínu Sigurðardóttur
í bankaráði Landsbankans og
Björgvini Vilmundarsyni, form-
anni bankastjórnar.
r - in
*' '** a?
MUDDY FOX L4SKNI - hátœknibúnaöur sem þolir.mlkiö álag.
MUDDY FOX GÆÐI - yfir 2000 ánœgöir eigendur á íslandi.
MUDDY FOX ENDING - œvilöng ábyrgð á stelli og gaffli.
MUDDY FOX ÞJÓNUSTA - fullkomið verkstœði
- regluleg stilling og skoöun án endurgjalds.
MUDDY FOX
KONUNGUR
FJALLAHJÓLANNA
ivi::v::
• : :
TÆKNI
GÆÐ\
ENDING
ÞJONUSTA
'GrÁ: Pgjursson hf
EIN K A UM öOÐMl s L A Nu|
Nútíöinni
Faxafeni 14,
sími 68 55 80