Morgunblaðið - 18.04.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991
87
Fulltrúar sjórnarflokkanna í
V estfjarðarkj ördæmi:
Þörf á breytingum á
búvörusamningnum
EFSTU menn á framboðslistum stjórnarflokkanna í Vestfjarðarkjör-
dæmi lýstu því yfir á sameiginlegum framboðsfundi á miðvikudaginn
að þeir vildu gera verulegar beytingar á nýgerðum búvörusamningi.
Sighvatur Björgvinsson, efsti
maður Alþýðuflokksins, sagði að í
búvörusamningnum væri ekki tekið
á afurðarstöðvunum, ekki á sjóða-
bákninu, ekki milliliðakerfinu og
ekki tekið tillit til hvernig gróður-
farsástand landsins væri. „Samn-
ingurinn er einvörðungu til að tak-
marka og herða sultaról sauðfjár-
bænda,“ sagði Sighvatur.
Hann sagðist sannfærður um að
landbúnaðurinn stæðist samkeppni
sem yrði ef innflutningur á landbún-
aðarvörum yrði heimilaður. „Það
er löngu kominn tími til að losa
íslenska bændastétt úr fjötrum þess
kerfis sem gerir það dýrara að
slátra lambinu heldur en að ala það
upp,“ sagði Sighvatur.
Ólafur Þ. Þórðarson, efsti maður
Framsóknarmanna, sagðist. ekki
geta stutt samninginn óbreyttan.
Hann sagðist vilja lengja aðlögun-
artíma til fijálsra uppkaupa og
einnig „verður það að vera alveg
skýrt að sú flata skerðing, sem
menn hafa verið að tala um, geng-
ur einfaldlega ekki upp. Það er
ekki hægt að framkvæma hana
nema í reynd sé verið að taka af
marga smábændur á Vestfjörðum,"
sagði Ólafur.
Kristinn H. Gunnarsson, efsti
maður Alþýðubandalagsins, tók í
svipaðan streng. „Allir kostir í
þessu máli eru slæmir. Ég styð
samninginn í meginatriðum en með
ákveðnum breytingum. Það eru
hlutir sem ég hefði gjarnan viljað
sjá öðruvísi, sérstaklega varðandi
niðurfærslur á tilteknum sveitum
sem standa tæpt byggðalega séð.
Ég vil skoða betur fijálsu uppkaup-
in og samningurinn gengur ekki
eftir eins og ætlast er til,“ sagði
Kristinn.
Sigríður Anna Þórðardóttir
á framboðsfundi:
Gera verður fólki
kleift að framfleyta
fjölskyldum sínum
Morgunblaðið/Sverrir
Frá fundi efstu manna á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjan-
eskjördæmi í fyrrakvöld
Sjálfstæðisflokkurinn mun
kappkosta að minnka umsvif
ríkisins með markvissum að-
gerðum sem draga úr halla rík-
issjóðs. Flokkurinn hyggst selja_
ríkisfyrirtæki, bjóða út ýmsa
þjónustu sem ríkið veitir, lækka
skatta og gera skattakerfið ein-
faldara. Hann vill gera fólki
kleift að framfleyta fjölskyldum
sínum. Þetta kom fram í máli
Sigríðar Önnu Þórðardóttur,
sem skipar fimmta sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjan-
eskjördæmi, á opnum fundi með
frambjóðendum flokksins í
fyrrakvöld.
Sigríður Anna sagði að Sjálf-
stæðisflokkurinn myndi stuðla að
nýsköpun í atvinnulffinu og jafna
starfsskilyrði milli atvinnugreiná,
kæmist hann til valda eftir kosn-
ingar. „Til þess að það verði hægt
þarf að skrá gengið rétt með því
að fella niður takmarkanir á gjald-
eyrisviðskiptum og gefa þau fijáls
auk þess sem leggja þarf niður
millufærslusjóði. Það þarf að
leggja niður Byggðastofnun og
færa nauðsynleg verkefni til fag-
ráðuneyta. Við þuifum að lækka
tekjuskatt. fyrirtækja niður í
30-35% til samræmis við það sem
stefnt er að hjá grannþjóðum okk-
ar,“ sagði Sigríður Anna.
Hún gerði fjölskyldumál að
umtalsefni. „Fjölskyldan er einn
af hornsteinum þjóðfélagsins. Að
henni er nú svo þrengt að það
hriktir í undirstöðunum. Sjálf-
stæðisflokkurinn hyggst hækka
skattleysismörk, lækka skatthlut-
fall hjá einstaklingum niður í 35%
og lækka matvælaverð til að gera
fólki kleift að framfleyta fjölskyld-
um sínum, en það reynist því æ
erfiðara við þær aðstæður sem nú
ríkja,“ sagði Sigríður Anna.
Eiríkur Smith listmálari.
Eiríkur Smith sýn-
ir í Gallerí Borg
EIRÍKUR Smith opnar sýningu á verkum sínum í Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9 í dag, fimmtudaginn 18. apríl, kl. 17.00-19.00.
Eiríkur Smith er fæddur 1925 og er löngu landsþekktur fyrir
verk sín. Eiríkur hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt
í fjölda samsýninga bæði hérlendis og erlendis. Mörg verka hans eru
í eigu opinberra aðila og safna.
A sýningu Eiríks Smith eru nýjar vatnslitamyndir, sem allar eru
til sölu.
Sýningin opnar eins og fyrr segir fimmtudaginn 18. apríl kl. 17.00.
Henni lýkur þriðjudaginn 30. apríl. Gallerí Borg er opið virka daga
frá kl. 10.00-18.00 og. um helgar frá kl. 14.0-18.00. Aðgangur er
ókeypis.
Aðalfundur Kaup-
mannasamtakanna:
Bjarni Finns-
son kosinn
formaður
BJARNI Finnsson kaupmaður í
Blómavali var kosinn formaður
Kaupmannasamtaka íslands á að-
alfundi samtakanna sem haldinn
var á Hótel Holiday Inn í Reykja-
vík siðastliðinn laugardag. Guðjón
Oddsson, sem verið hefur formað-
ur undanfarin fjögur ár, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. Þá var
Sigrún Magnúsdóttir kaupmaður
í versluninni Rangá kosin vara-
formaður Kaupmannasamtak-
anna og er hún fyrsta konan sem
kosin er til þess embættis. Um 100
fulltrúar sátu aðalfundinn.
I ályktun fundarins er m.a. á það
minnt að á síðustu vikum hefur
verðsamkeppni í matvöruverslun ver-
ið rekin með meira kappi en áður
og því sé brýnt að verslunareigendur
sýni forsjá, minnungir þeirra áfalla
sem orðið hafa í greininni síðustu
ár. Skorað er á stjórnvöld að aflétta
skatti á versiunar- og skrifstofuhús-
næði og að fella niður aðstöðugjald.
í ályktun er bent á að tímabært
sé að leggja niður útsöluverslanir
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins.
„Kaupmönnum er fyllilega treystandi
til að dreifa áfengum drykkjum og
sterku öli, rétt eins og starfsbræðrum
þeirra í öðrum löndum. Óþolandi er
sú mismunun sem felst í því að
áfengisverslanir eru nú eingöngu
staðsettar að jöfnu við verslanir
tveggja stórmarkaða á Reykjavíkur-
svæðinu," segir í ályktuninni.
Talsmenn Securitas og Vara um neyðarlínuna 000:
Fyrirtækin geta þegar
annast þessa þjonustu
TALSMENN öryggisgæslufyrirtækjanna Securitas og Vara gagn-
rýna harðlega þau áform, að setja upp og starfrækja miðstöð örygg-
isgæslu méð neyðarnúmerinu 000 á vegum hins opinbera á höfuð-
borgarsvæðinu. Þeir segja að verði þessi starfsemi að veruleika,
muni það kippa fótunum undan rekstri Securitas og Vara og jafn-
framt að fyrirtækin geti annast alla þessa þjónustu. „Við getum
auðvitað ekki farið í samkeppni við þetta öfluga borgar- og ríkisapp-
arat, þeir munu éta okkur með húð og hári í skjóli skattpeninga
almennings. Þetta er skelfileg tilraun til þess að rústa fyrirtæki sem
hefur gegnumsneitt staðið sig vel í nýrri starfsemi, á litlum, en
n\jög kröfuhörðum markaði," sagði Jóhann Óli Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Securitas í samtali við Morgunblaðið í gær.
Jóhann sagði að áformin virtust
vera um tvennt, annars vegar rekst-
ur neyðarlínunnar 000, hins vegar
að annast öryggiskerfi sem Securit-
as og Vari geri nú þegar. „Neyð-
arlínan snýst fyrst og fremst um
símsvörun og getur verið hvar sem
er. Þetta er ekkert annað en að
teknar eru inn hringingar í þetta
númer og þeim deilt út áfram til
viðbragðsaðila," sagði hann. „Neyð-
arlínan getur verið staðsett á
slökkvistöð eða einhvers staðar
annars staðar."
Hann sagði Securitas að sjálf-
sögðu geta annast þá þjónustu,
auk þess sem ákaflega mikill styrk-
ur væri að því, hvort sem væri fyr-
ir Securitas eða Vara, sem væru
eftir mikið erfiði búnir að koma upp
vísi að svona þjónustu, að fá slíkan
stuðning í verkefnum. „Þvert á
móti lítur út fyrir að Sjálfstæðis-
flokkurinn beiti sér fyrir því, á sama
tíma og farið er um landið og talað
um samdrátt í rekstri hins opin-
bera, að sett verði upp ein stofnun
enn.“
Jóhann sagði hitt þó vera skelfi-
legra að stöðinni sé einnig ætlað
að svara allmörgum. beintengdum
Þjóðleikhúsið:
Næturgalinn í skól-
unum a Suðurlandi
NÆSTU tvær vikur sýnir leikhópur Þjóðleikhússins Næturgalann í
skólum á Suðurlandi.
Næturgalinn hefur verið leikinn
152 sinnum og stefnt er að því að
sýna leikritið í öllum grunnskólum
landsins.
Leikhópurinn samdi verkið upp
úr ævintýrinu Næturgalanum eftir
H.C. Andersen og vill með sýning-
unni kynna nemendum list leikhúss-
ins og örva þá tii fijórrar sköpun-
ar. Sýningin hefur hlotið mjög góð-
ar undirtektir og hafa innblásnir
nemendur sent leikhúsinu fjölda
teikninga og mynda úr leikritinu.
Haldin verður sýning á myndun-
um í nýjum sal á 3. hæð Þjóðleik-
hússins sem vígður verður um
næstu helgi í tengslum við lista-
hátíð barna. í Næturgalahópnum
eru Arna Einarsdóttir, Helga Jóns-
dóttir, Jón Páll Björnsson, Jón S.
Gunnarsson, Kristbjörg Kjeld,
Margrét Guðmundsdóttir og Þór-
hallur Sigurðsson.
neyðarsímum og fylgjast með fjölda
bruna- og viðvörunarkerfa auk ann-
arra öryggiskerfa. „Securitas hefur
aldrei í 12 ára sögu sinni orðið fýr-
ir annarri eins ógnun við rekstrar-
grundvöll fyrirtækisins. Hér hafa
menn með miklum tilkostnaði og
mikilli vinnu verið að ryðja braut
fyrir nýja starfsgrein, gert það í
það heila tekið vel. Þessir sömu
opinberu aðilar hlógu að okkur sem
þóttumst geta hugsað stórt fyrir
áratug síðan. Nú koma þeir og
segja: Nú getum við. Þetta er auð-
vitað kjarni málsins."
Jóhann sagði að líta mætti til
Danmerkur um fyrirmynd þess að
einkafyrirtæki sjái um slikan rekst-
ur, þar sem fyrirtækið Falck annast
neyðarþjónustu, einnig rekstur
slökkviliðs og sjúkrabíia, og þætti
takast vel._
Baldur Ágústsson forstjóri Vara
sagði ótvírætt að fyrirtækið gæti
annast þennan rekstur. „Öryggis-
mál og fjarskipti eru okkar ær og
kýr. Það er ekki nokkur vafi á að
við getum tekið þetta að okkur og
við erum í rauninni þegar að ann-
ast svona þjónustu, þó að fyrir
þrengri hóp manna sé,“ sagði hann.
„Þá er það umhugsunarefni hvort
eðlilegt sé að ríkis- eða bæjarrekið
apparat fari út í samkeppni við
einkafyrirtækin. Ég veit ekki hvern-
ig þeir hafa hugsað sér að gera
þetta þannig að ég get ekki tjáð
mig mikið um þetta, en þessari
spurningu skýdur upp í huga mér,
hvort það sé eðlilegt."
Baldur var spurður hvort hann
teldi að Vari gæti staðið af sér sam-
keppni frá því opinbera. „Það fer
allt eftir því á hvaða grunni hið
opinbera ætlar að veita þjónustuna.
Hins vegar verður það aldrei sama
aðstaða ef hið opinbera, sem lifir
af opinberum sjóðum, ætlar að
keppa við fyrirtæki sem lifir af eig-
in takmörkuðu sjóðum og þeirri
fyrirgreiðslu sem það fær hjá bönk-
um. Þetta verður aldrei jöfn að-
staða,“ sagði Baldui' Ágústsson.