Morgunblaðið - 18.04.1991, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991
Bush Bandaríkjaforseti:
Sovétmönnum
boðin málamiðlun
um fækkun vopna
Brussel, Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sagði á blaðamannafundi á þriðju-
dag að hann væri enn vongóður um að senn yrði hægt að efna til
fundar hans og Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga. Leiðtogafundi
sem ákveðinn hafði verið í febrúar var frestað, í orði kveðnu vegna
Persaflóastríðsins en blóðbaðið í Litháen í janúar er talið hafa átt
inikinn þátt í frestuninni. Bandaríkjainenn hafa gert Sovétmönnum
gagntilboð í deilu sem komið hefur upp í viðræðum um fækkun
hefðbundinna vopna vegna tilrauna Sovétmanna til að stinga þúsund-
um nýtísku vopna undan samningsákvæðum.
Bush benti á að stefnt hefði ver-
íð að því að því að undirritá START-
samning um fækkun langdrægra
kjarnavopna á leiðtogafundinum en
deilur um leiðir til að sannreyna
aðgerðir gagnaðila hefðu tafið
samningagerð. Forsetinn lét í ljós
áhyggjur yfir þróun afvopnun-
arsamninganna en sagði þó að yrði
ekkert af þeim væri ekki þar með
sagt að hann gæfi allar viðræður
við Gorbatsjov upp á bátinn.
er að Moskvustjórnin verður að
heita því að reyna ekki að komast
hjá ákvæðum samningsins með því
að færa meira af vopnum undir
nýja yfirstjórn. „Þetta merkir að
Sovétmenn fá að leika þennan leik
einu sinni en þvingar þá til að sætta
sig við okkar túlkun á CFE-ákvæð-
unum framvegis," sagði heimildar-
maður hjá NATO.
Óboðinn gestur inn ístofu
Ámánudaginn var þessum firnastóra dráttarbíl ekið inn í stofu í húsi einu í Townsville í Norður-Queenslandi
í Ástralíu. Bílstjórinn á yfir höfði sér ákæru vegna tilraunar til manndráps, eignatjóns og ölvunaraksturs.
Tvær konur sem búa í húsinu slösuðust. Á myndinni sést lögregiumaður í vettvangsrannsókn.
Sýrlandsstjórn fagnar
friðartilraunum Bakers
*
Israelar koma á sama tíma upp nýrri byggð á Vesturbakkanum
Damaskus, Revava. Reuter.
JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lagði af stað til
Miðausturlanda í fyrrakvöld til að freista þess að koma á varan-
legum friði á svæðinu. Sýrlandsstjóm fagnaði friðarumleitunum
Bakers og sagði, að þær væru í þágu araba og alls heimsins. Á
sama tíma og tilkynnt var, að Baker ætlaði í sína þriðju ferð til
Miðausturlanda, fóru fréttir af því, að ísraelar hefðu með leynd
komið upp nýrri byggð gyðinga á Vesturbakkanum. Líta margir
á það sem ögrun við friðartilraunir Bandaríkjamanna.
Að sögn heimildarmanna Reuters
hjá Atlantshafsbandalaginu
(NATO) hafa Sovétmenn þegar
flutt um 60.000 vopn af ýmsu tagi
austur fyrir Úralfjöll þar sem CFE-
samningurinn um fækkun hefð-
bundinna vopna mun ekki ná til
þeirra; hann tekur aðeins til Evr-
ópu. Ágreiningurinn í viðræðunum
er á hinn bóginn kominn upp vegna
þess að Sovétmenn hafa fært þijár
vélahersveitir undan yfirstjórn
landhersins til strandgæslu og flot-
ans. Með þessu hyggjast þeir koma
í veg fyrir að 3.700 skriðdrekar,
fallbyssur og brynvarðir liðsflutn-
ingavagnar sveitanna verði eyði-
lagðir eins og_kveðið yrði á í CFE-
samningnum. Sama er uppi á ten-
ingnum varðandi 1.700 þungavopn
sem tengjast langdrægum kjarna-
flaugabúnaði Sovétríkjanna. Talið
er að verði af þessu muni sovéski
flotinn ráða yfir fleiri skriðdrekum
en allur breski landherinn.
Gorbatsjov sagðist nýlega reiðu-
búinn að flytja helming þess vopna-
búnaðar, sem deilt er um, austur
fyrir Úralfjöll en þar myndu þau
koma í stað úrelts búnaðar er yrði
eyðilagður. Bush hefur gert gagn-
tilboð þar sem hann fellst á hug-
mynd Sovétleiðtogans en setur það
skilyrði að vopnin verði talin með
þegar borinn er saman heildarfjöldi
vopna samningsaðila. Mikilvægara
Finnland:
Græningjar
hafna stjóm-
arþátttöku
Helsinki. Frá Sigurbjörgru Árnadóttur,
fréttaritara Morgunblaðsins.
ÁGREININGUR um orkumál
varð til þess að finnskir græn-
ingjar höfnuðu á mánudagskvöld
stjórnarþátttöku. Esko Aho,
þingforseti og formaður Mið-
flokksins, heldur áfram sljórnar-
myndunarviðræðum við Hægri-
flokkinn, Sænska þjóðarflokkinn
og Kristilega flokkinn.
Græningjar vildu fá það inn í
stjórnarsáttmálann að orkunotkun
yrði minnkuð um tvö prósent á ári
og umhverfis- og orkuskattur
hækkaður. Einnig kröfðust þeir
þess að engar ákvarðanir um bygg-
ingu nýrra orkuvera yrðu teknar
fyrr en 1994 þegar reynslan af ork-
usparnaði lægi fyrir. Þó svo græn-
ingjar séu út úr myndinni er talið
víst að orkumálin verði áfram erfið-
asti þröskuldurinn fyrir myndun
nýrrar stjórnaL , . ,r , , r
Sýrlenska stjórnarmálgagnið
Tishreen sagði að friðartilraunir
Bandarikjastjórnar væru nauðsyn-
legar vegna þess, að Miðausturl-
önd væru „óróasamt og eldfimt
svæði“. Sagði blaðið, að vegna
yfirgangssemi ísraela hefðu al-
þjóðlegar ályktanir verið að engu
hafðar í 20 ár.
James Baker ræddi við ráða-
menn Evrópubandaiagsins í Lúx-
emborg á þriðjudag en á föstudag
hittir hann við ráðamenn i ísrael.
Um helgina ræðir hann síðan við
Hussein Jórdaníukonung, þrátt
fyrir að samskipti ríkjanna hafi
versnað vegna stuðnings konungs-
ins við íraka í stríðinu fyrir botni
Persaflóa. Búist er við að Baker
fari þaðan til Egyptalands, Saudi-
Arabíu og Sýr-
lands til . að
vinna hug-
myndinni um
sérstaka
friðarráð-
stefnu braut-
argengi. Sýr-
lendingar og
fleiri arabaríki
vilja, að ráð-
stefnan verði á
vegum Sameinuðu þjóðanna en því
eru ísraelar andvígir.
ísraelar komu á þriðjudag upp
nýrri byggð á Vesturbakkanum
og er tímasetningin og leyndin,
sem viðhöfð var, talin bein ögrun
við Bandaríkjastjórn. Voru 14 hús
flutt þangað í skjóli nætur og sett
niður á svæði, sem hermenn
gættu. Marlin Fitzwater, talsmað-
ur Bandaríkjaforseta, ítrekaði
fyrri yfirlýsingar Bandaríkja-
stjórnar um að byggðir ísraela á
NORSK stjórnvöld vilja að Al-
þjóðahvalveiðiráðið bindi enda á
bann við hvalveiðum í hagnaðar-
skyni og hyggjast leyfa hrefnu-
veiðar í vísindaskyni á næsta ári.
í yfirlýsingu norska utanríkisráð-
uneytisins í gær sagði að vísinda-
menn teldu hrefnustofnana þola
veiðar ef skynsamlega væri að
þeim staðið.
Alþjóðahvalveiðiráðið mun halda
fund í Reykjavík í næsta mánuði þar
sem þessi mál verða á dagskrá. Nor-
skir vísindamenn segja að langtímaá-
hernumdu svæðunum stæðu í vegi
fyrir friði. Baker utanríkisráðherra
vildi þó ekki gagnrýna þessar að-
gerðir ísraelsstjórnar opinberlega.
ætlun þeirra geri nauðsynlegt að
veiddar verði 60 - 80 hrefnur árlega
frá 1992 og segir utanríkisráðuneyt-
ið að farið verði að tiilögum þeirra.
Norska stjórnin leyfði veiðar á fimm
dýrum á síðasta ári en minnihluta-
stjórn Verkamannaflokksins hyggst
ekki veita nein leyfi á þessu ári. Þess
í stað verður tíminn fram á næsta
ár einkum notaður til að vinna úr
þeim gögnum sem til eru. Talsmaður
vísindamannanna segir að rannsókn-
ir á stofnstærð eftir stríð gefi ekki
til kynna að neinar breytingar hafi
orðið á hrefnuijöldanum.
Bretland:
Major vísar gagnrýni á bug
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
JOHN Major, breski forsætisráðherrann, vísaði á bug allri gagn-
rýni á sig í sjónvarpsviðtali um síðustu helgi. Búist er við, að
efnahagsbati bæti stöðu bresku ríkisstjórnarinnar og íhaldflokks-
ins, sem er raunar kominn fram úr Verkamannaflokknum í skoð-
anakönnunum, í fyrsta sinn í langan tíma.
- Gagnrýni á stefnu og persónu
forsætisráðherrans frá eigin
flokksmönnum, sérstaklega
stuðningsmönnum Margaretar
Thatcher, fyrrum forsætisráð-
herra, hefur ekki linnt síðustu 10
dagana. Slðast á sunnudagskvöld
sakaði Alan Walters, fyrrum efna-
hagsráðgjafi Thatchers, Major um
að vera stefnulausan.
Upphaf kosningabaráttunnar
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar
2. maí nk. gekk fremur illa fyrir
íhaldsflokkinn í sfðustu viku
vegna óvissunnar um nefskattinn
og hvað á að koma I stað hans.
Major neitaði í sjónvarpsviðtal-
inu á sunnudag að segja, hvernig
hinn nýi skattur verður saman
settur. Hann vísaði algerlega á
bug staðhæfingum um, að hann
væri svo tvístígandi, að hann
gæti aldrei gert upp hug sinn.
Hann benti á nokkrar ákvarðanir,
sem stjórn sín
hefði tekið frá
því hann tók við
embætti, eins og
um þátttökuna í
evrópska mynt-
kerfinu.
Forysta Verk-
amannaflokks-
ins hefur nýtt
hvert tækifæri til að ýta undir þá
skoðun, að Major sé óhæfur til
að gegna embætti forsætisráð-
herra. Fiokkurinn lofaði lækkuð-
um sköttum til sveitarstjórna í
síðustu viku og I þessari viku
gerir hann opinbera rækilega
greinargerð fyrir efnahagsstefnu
sinni, þar sem lögð er áhersla á
samvinnu ríkisins og fijáls mark-
aðar og að tryggja beri öllum
tækifæri I lífinu.
Verðbólga lækkaði { 8,2% í
mars og í síðustu viku lækkaði
Englandsbanki grunnvexti um
hálft prósent. Þá lækkuðu vextir
á húsnæðislánum, sem hafa mikla
pólitíska þýðingu, Búist er við að
verðbólga í apríl lækki um allt að
2% og verði þá. rúmlega 6% frá
því í apríl í fyrra. Þessar bættu
efnahagshorfur eru taldar munu
styrkja stöðu stjórnarinnar á
næstu mánuðum.
Hvalveiðar Norðmanna:
Leyfa hrefnuveið-
ar í vísindaskyni 1992
Ósló. Reuter.