Morgunblaðið - 18.04.1991, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRIL 1991
Við Evrópumenn
eftir Jón Hjálmar
Sveinsson
Samningaviðræðum um evrópska
efnahagssvæðið miðar lítið og menn
hafa gefist upp á að reyna að búa
hugsanlegum áföngum þeirra stund-
askrá en hún var einmitt mikið aug-
lýst við upphaf viðræðnanna. Frum-
kvæðið að þeim var boð EB en þó
EFTA hafi þekkst boðið sendu þjóðir
þess fulltrúa sína til leiks nánast án
þess að þeir hefðu umboð til að snerta
knöttinn. Heimavinnan hafði ekki
verið unnin. Sagt er að þó að einung-
is málamyndaniðurstaða náist þá
muni starfið nýtast einstökum ríkjum
síðar í tvíhliða viðræðum við EB.
Þetta er rétt að því leyti að lög og
reglur EB eru nú þýdd á tungur
EFTA-ríkja. En árangursleysi EES-
viðræðnanna er ekki gott veganesti
fyrir tvíhliða viðræður sem munu
—verða hveiju ríki mikilvægari en það
sem eftir björtustu vonum kynni að
hafa náðst með EES. Löglærðir hafa
bent á að tækifæri okkar til að hafa
áhrif á sameiginlegar ákvarðanir
EES yrðu takmarkaðri en möguleik-
ar okkar sem EB-aðila til mótunar
stefnu EB.
Að þora eða þora ekki
Innan EFTA hafa Norðurlönd ekki
sýnt íslendingum þoiinmæði í EES-
viðræðunum eins og fylgjendur þess-
arar leiðar vonuðu. Það er því síst
verra að vinna sérstöðu okkar skiln-
ing með beinum viðræðum sem hafa
aðild að markmiði. Eigi EB-aðiId
fylgjendur meðal íslenskra stjðrn-
málamanna þá virðast þeir ekki þora
að halda skoðunum sínum fram en
ætla sér að bíða eftir því að almenn-
ingsálitinu skoli fyrirhafnarlaust á
fjörur þeirra. Því er af flestum hald-
ið fram að við vitum ekki nóg um
EB til að geta tekið afstöðu til þess
hvort aðild sé vænleg eða ekki. Þetta
stenst ekki því EB er stöðugt í frétt-
um og upplýsingar um það hafa á
síðustu misserum verið miklar og
aðgengilegar í fjölmiðlum. Hins veg-
ar verða ekki allir hlutir reiknaðir
út, ef svo væri þá hefðum við aldrei
val. Menntamenn sem kynnt hafa
EB-mál í nafni sérfræða sinna hafa
þrátt fyrir langar útlistanir forðast
að taka afstöðu með eða á móti.
Þeir ætla greinilega að vera „réttu
megin“ hver sem íeikslok verða.
EB-þjóðir vita ekki hvort þeim
muni takast að frámkvæma áform
sín en þær hafa þó stokkið en ekki
hrokkið. Nú er okkar tími kominn.
Andstæðingar EB vilja
varðveita forréttindi
Þau rök að tvíhliða viðræður séu
ekki vænlegur kostur vegna þess að
EB taki ekki nýjar aðildarumsóknir
á dagskrá fyrr en eftir sameiningu
markaða áramótin 1992-93, hafa
misst gildi. Þeim var haldið fram af
fylgjendum ESS, en á þau reyndi
ekki. Á meðan EES-ferlið stendur í
stað miðar EB örugglega áfram og
sameiginlegi markaðurinn nálgast.
Austurríki hefur sótt um og Svíar
undirbúa að sækja um EB-aðild í ár.
Andstæðingar EB hérlendis hafa
komist í mótsögn við sjálfa sig. Ann-
ars vegar halda þeir því fram að við
óhindraða fjármagnsflutninga sem
fylgja aðild myndu útlendingar
kaupa upp íslenskar atvinnugreinar.
Hins vegar óttast þeir fjármagns-
flótta frá landinu, þ.e. að lífeyrissjóð-
ir t.d. fjárfesti erlendis. Sé íslenskt
atvinnulíf útrendum arðvænlegt,
hvers vegna ætti það þá ekki að
vera það gagnvart innlendum sparifj-
áreigendum? Þá hefur hvort eð er
um árabil ríkt það óréttlæti að ein-
stakir íslenskir aðilar hafa getað flutt
fjármagn út t.d. með „hækkun í hafi“
á útflutningi og duldum umboðslaun-
um á aðfluttum rekstrarvörum. Mal
er að slík forréttindi hverfi. Nokkrir
háskólamenn halda því fram að þó
við yrðum utan EES í framtíðinni
þá myndu íslenskir námsmenn eftir
sem áður eiga aðgang að mennta-
stofnunum í EB. Afburða náms-
mönnum eru skólar hvar sem er í
heiminum opnir og það ekki af ná-
ungakærleika því að ríki vonast eftir
starfskröftum þeirra með því að gera
vel við þá. Verðum við utan EB ættu
íslenskir meðalnemar vart kost á
skólavist í ríkjum bandalagsins, nem-
ar frá aðildarríkjum gengju fyrir.
Erum samkeppnisfærir en
ekki ómissandi
Andstæðingar EB kalla það mið-
stýringarskrýmsli og líkja því við
kerfi það sem þjóðir Sovétríkjanna
eru að bijótast undan. Samlíkingin
missir marks því notendur hennar
eru raunar ekki á móti miðstýringu,
þeir kjósa áframhald hennar á Is-
landi. Þó að skipulag EB sé klunna-
legt þá er það í stöðugri þróun
byggðri á lýðræðislegu ferli. Þar að
auki er meginmarkmið Austur-Evr-
ópulanda að losna undan áætlanabú-
skap og taka upp markaðshagkerfi,
nokkuð sem EB þegar byggir á. Því
er haldið fram að við getum búið við
óbreytt ástand áfram, nokkurs konar
efnahagslegt hlutleysi en þó gert
tvíhliða viðskiptasamninga í allar
áttir. Rök þeirra sem halda þessu
fram eru að við framleiðum það eftir-
sótta vöru að þeim sem í dag njóta
hennar geti ekki verið án hennar.
Með svona málatilbúningi er horft
fram hjá því að það tók mikið starf
að koma útflutningsvörum okkar á
markað og stöðugt er unnið að því
að halda sessi þeirra svo að þær eru
ekki ómissandi í heimsverslun. Þá
er erfítt að ímynda sér af hvaða
ástæðum þjóðir ættu að veita okkur
einhver vildarkjör í tvíhliða samning-
um um leið og við rækjum þá stefnu
í alþjóðaviðskiptum að axla aldrei
byrðar samstarfs. Óþarft ætti að
vera að minna á að einstakar þjóðir
Jón Hjálmar Sveinsson
„Á meðan EES-ferlið
stendur í stað miðar EB
örugglega áfram og
sameiginlegi markað-
urinn nálgast.“
viðskiptabandalaga hvorki vilja né
geta samið við okkur um afnám við-
skiptahindrana.
Borið hefur á þeirri skoðun að við
séum ríkjum EB svo ómissandi í
varnarmálum að við þyrftum aðeins
að draga þetta meinta mikilvægi inn
í hugsanlegar EB-viðræður og okkur.
myndu allir vegir færir. í þessum
málflutningi gleymist að við búum
við gjörbreytta heimsmynd frá því
sem var fyrir örfáum árum svo jafn-
vel þó að menn hefðu geð í sér til
að beyta þessari nýstárlegu útgáfu
Aronskunnar þá er það tækifæri fyr-
ir nokkru úr greipum gengið.
Ný Evrópa, fersk hugsun,
nýjar leiðir opnast
Það er eðlileg þróun að EB láti í
vaxandi mæli utanríkismál til sín
taká. Sameiginlegar yfirlýsingar full-
trúa aðildarríkjanna eru fyrir löngu
orðnar mikilvægt framlag til alþjóða-
stjórnmála. Sameiginlegar varnir EB
munu komast á og hófsöm afstaða
Svía til þessa ber pólitískum þroska
þeirra vitni. Sovétríkin eru ekki leng-
ur fær um styijöld, bæði þau og
Bandaríkin eiga fullt í fangi með
innri vandamál. Varsjárbandalagið
hefur formlega verið lagt niður.
NATO-kenningin um sveigjanleg við-
brögð hefur verið lögð niður og þrátt
fyrir að aðildarþjóðir NATO viður-
kenni þörf á nýrri grundvallarstefnu
fyrir NATO hafa þær ekkert gert til
að móta hana. Áftur á móti hafa
embættismenn EB og stjórnmála-
menn einstakra aðildarríkja ymprað
á því að EB hljóti að taka varnarmál
á sínar hendur, slíkt sé óhjákvæmi-
legt. Þessar raddir hafa orðið meira
áberandi eftir að EB varð að láta sér
nægja að álykta um Persaflóa og
einstök aðildarríki, en ekki EB sem
heid, urðu að fylgja stefnunni fram.
Sama er upp á teningnum í afstöðu
EB til Kúrda, tilfinningalegt mátt-
leysi í að fylgja eftir fögrum loforð-
um. Sameiginlegar og alþjóðlega
óháðar hervarnir EB munu fylla
þetta tómarúm. Þeir sem nú ákafast
beita hræðsluáróðri um lok sjálfstæð-
is og fullveldis ef til EB-aðildar kæmi
eru vart trúverðugir. Þetta eru sömu
aðilarnir og í áratugi hafa horft fram
hjá því að það er alþjóðlega viður-
kennt að sjálfstæði og fullveldi til-
heyri þjóðlegar hervarnir. Þeir hafa
talið herlaust fólk eiga erindi meðal
þjóða sem leggja herskyldu á drengi
sína og tappað einokunargróða af
framkvæmdum fyrir erlendan her.
Þetta eru sömu aðilarnir og beitt
hafa sér fyrir EES sem hefði þýtt
byrðar án áhrifa, skyldur án rétt-
inda. Hin raunverulga hræðsla býr
með þessum mönnum sjálfum sem
sjá fram á að geta ekki lengur hald-
ið hæfileikum og framtaki fólks í
fjötrum forsjárhyggju, flokks- og
frændklíku yrði af EB-aðild heldur
myndu einstaklingarnir njóta sín í
hinni opnu Evrópú fjölþjóðlegrar
samvinnu og samkeppni. Þar yrði
ekki spurt um flokksskírteini eða
ættartölu heldur einfaldlega, viltu,
þorirðu, geturðu? Við Evrópumenn
segjum já.
Höfundur er verkamaður.
HAWÞAUGL YSINGAR
Norðurland eystra
Akureyri
Aðalskrifstofa Sjálfstæðisflokksins hefur verið flutt á Glerárgötu 32,
Akureyri. Opið er alla daga frá kl. 10.00-22.00.
Símar skrifstofunnar eru 21500, 21501 og 21504.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Föstudagsrabbfundur
Föstudagsrabbfundur verður föstudaginn
19. apríl kl. 21. f Hamraborg 1, 3. hæð.
Gestur fundarins að þessu sinni verður
Davið Stefánsson, formaður Sambands
ungra sjálfstæöismanna. Að sjálfsögðu
verður aðallega rabbað um kosningarnar
og kosningastarfiö og lokapunktinn á því,
vinnuna á kjördag.
Nýir félagar sérstaklega boðnir velkomnir.
Týr.
Seltjarnarnes
Sjálfboðaliðar
Sjálfstæðisfélag Seltirninga óskar eftir aðstoðarfólki til hinna ýmsu
starfa á kjördag, 20. apríl. Vinsamlegast látið vita í síma 611220 frá
kl. 13-19 eða á símsvara.
Höfum opna kosningaskrifstofu frá kl. 13-19 alla daga fram að kjör-
degi.
Sjálfstæðisfélag Seltirninga.
Hafnfirðingar- Reyknesingar
Kosningavaka í Haf narfirði
Kosningavaka Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði verður í Sjálfstæðis-
húsinu, Strandgötu 29, laugardagskvöldið 20. apríl. Frambjóðendur
munu mæta á staðinn. Léttar veitingar og sjónvarp. Opið fram und-
ir morgun. Hafnfirðingar og Reyknesingar fjölmennið. Allir velkomnir.
Sjálfstæðisflokkurinn i Hafnarfirði.
Reyðarfjörður
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisfélags Reyðarfjarðar, Austurvegi 19,
simi 41491. Opið frá kl. 20.00-22.00.
Upplýsingar á daginn í sima 97-41378. Kaffi á könnunni.
Húsavík
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er á Árgötu 14.
Simar 42230 og 42231.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Ólafsfjörður
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er á Aðalgötu 3.
Sími skrifstofunnar er 62204.
Sjálfstæðisflokkurinn.
FÉLAGSÚF
ÚTIVIST
GRÓFIHN11 • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Spennandi skíðaganga
fyrir frískt fólk 25.-28. apríl.
Gengið með viðleguútbúnað frá
Húsafelli yfir Kaldadal á Þing-
velli. Gist í tjöldum. Fararstjóri
Óli Þór Hilmarsson.
Húsafell og nágr.
25.-28. apríl. Farið í hellana í
Hallmundarhrauni: Surtshelli og
Stefánshelli. Gengið niður með
Norðlingafljóti: Barnafoss og
Hraunfossar. Gengið á Strút ef
veður leyfir. Fróöleg og
skemmtileg ferö. Fararstjóri
Ingibjörg Ásgeirsdóttir.
Úlfljótsvatn
27.-28. apríl. Gengið um Grafn-
ing: Úlfljótsvatnsfjall, Þingvalla-
vatn, Skinnhúfuhöfði, en þetta
er fallegt svæði sem býður upp
á marga athyglisverða staði.
Stutt ferð á hagstæðu verði sem
skilur mikið eftir. Fararstjóri
Björn Finnsson.
Sjáumst!
Útivist.
fítmhjólp
Almenn samkoma verður í kap-
ellunni í Hlaðgerðarkoti í kvöld
kl. 20.30.
Umsjón: Gunnbjörg Óladóttir.
Samhjálp.
Tilkynning frá Skíða-
félagi Reykjavíkur
Áður auglýst þrisvar sinnum 10
km skíðaþoðganga (Reykjavíkur-
meistaramót) fer fram nk. laug-
ardag, 20. apríl, kl. 13.00, við
Borgarskálann. Skráning á sama
stað kl. 12.00. Ef veður verður
óhagstætt, kemur tilkynning í
Ríkisútvarpinu kl. 10.00 keppnis-
daginn.
Upplýsingar í síma 12371.
Skíðafélag Reykjavíkur.
0
FREEPORTKLÚBBURINN
Freeportklúbburinn
Félagsfundur verður haldinn
fimmtudaginn 18. apríl kl. 20.30
i safnaðarheimili Bústaðakirkju.
Gestur fundarins: Inger Anna
Aikman, dagskrárgerðarmaður.
Öllu áhugafóki frjáls þátttaka.
Stjórnin.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Vakningarsamkoma verður í kvöld
kl. 20.30. Stjórnandi Garöar Agn-
arsson. Allir hjartanlega velkomnir.
Skiphoiti 50b
Samkoma i kvöld kl. 20.30.
Þú er innilega velkomin(n).
Góðtemplarahúsið,
Hafnarfirði
Félagsvistin í kvöld, fimmtudag-
inn 18. apríl. Byrjum að spila kl.
20.30 stundvíslega.
Allir velkomnir. Fjölmennið.
Frá Félagi eldri borgara
Gönguhrólfar hittast nk. laugar-
dag kl. 10.00 á Hverfisgötu 105.
□ HELGAFELL 59914187 VI 2
FRL
St.St. 59914187 VII
I.O.O.F. 11 = 17204187'/2 =
H.F.* 9.0
□ SINDRI 59911847 = 2 ÍRvík.
I.O.O.F. 5 = 1724188V2 =SK.