Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 58

Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 58
58_____________________MORGUNBLAÐIÐ FJMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991_ Greinargerð frá utanríkisráðuneytinu: Islendingar vilja miðla mál- um milli Eystrasaltsríkj- anna og sovéskra stjórnvalda Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi greinargerð frá ut- anríkisráðuneytinu. Greinargerð þessa afhenti utanríkisráðherra sendiherra Sovétríkjanna á Is- landi sl. föstudag. Hinn 23. janúar 1991 ákvað ís- lenska ríkisstjórnin að fallast á beiðni Litháenstjómar um að hafnar yrðu viðræður um möguleika á nán- ari diplómatískum samskiptum land- anna. Með þingsályktun sem sam- þykkt var hinn 11: febrúar 1991 lýsti Alþingi sig fylgjandi þessari ákvörðun. I ályktuninni er áréttað að viðurkenning Islands á sjálfstæði Litháen árið 1922 sé í fullu gildi. í henni var einnig skorað á ríkisstjórn- ina að koma á formlegum stjórnmál- asamskiptum við Litháen eins fljótt og verða má. I yfírlýsingum sem afhentar voru sendiherra íslands í Moskvu 5. og 13. febrúar krafðist utanríkisráðu- neyti Sovétríkjanna skýringa á frétt- atilkynningu utanríkisráðherra ís- lands hinn 23. janúar 1991 og álykt- un Alþingis hinn 11. 1991. Ríkisstjórn íslands harmar að ut- anríkisráðuneyti Sovétríkjanna líti svo á að ákvarðanir hennar og álykt- ^in Alþingis séu þeim óvinsamlegar, og hafí talið nauðsynlegt að sýna fram á þessa afstöðu með því að veita sendiherra Sovétríkjanna í Reykjavík fyrirmæli um að halda kyrru fyrir í Moskvu til samráðs. Ríkisstjórnin metur mikils hin lang- varandi samskipti við Sovétríkin, og væntir þess að samskipti sem eru til hagsbóta fyrir bæði ríkin verði fram haldið. Sendiherra íslands í Moskvu hefur samkvæmt fyrirmælum farið fram á fund utanríkisráðherra íslands og viðeigandi stjórnvalda í Sovétríkjun- um til að skýra afstöðu íslands til Eystrasaltsríkjanna, og þá einkum Litháen. Afstöðu Isiands til Litháen verður 'að meta í samhengi við hinar rót- tæku breytingar sem orðið hafa á síðari árum í samskiptum Evrópu- ríkja. Sérstaklega ber að líta á hana í tengslum við þá lýðræðisbyltingu sem átt hefur sér stað hvarvetna á vettvangi evrópskra stjórnmála, en sú byiting var fyrst og fremst mögu- leg vegna stefnu Sovétríkjanna. Við það, að tekist hefur að vinna bug á skiptingu Evrópu hafa vonir glæðst um stöðugleika í samskiptum allra þjóða álfunnar. Þessar breyttu aðstæður komu meðal annars fram í Parísaryfírlýs- ingu um nýja Evrópu sem undirrituð var 21. nóvember 1990. Þar lýstum við þeirri sameiginlegu sannfæringu okkar að „efling lýðræðis ásamt því að mannréttindi séu virt og þeim haldið uppi í raun eru óhjákvæmileg- ar forsendur fyrir því að festa megi frið og öryggi í sessi meðal ríkja okkar“. Við vorum ennfremur sam- mála um að „lýðræðisleg landsstjórn er byggð á vilja fólksins, sem látinn er reglulega í ljósi í fijálsum og sann- gjömum kosningum“. Ríkisstjóm Litháens, sem kjörin var í frjálsum kosningum, hefur leit- ast við það af fullri einurð að endur- heimta sjálfstæði landsins. Hin óformlega þjóðaratkvæðagreiðsla hinn 9. febrúar 1991 sýnir einnig fram á að vilji alls þorra Litháa stendur til þeSs að koma fullu sjálf- stæði- aftur á. Það er í samræmi við anda París- aryfirlýsingarinnar, sem gerir ráð fyrir nýjum og bættum samskiptum í afstöðu ríkja okkar á sviði öryggis- .rnála, byggðum áþví að báðir aðhyll- ist lýðræðisleg gildi, mannréttindi og mannfrelsi, að sinnt sé lögmætum MTY óskum eins og þeim sem fram hafa komið hjá lýðræðislega kjörinni stjórn og þjóð Litháens. Hina yfír- lýstu stefnu að styðja sjálfstæðisbar- áttu Litháa ber ekki að líta á sem tilraun til að bijóta gegn reglunni um landamærahelgi, heldur sem leið til að stuðla að því, að þessi framtíð- arsýn megi rætast. Sú afstaða sovéska utanríkisráðu- eytisins, að stefna íslendinga í mál- efnum Eystrasaltsríkja sé ósam- rýmanleg skuldbindingum þeim sem kveðið er á um í stofnskrá Sámein- uðu þjóðanna, lokasamþykkt Hels- inkiráðstefnunnar og öðrum grund- vallarsamþykktum Ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu, og að um sé að ræða íhlutun í inn- anríkismál Sovétríkjanna er ríkis- stjóm íslands að sjálfsögðu mikið áhyggjuefni. En hún getur þó ekki fallist á þessar skoðanir. Eftirfarandi eru skýringar ut- anríkisráðuneytisins á ákvörðunum íslensku ríkisstjórnarinnar. Þær eru settár fram til að verða við ósk sov- éska utanríkisráðuneytisins um upp- lýsingar. II í kjölfar þess að Litháen var end- urreist sem sjálfstætt ríki var lýð- veldið Lithaén viðurkennt de jure af hálfu íslands árið 1922. Verslun- arsamskiptum var komið á milli landanna á grundvelli samninga þar að lútandi á árunum 1923 og 1930. Að áliti íslenskra stjórnvalda hafði það engin áhrif á viðurkenningu ís- lands á lýðveldinu Litháen er herir Sovétríkjanna hernámu Litháen árið 1940, og að það var síðan innlimað í sovéska ríkjasambandið. Endurreisn æðsta ráðs lýðveldis- ins Litháens á hinu sjálfstæða ríki Litháen hinn 11. mars 1990, ogstað- festing á bráðabirgðastjórnarskrá lýðveldisins Litháens sama dag, gerði að nýju mögulegt að líta á Litháen sem fullgildan þjóðréttar- aðila. Hin óformlega þjóðaratkvæða- greiðsla í Litháen hinn 9. febrúar 1991 staðfesti að aðgerðir þessar njóta stuðnings yfirgnæfandi meiri- hluta Litháa. III Á síðastliðnu ári hafa íslensk stjómvöld staðfastlega stutt Litháen í viðleitni þess að fá viðurkenningu á sjálfstæði sínu. Ríkisstjórn íslands hefur borið málið upp á fjölþjóðleg- um vettvangi, t.d. Ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu, alls- heijarþingi Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðinu, og í tvíhliða sam- skiptum við mörg Evrópuríki. Hinn 23. mars 1990 reit Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherra, Shevardnadze utanríkisráðherra bréf þar sem hann hvatti Sovétríkin til að hefja viðræður við lýðræðislega kjörna fulltrúa Litháens án skilyrða. Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra reit Mikhail Gorbachev for- seta Sovétríkjanna bréf hinn 13. jan- úar 1991, og hvatti hann þar til að binda endi á ofbeldisverk framin af sovéskum sérsveitum í Litháen. Vitnað var til Parísaryfirlýsingarinn- ar og lokasamþykktar Helsinkiráð- stefnunnar. Hinn 23. janúar 1991 lagði sendiherra íslands ennfremur fram erindi við sovésk stjómvöld þar sem farið var fram á upplýsingar um tiltekin ofbeldisverk sem framin höfðu verið af sovéskum hermönnum í Litháen og Lettlandi. í því sam- hengi var vitnað til þess sem laut að málaflokknum um hinn mannlega þátt á Ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu. Afstaða Islensku ríkisstjórnarinnar ætti því ekki að vera sovéskum stjórnvöldum neitt undrunarefni. Auk áðurgreindrar þingsályktun- ar hinn 11. febrúar 1991 hafði Al- þingi á þessu tímabili samþykkt þijár aðrar þingsályktanir er vörð- uðu Eystrasaltsríkin, hinn 13. mars 1990, 18. desember 1990 og 14. janúar 1991. Eftir að óeirðir bmtust út í Eystr- asaltsríkjunum í janúar 1990 fór Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra í opinbera heimsókn til höfuð- borga landanna þriggja. Er utanríkisráðherra sneri aftur til Islands tók ríkisstjórn samskipti Islands við Litháen til athugunar, og leiddi það til ákvörðunar hennar hinn 23. janúar 1991 þar sem fjallað var um stjórnmálasamband við Lit- háen og hvatt til þess að athygli yrði aftur beint að ástandinu í Lithá- en á fjölþjóðlegum vettvangi. IV Ríkisstjórn íslands hefur athugað vandlega þær reglur sem fyrir hendi eru um hvernig ákvarða skuli að þjóðarétti hvort tiltekin samfélags- heild eigi rétt á að teljast ríki. í þessu sambandi verður að líta til viðurkenningar Islands á Litháen 1922, til þess að í mars 1990 komu þar til skjalanna stjórnskipulega lög- mæt yfirvöld, og þess að í hinni óformlegu þjóðaratkvæðagreiðslu í febrúar 1991 kom greinilega fram vilji litháísku þjóðarinnar. Því verður ekki á móti mælt að sjálfstæði Lithá- ens er heft nú, en vegna eðlis þeirra kringumstæða sem leiddu til þeirra hafta hafa þær ekki þýðingu að al- þjóðalögum. Unnt er að benda á fjöl- mörg dæmi í alþjóðasamskiptum þessu til stuðnings. Sú spuming hefur verið borin upp hvort líta megi á þær aðgerðir sem ríkisstjóm íslands-hefur íhugað sem afskipti af innanríkismálum Sov- étríkjanna. Að áliti Islendinga er ekki unnt að útiloka þá frá því að koma fram við Litháen sem þjóðrétt- araðila. Upphafleg viðurkenning Lit- háens er talin enn í gildi, og ekki er unnt að fallast á, að þær aðstæð- ur sem ríktu þegar Litháen var inn- limað í Sovétríkin árið 1940 breyti því. Afstaða íslands er byggð á vand- legri könnun á réttarheimildum þjóð- aréttar um hvenær ríki sé talið vera til. Þótt nokkur samstaða virðist ríkja um forsendur þess að líta megi á samfélag sem ríki, er oft erfítt að beita þeim viðmiðum á þau tilvik sem upp koma í raun. Að sumu leyti er hér um að ræða álitaefni um stað- reyndir, að öðm leyti um lagaatriði, og að enn öðru leyti mat þess ríkis sem leitar svars við spurningnnni. Ríkisstjórn íslands hefur kannað hvernig ríki hafa nálgast hliðstæð mál, en það er ekki alltaf auðvelt að fella saman við hreinar fræði- kenningar. Til em dæmi um að sam- félögum sem hafa haft öll kenni- merki ríkis til að bera, hafi verið synjað um alþjóðlega viðurkenningu. í öðmm tilvikurh hefur samfélögum, sem augljóslega höfðu ekki til að bera eitt eða fleiri viðurkennd eðli- seinkenni ríkja, engu að síður verið veitt viðurkenning sem slíkum. í reynd er ekki hægt að einkenna ríki á neinn altækan hátt, því unnt er að viðurkenna samfélag sem ríki að sumu leyti, til dæmis til að njóta tiltekinna samskipta við það, en ekki að öðru leyti, til dæmis til aðildar að alþjóðlegri stofnun. Ríkisstjórn íslands er því ekki að setja fram almenna skilgreiningu á lagalegu eðli ríkishugtaksins, en hefur fremur kosið að beina augum lcsbl OíSí TTI að því hvort þjóðarréttarleg staða Litháens sé þess eðlis að hægt sé að koma á stjórnmálasamskiptum. íslenska ríkisstjórnin telur lögin frá 11. mars 1990, sem kváðu á um endurreisn sjálfstæðs Litháens og settu stjómskipunarreglur (stjórnar- skrá) til bráðabirgða, sérstaklega mikilvæg. Þær yfirlýsingar sem þar koma fram gera öðrum ríkjum kleift að líta á réttarástandið I Litháen sem viðvarandi. Þegar það er gert sýna lögin frá 11. mars 1990 að hinar klassísku viðmiðunarkröfur um land- svæði og íbúa séu uppfylltar, og virð- ist það við fyrstu sýn einnig eiga um kröfuna um virkt ríkisvald. Krafan um virkt ríkisvald og hæfí til að annast samskipti við aðr- ar þjóðir er nátengd sjálfstæðishug- takinu, þ.e. að hvaða marki sú skipu- lagsheild sem um er að ræða fer með ríkisvald og erlend samskipti án fyrirmæla frá öðrum ríkjum. Það er því nauðsynlegt að taka til athugunar lagalegar afleiðingar þess að Sovétríkin hafa heft Litháen í virkri beitingu ríkisvalds og tak- markað getu þess til að eiga sam- skipti við önnur ríki. I þessu samhengi má greina, að hæfi til að fara með samskipti við önnur ríki er tvíþætt. í fyrsta lagi kemur til athugunar hvort samfélag það sem um er að ræða sé ábyrgt fyrir gerðum sínum að þjóðarétti, og í öðru lagi hvort önnur ríki séu reiðubúin til að skuldbinda sig gagn- vart því. Mörg afbrigði á afstöðu ríkja til þessara mála má skýra út frá her- námi eða ólöglegri hersetu. Á slíku hefur til dæmis hinn fræðilegi grunnur fýrir samskiptum við útlag- astjómir verið byggður. I öðrum tilfellum hefur sú stað- reynd að ríkjandi aðstæður voru ólögmætar, hnekkt löglíkum sem ella kynnu að hafa verið taldar til staðar. Ástandið í Litháen samsvarar þeim mun sem í þjóðarétti er gerður milli „formlegs" sjálfstæðis og „virks“ eða „raunverulegs" sjálf- stæðis. Þótt Litháen sé hindrað í að beita sjálfstæði sínu verður að vega það og meta hvort slíkt hafí áhrif á það formlega sjálfstæði sem ísland viðurkenndi áður fyrr. Réttaráhrif aðgerða ríkisstjórnar Sovétríkjanna árið 1940 skipta því öllu máli þegar ákvarða skal þjóð- réttarlega stöðu Litháen. Sú grundvallarregla þjóðaréttar nýtur fullrar viðurkenningar, að ekki megi byggja neinn rétt á ólöglegum aðgerðum. Neitun þjóða heims á að viðurkenna ólöglegt hernám og inn- limun byggir á því, að valdbeiting í andstöðu við þjóðarétt er skýlaust fordæmd. Dæmi úr samtíðinni sýna að samfélag þjóðanna er ekki tilbúið til að viðurkenna rétt þess ríkis sem stendur að innlimun. Svo aftur sé vikið að Litháen, þá má fyrst geta þess að sú skoðun, að hernám Litháens árið 1940 hafi verið ólöglegt, var staðfest með ályktun fulltrúaþings Sovétríkjanna hinn 24. desember 1989, Almennt er talið að þar til sýnt er fram .á annað, beri að líta svo á, að gerðir ríkisstjórnar, sem sett er á stofn í kjölfar hernaðaraðgerða og hernáms, séu ekki gerðir sjálf- stæðs ríkis. Að öðru leyti fara réttar- áhrif eftir mati á atvikum. Það er almennt viðurkennt, að innlimun Litháens í Sovétríkin átti sér aðdrag- anda, runninn undan rifjum heráms- liðsins, sem að mörgu leyti var mjög óeðlilegur.1 íslendingar eru ekki ein- ir í því að álíta þessa atburðarás fela í sér ólögmæta valdbeitingu og ólög- lega innlimun. Yfirgnæfandi meiri- hluti vestrænna ríkja er sömu skoð- unar. Tilraunir til að greina á milli þeirrar niðurstöðu að samningur Molotoffs og Ribbentrops hafí verið ógildur, og þeirra lagalegu aðstæðna sem fylgdu á eftir hernámi Lithá- ens, standast ekki nána athugun. Þá kemur upp sú spurning hve lengi réttarstaða þjóðréttaraðila standist áhrifin af ólögmætu her- námi. Með því að bæla niður það þjóðfé- lag sem fyrir var, valdastofnanir þess, tungu og menningu, geta áhrif innlimunar í kjölfar ólöglegs hernáms verið svo alger, að hið pólit- íska samfélag líði undir lok. Nýleg dæmi sýna hins vegar að samfélög í mörgum heimshlutum, hafa komið fram aftur í sem næst upprunalegri mynd þrátt fyrir frelsissviptingu um lanjgan tíma. I þessu efni skipta lögin frá 11. mars 1990 og óformlega þjóðarat- kvæðagreiðslan hinn 9. febrúar 1991 einnig máli, þar sem þau sýna, að hið pólitíska samfélag Litháens stóðst rás tímans og var áfram til sem sérstakur lögaðili. Benda má á annað atriði varðandi hæfi til að fara með samskipti við aðra, og lýtur það að hvers eðlis slík samskipti eru. Staðreyndin er sú, að þau aeru að sama skapi háð afstöðu annarra ríkja. Þegar önnur ríki eru reiðubúin til að hafa sam- skipti við tiltekið samfélag hefur afstaða þeirra þau áhrif að festa í sessi réttarstöðu þess. Gera verður ráð fyrir að ríki sem fallast á að hefja samskipti við ríki með takmarkað löghæfí hagi þeim þannig að tekið sé tillit til ríkjandi aðstæðna, svo þau baki sér ekki ófyrirsjáanlega ábyrgð að alþjóða- lögum. Þeim væri jafnvel ókleift að leita réttar síns þegar takmarkanir á hæfí þeirra til að stunda sam- skipti við aðra eru augljósar. í þessu efni má ekki binda sig um of við fræðikenningar, og margs konar aðstæður munu koma upp sem bregðast verður við með sveigjan- leika og réttsýni. Sú spurning fylgir, hvort neita megi Litháen um réttinn til að með það sé farið sem ríki. Með öðrum orðum, getur annað ríki vikið sér undan skyldum sínum einfaldlega með því að neita að umgangast það sem ríki? I samræmi við þá grein- ingu sem gerð er hér að framan getur ísland ekki leyft sér að þrýsta á að önnur ríki geri álit þess að sínu, en lætur þeim heldur eftir að bera aðstæður sínar saman við þær sem eiga við á íslandi. Það er hins vegar bent á, að kjami þess sem athugun íslensku ríkisstjórnarinnar leiðir i ljós, þ.e. að hemám Litháens og inn- limun þess árið 1940 var ólögleg, kemur í veg fyrir að Sovétríkin geti beitt rökum sem þau gætu nýtt sér við venjulegar aðstæður. V Ríkisstjórn íslands hefur einnig athugað ákvæði lokasamþykktar Helsinkiráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu. Þótt lokasam- þykktin sé ekki samin með orðalagi skuldbindingar að lögum, þá er hún samt háð lögskýringu á mjög svipað- an hátt og lagaleg ákvæði. Almennt séð er rétt að benda á að í þeim viðræðum sem voru undan- fari þess að lokasamþykktin var undirrituð áréttuðu mörg vestræn ríki þá vel þekktu afstöðu sína að þau hefðu aldrei viðurkennt inn- göngu Eystrasaltsríkjanna í Sov- étríkin de jure. Sovétríkin hefðu þannig átt að hafa fengið aðvörun um að þessi ríki myndu ekki sætta sig við þá túlkun lokasamþykktar- innar, að réttarstöðu Eystrasaltsríkj- anna væri þar með endanlega komið á hreint, og ekkert þeirra gæti síðan vakið máls á réttarstöðu þeirra sem álitaefnis að þjóðarétti. Þau vest- rænu ríki sem hér um ræðir hafa síðan enn staðfest afstöðu sína í tengslum við hina nýlegu atburði í Eystrasaltsríkjunum. Hvað athugun á réttarstöðu Lit- háens viðvíkur eru í þremur af meg- inreglum lokasamþykktarinnar um samskipti þátttökuríkja ákvæði sem skipta máli í því sambandi þ.e. I meginreglum I, III og IV. Fyrsta ákvæðið er í meginreglu I, en hún fjallar um jafnrétti fullvald- aríkja og virðingu fyrir þeim réttind- um sem í fullveldi felast, og fylgir tarJ KtólíaálÖBtg slwl innflibnola

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.