Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991
\
-V-------------
MÚSÍKTILRAUNIR
Músíktilraunir Tónabæjar og Stjörnunnar hófust
með miklum látum síðasta fimmtudag og í kvöld
er önnur lota tilraunanna. Þá munu sjö hljómsveit-
ir keppa um rétt til þátttöku í úrslitum í næstu
viku, en síðast komust þrjár áfram. Hljómsveitirn-
ar sem þátt taka í kvöld koma víða að, ein úr
Reykjavík, tvær úr Kópavogi, ein úr þéttbýlinu
sunnan Reykjavíkur, ein kemur frá Laugarvatni,
ein úr Borgarnesi og ein af Akranesi. Rokk í
þyngri kantinum verður í hávegum í kvöld, líkt og
fyrsta tilraunakvöldið, en þó ekki einrátt.
Ein og fram hefur komið eru hljóðverstímar í verð-
laun að venju.og verða fyrstu verðlaun 30 tímar
Morgunblaðið/RAX
Mortuary
Mortuary heitir hljómsveit úr Reykjavík. Hana skipa
Árni Jónsson söngvari, Jóhann Rafnsson trommuleik-
ari, Vigfús Rafnsson gítarleikari, Albert Þorbergsson
gítarleikari og Þórarinn Freysson bassaleikari. Mortuary
leikur ruslrokk (thrash) með dauðarokkáhrifum, enda
segjast sveitarmenn hafa dálæti á gæðasveitunum Slay-
er og Sepultura. Meðalaldur sveitarmanna er 18 ár.
Morgunblaðið/RAX
Strigaskór nr. 42
Strigaskór nr. 42 tóku einnig þátt í síðustu Músíktilraun-
um og náðu hæglega í úrslit þá, þó ekki hafi sveitin
komist á verðlaunapall. Strigaskórnir eru Gunnar Reyn-
ir Valþórsson gítarleikari, sem ekki var með síðast, Ari
Þorgeir Steinarsson trommuleikari, Kjartan Róbertsson
bassaleikari og Hlynur Aðils Hilmarsson gítarleikari sem
einnig syngur. Strigaskórnir leika dauðarokk og meðal-
aldur sveitarmanna er rúm 15 ár.
í Sýrlandi, fullkomnasta hljóðveri landsins, en án
upptökumanns. Önnur verðlaun verða 25 tímar í
Hljóðmúrnum með hljóðmanni. Til viðbótar til
hljóðverstímana sem eru í fyrstu og önnur verð-
laun, hafa Nýi tónlistarskólinn og Tónskóli Eddu
Borg tekið sig saman um að bjóða vegleg auka-
verðlaun og verða útsendarar skólanna á staðnum
til að velja efnilegasta gítarleikara og hljómborðs-
leikara Músíktilrauna, sem fá námskeið í skólun-
um að launum fyrir frammistöðuna. Einnig má
geta þess að Hard Rock Café og Vífilfell eru
styrktaraðilar tilraunanna. Gestahljómsveit í kvöld
verður Loðin rotta, sem leika mun á undan til-
raunasveitunum og á meðan atkvæði eru talin.
Myrtur
Myrtur er sveit sem að mestu er af Akranesi, en einn
sveitarmanna er frá Stykkishólmi, sem gerir æfingar
væntanlega strjálli. Sveitina skipa Ingþór Bergmann
bassaleikari, Erlingur Viðarsson gítarleikari, Unnsteinn
Logi Eggertsson trommuleikari og Þorbergur Viðarsson
söngvari, sem söng sveit sína, Lalla og setimetrana, í
úrslit í síðustu tilraunum. Þess má geta að Erlingur og
Þorbergur eru bræður, en þriðji bróðirinn, Einar, átti
snaran þátt í að sveitin Durkheim komst í úrslit að
þessu sinni. Meðalaldur sveitarmanna er rúm tuttugu
ár og sveitin leikur melódískt rokk.
Röndótta regnhlífin
Röndótta regnhlífin er önnur þriggja borgneskra sveita
sem þátt taka í Músíktilraunum að þessu sinni. Sveitina
skipa Jón Þór Sigmundsson gítarleikari, Sigurður Örn
Guðmundsson gítarleikari, Gunnar Ásgeir Sigurjónsson
trommuleikari, Halldór Ingi Jónsson bassaleikari og Eva
Rós Björgvinsdóttir söngkona. Sveitin leikur mýkri gerð
af rokki, með nokkra áherslu á rólegri lög. Meðalaldur
sveitarmeðlima er tæp sextán ár.
Morgunblaðið/KGA
Möbelfacta
Möbelfacta er sveit úr þéttbýlinu sunnan Reykjavíkur.
í sveitinni eru Davíð Ólafsson trommuleikari, Reginn
Freyr Mogensen gítarleikari, Hrafn Thoroddsen Hamm-
ondorgel, Helgi Vignir Bragason söngvari, Einar Már
Björgvinsson gítarleikari og Ellert Schram bassaleikari.
Meðalaldur sveitarmanna er 18 ár og sveitin leikur rokk
í léttari kantinum.
Saktmóðigur
Saktmóðigur heitir sveit sem tengist Menntaskólanum
á Laugarvatni. Sveitina skipa Davíð Ólafsson bassa-
leikari, Svavar Njarðarson gítarleikari, Ragnar Ríkharðs-
son gítarleikari, Karl Óttar Pétursson söngvari og Þor-
váldur Gunnarsson trommuleikari. Sveitarmenn eru allir
tvítugir og leika hardcorerokk.
Morgunblaðið/RAX
No Comment
No Comment heitir sveit úr Kópavogi sem skipuð er
Árna Sveinssyni, Halldóri Geirssyni og Kristni Arnari
Aspelund, sem allir syngja, og Hlyn Aðils Hilmarssyni
sem leikur á hljómborð, gítar og tölvutól. Meðalaldur
sveitarmanna er tæp fimmtán ár, en No Comment leik-
ur dauðadiskó.
Utrýming íslenskrar
farmannastéttar
eftir Birgi H.
Björgvinsson
Það kemur oftar fyrir en ekki
að þær fréttir koma frá íslenskum
kaupskipaútgerðum að þær séu í
mikilli samkeppni við erlendar út-
gerðir. Þetta á aðeins við i litlum
mæli í flutningi á heilu förmunum,
ekki í flutningi á stykkjavöru.
Ekkert erlent skipafélag hefur
aðstöðutil að keppa við íslensk
ski^HW á. þessu sviðienþeSfe
flutningar eru mjög ábatasamir
enda sést það best á umfangi skipa-
félaga hver afkoman er. Það eru
keypt hlutabréf í mörgum fyrir-
tækjum og töppum þessara fyrir-,
tækja borguð ótrúlega góð laun, en
þegar kemur að verkafólki og far-
mönnum þá er ekkert hægt að
borga og aðrar leiðir ekki færar en
ráða erlenda sjómenn í þrælahald á
smánarlaunum.
Svo rammt kveður að þessu í
áróðri að helst er að skilja á far-
skiijaeigendum að það sébest að
vera með höfuðstöðvar á Kýpur til
að vera nær samkeppnisaðilanum.
Enginn á íslandi getur keppt við
þetta vinnuafl á þessum lágu laun-
um. Þá er spurningin aðeins: Ætl-
um við að gera út íslenskan farskip-
astól eða glata okkar hlut í flutn-
ingi að og frá landinu? Þá yrði stutt
í að við misstum sjálfstæðið. Ráða-
menn þessarar þjóðar eru alltaf að
leita leiða til að afla gjaldeyris og
er ekkert nema gott um það að
segja, en það virðist til nógur gjald-
eynr fyrif leigu a erlendum skipum.
Ég hef ekkert á móti erlendu vinnu-
afli, en séu þeir með vinnuréttindi
hér, verða þeir að vera á íslensku
kaupi.
Að lokum vil ég nefna eitt dæmi
um kaup erléndra farmanna frá
Austurblokkinni. Fyrir 14 tíma
vinnu á dag í 30 daga eru launin
350 $ (ca. 20.650). Þessar upplýs-
ingar eru komnar frá Norræna
flutningaverkamannasambandinu.
Vinnukraftur úr Austurblokkinni
er löngu farinn að sækja í vörubíla-
keyrslu á Norðurlöndunum. Þá er
spurningin: Hverjir eru næstir?
Ég vil ennfremur ítreka fyrri
hugmyndir um stofnún flutninga-
verkamannasambands til að sporna
gegn þrælahaldi. Ég trúi því ekki
að það geti verið stefna íslenskra
stjórnvalda að tfeysta erlendum
farskipaflota fyrir flutningum að
og frá landinu, sem aðeins myndi
þjóna gróðafíkn örfárra fýrirtækjaf"
Því segi ég: íslenskan fána á skip
í eigu Islendinga.
P.s. Til fróðleiks læt ég hér með
fylgja texta úr auglýsingu frá Eim-
skipafélagi íslands sem birtist í
Fijálsri verslun árið 1955: „Þegar
íslendingar glötuðu sjálfstæði sínu
á árunum 1262-1264 steig þjóðin
það hættulega spor að trúa útlend-
ingum fyrir sigiingamálum sínum.
Með stofnun hf. Eimskipafélags
íslands endurheimti þjóð vor þessi
mál í sínar hendur, og steig þar
með hið heilladrýgsta spor í sjálf-
stæðisbaráttunni. Verið sannir ís-
lendingar með því að ferðast með
fossunum og látið Eimskip annast
alla vöruflutninga yðar.“
Nú spyr ég: Hefur aðstaða okkar
sem eyþjóðar eitthvað breyst á þess-
um tíma?
Hötundur cr í stjórn
Sjonmnnnlcíngs Heykjnvíkur.