Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRIL 1991
63
Örfá orð
eftir Úlf Hjörvar
Við lifum á miklum umbrotatím-
um og mörgum reynist „erfiðara
og erfiðara að taka afdráttarlausa
afstöðu," segir Heimir Pálsson í
nýlegri tímaritsgrein. Þá kann að
vera gott að hafa hugföst orð Þór-
bergs um að undirtónn tilverunnar
sé meinlaust grín, en muna jafn-
framt hver alvörumaður Þórbergur
var. Því að nú er alvara á ferðum,
það á að fara að kjósa til Alþingis,
og kosningar eru „ekki farsi heldur
alvarlegt mál,“ eins og Valgerður
Bjarnadóttir skrifar okkur frá þeim
stað í Evrópu, sem Jónas Svafár
kallaði einhvern tímann Brussuna
Ellu.
Það virðist að vísu enn vera eitt-
hvað að velkjast fyrir mörgum
frambjóðendum hvað kosið verði
um, en kjósendur úti á landi heyr-
ist mér að geri sér að minnsta kosti
fullljóst hvað í húfi er. Hér í Vík-
inni er allt meira á huldu hvað
menn ætlast fyrir á kjördag, nema
hvað trotskíistar ku ætla að sitja
heima að þessu sinni — eða kjósa
Kvennalistann. Sjálfstæðisflokkur-
inn er vitaskuld mjög sigurviss, og
foringi hans hefur um stund slíðrað
sverðið Þorsteinsbít, en fer með
blíðmælgi í liðsbón um allar jarðir;
einkum þangað sem fáir þekkja
hann. Og svo eru Engeyjarmenn
aftur farnir að róa.
Á kjördegi ætti afstaða manna
alltént nokkuð að ráðast af því hver
saltfiskreitur þeirra er og hveiju
þeir telja. að atkvæðið geti skilað
sér og sínum eftir kosningar. Að
þessu sinni eiga nokkrir kjósendur
til dæmis von á að fá Búnaðarbank-
ann að gjöf eftir kosningar, og
kannski eitthvað fleira gott; aðrir
minna eins og gengur. Þetta fer
að sjálfsögðu allt eftir því hvað
menn eiga mikið fyrir.
Við á menningarreitnum, starfs-
fólk menningar- og menntastofn-
ana, listdansarar, prentarar, hljóm-
listarmenn, kennarar, kvikmynda-
gerðarmenn, þeir sem selja gamlar
bækur og nýjar, útvarpsmenn,
söngvarar, skáld og rithöfundar,
bókbindarar, arkitektar, leikarar,
útgefendur, myndlistarmenn, bóka-
verðir, blaðamenn, hljóðfærasalar,
pappírsinnflytjendur og enn fleiri,
verðum líka að gera upp hug okk-
ar. Afstaða okkar hefur eðlilega
alltaf markast töluvert af því, sem
verið hefur að gerast í menntamála-
ráðuneytinu hverju sinni, en það
hefur því miður oftast verið harla
lítið eins og við vitum. Og sjaldan
neitt að gagni nema við sjálf legð-
umst á eitt um að knýja það fram.
Menntamálaráðuneytið hefur löng-
um verið hornreka í stjórnkerfinu
og einskonar skiptimynt við stjórn-
armyndanir. Ráðherraefni, sem
dottaði á stjórnarmyndunarfundum,
gat átt það á hættu að hrökkva upp
í þessu ráðuneyti. Og sumir héldu
því miður bara áfram að sofa þar.
Fyrir nokkru skolaði að vísu
þangað inn manni, sem hafði þá
pólitísku fífldirfsku til að bera, að
láta dusta rykið af möppunum, og
lét síðan hendur standa fram úr
ermum svo að um munaði. Gerði
meira að segja allt hvað hann gat
til að koma Þjóðarbókhlöðu undir
þak. Og fékk miklu áorkað. Og
hvað var gert við þennan mann?
Hann var við fyrstu pólitísku hent-
ugleika tekinn úr umferð og lokað-
ur inni niðrí Landsbanka.
En nú gustar aftur um mennta-
málaráðuneytið. Svavar Gestsson
hefur á skömmum tíma tekið ræki-
lega til hendinni og sýnt mikinn
pólitískan kjark í því menningar-
fjandsamlega umhverfi, sem lág-
kúrufólki er að takast að skapa
hér. Um þetta deilum við ekki, en
sumum fínnst, eins og alltaf er, að
hann hefði kannski átt að nota hina
höndina, láta þeirra brýnustu þarfir
ganga fyrir, eða láta eitt og annað
ógert, og þurfum við heldur ekki
að deila um að þessir hafi eitthvað
til síns máls.
Sjálfur treysti ég þó Svavari og
hans góða fólki best til að halda
áfram að vinna þau verk sem vinna
Úlfur Hjörvar
„Menntamálaráðuneyt-
ið hefur löngum verið
hornreka í stjórnkerf-
inu.“
þarf í menntamálaráðuneytinu, og
jafnvel að ganga í verkin hans
Davíðs, eins og Daði Guðbjörnsson
virðist hafa bundið miklar vonir við.
Það er þó því miður engan veginn
víst að Svavar verði áfram mennta-
málaráðherra; það getur eins orðið
einhver annar og þá úr allt öðrum
flokki. Ýms nöfn hafa flogið fyrir,
en til að verða ekki sakaður um
hræðsluáróður rétt fyrir kosningar,
ætla ég engin þeirra að nefna hér.-
En við ættum að leiða hugann að
því, að hvað sem verður, styrkjum
við sjálf okkur og íslenska menning-
arstarfsemi mest með því að fylkja
okkur um mann, sem þorað hefur
að taka á mörgum stórum málum,
sem við berum fyrir bijósti og varða
lífsafkomu okkar. Og þetta er eigin-
lega hafið yfir allan pólitískan
flokkadrátt því að öflugur stuðning-
ur við Svavar Gestsson er jafnframt
nauðsynleg hvatning hveijum þeim
sem nú kann að taka við af honum.
Ella mun allt sækja í gamla horf-
ið.
Höfundur á sæti í
menntamálaráði.
Ky nningarfundur á vegnm
Norræna iðnaðarsjóðsins
NORRÆNI iðnaðarsjóðurinn
heldur kynningarfund um starf-
semi sjóðsins í dag 18. apríl nk.
kl. 15.00 á Holiday Inn í Hvammi.
Markmið fundarins er að kynna
starfsemi sjóðsins og fjalla um
hvaða verkefni eiga möguleika á
stuðningi og hvernig standa beri
að umsóknum.
Hlutverk Norræna iðnaðarsjóðs-
ins er að örva tækniþróun og ný-
sköpun í norrænu atvinnulífi. Sjóð-
urinn veitir m.a. styrki og lán til
norrænna rannsókna- og þróunar-
verkefna. Um 20% af heildarfram-
lagi Norðurlandáþjóðanna til nor-
ræns samstarfs, renna til starfsemi
á vegum sjóðsins.
íslensk fyrirtæki og stofnanir
hafa í vaxandi mæli verið þátttak-
endur í verkefnum sem notið hafa
stuðnings frá Norræna iðnaðar-
sjóðnum. Oft hefur þátttaka í verk-
efnum sem fjármögnuð eru að hluta
af Norræna iðnaðarsjóðnum verið
fyrsta skref fyrirtækja og stofnana
til þátttöku I alþjóðlegu samstarfi.
Fundurinn er öllum opinn.
(Fréttatilkynning)
TVOFALDUR1. vinningur
. UJJOV I MMMMdATiiiuTi.ij—aaapana flrníirjr«—tfMMMarft'iiMMBiBOTWiriyfTiBwmx
Vörn í sókn, bændur
eftir Geir
Vilhjálmsson
Mengunar- og eiturefnaálagið
alþjóðlega séð., en einkum í iðnríkj-
unum, er ennþá meira en flestir
vilja af vita. Ekki verður §ölyrt um
umfang þessa vanda hér aðeins
bent á eina af afleiðingum aukinnar
vitundar fólks um mengunar- og
eiturefnavandann:
Eiturefnasnauð og/eða lífrænt
ræktuð matvæli verða sífellt eftir-
sóttari í nágrannalöndunum og
framleiðendur fá frá 50 til 200%
hærra verð fyrir slíka vöru.
Að erfitt sé að selja lítt mengað
kjöt af íslenskum fjallalömbum er-
lendis á viðunandi verði getur því
ekki stafað af skorti á kaupendum,
heldur vegna vankanta á vali um-
boðsaðila erlendis, skorti á mæling-
um og öðrum upplýsingum sem
sanna gæði kjötsins og e.t.v. öðrum
ágöllum í markaðssetningu. Fá-
mennt fulltrúakerfi bændastéttar-
innar kann og í þessu máli, sem á
fleiri sviðum þjóðlífsins, að hafa
leitt til skorts á skilvirkni og snerpu
í viðbrögðum við nýjum aðstæðum.
Bændur hafa líka sumir hveijir
ánetjast um of ólífrænum fram-
leiðsluháttum. Þó að dregið hafi úr
gjöf tilbúins áburðar og innflutts
fóðurs, þá þurfa þeir sem vilja fram-
leiða lífrænt kjöt á að halda gjöf
tilbúins áburðar í lágmarki og
hætta alfarið að nota föður„bæti“
með innfluttu korni. Fóðurkorn er
erlendis ætíð ræktað með eiturefna-
stuðningi og lömbin fá sinn skerf
af þeim í móðurkviði og verða því
í besta falli eiturefnasnauð, ekki
eiturefnalaus, þó að sumarfæðan
sé síðan engja- og heiðagróður.
Geir Vilhjálmsson
„Fóðurkorn er erlendis
ætíð ræktað með eitur-
efnastuðning-i.“
í öllum helstu nágrannalöndum
eru starfandi samtök framleiðenda
lífrænnar fæðu. Víða er því hægt
að leita að fyrirmyndum um rækt-
un, meðferð og markaðssetningu
lífrænnar fæðu.
Höfundur er sálfræðingur.
UTSALA - VERDHRUN
Allt á að seljast
Enn meiri verðlækkun - Aðeins 3 dagar eftir
Verðið er ótrúlega lágt
Skór- Barnaskór-
Uppháir skór - Skór með riflás
Töskur
Liðasett, þ.e. treyja, buxur
og sokkar: Liverpool,
Arsenal, Manch. Utd, Tottenham,
England.
Verð 1.990,-
(áðui 3.790.-1
O.tl., O.tl.
Laugavegi 97 (ó móti Stjörnubíói). Sími 17015.