Morgunblaðið - 18.04.1991, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 18.04.1991, Qupperneq 66
iooi iHiq/, 'i 'rj;)AtVvn/un (tjn/ liiMifOflOl/i MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRIL 1991 Finnur Magnússon, Isafirði - Minning Fæddur 5. október 1909 Dáinn 8. apríl 1991 Finnur Magnússon fyrrverandi kaupmaður á ísafirði er genginn. Dauðinn hafði leikið hann grátt síð- ustu árin. Engin vægð, bara hatrömm sókn þar sem vörn varð ekki viðkomið. Við sem stóðum álengdar sáum hve hjálparvana og lítilsmegandi stæltustu karlmenni geta orðið í lokaorrustu lífsins þeg- ar ekkert er hægt að gera til að hamla á móti hinu óumflýjanlega. Eins og áður segir var Finnur heitinn Vestfirðingur í húð og hár og leyndi því ekki. Hann var hávax- inn og grannur, léttur í spori, svip- urinn bjartur og frá honum stafaði innri gleði sem hann átti svo auð- velt með að miðla öðrum. Þó að við Finnur hefðum hist nokkrum sinnum utan heimabyggð- ar hans þá fannst mér ég fyrst kynnast honum þegar við hjónin tókum hús hjá Helgu og honum fyrir um það bil tveim áratugum. Finnsbúð sem var á jarðhæð var miklu meira en venjuleg verslun þar sem kaupmaðurinn réttir vöruna yfir búðarborðið og tekur á móti peningum, hún var líka lifandi sam- komustaður þeirra sem lögðu leið sína um Hafnarstræti svo og eins- konar skriftarstóll þeirra sem áttu engan að til að deila með áhyggjum sínum og vandamálum og að auki góður staður fyrir smáfólk sem ekki hafði mikil auraráð. Kaupmað- urinn kunni ráð við öllu og honum var ljúft að leysa flestan vandann með bros á vör. Og allt gat hann gert í sömu andrá. Mér fannst það eins og að sitja í stúkusætum stórs samkomuhúss og njóta dýrindis skemmtiatriða þegar mér tókst að tylla mér á tóman ölkassa innan við búðarborðið hjá honum Finni. Þar réð húsum hinn dæmigerði kaupmaður á horninu í bestu merk- ingu þeirra orða. Auk starfa síns var Finnur heit- inn mikill heimamaður og átti sér hin ýmsu tómstundaáhugamál. Tónlist var honum kær. Ef einhvern vantaði skrautskrifara þá var hann til reiðu. Á sumrum var ætíð stund aflögu til að sinna skógrækt inn í dal, þar sem þau hjónin áttu griða- stað í fögrum lundi og var þar oft þröngt setinn bekkurinn um helgar. Að grípa veiðistöng og renna fyrir lax var fastur þáttur í lífi Finns meðan hann var búsettur fyrir vest- an. Þótt Finnur heitinn væri ljúflynd- ur og lipur var hann skoðanafastur og í kappræðum lét hann ógjarnan sinn hlut. í daglegu lífi var Finnur hamingjumaður, kvæntur skör- ungskonu sem ól honum þijú börn sem öll hafa komist vel til manns og borið hróður góðra foreldra víða. Þótt-tæpt hafi verið á ýmsu hér að framan um dvöl mína á ísafirði hér um árið þá er mér ógleymanleg- ast eitt kvöld eins og þau geta ver- ið fegurst’fyrir vestan. Blankalogn, Pollurinn spegilsléttur, bátarnir vaggandi sér við kæjann, hljótt og kyrrt yfir öllu og við Finnur á rölti í Neðstakaupstað. Þar var ég eins og lítill skóladrengur hlustandi með ákefð og eftirvæntingu á sögur litlu húsanna og ævintýri látinna íbúa sem lifnuðu að nýju í heillandi frá- sögn Finns. Þetta kvöld var eins- konar hápunktur á dvöl minni fyrir vestan. Eftir það fann ég svo ekki varð um villst að ég átti vináttu Finns. Ég hygg að Finnur hafi aldrei notið sín sem skyldi eftir að hann flutti hingað suður þó að hann léti það aldrei uppi. — Einu sinni Vestfirðingur ávallt Vestfirðingur. — Við hjónin sendum Helgu mág- konu minni, börnum hennar og tengdabörnum samúðarkveðjur. Björn Bjarman Minning: Ragnheiður Guð- mundsdóttir Fædd 22. ágúst. 1918 Dáin 11. apríl 1991 í dag verður til moldar borin frá Bústaðakirkju okkar ástkæra frænka Ragnheiður Guðmundsdótt- ir eða Duda eins og við systkinin kölluðum hana. Þegar okkur var tilkynnt um andlát hennar kom okkur það mjög á óvart þótt Duda væri orðin 72 ára gömul. Hún gekk að vísu ekki heil til skógar sl. ár en Duda veiktist skyndilega og var lögð inn á sjúkrahús og gekkst undir aðgerð en átti ekki aftur- kvæmt. Duda fæddist og ólst upp á Stokkseyri og var elst fimm systk- ina. Hún giftist Kjartani Árnasyni sem andaðist fyrir nokkrum árum. Við systkinin munum fyrst eftir þeim þegar þau bjuggu í Mávahlíð- inni en þar dvöldum við stundum þegar foreldrar okkar fóru í ferða- lög. Það voru ánægjulegar stundir því þau voru sérlega barngóð og reyndu alit fyrir okkur að gera þrátt fyrir fötlun sína en Duda var með staurfót eftir berkla sem hún fékk á yngri árum og Kjartan var með gervifót, en fótinn hafði hann misst í slysi. Það gleymist seint hversu hissa við lítil systkinin vorum þegar Kjartan tók af sér fótinn og af- henti okkur hann eða þær stundir þegar við fengum skartgripaskrínið hennar Dudu lánað með öllum skartgripunum til að leika okkur að. Það var dekrað við okkur innan veggja sem utan, í bíltúrum niður’ að tjöm til að gefa öndunum og víðar. Sömu sögu er að segja þegar þau komu að heimsækja okkur í Maríubakkann og síðar á Hjalla- brautina. Duda og Kjartan áttu einn son, Má, bifvélavirkja búsettan í Reykja- vík. Við þökkum elsku Dudu innilega fyrir allar ánægjustundirnar og vottum Má og systkinum Dudu samúð okkar. Megi blessun fylgja henni í ferðinni til birtunnar. ____ Anna María, Halldór og Betti Komið er að kveðjustund. Finnur Magnússon, fyrrverandi kaupmað- ur á ísafirði, er látinn eftir þungbær veikindi undanfarin þijú ár. Finnur var fæddur á Flateyri við Önundarfjörð 5. október 1909, fyrsta barn hjónanna Magnúsar Guðmundssonar, skósmiðs á Flat- eyri, og Guðrúnar Guðmundsdóttur. Árið 1918 flyst hann til ísafjarð- ar ásamt móður sinni, yngri bróð- ur, Magnúsi Bergi, og fósturföður, Elíasi Kærnested Pálssyni skósmið, en föður sinn hafði Finnur misst nokkrum árum áður. Það er til marks um þá þrautseigju og dugnað er einkenndi Finn alla tíð, að hann fór fótgangandi ásamt fósturföður sínum frá Flateyri yfir Breiðadals- heiði til ísafjarðar frostaveturinn mikla, aðeins níu ára gamall. Finnur stundaði almenn störf í landi og sjómennsku, m.a. síldveið- ar, í ísafjarðardjúpi og á Siglufirði. Hann hóf síðan verslunarstörf, sem áttu eftir að verða hans ævistarf. Finnsbúð, eigin verslun, opnaði hann 28. september 1942 í myndar- legu íbúðar- og verslunarhúsnæði í Hafnarstræti 8. Elías fósturfaðir hans lét reisa húsið á árunum 1928-29 og rak þar skósmíðaverk- stæði og verslun. Verslunina rak Finnur síðan í samtals þijátíu og ijögur ár, er hann ásamt eiginkonu sinni flutti alfarinn til Reykjavíkur. Finnsbúð er mörgum Vestfírðingum enn í fersku minni, en þar var ekki aðeins rekin verslun, heldur var þar samkomustaður félaga Finns, margt skrafað og hlegið, enda hafði hann næmt auga fyrir spaugilegri hliðum mannlífsins, brosið sem náði til augnanna ógleymanlegt. Finnur Magnússon starfaði að félagsmálum á ísafirði, var um tíma formaður Stangaveiðifélags ísa- fjarðar, sat í stjórn Skógræktarfé- lags ísafjarðar og var alla tíð áhugamaður um skógrækt. Hann var einn af stofnendum íþróttafé- lagsins Vestra, teiknaði merki fé- lagsins og lék knattspyrnu með fé- laginu á yngri árum. Þann 14. nóvember 1936 gekk Finnur að eiga Helgu Stefánsdóttur frá Neskaupstað, dóttur hjónanna Stefáns Guðmundssonar og Sess- elju Jóhannesdóttur. Helga kom vestur á firði og nam hússtjórn við Húsmæðraskólann á ísafirði, en þar þóttu jafnan miklir kvenkostir við nám. Þau felldu hugi saman og varð gæfa beggja. Helga hefur ver- ið eiginmanni sínum stoð og stytta í veikindum síðustu ára, svo aðdáun hefur vakið. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið. Þau eru Elsa, ritari hjá Pósti og síma, gift Erni Arnarþ Ingólfssyni, framkvæmda- stjóra Isgrafs, þau eiga tvo syni og eina sonardóttur, Magnús Elías við- skiptafræðingur, hann á tvo syni og tvær dætur, Stefán læknir, kvæntur Einfríði Þ. Aðalsteinsdótt- ur, þau eiga fjóra syni. Finnur Magnússon var heiðurs- maður í þess orðs bestu merkingu. Vinur vina sinna, góður heimilisfað- ir og barnabörnum sínum elskuleg- ur og eftirlátur afi. Það vakti jafnan aðdáun barnabarna sem annarra hve hagur hann var og þá einkum rithöndin, en eftir Finn liggja ótelj- andi skrautskrifaðar bækur, skjöl og kort, er hann ritaði í frístundum sínum, einkum fyrir samborgara sína á Isafirði. Finnur reyndist mér elskulegur tengdafaðir, hafi hann þökk fyrir allt og allt, á okkar kynni bar ekki skugga. Tengdamóður minni votta ég samúð. Guð blessi minningu Finns Magnússonar. Einfríður Traustur vinur okkar í áratugi, Finnur, er látinn. Mér brá að heyra það, bjóst ekki við því þrátt fyrir skerta heilsu hans undanfarið. Þegar ég flutti til ísaijarðar rúm- lega tvítug var Finnur glæsilegur ungur piltur og vann í verslun Ólafs Kárasonar ásamt tveim sonum hans. Man ég vel hvað mér þótti' gott að versla við þessa ungu menn, svo vinalegir og kurteisir. Nokkru síðar setti Finnur upp sína eigin verslun í húsi móður sinnar, Guð- rúnar, og seinni manns hennar, Elíasar Kærnested skósmíðameist- ara, sem var hinn mesti öðlingur. Hann var mjög góður við eldri dótt- ur mína sem var þar heimagangur, var svo mikið með dóttur stjúpsonar hans, Magnúsar, sem bjó á efri Lárus H. Eggerts- son - Minning Fæddur 22. júní 1910 Dáinn 7. apríl 1991 Það er svo margt, sem kom upp í hugann er ég frétti að afi á Sóló væri Iátinn. Otal minningar, sem legið höfðu í gleymsku, komu allt í einu upp í hugann. Og ég uppgötv- aði að þessar minnihgar voru það eina, sem ég átti eftir af honum afa mínum. Minningarnar mínar um afa tengjast flestar Sólvallagötunni, þar bjó hann ásamt ömmu í sextán ár. Frá Sóló fórum við í ótal gönguferð- ir saman. Niður að Tjörn, um Vest- urbæinn, út í Björnsbakarí, þar sem hann keypti þriggjakorna brauðið sitt, og á ótal fleiri staði. Afi tefldi og spilaði mikið, hann var alltaf tilbúinn með skákborðið þegar við komum í heimsókn. Hann og bræður mínir gátu setið tímun- um saman og teflt og skoðað skák- ir. Þegar hann var sjötíu og fimm ára eignaðist hann skáktölvu, sem hann kallaði meinvættið. Eftir það sat hann Jöngum. stundum. og Jék á.. meinvættið. Stundum mátaði hann það svo glæsilega, að hann varð að láta stöðuna standa þar til ein- hver sem kunni gott að meta kom og leit á snilldina. Hann hafði líka mjög gaman af að spila og var góður spilamaður. Mest spilaði hann brids en einnig vist og fleiri spil. Það var alltaf gaman að koma á Sóló og spjalla við hann afa. Hann var einstaklega góður sögumaður og þreyttist aldrei á að segja okkur sögur af uppvexti sínum fyrir vest- an, á Klukkulandi í Dýrafirði. Hann sagði líka sögur af lífinu á sjónum, en það þekkti hann býsna vel. Hann var á sjó á sýnum yngri árum og þá á fiskiskipum, og svo eftir nokkuð langa dvöl í landi við ýmis störf réð hann sig til Landhejgisgæslunnar og var á varðskipinu Óðni um nokk- urra ára skeið. Þegar ég man 'fyrst eftir mér var hann hættur á sjón- um, en starfaði áfram hjá Gæsl- unni, fyrst sem vaktmaður á Ing- ólfsgarði og þá fengum við að skreppa um borð í þau varðskip sem voru í höfn í það og það skiptið. Síðustu árin var hann svo kaffi- hæðinni ásamt Finni og hans ijöl- skyldu. Elías og Guðrún bjuggu á neðri hæðinni, en svo var verslun Finns og skósmíðaverkstæðið á fyrstu hæð. Nokkru seinna varð ég einnig heimagangur þar eftir að Finnur kvæntist sinni elskulegu konu Helgu Stefánsdóttur frá Norðfirði. Hún hafði stundað nám í Húsmæðr- askólanum Ósk, og ílengdist á ísafírði eins og margar aðrar skóla- stúlkur. I verslun sinni vann Finnur oft- ast einn alla tíð þar til að þau fluttu suður til Reykjavíkur enda öll börn- in með sín heimili þar. Oft sagði ég við Helgu konu Finns að hann væri á rangri hillu, hann hefði átt að verða listamaður, svo vel teiknaði hann, málaði og skrifaði alveg skínandi skrautskrift. En að standa í búð frá morgni til kvölds er síst minna starf en hvað annað. Það var alltaf jafn indælt að skreppa til þeirra hjóna. Þau voru svo mikið góð heim að sækja, gestrisin og veittu vel. Við Helga vorum lengi saman í saumaklúbb, ásamt öðrum eldhressum ísfírskum konum. Það voru góðir tímar. Magnús, bróðir Finns, er látinn fyrir nokkrum árum, en fóstursyst- ir hans Sigríður er gift og býr í Reykjavík. Þau hjón Helga og Finn- ur áttu barnaláni að fagna. Börn þeirra eru: Elsa, vinnur hjá Pósti og síma, hennar maður er Örn Ing- ólfsson sem er stærðfræðingur, eiga þau tvo syni og eitt barnabarn. Magnús Elías, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna, á hann tvo syni og tvær dætur. Stefán heilsugæslulæknir í Reykjavík, kvæntur Einfríði Aðalsteinsdóttur og eiga þau ijóra syni. Hjá þeim hjónum bjó einnig El- ías, fósturfaðir Finns, eftir að hann var orðinn einn, var Helga honum eins góð og við mátti búast af slíkri konu og hann átti skilið. Einnig reyndist Helga manni sínum ein- staklega vel, þar til yfir lauk. Þá er komið að kveðjustund og þakka ég fyrir öll góðu gömlu árin, sérstaklega á ísafirði. Sendi Helgu vinkonu minni, börnum þeirra og öðru venslafólki innilegar samúðarkveðjur. J.B.I. Sumar manneskjur neitar hugur manns að kalla fram öðru vísi en iðandi af lífi, á þönum í dagsins önn. Gildir á einu þótt maður hafi séð slikt fólk eldast. „Þegar allt er komið í kring“ er það lífsorka þess sem upp úr stendur og minni manns geymir — annað er gleymt. Þannig muna margir Finn kaup- ka.ll, eins og hann sagði sjálfur, í Skemmunni sem Gæslan hafði að- setur sitt í. Já! Hann afi minn var góður maður, sem mun aldrei gleymast þeim er þekktu hann. Ég vil votta elsku ömmu og bömunum þeirra sex samúð mína og biðja Guð að blessa minninguna um afa minn á Sóló. Ingibjörg Hrefna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.