Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 67

Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991 67 mann Magnússon frá ísafirði: Á fannhvítum sloppi í búð sinni og sópaði að honum. Snöggur í hreyf- ingum sem tilsvörum, hressilegur og oftast samræðugóður — gat þó hvesst á stundum — grannur mað- ur og spengilegur alla tíð. Nokkuð fram eftir aldri upplifir hver kynslóð sjálfa sig sem ódauð- lega, eða að minnsta kosti að mannsævin sé svo löng að jafngildi ódauðleika. Þetta er hin dásamlega blekking æskuáranna. Ef undan er skilið fráfall jafnaldra, er ekkert jafn skeinuhætt þessari blekkingu og brottför þess fólks sem var í blóma lífsstarfs síns á manns eigin uppvaxtarárum. Á ísafirði æsku minnar voru búðir kaupmannanna Finns, Jónasar og Arngríms hluti af svo sjálfsögðum veruleika að þær hlutu alltaf að hafa verið — og yrðu alltaf til. Ilvert fráfall þess fólks sem setti svip á ísafjörð þessara ára etur upp væna sneið af blekkingunni ljúfu. Finnsbúð stóð við Hafnarstræti í hjarta ísafjarðar í þá tíð sem sölubúðin var enn bæði verslun og samkomustaður._ í hálfan fjórða áratug vöndu ísfirðingar komu sína í Finnsbúð beggja erinda, sumir hvatskeytlega með verald- legar þarfir sínar á hreinu, aðra vanhagaði meira um mannlegt samneyti, fóru sér hægar og mynd- uðu hóp eftirminnilegra fastagesta sem endurnýjaði sig í tímans rás ' að mannlífsins hætti. I búð sinni stóð Finnur í 33 ár, jafn teinréttur og kvikur í hreyfingum þegar hann lokaði dyrum Finnsbúðar í síðasta sinn árið 1975 eins og september- daginn 1942 að hann opnaði. Samt hafði auðvitað margt breyst og kannski var hvorki strætið né kaupmaðurinn jafn iðandi af lífi og fyrr, hvað sem sýndist á ytra borði. Finnur Magnússon fæddist á Flateyri við Önundarfjörð 5. októ- ber 1909, eldri sonur hjónanna Guðrúnar Guðmundsdóttur frá Hvilft í Önundarfirði og Magnúsar Guðmundssonar skósmiðs á Flat- eyri. Magnús, faðir Finns, lést er Finnur var á fimmta ári. Var drengurinn þá sendur um hríð til fósturs hjá frændum sínum að Hvilft en níu ára að aldri fluttist hann til ísafjarðar með móður sinni og fósturföður, Elíasi Kæmested Pálssyni skósmið, sem margir ís- firðingar minnast sem hins mesta ljúfmennis. Finnur hóf ungur versl- unarstörf hjá ýmsum kaupmönn- um á ísafirði, fyrst hjá Elíasi Páls- syni, þá Skúla í Bræðraborg en síðast og lengst, eða í tólf ár, í verslun Ólafs Kárasonar. Önnur tilfallandi störf stundaði Finnur sem ungur maður m.a. síldveiðar á Isafjarðardjúpi og frá Siglufirði á sumrum. Finnur fluttist búferlum til Reykjavíkur árið 1975 og vann þá á ný við verslunarstörf hjá öðr- um þau ár sem heilsan leyfði. Erf- iður hrörnunarsjúkdómur heijaði á Finn síðustu æviárin, dvaldi hann á hjúkrunardeild Hrafnistu þar sem hann lést áttunda þessa mán- aðar. Finnur var maður félagslyndur, listfengur náttúrunnandi og valdi sér félags- og tómstundastarf í samræmi við þá eðlisþætti. Hann sat um árabil í stjórn Skógrækt- arfélags ísafjarðar, var lengi form- aður Stangaveiðifélags ísafjarðar og hafði forgöngu um byggingu veiðihúss þess félags í hinum fagra Langadal við Djúp. Finnur var oinn af stofnendum íþróttafélagsins Vestra á ísafirði og teiknaði merki félagsins, einnig starfaði hann fjölda ára í Frímúrarareglunni. Hann var drátthagur og eftirsóttur skrautskrifari. Mörg eru þau ritin og heiðursskjöl samborgara Finns á Isafirði sem varðveita afburða rithönd hans og listræn tilþrif í »kalligrafíunni.“ Víst er um það að fábreytni í atvinnulífi og rýr efni mörkuðu fólki af Finns kyn- slóð starf og lífsstefnu miklu frem- ur en gáfur, hæfileikar og áhuga- mál. Hefðu þau tækifæri boðist þá sem komið hafa í hlut okkar kynslóðar, er ekki ólíklegt að Finn- ur hefði haslað sér völl á sviði lista Petrína Magnús- dóttir - Kveðjuorð Fædd 21. apríl 1911 Dáin 20. mars 1991 og _átt þar fullt erindi. Óhætt er að segja að Finnur Magnússon hafi verið hamingju- maður í einkalífi. Hann kvæntist Helgu Stefánsdóttur frá Neskaup- stað, rausnarkonu og mannasætti og varð af henni meiri en hann sjálfur. Lifir hún mann sinn. Þeirra hjónaband var eitt margra milli ísaijarðar og ljarlægra landshiuta á þessum árum sem rekja má til hinnarmerku stofnunar Húsmæðr- askólans Óskar á ísafirði. Finni og Helgu varð þriggja barna auð- ið. Þau eru: Elsa, ritari hjá Pósti og síma í Reykjavík, gift Erni Arn- ari framkv.stj., Magnús Elías, við- skiptafræðingur og framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtaka íslands, áður kvæntur Jarþrúði Hafsteins-. dóttur, og Stefán, læknir í Reykja- vík, kvæntur Einfríði Þ. Áð- alsteinsdóttur. Barnabörn Finns og Heljgu eru tíu. Eg tók vinskap við Finn í arf, ef svo má að orði komast, eftir föður minn Þóri Bjarnason sér- leyfishafa á ísafirði en þeir Finnur voru æskuvinir. Þeirra vinátta ent- ist meðan báðir lifðu þótt stundum slægi í brýnu og í vinskapnum hrikti, þvi báðir voru skapmiklir. Árið 1935 lögðu þeir félagar við þriðja mann, Magnús bróður Finns, upp frá ísafirði á fornbíl einum af Fordgerð, nánar tiltekið því fræga T-módeli frá árinu 1926. Var ferð- inni heitið til Neskaupstaðar til fundar við Helgu sem þá var orðin unnusta Finns. Þótti ferð þessi þó nokkuð söguleg á sinni tíð. Ekki fyrir þá sök að þeir skyldu komast á áfangastað og til baka, sem þó var afrek í sjálfu sér, heldur vegna þess að þeir klykktu út með því að bijótast yfir vegleysur Stein- grímsijarðarheiðar á bakaleiðinni og verða þannig fyrstir manna á bifreið að ísafjarðardjúpi. Þessa ferð riijaði Finnur upp nær hálfri öld síðar í lipurlega skrifaðri grein í ársrit Útivistar 1982. Af þessari frásögn og mörgum öðrum eftir- minnilegum þeirra félaga lærðist manni, að þriðji og fjórði áratugur aldarinnar var spennandi tími áræðnum ungum mönnum og eng- in ástæða að vorkenna þeim að hafa lifað sviplausari tilveru en okkar nema að síður væri, hvað sem allri tæknivæðingú líður. Finnur var af þeirri kynslóð sem félagssagnfræðingar dagsins í dag segja okkur að fengið hafi lítinn tíma til að vera börn, í nútíma skilningi, og í mörgum tilvikum kynnst vinnuhörku snemma. Má satt vera, og líka það, að margur hafi byggt um sig þykka skel og hijúfa af þessu sökum. Ekki væri þó síður athugunarefni, hvort þessi kynslóð hafi haft annars konar hugmyndir um tryggð og vináttu en títt er í dag. Þegar á bjátaði í minni fjölskyldu teygði Finnur Magnússon sig ótrúlega langt til hjálpar og var óspar á sjálfan sig. Meðal annars tók hann um tveggja ára skeið á sínar herðar, ásamt þeirri góðu konu Guðbjörgu Her- mannsdóttur, að sjá um lítið fyrir- tæki móður minnar á ísafirði í hennar veikindum og eftir að hún féll frá. Aldrei varð maður var við að þetta hafi kostað hann sérstaka fyrirhöfn, og þaðan af síður, að við systkinin ættum honum skuld að gjalda. Fyrir þetta, ásamt þvi að hafa átt athvarf hjá honum og Helgu í blíðu og stríðu — gleði og sorg — frá barnæsku, þakka ég Finni nú að leiðarlokum. Blessuð sé minning Finns Magnússonar. Þórir Þórisson, tónlistarkennari -------M-t------ Leiðrétting í minningargrein um Garðar Benediktsson eftir Sig. Þórðar- son i blaðinu á þriðjudaginn, féll niður nafn systur hans Guðjónu. Þar sem minnst er á barnabörn hans, fimm, átti að standa barna- barnabörn. Beðist er velvirðingar á mistökunum. -ÍIiísJ ova nncr: -i£v nna uJbuóí í nótt gekk ég hjá húsi og leitaði eftir svip þeirrar sem hafði lagt hjarta sitt í að koma því upp, svo ung, af hugrekki sem mér er fram- andi. En svipur þess hafði bliknað frá í gær. Þó leitaði ég grannt eft- ir yfirbragðinu sem það hafði haft nokkrum stundum fyrr, þegar ég vissi af henni fyrir innan. Hvernig má það vera að fölvi komi svo skjótt í garð svo litríkan sem ilmar af blóma sínum? Er hægt að þekkja þessa hausttíð, búa sig undir hana, eða kemur hún alltaf svona köld og fyrirvaralaust? Átti ég að vita að vinur var að fara? Hvernig átti ég að vita það? Átti ég _að vita það vegna aldurs vinarins? Átti ég að vita það þegar hún kvaddi heimili sitt? Átti ég að vita það þegar ég kyssti enni henn- ar, svo óvenjulega þvalt? Átti ég að skilja það í handtakinu? Kannski var það í því sem ég villtist. Hand- takið hennar. Svo traust, svo öruggt. Svo sefandi ráðvilltum. Eg gat ekki skilið að hún átti til að dansa í einskærri kátínu þess sem elskar lífið og mannfólkið, enda þótt líkami hennar væri örþreyttur. Og hjarta hennar ljómaði af Ijöri en reyndist svo við það að bresta. Og orðin hennar báru þess ekki merki að við rót þeirra leyndist hugur sem þráði að hvílast en við- hélt skýrleika og skerpu og talaði tungu æskunni snarpari. Eg trúði hendingum styrkleikans ekki veik- leikans og kannski var það þess vegna sem mér ýfirsást hvað vinur minn var orðinn þreyttur. Og hvað hefur gerst? Ilvert fór vinurinn? Og hvað er eftir hér? Er það minningin ein sem eftir er? Tekur dauðinn allt annað og hylur það með tjöldum sínum? Nei, svo mikið er vald hans ekki og nær ekki að slökkva gleði Guðs yfir kviknun lífs. Það sem vinurinn var, er hann enn. Ráð hennar, hugsun hennar, mannelska hennar, svipur hennar er orðinn til lífs í komandi kynslóðum. Það er meira en minn- ing. Það er lífið sjálft. _ Gunnbjörg Oladóttir Petrína Magnúsdóttir talsíma- vorður í Reykjavík lést 20. mars sl. Petrína fæddist 21. apríl 1911, að Hólum I Staðardal við Stein- grímsíjörð. Foreldrar hennar voru Kristín Árnadóttir og Magnús Steingrímsson sem bjuggu að Hól- um þar sem Petrína ólst upp í stór- um systkinahópi. Skólaganga Petrínu var að loknu námi hjá heimakennara fyrst eins vetrar nám í alþýðuskólanum á Hvítárbakka og síðan nám á Hús- mæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði. Petrína sagði mér frá því að ekkert hefði henni þótt skemmti- legra en námið og vistin I skólan- um. „Allt sem er skemmtilegt er stutt“ var haft eftir Petrínu og átti hún þá við námið. Vegna veikinda varð ekki um frekari skólagöngu að ræða hjá henni og settu veikind- in mikið mark á lífsgöngu hennar. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast Petrínu á námsárum mínum í Reykjavík. Petrína var vinkona mín og velgjörðarmanneskja, en kynni okkar tengdust vináttu . okkar Magnúsar Haraldssonar systurson- ar hennar sem bjó hjá henni á Birki- mel 8. Heimili hennar stóð mér jafnan opið og nutum við Magnús þess 'ii ög þegar við sátum við lestur að geta litið við I já Petrinu og not- ið andlegrar og líl amlegrar næring- ir hjá hene' og fengið uppörvun ig livatningu við námið. Allt í fari hen.iar var fágað og vandað og bar heimili hennar þess augljósan vott. Við Petrína áttum sameiginleg áhugamál og ræddum um þjóðmál, menn og margvísleg málefni þegar stundir gáfust. Áhugi hennar á bókmenntum og ýmsum fræðum var mikill og leyndi sér ekki að þar fór kona sem hefði notið sín vel við kennslu eða fræði- störf. Menntun í víðasta skilningi var að mati Petrínu lykill að lífs- göngunni og hvatti hún hina yngri mjög til þess að leita menntunar, ekki einungis í skólum heldur með lestri og fræðslu hjá þeim sem í skóla lífsins hafa numið. Petrína starfaði sem talsímavörð- ur í yfir 30 ár, fyrst á Hólmavík og síðar í Reykjavík og naut hún starfsins. Á kveðjustundu minnist ég Petr- ínu með þakklæti fyrir vináttu. Blessuð sé minning hennar. Sturla Böðvarsson, Stykkishólmi. TIL B 0 fl Á R $ I NS VEGNA HAGSTÆÐRAINNKAUPA GETUM VIÐ BOÐIÐ UM 47.000,- KR. VERÐLÆKKUN Rubin Ijós eik, 160 x 200 cm, með náttborðum og dýnum (spring- eða latexdýnur). Verð kr. 102.457,- stgr. og lánaverð kr. 109.457,- Áður kr. 146.355,- stgr. og lánaverð kr. 156.529,- _______________ Dænti um greiðslumáta:___________________________ l)Visa/Euro raðgreiðslur í _ 2) Munalán í 30 mánuði. 11 mánuði, ca. 10.888,- Útborgun 27.364,-, afborgun hvern mánuð. á mánuði ca. 3.500,- Umboðsmcnn: Austurland: Hóhnar hf., Reyðarfirði. Norðurland: Vörubær, Akureyri. Vestfirðir: Hiísgagnaloftið, ísafirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.