Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 71
,oo .MORGUNBLABIÐ. FIMMTiUDAGUfl 1«;/ABRÍIj«1991
nv7i
Þorrakórinn ásamt söngstjóranum Halldóri Þórðarsyni.
Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson
MANNFAGNAÐUR
Þorrakór Dalamanna í
\^mp[
1 ; íuhís "" ÉP njj!
; ð
heimsókn á Reykhólum
Þorrakórinn kom hingað í heim-
sókn laugardagskvöldið 13.
þ.m., en hann samanstendur að
mestu leyti af bændafólki úr
Hvammssveit, Fellsströnd, Skarð-
strönd og Saurbæjarsveit. Þessi kór
skiptist reyndar í þrjá kóra, þ.e.
karlakór, kvennakór og samkór. í
kórnum eru um 30 manns og er
söngstjóri Halldór Þórðarson bóndi
á Breiðabólsstað. Hann er líka
kirkjuorganisti og svo kennir hann
við tónlistarskólann í Búðardal og
á Laugum.
Kórinn byijaði á því að syngja
fyrir gamla fólkið á Barmahlíð og
kom svo upp á Mjólkurvelli og
skemmti fólki þar í rúma tvo tíma.
Kórarnir sungu, menn sögðu brand-
ara og Ragnar Ingi Aðalsteinsson
skáld skemmti, meðal annars með
því að syngja mansöng við rímu sem
hann er að yrkja út frá Bósasögu
en við þann náunga eru miklir
kvennamenn kenndir. Einnig kom
Ragnar með fyrripart og bað fólk
að botna. Besti botninn kom frá
fjórum konum í Reykhólasveit og
fengu þær verðlaun fyrir. Halldór
Þórðarson lék undir. Skemmtunin
var vel sótt og stóð fram undir
morgun. Formaður Þorrakórsins er
Ester Kristjánsdóttir, Skógum á
Fellsströnd.
Eftir söngskemmtunina byijaði
harmonikkuhljómsveitin Nikkólína
að leika fyrir dansi og er hún skip-
uð fólki víðsvegar úr Dölum. Ballið
stóð fram undir morgun. Við þessa
granna okkar eru mörg tengsl en
Gilsfjörður hamlar oft þau skipti,
einkum um vetrartímann. Við þökk-
um þessu ágæta fólki fyrir komuna
og góða menningarlega skemmtun.
- Sveinn
Harmonikuhljómsveitin Nikkólína.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson að syngja mansöng að Bósarímu.
HÁR
F ergie farg-
ar rauðu
lokkunum
Fergie, hertogaynja af Jórvík, kom
alþýðu manna í opna skjöldu
fyrir skömmu er hún mætti til opin-
berra embættisverka stuttklippt.
Síðu eldrauðu lokkamir voru horfnir
og eftir var meinleysisleg kjálkasíð
klipping. Þar með hefur Fergie held-
ur en ekki tekið stakkaskiptum og
rétt einu sinni rataðist henni á eitt-
hvað sem gulltryggði að hún yrði
böðuð í sviðsljósinu.
í viðtölum bæði við Fergie og Andr-
és prins í gegn um tíðina hefur kom-
ið fram að það var fyrst og fremst
dragsíða rauða hárið sem vakti at-
hygli hans á henni og í sömu við-
tölum og öðrum, en viðtölin eru orð-
in mörg, hefur Fergie meira að segja
viðurkennt að hún hafi einungis hald-
ið síðu lokkunum til að þóknast Andr-
ési. Enda sagði hún þegar hún kom
fyrst fram með stutta hárið, „ætli
eiginmaður minn drepi mig ekki?“.
Þetta var auðvitað grín hjá hertoga-
ynjunni, en að sönnu vissu Andrés
ekkert um uppátækið og ekki hafa
viðbrögð hans við breytingunni hvis-
ast út enn sem komið er.
Hárgreiðslusérfræðingur Fergie,
Nicky Clarke, hefur hins vegar látið
eftir sér hafa að hin nýja Fergie sé
allt önnur og glæsilegri og ekki spilli
að stutt hár sé auðveldara í meðför-
um heldur. en síðir lokkar.
Hann er þaó góóur í sinn
á Hard Rock aó...
Velkomin á Hard Rock Cafe,
sími 689888
MDHDIU ARMBAHDID SEM REYHST HEFUR
FRÁDJERLEGA VEL
ÞAÐ ER STAÐREYND
- ÞAU VIRKA
Þúsundir Islendinga nota Mondial armbandið daglega
og eykst fjöldi þeirra stöðugt.
Virkni MONDIAL ormbandsins felst í pólunum, sem eru hluðnir 6 millivultu
spennu, ug tolið er að hafi óhrif ú plús- ug minusurku líkamuns í útt til
jafnvægis ug eykur þannig vellíðan.
Hollensk gæði og frábært verð.
Mondial armbandið fæst í 5 stærðum
XS—13—14 cm ummál
S-14-16 cm ummál
AA —17—18 cm ummál
L-19-20 cm ummál
XK-21-22 cm ummál
Verð:
Silfurhúðað..........................kr. 2.990,-
Silfurhúðað með gullhúðuðum
kúlum.............................kr. 2.990,-
Húðað með 18k gullhúð..............kr. 3.990,-
Ánægðir viðskipfavinir hafa eftirfarandi um Mondial að segja:
Ásta Benný Hjaltadóttir, verslunarmaður:
„Áður en ég fékk Mondial armbandið hafði ég þjáðst
af migreni og svo slæmum sjóntruflunum, að stundum
sá ég ekki nema helminginn af skifunni, þegar ég leit
á klukkuna. Fyrstu dagana, sem ég gekk með armband-
ið sýndi likaminn sterk viðbrögð við breytingunni, en
eftir 7-10 daga notkun var mígrenið horfið og nána,
tæpu ári síðar, get ég hrósað happi yfir því að hafa
ekki fengið mígrenikast síðan.“
Brynjólfur Snorrason, nuddari og heilari:
„Ég hef notað Mondial armbandið í nær eitt ár og það
hefur reynst mér mjög vel. Armböndin vinna þannig,
að þau hjálpa likamanum til að jafna orkusviðin. Í
nútíma þjáðfélagi, sem einkennist af mikilli spennu og
streitu, er því mikil þörf fyrir þau.“
PERSONULEG ÞJONUSTA OG FAGLEG RÁÐGJÖF.
VERSLUNIANDA
NÝRRAR
ALDAR
Laugavegi
símar (91) 623336 -
i
M9
101 Reykjavík
626265
Póstkröfuþjónusta - greiðslukortaþjónusta
Pantanasímar: (91) 623336 og 626265