Morgunblaðið - 18.04.1991, Page 75
vELvAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Vond ráðgjöf á Rás 2
Einhver hefur tekið að sér að leysa
vandamál hlustenda á Rás 2. Von-
andi eru lausnirnar sem gefnar voru
mánudaginn 8. apríi ekki dæmigerð-
ar fyrir hvernig ríkjandi hugsunar-
háttur rásarinnar er um hvernig
skal leysa samskiptavandamál fólks.
Fyrsta dæmið sem ég hlustaði á
var stúlka sem vissi ekki hvort hún
ætti að sofa hjá eða ekki. Svarið var
í stuttu máli: Ekki hlusta á aðra —
gerðu eins og þig langar — þá er allt
í lagi (en mundu getnaðarvarnirnar).
Sama svar með viðbót var til konu
sem átti í útistöðum við tengdamóð-
ur sína: Sýndu klærnar og fáðu helst
manninn þinn með og segðu henni
til syndanna.
Má spyija: Hver væri munurinn
á hegðun aðilanna tveggja ef svarið
sem gefið var, yrði framkvæmt?
Nákvæmlega enginn. Ekkert vanda-
mál í samskiptum mannanna leysast
við það eitt að haga sér eins leiðin-
lega og andstæðingurinn. Með öðr-
um orðum, vandamálalausnarinn á
Rás 2 leysir engin vandamál með
svör eins og þau fyrir ofan. Eina
afleiðingin er sú að málin flækjast
meira. Þetta er því miður mjög al-
gengur hugsunarháttur í dag, en
hlífið okkur að minnsta kosta við
því að fá þessu útvarpað inn á hvert
heimili um land allt. Ekki örva fólk
til að haga sér eins og skepnur.
Þetta snýst ekki um tilveru hinna
hæfustu. Best væri að láta einhvern
annan taka við þessum þætti sem
hefði svolitla hugmynd um siðfræði
og eðli mannsins.
Það er alrangt að lauslæti hjálpi
stúlku að halda í vin sinn. Ef kynlíf
Kvernialistmn - rauð-
asta afturhaldsaflið
Þegar skoðanir Kvennalista á
þjóðmálum komu í ljós við fyrstu
setu þeirra á Alþingi þá nefndi ég
þær Hjörleifssinna, en seinna við
setu núverandi ríkisstjórnar, Stein-
gríms J. Sigfússonarsinna.
Að mínu mati er Kvennalisti rauð-
asta afturhaldsaflið í atvinnumálum,
skattamálum og varnarmálum og
þar að auki er kvenréttindabarátta
Kvennalista ekki á jafnréttisgrund-
veili við karla eins og hjá skoðana-
systrum þeirra, ' Alþýðubandalags-
konum.
Konur, börn og gamla fólkið
Slagorð Kvennalista eru: Konur,
börn og gamalmenni. Gömlu rauð-
sokkurnar og aðrar rauðar kerlur
börðust fyrir fijálsum fóstureyðing-
um, fijálsum ástum og frjálsu kyn-
lífi án allrar ábyrgðar. Því að konan
átti sig sjálf og aðeins þannig voru
kvenréttindin til jafns við karlrétt-
indin.
Slík kvennaævintýri hafa skaðað
ómælt aðhaldsuppeldi barna og
unglinga og sljóvgað með ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum siðferðisvitund
þjóðarinnar. Að mínu mati er tilvera
Kvennalista sprottin úr þessum jarð-
vegi, enda var eitt af forgangsverk-
efnum þeirra eftir að þær náðu kjöri
til setu á Alþingi að fá í gegn fijáls-
ar fóstureyðingar. Þegar fóstureyð-
ingalögin voru samþykkt á Alþingi
þá voru fijálsar fóstureyðingar
nefndar félagslegar fóstureyðingar,
sem þýðir í raun að geðþóttaákvörð-
un konunnar ræður, hvort að heil-
brigð kona með heilbrigðan getnað
lætur eyða ósjálfbjarga óbornu lífi í
móðurkviði, eða ekki. Síðustu pró-
sentutölur um fóstureyðingar eru,
að félagslegar fóstureyðingar eru
nú 93% en af læknisfræðilegum
ástæðum 7%.
Hvað segði gamla fólkið ef það
vissi að félagslegar fóstureyðingar
eru greiddar af ríkinu og þær pen-
ingagreíðslur sem m.a. eiga að renna
til eldra og lasburða fólks minnka
sem því nemur til að deyða óborið líf?
Settir í meðferð
Þegar Kvennalisti fékk þá tillögu
samþykkta á Alþingi að skipuð yrði
nefnd vegna nauðgunarmála, þá
áttu m.a. sæti í nefndinni frú Guð-
rún Agnarsdóttir, Kvennalista og
prófessor Jónatan Þórmundsson.
Mér eru minnisstæð orð Jónatans
er hann sagði í umræðuþætti á Stöð
1 að loknum nefndarstörfum að það
-liafi vakið undrun sumra í nefndinni
sú afstaða Kvennalista að þær vildu
ekki að nauðgarar væru dæmdir til
fangavistar heldur að þeir væru sett-
ir í meðferð. _„Þá vitum við það.“
Frú Ásdís Erlingsdóttir
á að vera það sem á að tryggja sam-
band tveggja unglinga, þá er sam-
bandið nú þegar búið að vera. Strák-
ur sem setur slíkt sem skilyrði, mun
fljótt leiðast þegar hann hefur feng-
ið sitt og leita eftir nýjum ævintýr-
um. Stúlka sem hefur háa siðferðis-
kennd, er alltaf eftirsóknarverðara,
það skiptir engu hvað strákurinn
segir. Tvöfalda siðgæðið sem flestir
strákar hafa, verður augljóst ef
. spurt er hvort þeir myndu leyfa syst-
ur sinni, móður, eiginkonu eða dótt-
ur að haga sér eins og þeir vilja að
stúlkurnar geri. Aðeins fólk með
mjög iágan standard í siðferðismál-
um svaraði játandi. Það sem er ekki
virt fyrir hjónabandið, mun í flestum
tilfellum ekki heldur vera virt á eft-
ir. Það er rödd hins innra manns sem
kemur í ljós þegar lauslæti er for-
dæmt. Þetta varðar karlmenn sem
konur.
Almennt getur maður staðhæft
að ef fylgt er slíkum hugsunarhætti
eins og Rás 2 gefur í skyn — gerðu
það sem þig langar til og hlustaðu
ekki á aðra, verður árangurinn mjög
óhamingjusamt fólk.
Þessi hugsunarháttur hefur
þekkst frá fyrstu byijun mannkyns,
og fær sína umfjöllun hjá ýmsum
trúarbrögðum í sögunni um synda-
fall mannsins. Það hefur síðan eyði-
lagt heilu menningarsamfélögin út
um allan heim af því að það eyðilegg-
ur samstarfsmöguleika mannanna.
Það er betur þekkt sem hrein sjálfs-
elska.
■ Halvard K. Iversen
Grátt DBS reið-
hjól í óskilum
Fyrir nokkrum dögum var skilið
eftir grátt DBS Classic 26 tommu
kvenreiðhjól í portinu á bak við
Morgunblaðshúsið. Þetta er gírahjól
með brotinni framlugt og beigluðu
afturbretti.
Víkveiji skrifar
Ymsum kann að finnast framboð
öfgasinnaðra jafnaðarmanna
fyndin uppákoma, en er þetta ekki
skrumskæling á lýðræði, að menn
geti farið í framboð og ætlazt til
að fá atkvæði með því að segja ein-
tóma aulabrandara. Kannski má
segja að þetta hafi verið svolítið
broslegt fyrr á árum, þegar
O-flokkurinn bauð fram á sínum
tíma, en þétta framboð nú er aðeins
ódýr eftirlíking á gömlum brandara
að mati Víkveija.
Segja má að þetta geri kannski
ekkert til. Þeir, sem vilji kasta at-
kvæði sínu á glæ, eigi ekki skilið
annað en fá að gera slíkt, en þetta
uppátæki breytir ýmsu og gerir það
i að verkum, að menn geta kannski
ekki nýtt sér kosningatölur sem
skyldi. Hér á Víkveiji við kosninga-
| forritið Þjóðráð, sem Friðrik Skúla-
son hannaði fyrir kosningarnar
1987. Tölvuforrit þetta er gert fyr-
ir 10 framboð og nú þegar hið 11.
bætist við, T-listinn í Reykjanesi,
riðlast allt forritið og verður ekki
nýtilegt með sama hætti og áður.
Við bætist og að framboðsfrestur
hefur verið styttur verulega, þannig
að breytingar forritsins taka of
langan tíma, þegar fjölga þarf þeim
frambdðum, sem það heldur utan
um. Því getur fólk ekki nýtt sér það
forrit, sem það keypti fyrir síðustu
kosningar, svo að það verði kórrétt
- eins og það var við kosningarnar
1987.
Þá fannst Víkveija einnig heldur
ömurlegt að horfa upp á framboðs-
fund í sjónvarpinu í fyrrakvöld,
þar sem frambjóðendur flokkanna
sátu hljóðir og svipbrigðalausir á
meðan T-listamaðurinn reytti af sér
sína vandræðalegu brandara, en um
leið og hann hafði lokið máli sínu,
hófst umræðan að nýju, rétt eins
og hinn „öfgasinnaði" hefði aldrei
talað. Víkveija finnst, að unnt sé
að gera kröfur til frambjóðenda,
að þeir hafi eitthvað fram að færa
annað en aulafyndni.
XXX
Iþáttum Víkverja hefur áður verið
fjallað um svokallaðar „stofn-
anamállýskur“, enda tilefnið oft
verið ærið. Nú hefur fjármálaráðu-
neytið bætt einni fjólunni í safnið.
í frétt, sem blaðamanni barst þaðan
á dögunum og fjallar um yfirdrátt
ríkissjóðs í Seðlabankanum, skýtur
upp kollinum orðið versnun. Þannig
er á einum stað talað um að versn-
un stöðunnar gagnvart Seðlabank-
anum sé minni en hægt sé að skýra
með verri stöðu ríkisvíxla og spari-
skírteina o.s.frv. Það undarlega við
fréttina er, að sá sem hana ritaði
kann greinilega að orða þetta á
annan hátt, en kýs að grípa til orð-
skrípisins inn á milli, líklega til að
forðast endurtekningar. Þannig
segir að bráðabirgðatölur bendi til
að staða ríkissjóðs í Seðlabankanum
hafi versnað um 8,7 milljarða króna
til loka marz. í næstu setningu er
hins vegar talað um að versnunin
á viðskiptareikningum hafi numið
8,9 milljörðum. Einu sinni létu ráðu-
neytismenn sér nú bara nægja að
tala um verri stöðu á reikningum.
Hvenær megum við búast við frétt
um bötnun?
Herrasandalar
Verð 1.995
Stærðir: 40-46.
Litir: Vínrauður, dökkgrár,
ljósgrár.
Efni: Leður.
Sóli: Léttur og lipur.
Ath.:
Mikið úrval af öðrum gerðum,
sem eru með lokuðum hæl.
5% staðgreiðsluafsláttur.
Póstsendum
Domus Medica, s. 18519. Toppskórinn,
Kringlunni, s. 689212. Veltusundi, s. 21212.
Metsölublad á hverjumdegi!
GOODfYEAR
PHILIPS upptökuvél
og myndband
• Vélina má tengja beint við sjónvarp
• Vegur aðeins 1,3 kg.
• Dagsetning og klukka sjást við
upptöku
• Sjálfvirkur fókus- og birtustillir
• Mjög Ijósnæm 10 lux.
Ljósop 1,2
ATH.
Með tösku og öllum
fylgihlutum
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SlMI 691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
■ísamuHgtím>
HEKLA
LAUGAVEG1174
* 695560 & 674363
GOOD^YEAR
60 ÁR
Á ÍSLANDI
SPARIÐ BENSÍN
AKIÐ Á