Morgunblaðið - 18.04.1991, Qupperneq 79
tf'fif JIH'IA .81 fllJO
MORGUNBLAÐIÐ
em
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 18. APRIL 1991
79
HANDKNATTLEIKUR
Forráðamenn
Grosswallstadt
ræða við Sigurd
- koma til landsins um helgina til samningaviðræðna
að vera á hreinu ef til samninga
kemur að ég verði laus í undirbún-
ing landsliðsins fyrir B-keppnina í
Austurríki næsta ár,“ sagði Sigurð-
ur.
Hann sagði að það væri freist-
andi að fá tækifæri til að leika í
Þýskalandi. „Þýskur handbolti hef-
ur verið einn sá besti í heiminum
og félagsliðin þar eru góð,“ sagði
Sigurður í samtali við Morgunbiaðið
í gærkvöldi.
„ÞAÐ yrði gaman að fá tækifæri til að leika með Grosswall-
stadt. Það hefur alltaf blundað I mér að fá að kynnast handbolt-
anum erlendis," sagði Sigurður Bjarnason, landsliðsmaður og
leikmaður Stjörnunnar. Tveir af forráðamönnum þýska liðsins
Grosswallstadt koma til landsins á laugardaginn til að ræða við
Sigurð og forráðamenn Stjörnunnar um væntanlegan samning.
Sigurður sagðist fyrst hafa frétt
af áhuga Grosswallstadt þegar
hann lék. með landsliðinu í Þýska-
landi í desember. Þar hafi iiðið ver-
ið með „njósnara". „Þeir hafa síðan
haft samband með jöfnu millibili
og nú er svo komið að þeir mæta
hingað á laugardaginn til viðræðna.
Ég á eftir að sjá hvað félagið kem-
ur til með bjóða uppá. Það er þó
alveg öruggt að íslenska landsliðið
hefur forgang hjá mér. Það verður
Morgunblaðið/KGA
Beðið eftir dcmurunum í Hafnarfirði í gær - og Þjóðveijunum frá Grosswall-
stadt, sem Sigurður ræðir við um helgina.
Steinar
hættir
Steinar Birgisson, sem
leikur með Haukum,
hefur ákveðið að leggja
handboltaskóna á hilluna
eftir þetta kepþnistímbil.
„Ég held að það sé kominn
tími til að hætta og fara
að snúa sér að öðru,“ sagði
Steinar. Hann hefur áður
leikið með Víkingum og
norsku liðunum Runar og
Kristjansand. Hann á að
baki fjölmarga landsleiki.
Einar aftur
í Stjörnuna?
Einar Einarsson, fyrrum leik-
maður Stjörnunnar sem nú
leikur með austurríska liðinu Vog-
elpumpen, verður að öllum líkind-
um með Stjörnunni næsta vetur.
Austurríska liðið liefur ráðið til
sín nýjan ungverskan þjálfara og
er talið að hann komi með ung-
verskan leikmann með sér til
Austurríkis. Ef af því verður kem-
ur Einar heim og leikur með
Stjörnunni. í Austurríki mega lið-
in aðeins nota einn útlending.
Einar.
Lerfur missti
stjórná
skapi sínu
Leifur Dagfinnsson, lands-
liðsmarkvörður í handknatt-
leik úr KR, var í sviðsljósinu í
Laugardalshöllinni í gærkvöldi,
■■■■■■ þar sem KR-ing-
Kjartan ar máttu þola
£ór enn eitt tapið -
^gnamsan nú fyrir Frarr)i
20:24. Leifur
missti gjörsamlega stjórn á
skapi sínu þegar hann fékk að
sjá rauða spjaldið er staðan var
9:11 fyrir Fi-am.
Leifur byijaði á því að mót-
mæla dómi þegar Sigurði
Sveinssyni var vikið af leikvelli
í tvær mín. Hann mótmælti með
því að spyrna knettinum í áhorf-
endabekkina. Dómarar vísuðu
honum þá af leikvelli í tvær
mín. Það þoldi hann ekki og
missti stjórn á skapi sínu -
hugðist ráðast á dómarann og
það reyndi hann í þrígang.
Þurfti hálft KR-liðið til að halda
Leifi frá dómaranum og varð
fimm mín. töf á leiknum á með-
an verið var að koma honum
burtu. Leifur yfirgaf salinn með
því að spyrna upp hurð að bún-
ingsklefum.
Þegar leikurinn hófst á ný var
allur vindur úr leikmönnum
KR-liðsins. Framarar gengu á
lagið og náðu sjö marka for-
skoti, 21:14. Eftir það gáfu þeir
eftir, enda sigur þeirra í öruggri
höfn.
Framarar eru efstir í neðri
hluta 1. deildar, ásamt Gróttu-
mönnum, en fallið blasir við
KR-ingum.
Létt hiá Valsmönnum
Æfingalitlir FH-ingar veittu
Valsmönnum litla sem enga
keppni að Hlíðarenda, þar sem
Valsmenn unnu auðveldan sigur,
■■■!■■ 33:22. Það var að-
SigmundurÓ. eins í byijun leiksins
Steinarsson að FH-ingar náðu
skrífar aú vejta mótspyrnu,
eða á meðan lykil-
menn FH höfðu úthald.
Þegar staðan var 12:12 sprungu
FH-ingar og Valsmenn komust yfir,
17:13, fyrir leikhlé. Eftir aðeins tíu
mín. leik í seinni hálfleik voru Vals-
menn búnir að ná tíu marka for-
skoti, 26:16. Eftir það kom losara-
bragur á leikinn. Leikmenn FH
gerðu mörg slæm mistök í sókn og
átti Einar Þorvarðarsson oft auð-
velt með að veija laus skot þeirra,
en FH-ingar skutu nokkrum sinnum
beint á hann. „Þetta eru staðsetn-
ingarnar,“ sagði Einar við félaga
sína og brosti.
, Brynjar Harðarson, Valdimar
Grímsson og Jakob Sigurðsson voru
sprækastu menn Valsmanna, sem
hefðu eflaust viljað fá meiri mót-
spyrnu en FH-ingar veittu þeim.
„Við höfum ekki æft af fullum
krafti að undanförnu, heldur notað
æfingarnar meira til að leika okk-
ur. Mikið hefur verið um meiðsli
hjá okkur, auk þess sem við höfum
ekki að neinu að keppa," sagði
Guðjón Árnason, fyrirliði FH.
Axel hetja Stjömunnar
Axel Björnsson var hetja Stjörn-
unnar er hann skoraði sigur-
mark liðsins, 24:25, þegar 30 sek.
voru eftir gegn grönnum sínum í
■■■■■■I Haukum í íþrótta-
ValurB. húsinu við Strand-
Jónatansson götu. Haukar fengu
skrifar tækifæri til að jafna
leikinn á síðustu
sekúndunum er Sigutjón Sigurðs-
son komst innúr úr hægra hominu,
en Ingvar Ragnarsson varði meist-
aralega.
Leikurinn var mjög jafn og
spennandi allan tímann. Haukar
voru oftar með frumkvæðið og náðu
mest þriggja marka forskoti, 16:13.
Mikil spenna og taugaveiklun var
í lokin og á síðustu mínútunni fengu
Hilmar og Sigurður Bjarnason báð-
ir rauða spjaldið fyrir þrjár bottv-
ísanir og léku Garðbæingar því
aðeins með fjóra útileikmenn
síðustu sekúndurnar. Haukar náðu
ekki að færa sér liðsmuninn í nyt.
En jafntefli hefði verið sanngjörn
úrslit.
Axel og Magnús Sigurðsson voru
bestu leikmenn Stjörnunnar. Haf-
steinn Bragason komst einnig vel
frá sínu og eins Ingvar í markinu.
Sigurður Bjarnason var í strangri
gæslu allan leikinn. Hjá Haukum
var Baumruk í sérflokki eins og svo
oft áður. Jón Örn og Magnús Árna-
son, markvörður, léku einnig vel.
Leikurinn hófst ekki á tilsettum
tíma þar sem dómarar mættu ekki.
Það tók 40 mínútur að útvega dóm-
araa. Þessi framkoma HSÍ er ekki
til sóma og á ekki að geta gerst.
Morgunblaðið/KGA
ión Kristjánsson reynir að komast í gegnum FH-vörnina, en Guðjón Árna-
son, fyrirliði Hafnfírðinga, er greinilega ekki á því að hleypa honum í gegn.
Valsmenn komust þó yfirleitt leiðar sinnar.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Bo velur í Englandsferðina
Bo Johansson, landsliðsþjálf-
ari, hefur valið landsliðið sem
leikur vináttuleiki gegn b-liði
Englands 27. apríl og gegn Wales
1. maí. Hópurinn er skipaður eft-
irtöldum leikmönnum.
Bjarni Sigurðsson, Val, Ólafur
Gottskálsson, KR, Atli Eðvalds-
son, KR, Sævar Jónsson, Val,
Guðni Bergsson, Tottenham,
Gunnar Gíslason, Hácken, Kristj-
án Jónsson, Fram, Ólafur Þóröai-
son, Lyn, Sigurður Jónsson,
Arsenal, Sigurður Grétarsson,
Grasshoppers, Þorvaldur örlygs-
son, Nottingham Forest, Rúnar
Kristinsson, IvR, Arnór Guðjohns-
en, Bordeaux, Eyjólfur Sverris-
son, Stuttgart, Ragnar Margeirs-
son, KR og Antony Karl Gregory,
Val.