Morgunblaðið - 19.04.1991, Page 34
Ö834
>MOK0UNBEA0IB >FðSTUÐWGliJRi4!): 'APRflL1 >1091
N G
S K O S N
N G A R
íþróttahöll í Kópavogi:
Bétt að taka upp viðræð-
ur og leita ódýrari leiða
- sagdi Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins
DAVÍÐ Oddsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins sagði á fundi
sjálfstæðismanna í Kópavogi í
fyrrakvöld að hann teldi að
*
Olafur Ragnar
Grímsson:
Alþýðubanda-
lagið skiptir
sér ekki af
áskorun Páls
ÓLAFUR Ragnar Grímsson form-
aður Alþýðubandalagsins segir,
að flokkurinn muni ekki skipta sér
af því þótt Páll Halldórsson form-
aður BHMR og miðstjórnarmaður
í Alþýðubandalaginu hvetji ríkis-
starfsmenn til að kjósa aðra
flokka en Alþýðubandalagið.
„Alþýðubahdalagið er lýðræðisleg-
ur flokkur, og það eru engin refsiá-
kvæði af þessu tagi. Þetta er mái
sem Páll Halldórsson verður að eiga
við samvisku sína og sjálfan sig. En
það er athyglisvert, að hann sem
þykist vera róttækastur af öllum
róttækum skuli koma fram á völlinn,
og hvetja menn tii að kjósa jafnvel
Sjálfstæðisflokkinn," sagði Ólafur
Ragnar.
samningur sá sem Kópavogsbær
og ríkið gerðu með sér um bygg-
ingu íþróttahallar fyrir 7 þúsund
manns í Kópavogi vegna HM í
handknattleik 1995 væri of þung
byrði fyrir Kópavogsbæ og hann
teldi eðlilegt að sá samningur
yrði tekinn upp og reynt að leita
ódýrari leiðar.
Á fundinum var Davíð spurður
hvort hann vildi sem forsætisráð-
herra beita sér fyrir því að samning-
ur sem vinstri meirihlutinn í bæjar-
stjóm Kópavogs gerði um byggingu
íþróttahallar í Kópavogi yrði endur-
skoðaður. Davíð svaraði á þann veg
að honum hefði ekki þótt nokkurt
vit í því, þegar Reykjavíkurborg
átti í viðræðum um byggingu þess-
arar hallar, við ríkið, að byggja
þessa höll fyrir 7 þúsund manns
„fyrir nánast einn leik og vildi ekki
að Reykjavíkurborg legði fram fjár-
muni í því skyni. Ég vil gjarnan veg
handboltaíþróttarinnar sem mestan
en fannst það vera glæframennska
að gera þetta með þessum hætti.
Það var hins vegar tekin ákvörðun
um þetta í Kópavogi af vinstri
meirihlutanum og gerður samning-
ur þar um. Mér fannst sá samning-
ur ekki heldur fela í sér neitt vit.
Ríkið ákvað fasta tölu og setti síðan
mjög harða og háa byrði á herðar
Kópavogs, sem ég held að verði
afskaplega erfítt fyrir bæjarfélagið
að bera. Kópavogur er bæjarfélag
sem þarf að vetja miklum ijármun-
um til mjög brýnna verkefna, sem
mjög lengi hafa setið hér á hakan-
um. Verkefna sem ég verð að segja
að við í Reykjavík hefðum aidrei
komist upp með að láta sitja jafn-
lengi á hakanum og vinstri meiri-
hlutinn gerði hér, varðandi frágang,
gatnagerð og fleira.
Vegna þessa finnst mér rétt að
taka upp viðræður á nýjan leik á
milli Kópavogs og ríkisins og finna
hvort hagfelldari lausn geti fundist.
Auðvitað viljum við tiyggja að
Heimsmeistarakeppnin í hand-
knattleik geti farið hér fram árið
1995, en til þess að svo megi verða,
þarf að leita leiða sem ódýrari verða
en þessi,“ sagði Davíð Oddsson.
Morgunblaðið/Sverrir
A framboðsfundi í Laugarnesi
Hverfafélög Sjálfstæðisflokksins í Langholts- og Laugarneshverfum
héldu fjölmennan fund í kosningaskrifstofu sjálfstæðismanna í Laug-
arneshverfi að Borgartúni 31 í fyrrakvöld. Frummælendur á fundin-
um voru þau Lára Margrét Ragnarsdóttir, sem skipar áttunda sæti
á framboðslista Sjálfstæðisflokksins, og Björn Bjarnason, sem skipar
þriðja sætið. Á myndinni eru Lára Margrét Ragnarsdóttir, Axel Ei-
ríksson fundarstjóri og Björn Bjarnason.
Útreikningar um skattlagningu Reykjavíkurborgar:
Olafur Ragnar vill að kall
aður sé til óháður aðila
ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra vill bjóða Davíð
Oddssyni borgarstjóra, að bera
útreikninga á skattlagningu
Vorhátíð Kvennalistans
Kvennalistinn hélt vorhátíð sína í menningarmiðstöðinni Gerðubergi og komu mörg hundruð gestir, að
sögn Magdalenu Schram, í undirbúningsnefnd vorhátíðarinnar. Að sögn Magdalenu var boðið upp á
skemmtidagskrá með upplestri, söng og tónlist og leiksmiðju fyrir börn, auk þess sem ávörp voru flutt.
Hún sagði, að Sögusýning Kvennalistans hefði vakið sérstaka athygli og einnig búð sem seldi pólitíska
minjagripi. Einnig var haldinn flóamarkaður og kökubasar í tengslum við vorhátíð Kvennalistans.
Reykjavíkurborgar undir hvaða
óháða aðila sem er.
Davíð Oddsson sagði í Morgun-
blaðinu s.l. miðvikudag, að þótt
tekjur borgarinnar hefðu farið vax-
andi hefðu skattstofnarnir lækkað,
því um leið hefði verið ýtt undir
fijálst og öflugt atvinnulíf. Fullyrð-
ingar Ólafs Ragnars um háa skatt-
lagningu borgarinnar væru því
blekkingar og reykbombur.
„Davíð verður að gera sér grein
fyrir því, að hann er kominn á inn
á nýjan leikvöll og þar dugar ekki
að snúa sig út úr málum með hót-
fyndni. Þetta eru alvarlegar niður-
stöður um það, að hann í sinni borg-
arstjóratíð hafi aukið skatta á
Reykjvíkinga þrisvar sinnum meira
en þeir voru auknir á landsmenn,
og að hann hafi aukið útgjöld borg-
arinnar meira en ríkisútgjöldin,
sérstaklega á síðustu tveimur árum.
Þær staðreyndir eru auðvitað lykil-
atriði í stjórnmálaumræðunni og ef
hann dregur þær í efa, þá er ég
reiðubúinn að leggja þessa útreikn-
inga undir hvaða óháðan aðila sem
er,“ sagði Ólafur Ragnar.
4000 kosið í Reykjavík
UM 4 þúsund manns höfðu kosið
utan kjörstaðar á skrifstofu
borgarfógeta í Reykjavík síðdeg-
is í gær.
Þetta eru aðeins fleiri en kosið
höfðu utan kjörstaðar á sama tíma
fyrir síðustu Alþingiskosningar. Þá
er ekki vitað hversu margir hafa
kosið erlendis. Flestir hafa sjálfir
komið til að kjósa en nokkuð er um
að atkvæði séu sótt á sjúkrahús og
aðrar stofnanir.
Morgfunblaðið/Ami Sæberg
Kosið utan kjörstaðar í Reykja-
vík í gær.
Frjálslyndir fagna tillögu skattanefndar ASI
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning:
Fijálslyndir fagna þeim tillögum
í skattamálum sem nefnd ASI um
undirbúning næstu kjarasamninga
hefur kynnt.
Álit nefndar ASI staðfestir í öll-
um meginatriðum ' skattastefnu
Fijálslyndra, sem vilja flytja skatta-
byrðina frá þeim láglaunuðu til
hátekjufólks, með breytilegum per-
sónuafslætti og að skattleysismörk
verði kr. 87.536 á mánuði. Einnig
vilja Fijálslyndir að ónýttur per-
sónuafsláttur yfirfærist að fullí milli
maka, og að heimilisstörf verði
metin til jafns við önnur störf,
þ.e.a.s. ef annar maki er heimavinn-
andi, sé heimilt að telja fram helm-
ing tekna hins makans á nafni þess
maka sem heima er. Þetta kerfi
þýðir að ríkissjóður heldur sínum
tekjum, þær færast einungis til
þeirra sem hafa efni á að greiða
tekjuskatt.
Fijálslyndum er ljóst að þetta
bætir ekki kjör þeirra sem hafa
laun undir 55.000 krónum og taka
því undir hugmyndir nefndar ASÍ
um lækkun virðisaukaskatts og
benda á að í stefnuskrá Frjáls-
lyndra er lagt til að virðisaukaskatt-
ur af matvælum verði 6% en 20%
af annarri vöru og þjónustu. Tekju-
tap ríkisins af þessum breytingum
vilja Fijálslyndir fjármagna með
samræmdum skatti á fjármagns-
og eignatekjur, niðurskurði á bein-
um framlögum ríkisins í lánasjóði,
og niðurfellingu á útflutningsbót-
um, samfara hagræðingu í rekstri
ríkisins.
Fijálslyndir benda einnig á að
skattastefna þeirra gagnvart fyrir-
tækjum mun þýða betra rekstrar-
umhverfi þeirra, sem á að skila sér
í getu fyrirtækjanna til að greiða
mannsæmandi laun.
Verði leið Fijálslyndra farin mun
það auka kaupmátt hinna lægst
launuðu til muna, en kaupmáttur
þeirra sem hærri hafa' tekjurnar
mun rýrna lítillega.
(Fréttatilkynning)
Kosningahátíð G-listans
í Óperunni
Kosningahátíð G-listans I Reykjavík var haldin í Óperunni á þriðju-
dagskvöld. Þar fluttu meðal annarra nokkrir af frambjóðendum Al-
þýðubandalagsins ávörp, en auk þess voru margvísleg skemmtiatriði
á kosningahátíðinni.