Morgunblaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991
Sápuhúsið 85 ára
SÁPUHÚSIÐ Laugavegi 17 í Reykajvík er elsta snyrtivöruverslun lands-
ins. Um þessar mundir eru 85 ár liðin frá stofnun verslunarinnar.
Tildrög stofnunarinnar voru þau
að árið 1905 kom hingað til lands
dönsk fjölskylda sem var ættarnafnið
Scouge, en ú ætt átti og rak þekkta
verslun í Kaupmannahöfn sem bar
nafnið Sæbehuset.
Má með sanni segja að Sápuhúsið
hafí borið nafn með rentu því að
upphaflega var þar eingöngu sápa á
boðstólum í hinni fjölbreyttustu
mynd og minnast margar eldri frúr
þess er þær voru sendar eftir
grænsápu í Sápuhúsið og fengu þessi
ókjör fyrir tíu aura að þær voru í
vandræðum með að rogast heim með
byrðina.
Og síst er sápuúrvalið látið sitja
á hakanum þótt vöruúrvalið h afi
færst í aukana með árunum.
Sápuhúsið hefur frá fyrstu tíð
starfað í hjarta borgarinnar og minn-
ast eldri Reykvíkingar ilmsins frá
Sápuhúsinu sem lagði um miðbæinn.
Var sjaldnast flutt langt á milli húsa
svo sem til Lækjargötu 2 frá Austur-
stræti 1, auk þess sem verslunin var
lengi til húsa að Vesturgötu 2 og
Austurstræti 17. En seinustu árin
hefur verslunin verið til húsa að
Laugavegi 17.
Eigendaskipti að Sápuhúsinu hafa
verið næsta fátíð frá stofnun þess
og eru markverðustu áfangarnir þeir,
að árið 1957 kemst verslunin í eigu
þeirra Margrétar Helgadóttur og
Kristjáns Guðlaugssonar. Annaðist
Margrét reksturinn ásamt Kristínu
systur sinni, en Margrét lést árið
1982. Tók Kristín þá við rekstrinum
og annaðist hann ein til ársins 1986,
en þá kaupir Elísabet Magnúsdóttir
verslunina og rekur hana til ársins
1989. Það ár keypti Hrafnhildur Vil-
helmsdóttir Sápuhúsið og rekur hún
verslunina í dag.
Vöruúrvalið í Sápuhúsinu hefur
aukist jafnt og þétt með árunum og
er þar nú á boðstólum hinn fjölbreyti-
legasti varningu af snyrtivörum
hvers konar, sápum, skartgripum og
gjafavörum enda hefur Sápuhúsið
jafnan haft með það orð á sér að
bjóða góða vöru og góða þjónustu
og viðskiptavinahópurinn eftir því
fjölbreyttur og á ýmsum aldri.
(Fréttatilkynning)
Starfsfólk Sápuhússins ásamt eiganda. Frá vinstri: Harpa Iðunn Sig-
mundsdóttir, Guðlaug Guðjónsdóttir, Hrafnhildur Vilhelmsdóttir og
Agnes Agnarsdóttir.
*
Helga sýnir í FIM-salnum
HELGA Magnúsdóttir opnar
laugardaginn 20. april ki. 14.00
málverkasýningu í FIM salnum,
Garðastræti 6.
Þetta er fyrsta einkasýning
Helgu, en áður hefur hún tekið
þátt í tveimur samsýningum á veg-
um M-hátíðar á Vesturlandi sumar-
ið 1990 og á samsýningu sexmenn-
inga í Lista- og menningarmiðstöð
Hafnfirðinga, Hafnarborg, í októ-
ber sl.
Helga er fædd í Borgarfirði 1948
og býr í Reykjavík. Hún stundaði
nám í Myndlistaskóla Reykjavíkur
1984-85 og Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1985-89. Hún braut-
skráðist úr málaradeild 1989. Sýn-
inguna nefnir Helga SKÍMU. Verk-
in eru öll unnin á olíu á striga.
Opið verður daglega frá kl. 14-18
á meðan á sýningunni stendur eða
til 5. maí nk.
Helga Magnúsdóttir myndlistar-
maður.
Nemendur í 9. bekk Ölduselsskóla virða fyrir sér morgunverðarborðið.
Heilbrigðisdagar í skólum;
Ljósmynd/Jóhannes Long
Breytt viðhorf til
svefns og mataræðis
Nemendum í Ölduselsskóla var bent á að ef þeir drykkju eina dós
af gosdrykk á dag myndi það kosta 27.375 kr. á ári. Þrír nemend-
anna standa við ársbirgðir af gosi.
HALDNIR voru heilbrigðisdag-
ar í fimm grunnskólum landsins
í mars- og aprílmánuði að til-
stuðlan ÆSK-nefndarinnar, sem
skipuð fulltrúm frá Æskulýðsr-
áði ríkisins, Bandalagi íslenskra
skáta, Iþróttasambandi Islands,
Ungmennafélagi Islands, land-
lækni og heilbrigiðisráðuneyt-
inu.
Lögð var áhersla á breytt matar-
æði nemenda, hreyfingu og heil-
brigði. Fjölmörg fyrirtæki í mat-
vælaiðnaði bauð nemendum upp á
morgunverð þann tíma sem verk-
efnið stóð yfir og kynning á úti-
vist, líkamsrækt og ýmisskonar
félagsstarfsemi var á dagskrá
þessa daga.
Þórólfur Þórlindsson, forstöðu-
maður Rannsóknarstofnunar upp-
eldis- og menntamála, sem hafði
umsjón með úrvinnslu á mati verk-
efnisins, sagði að helstu niðurstöð-
urnar væru þær að heilbrigðisdag-
arnir virtust hafa umtalsverð áhrif
á viðhorf nemenda til ýmissa þátta
er snerta heilbrigt lífemi. Viðhorf
þeirra breyttust til mataræðis,
svefns og hreyfingar. „Þessar at-
huganir sýna einnig að þetta verk-
efni hafði töluverð áhrif á venjur
nemenda," sagði Þórólfur.
Athuguð hafa verið svör 600
einstaklinga. Borin voru saman
viðhorf og atferli nemendanna fyr-
ir heilbrigðisdagana og eftir að
þeim lauk. Sagði Þórólfur að ráð-
gert væri að skoða fleiri hliðar á
þessu máli. Einkum væri á döfinni
að athuga hve lengi breytt viðhorf
nemenda ríkja. „I heild má segja
að heilbrigðisdagamir hafí haft
meiri áhrif á stúlkur en stráka og
auðveldara virðist að hafa áhrif á
yngri nemendur en þá eldri,“ sagði
Þórólfur.
Sem dæmi um niðurstöður í
verkefninu sagði Þórólfur að í ljós
hefði komið að rúmlega 80% nem-
enda fannst heilbrigðisdagarnir
vera skemmtilegir en 3% fannst
þeir leiðinlegir. Fyrir heilsudagana
settu 12,2% nemenda í 7: og 8.
bekk nægan svefn í forgangsröð
hjá sér en eftir að heilsudögum
lauk var sú tala komin upp í 23%.
Fyrir heilsudagana borðuðu 12,9%
nemenda í 4. og 5. bekk ávexti í
morgunmat en eftir heilsudagana
voru þeir orðnir 27,6%.
Þórólfur sagði að það væru
nokkur nýmæli við þessa könnun
að reynt væri að meta það sem
gert væri í skólunum. Áður hefði
skort mat á því hvort einhver
árangur hefði náðst í sambærileg-
um verkefnum. Rannsóknarstofn-
un uppeldis- og menntamála hefði
hug á því að meta oftar þann
árangur sem næst í hinum ýmsu
þáttum skólastarfsins.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Frá undirritun smíðasamningsins. ’ '%\íAk, ,>HVAt>iY3í1 ,AH'1A8 Í/UJJ8H3V
V estmannaeyjar:
Skrifað undir smíða-
samning á nýjum Heriólfi
SKRIFAÐ var undir smíðasamning á nýrri Vestmannaeyjaferju fyrir
Herjólf hf. þriðjudaginn. Skipasmíðastöðin Simek as. í Flekkefjord í
Noregi mun smíða skipið og er áætlað að það verði afhent í lok maí
á næsta ári.
Ragnar Oskarsson, formaður
stjórnar Heijólfs, og formaður smíð-
anefndar flutti ávarp og lýsti lítillega
væntanlegu skipi. Skipið, sem hann-
að af er Skipatækni hf., verður 70,5
metra langt og 16 metra breitt. Eig-
in þyngd þess verður 1.944 tonn og
burðargetan 484 tonn. Skipið á að
flytja 481 farþega yfir sumartímann
og í því eru klefar fyrir 54 farþega
og hvílur fyrir 32 farþega. Ráðgert
er að skipið geti mest flutt 70 fólks-
bíla eða 6 vöruflutningavagna og 35
bíla. Skipið verður búið tveimur aðal-
vélum, skrúfum og stýrum og áætl-
aður ganghraði í reynslusiglingu er
18 sjómílur.
Samningsv'erð .skiþsirís ,ér
.iiiicnn'jll qo íibiii.l iiiIIiiM .fiiba/
1.100.000.000 krónur og er ráðgert
að það verði afhent frá Simek as. í
Noregi 30. maí á næsta ári.
Að loknu ávarpi Ragnars var
samningurinn undirritaður af stjórn
Heijólfs hf., Övind Ivarsen, fram-
kvæmdastjóra Simek as. og Stein-
grími J Sigfússyni, samgönguráð-
herra.
Að undirskrift lokinn fluttu ávörp
Bragi I. Ólafsson, forseti bæjar-
stjórnar Vestmannaeyja, Ólafur Bri-
em, frá Skipatækni, Steingrímur J.
Sigfússon, samgönguráðherra, Övind
Ivarssen, framkvæmdastjóri Simek,
og Atli Gundesen, formaður norska
skipasmíðasambandsins.
Grímúlé1
oiKi i (kiij jiivl 'iiijsii nnrano g