Morgunblaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 64
1 64 'MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDA'GUR' 19! ÁPÍÍÍL'Í99Í + JÓN SIGURÐUR HALLDÓRSSON, Austurströnd 10, lést af slysförum 17. apríl. Louise Dahl, Caroline Dahl Jónsdóttir, Anna Einarsdóttir, Halldór Jónsson, Hildur Jónsdóttir, Sandra Jónsdóttir, Einar Halldórsson, Gunnar Þorsteinn Halldórsson Fríður M. Halldórsdóttir. Hjartkær eiginmaður minn, faðir og afi, KRISTJÁN G. GUÐMUNDSSON frá Beruvik á Snæfellsnesi, lést á Hrafnistu í Reykjavik þann 17. þessa mánaðar. Sigurjóna Danelíusdóttir, börn og barnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GESTUR SÓLBJARTSSON frá Hrappsey, verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 20. apríl kl. 14.00. Fyrir hönd ættingja, Bergsveinn Gestsson. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐLAUGUR GUÐMUNDSSON útgerðarmaður, Mýrarholti 14, Ólafsvík, sem lést 12. apríl, verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugar- daginn 20. apríl kl. 14.00. Ingibjörg Steinþórsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HERMANN SIGURÐSSON, Þórsbergi, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, föstudaginn 19. april, kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaöir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Ragnheiður Hermannsdottir, Böðvar Hermannsson, Þórunn Hermannsdóttir, Lovísa Hermannsdóttir, Haraldur Hermannsson, Herdis Hermannsdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, Runólfur Skaftason, Gunnlaugur Óskarsson, Sigriður Jóhannsdóttir, Jóhann Gunnarsson og barnabörn. + Eiginmaöur minn og faðir okkar, SVEINN SIGURÐSSON tæknifræðingur, Stuðlaseli 18, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju, í dag, föstudaginn 19. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast hans, vin- samlegast láti Slysavarnafélag (slands, björgunarsveitina Ingólf njóta þess. Margrét Björk Andrésdóttir, Ólöf Adda Sveinsdóttir, Sigurður Rúnar Sveinsson, Bjarki Már Sveinsson. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinsemd við fráfall og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJARNA SVEINSSONAR múrarameistara, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði. Steinunn Bjarnadóttir, Matthías Bjarnason, Áslaug Hrefna Bjarnadóttir, Ólafur Sveinn Bjarnason, Rut Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugssor Sonja Einarsdóttir, Brandur Sigurðsson, Lára Öfjörð Guðmundsdóttir, Ólafur Sigurjónsson, Minning: Sveinn Sigurðsson tæknifræðingur Fæddur 13. mars 1938 Dáinn 11. apríl 1991 Það er vandi að velja og hafna í stuttri minningargrein um góðan dreng, sem nú er horfinn til hærri sviða, Sumarlandsins, en miklu fyrr en fjölskylda og vinir höfðu búizt við. Guð ræður. Sveinn var Skagfirðingur af góð- um, gömlum og merkum ættum, og aldrei fór hann í felur með það, svo mikil var ást hans og áhugi til sveitar sinnar og héraðs. Um störf hans'er ég varla dómbær og aðrir munu víkja að, en ég hygg að hann hafi verið verkmaður í bezta lagi, ákaflega vandvirkur. Sveinn var traustur og einbeittur maður og rækti öll sín verk með dugnaði og samvizkusemi. Bros vináttu hans varpaði fegurð vorsins og sumars- ins. En hann þekkti einnig vetrar- hríðina. Hann gladdist við yl hækk- andi sólar, og leit á vetrarkvöldum alstirndan himinn. Hugur Sveins var næmur fyrir kallandi röddum frá vor og sumri, frá hausti og vetri. Ársól lífsins stráði geislum á æskubrautir systk- inanna á Varmalandi, Sveins og systra hans, Sigurbjargar, maki Magnús Jónasson, Ingibjörg, maki Þorsteinn Ásgrímsson, er voru í hinum hollasta skóla hjá mikilhæf- um foreldrum, hjónunum frú Önnu Sveinsdóttur frá Lóni í Rípurhreppi og Sigurði Konráðssyni frá Skarðsá. Gott var að kynnast Sveini. Indælt að eiga vináttu hans, eiginkonu og barna. Ég sakna hans mjög. Ung gaf Margrét Björk Andrés- dóttir, Skagfirðingur að ætt, Sveini hjarta sitt og eignaðist þar tryggan og góðan mann, unaður hennar að vera með honum, sem hún mat svo mikils og unni svo heitt, að leggja fram krafta sína til þess að annast um hann og börnin, búa þeim sem notalegast og ánægjulegast heimili. Börrr þeirra hjóna eru: Ólöf Adda skrifstofudama, Sigurður Rúnar húsasmiður, Bjarki Már mennta- skólanemi. Vinir hans þakka honum alla góðvildina og tryggðina. Helgi Falur Vigfússon „Allir hlutir koma fram í tilvist- ina, og menn sjá þá hverfa aftur. Eftir blóma ævinnar fer hvað eina aftur til upphafsins. Að hverfa aftur til upphafsins er friðurinn; það er að hafa náð takmarki tilvistar sinnar." (Lao-Tse; Bókin um veginn) Við vorum ung systkinabörnin, er við fórum fyrst í sveit i Skaga- fjörðinn að Varmalandi í Sæmund- arhlíð til móðurbróður okkar Dodda, Ebbu konu hans og barna þeirra Grímsa og Lóu. Þarna vorum við eins og börn þeirra hjónanna og Anna og Sigurður foreldrar Ebbu voru okkur eins og besti afi og amma. Á hveiju sumri komu Sigur- björg systir Ebbu og Magnús maður hennar til sumardvalar ásamt börn- um sínum Loga og Önnu Eygló. Þá komu og líka í heimsókn bróðir Ebbu, Sveinn, kona hans Margrét og börnin þeirra þrjú, Adda, Sigurð- ur og Bjarki. öll þessi börn voru meira og minna samtíða okkur þessi sumur, og saman urðum við eins og einn stór systkinahópur. Margt var gert sér til gamans og stundum tók fullorðna fólkið þátt í leikjunum með okkur og lét þá Sveinn ekki sitt eftir liggja, varð drengur á ný og fór á handahlaupum eftir hlaðinu eða tók hvert heljarstökkið á fætur öðru, svo að við krakkarnir stóðum á öndinni ' af aðdáun og okkar dýpsta löngun var að geta leikið listirnar eftir honum. Mörgum kvöldum lauk með fótboltaleik á túninu fyrir framan bæinn og þar lék Sveinn á als oddi, enda var hann frár á fæti. Nú erum við vaxin úr grasi og æskuleikir okkar að baki, en minn- ingin um góðan dreng mun ekki gleymast. Elsku Margrét, Adda, Siggi og Bjarki og systurnar Ebba, Sigur- björg og fjölskyldur ykkar. Við sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur. íris, Kolla, Þröstur, Svava Kristín og Dóra Ósk Þar sem góðir menn fara þar eru Guðsvegir. Ég var svo heppiiy að kynnast Sveini og fjölskyldu hans í gegnum störf mín. Sveinn var enginn meðalmaður hvorki að hæfi- leikum né störfum. Hann var af skagfirskum ættum, ólst upp í sveit- inni við venjuleg störf. Það reyndist honum góður skóli. Sveinn var óvenjulega vel gefinn, stálminnugur og snillingur í höndum. Hann var tæknifræðingur að mennt. Að loknu námi hér heima fór hann ásamt eiginkonu sinni til Danmerkur og síðar til Bandaríkjanna og lauk þar sínu námi. Hér heima stundaði hann kennslu pg stjórnun með góðum + Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar móður okkar og tengdamóöur, ÞÓRDÍSAR SÍMONARDÓTTUR, Suðurkoti, Vatnsleysuströnd. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Sjúkrahúss Keflavíkur. Inga Kristjánsdóttir, Ólafía Guðmundsdóttir, Símon Kristjánsson, Hannes Kristjánsson, Sigríður Kristjánsdóttir, Magnea Kristjánsdóttir, Hrefna Kristjánsdóttir og tengdabörn. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við andlát og jarðarför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JARÞRÚÐAR ÞORLÁKSDÓTTUR, Grænuhlíð4, Reykjavík. Una Kjartansdóttir, Elfnborg Kjartansdóttir, Bára Kjartansdóttir, Sólrún Helgadóttir, Sigurður Helgason, Þorlákur Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. Soffía Ólafsdóttir, Arnþór Guðnason, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Sjöfn Helgason, árangri. Ég vann undir hans stjórn um árabil og bar aldrei skugga á. Það var gott að leita ráða hjá hon- um. Hann var réttsýnn, gaf sér tíma og leysti vandann. Hann trúði á líf- ið og það góða í hverjum manni — það sigraði í lokin. Sveinn kvæntist Margréti Björk Andrésdóttur. Það var honum mikið lán að hafa hana sér við hlið. Þau eignuðust þijú börn: Ólöfu Öddu, Sigurð Rúnar og Bjarka Má. Ólöf Anna fæst við skrifstofustörf, Sig- urður Rúnar er húsasmiður og Bjarki Már er í menntaskóla. Það ríkir sorg í Stuðlaseli 18. Á heimil- inu sem þau hjón hafa byggt upp saman af mikilli smekkvísi og fögru handbragði. Einhver besta gjöfin sem hægt er að eignast hérna megin tjaldsins eru góðir vinir. Um leið og ég bið um blessun fyrir fjölskylduna og alla hennar vini, þökkum við Frið- rik fyrir að hafa eignast þau að vinum. Guð blessi ykkur öll. Magnea Hjálmarsdóttir Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja, vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem) Fyrir nokkrum dögum barst mér andalátsfregn góðs vinar. Skyndi- lega dimmdi og mér fannst sem draegi fyrir sólu. Ég kynntist Sveini, þegar hann heitbast æskuvinkonu minni, Margréti Björk. Sveinn Sigurðsson fæddist á Varmalandi í Sæmundarhlíð, Skag- afirði, 13. mars 1938. Foreldrar hans voru hjónin Anna Sveinsdóttir og Sigurður Konráðsson, sem bæði eru látin. Tvær systur átti Sveinn, en þær eru: Ingibjörg, gift Þorsteini Ásgrímssyni, þau búa að Varmal- andi og Sigurbjörg, gift Magnúsi Jónassyni, og eru þau búsett í Reykjavík. Þá kom sem ungur drengur á heimilið Emil Vilmundarson og dvaldi þar 7 sumur. Voru þeir Sveinn jafnaldrar og kölluðu sig fóstbræður og var ávallt afar kært með þeim. Sveinn hélt mikilli tryggð við æskuheimili sitt alla tíð og voru ófáar ferðirnar norður heim í átt- hagana. 17 ára gamall hélt hann til Reykjavíkurtil að afla sér menntun- ar og nam fyrst rennismíði í Vél- smiðjunni Héðni, en settist síðan í Vélskólann og lauk vélstjóraprófi 1960. Á námsárunum stundaði Sérfræðingar í blómaskreytingum viÓ öll tækifæri ITH blómaverkstæði OINNÁfe' Skólavörðustíg 12 á horni Bergstaðastrætís sími 19090
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.