Morgunblaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 72
72 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991 © 1990 Universal Press Syndicate „ þa munt þurfisa þerm&n. •" Þarna sérðu: Bara gefa sér tíma til að leita að kyrrlátu tjaldstæði. Skattaánauð sljórnvalda Til Velvakanda. Enn um skattaánauð ríkisstjóm- ar Steingríms Hermannssonar og fjármálaráðherra hans. Fjármálaráðherrann Ólafur Ragnar Grímsson tekur sér oft ein- ræðisvald eins og nú og gefur út að öllum óspurðum rit sem á að vera kosningaáróður fyrir ríkis- stjórnina og kostar þá sem skatt- ana greiða vemlega upphæð fyrir litla þjónustu en afhjúpar þó rang- lætið í fari stjórnvalda um þessar mundir og er það eina jákvæða í bæklingi fjármálaráðherrans. Ólafur Ragnar telur sér þó þetta tiltæki til ágætis í næstu kosning- um og er það dálítið skrítið að ýmsir virðast trúa því og bera það fram í fjölmiðlum, að þetta sé ráð- herranum til málsbóta, en það get- ur hver maður séð sem ekki vill breiða yfir skammir ríkisstjómar- innar i þessum málum að er þveröf- ugt, þó að fjármálaráðherrann telji þessar aðfarir að kjömm þeirra sem greiða skattana sjálfsagða og þó meira væri enda hugsar hann sér gott til glóðarinnar að ná meim fram í arðránsstefnu sinni og gjald- þrotsbúskap sem hans ríkisstjóm hefur staðið að og er ríkissjóður síðasta takmarkið í kollsteypum þeirra vinstristjórna sem ríkt hafa síðustu áratugina. Þá þarf nefni- lega ekki og er ekki hægt að greiða allt það lánsfé sem ríkið skuldar, það verður bara eitt rautt strik og Röng þýðing í tilefni greina Eyjólfs Konráðs Jónssonar í Morgunblaðinu þann 5. apríl og Steingríms Gunnarsson- ar, Morgunblaðinu 12. apríl, er ég með fyrirspurn til Blaðamannafé- lags íslands og Kennarafélags Há- skóla íslands svo og annarra sem láta sig málið varða. Hvað er því til fyrirstöðu að taka upp rétta heitið á „Eropean comunity" sem er rétt þýtt Evrópusamfélagið á íslensku. Þeir Eyjólfur og Stein- grímur benda réttilega á í greinum sínum að leiðrétta þarf hugtaka- brenglunina sem fram kemur í þýð- ingunni Efrópubandalagið. Þessi þýðing er röng og það sér allt ról- fært tungumálafólk. Láta blaða- menn, sem og aðrir sem láta sér málið varða, sér lynda að nota rangt hugtak í jafn mikilvægu máli? Hafa skal það sem sannara reynist í þessu sem öðru. Guðmundur Brynjólfsson búið. Þetta plagg Ólafs Ragnars er lítið annað en káf og blekking þar sem aðalatriðunum er sleppt og klórað yfir dellurnar. Stjórnsvið fjármálaráðherrans virðist mjög takmarkað, þar sem hann vill ekki líta á afleiðingar stefnu sinnar sem allstaðar blasir við, ekki einungis hér á landi, held- ur á sviði félaga hans í austurvegi þar sem öreigatal kommúnismans hér áður fyrr er orðið að veruleika undir stjórn þeirra sjálfra. Ekki geta þeir enn talað um arðrán at- vinnurekenda því enginn er af- raksturinn og öll framleiðsla rekin með lánsfé, þó eru það þeir, atvinn urekendumir, sem bera uppi það litla af sjálfsvirðingu sem eftir er og viðhalda því sem stendur enn uppi af framleiðslunni með öflun gjaldeyristekna. Stjórn Steingríms Hermannssonar og Ólafs Ragnars stefnir í hrun efnahagsmálanna ef þið kjósendur kastið þeim ekki úr stólunum í næstu kosningum. Framsóknarflokkurinn og stjórn- endur hans hafa gefið fordæmi í stjórnun efnahagsmálanna með þeirri ótrúlegu ósvífni að nota fé ríkissjóðs til að halda uppi atvinnu- fyrirtækjum sínum með fjármunum úr ríkissjóði sem þeir svo aldrei borga, því það er stefnan að láta fólkinu blæða. Sambandinu er um- tumað í mörg fyrirtæki, til að geta náð inn á á breiðari gmndvelli og í þessu liggur öll stjórnun Fram- sóknarflokksins, eins og kollsteyp- ur kaupfélaganna sýna gleggst. Álafoss er búið að gera upp og er á leið í aðra kollsteypu, eins og svo mörg önnur fyrirtæki Framsóknar- flokksins, þeir hafa komið miklu af óráðsíu sinni inn í Landsbankann og er það mikið rannsóknarefni og fyrir stuttu skiptu skuldir þeirra milljörðum króna. Fróðlegt væri að heyra frá Landbankanum, hvernig skuldastaða framsóknarfyrirtækj- anna er nú, það væm þarflegar upplýsingar, ekki síður en plagg fjármálaráðherrans, bíræfna. Ut yfir allan þjófabálk tekur, þegar Landsbankinn ábyrgist að útvega Rússum lán til að kaupa íslenskar ullarvörur frá Álafossi. Rússarnir hafa þá nokkuð til að skemmta sér við á næstunni, að lítill vandi er að vefja íslendingum um fingur sér. Er kominn í þjóð vora stærsti þjóðarspillir efnahagslífs vors, Framsóknarflokkur og Alþýðu- bandalag? Plaggið frá fjármálaráðherran- um veitir litlar upplýsingar umfram það sem maður veit, en ósannindin eru það ef hann telur sig hafa gef- ið þjóðinni svör við skattalögmáli núverandi ríkisstjórnar. Arðrán stjómarinnar er takmarkalaust og langt mál væri að rekja það allt, en augljóst er að mikið vantar inn í dæmið hans Ólafs Ragnars. Skatt- arnir og afleiðing þeirra er miklu verri og meiri en fjármálaráðheiT- ann vill vera láta, það er augljóst. Eyjólfur Konráð Jónsson lýsir í Morgunblaðinu afleiðingum verka núverandi ríkisstjórnar. Þó það þjóni öðrum tilgangi og sé lögleysa og siðleysi af stjórn sem sagt hefur af sér að hlaða upp auknum skuld- um ríkissjóðs með kosningavíxlum handa stjórnmálaflokkunum og í óþökk við meirihluta þjóðarinnar, þá er það brot á réttindum kjós- enda og mannvirðingu. Sjálfstæðismenn hefðu verið stimplaðir glæpamenn ef þeir hefðu hagað sér svona. Stjórnarferill þeirra stjórnarliða virðist ætla að enda eins og hann byijaði með rógi, baktjaldamakki og hnífstungum, í bak þegnanna í efnahags- og við- skiptalífi þjóðarinnar, svo notuð séu orð þeirra sjálfra yfír samsuðu þjóðargrautsins hans Steingríms Hermannssonar' með íblöndun fjallagrasa af ræktarsvæðum Júl- íusar Sólnes austur á heiðum. Óteljandi mörgu gerir Ólafur Ragnar Grímsson engin skil og væri langt mál að rekja það, saga hans er ekki hálfsögð og afleiðing- ar stefnunnar hrikalegar. „Roðinn í austri“, ljóð Jóhannesar frá Kötl- um, tilheyrir nú öfugmælavísum til og lygin þar er nú afhjúpuð. Þorleifur Kr. Guðlaugsson ♦ ♦ t--------------- Rangfærslur Vegna orða frú Ásdísar Erlings- dóttur í Velvakanda í gær vil ég taka fram eftirfarandi: Breyting á lögum um fóstureyð- ingar og ófijósemisaðgerðir hafði þegar verið gerð er Kvennalistakon- ur komu á þing. Kvennalistakonur hafa ekki gert kröfur um breyting- ar á þeim lögum sem nú eru í gildi. Kvennalistakonur hafa aldrei aldrei lagt það til málanna að nauðgarar væru ekki dæmdir til fangavistar. Hins vegar höfum við sannarlega vakið athygli á nauðsyn þess að slíkir menn fengju meðferð við hæfi. Guðrún Agnarsdóttir HOGNI HREKKVISI Víkverji skrifar Kosningabaráttan er senn á énda. í kvöld verður síðasti umráðuþátturinn í sjónvarpi, þar sem foringjar flokkanna mætast í sameiginlegri útsendingu beggja stöðvanna. Ætla má að þessi þáttur verði sá mikilvægasti í kosninga- baráttunni, eins og reyndin hefur verið í undanförnbum kosningum. Margir bíða líka spenntir eftir um- ræðuþættinum í kvöld því nú leiðir nýr maður stærsta flokkinn, Sjálf- stæðisflokkinn, og marga fýsir að sjá hann spreyta sig í fyrsta skipti á vettvangi landsmálanna. Kosningabaráttan hefur verið stutt en snörp að þessu sinni. Vík- veiji kann þessu vel og veit að svo er um fleiri. Fátt er leiðinlegra en þegar kosningabarátta dregst á langinn. Eins og fyrri daginn hafa stjórnmálamennirnir beitt billegum brögðum, sem fólk hlýtur að sjá í gegnum, t.a.m. eins og hjá fram- sóknarmönnum í EB-málinu. En það ógeðfelldasta í þessari kosn- ingabaráttu er án efa misnotkun ráðherra Alþýðubandalagsins á al- mannafé. Víkveiji hefði haldið að kjósendur myndu veita slíkum mönnum ærlega ráðningu. En ef marka má nýjustu skoðanakannan- ir, virðist þjóðin þvert á móti ætla að verðlauna þá með góðri kosn- ingu! Þetta er óskiljanlegt. XXX Fréttirnar sem berast af hörm- ungum Kúrda eru hryllileg- ar. Hundruð þúsunda flýja undan morðsveitum Saddams Hussein og margar þjóðir reyna eftir föngum að veita hjálp. Þegar bandamenn voru að undirbúa frelsun Kúveit hafði hópur manna hér á landi uppi mótmæli. Frá þessu fólki hefur hvorki heyrst hósti né stuna á með- an hersveitir Saddams hafa verið að murka lífið úr Kúrdum. Þögn þessa fólks er æpandi. ýzkur maður kom í heimsókn á Morgunblaðið í vikunni. í kaffistofunni kom hann auga á mjólkurfernu og skildi að á henni stóð orðið nýmjólk. Hann spurði fullur undrunar. Hvers vegna stend- ur ekki bara mjólk á fernunni, varla er seld gömul mjólk hér á landi? Góð spurning! XXX ITímanum í gær er fjallað um mismunandi styrk á sendingum útvarpsstöðva. Þetta er vissulega hvimleitt fyrirbæri og þýðir að fólk þarf að hækka og lækka þegar stillt er milli stöðva. En það eru ekki bara útvarpsstöðvarnar sem eru með mismunandi styrk. Sama á við um sjónvarpsstöðvarnar tvær. Þeg- ar skipt er milli þeirra þarf líka að hækka og lækka. Geta stöðvarnar ekki komist að samkomulagi um sama styrk? Gaman væri að fá svar við því. j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.