Morgunblaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 46
& MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991 i í.i. i—Ttnn t i' . .u:/: i^ar.i r Er unnt að endurhæfa framsóknarmann? eftir Ingólf S. Sveinsson Þessi spurning kann að virðast einföld, en í henni felast tvær hug- myndir. Onnur er sú að framsóknar- mennska sé bilun af einhveiju tagi. Hin er sú að bilunin kunni að vera áunnin fremur en meðfædd og því geti þeir e.t.v. endurheimt tapaða hæfni. Auk þess getur spurningin vakið aðra spurningar eins og þá hvort viðkomandi vilji nokkra endur- hæfingu. Hvers konar bilun? Sorgleg dæmisaga lýsir best eðli hennar: Gemlingar tveir gengu úti á öræf- um um vetur og lifðu báðir fram undir vor. Þá féll annar og er þeir fundust, var sá sem lifði aðeins skinn og bein en ullin morandi í færilús. Hann hafði haldið sig hjá féiaga sín- um og var allt umhverfis rótnagað. En engin lús, lifandi né dauð, fannst í ull þess sem dauður var. Var mönn- um ljóst að lýsnar höfðu skriðið á milli. Það sem einkennir framsóknar- menn er ekki trygglyndi þessara gemlinga, heldur hátterni lúsanna. Framsóknarmenn hafa enga stjómmálastefnu eða hugsjón aðra en þá að halda þeirri aðstöðu að lifa á öðrum, á almannafé. Nú, þegar kaupfélög hafa ýmist dáið eða aðlag- ast eðlilegum viðskiptaháttum, skríða framsóknarmenn í stórum stíl yfír á ríkið. Stjórnmálamenn þeirra stofna sjóði og ríkisfyrirtæki allt hvað af tekur til að haida í sér lífínu. Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið með undirstofnunum sín- um er skýrt dæmi um þetta. Þar er mikið af skattpeningum saman kom- ið. Framboðslisti framsóknarmanna í Reykjavík er framan til mannaður starfsmönnum þess. í þessu mikla miðstýringarráðuneyti er stöðugt unnið að ríkisvæðingu heilbrigðis- þjónustunnar. Má tala um hátt í 100% ríkisútgerð sjúkrahúsa, ríkis- einokun trygginga og nú síðast hafa framsóknarmenn komið áuga á að mikið fé er í lyfjaverslun og gæti framsóknarstýit ríkisfyrirtæki framfleytt þar dijúgum hluta flokks- ins. Framsóknarmenn skilja alls ekki hugtakið miðstýring en það þýðir söfnun og einokun valds. Hún er þeim svo fullkomlega eðlileg að í hvert sinn sem meira vald er fært til ráðherra og hann setur lepp sinn úr Framsóknarflokki sem millilið í stjórnkerfínu segist hann auka vald- dreifíngu. Stjórnkerfi heilbrigðis- þjónustunnar ber þess merki. Heilbrigðisráðherra hefur eigin- lega hagað sér eins og ættflokka- höfðingi í Afríku sem óvanur lýð- ræði setur menn af ættflokki sínum — í öllum tilfelli Framsóknarflokki — í allar stöður og býr til nýjar eft- ir þörfum, stundum án ljósra laga- heimilda. Framsóknarmenn sklja ekki hug- tökin valfrelsi og samkeppni. Skömmtun og einokun hafa löngum verið helstu aðferðir þeirra í verslun og viðskiptum. Framsóknarráðu- neyti eru alltaf skömmtunarráðu- neyti. Framsóknarmenn skilja ekki hug- takið eignarréttur. Þeir geta á vissan hátt skilið kenningu sóíalismans en þó aðeins með sama hætti og félagi Napóleon í sögu George Orwells, Animal Farm. Hann skildi bræðra- lagið á þann veg að han ætti sjálfur að vera yfírsvínið og drekka epla- vínið. Þetta verður raunar að virða sem hinn rétta skilning því eins og mannkynssagan hefur staðfest eru sósíalismi og lýðræði andstæður. Kosningaréttur og lýðræði vefst mjög fyrir framsóknarmönnum sbr. síðustu tilraun þeirra til prófkjörs í Reykjavík. Tveir efstu menn höfðu fyrirfram komið sér saman um að vera efstir á lista og skipta atkvæð- um „kjósenda" á milli sín. En sá sem yngri var og átti að fá færri at- kvæði hafði lært framsóknaraðferðir vel og sveik félaga sinn þannig að kosningarnar urðu honum í hag. Leiðtogi reykvískra framsóknar- manna varð að játa sig sigraðan með aðferðum kenndum við A1 Cap- one og félaga forðum daga. Eftir stendur sigurvegari sem hefur snuð- að alla. „Bófahasar" þessi virtist um tíma ætla að tvístra Framsóknarflokkn- um í borginni. Lá við að aðalsmerki flokksformannsins, Steingríms Her- mannssonar, yrði til þess að hann steingleymdi kjósendum sínum á Reykjanesi og yfírgæfí þá til að taka þátt í hasarnum. Þeir sem halda að pólitík megi stunda með svona siðferði eru uppi á röngum tíma og á röngum stað. Þetta passaði hjá vissum mönnum í Chicago kringum 1930. Framsókn í Reykjavík Framsóknarménn stæra hann sig af verkum sínum fyrir heilbrigðis- þjónustu í Reykjavík. Helst er að skilja að þeir hafí komið þar að ón- umdu landi og unnið mörg stór- virki, sbr. grein aðstoðarráðherra í Morgunblaðinu 10. apríl sl. í heimil- islæknisþjónustu í borginni hafa framsóknarmenn reynt að koma á einlitu skipulagi sem meir tekur mið af óskum embættismanna en al- mennings. Til þessa hafa þeir notað tryggingafé landsmanna á vafa- saman hátt. Nýmæli þeirra er aðeins eitt — að skipta borginni í fímm heilsu- gæsluumdæmi, líklega með fyrir- mynd frá sauðfjárveikivörnum. Hef- ur ráðuneytið valið hólfum þessum þvílík nöfn að infæddir Reykvíkingar skilja ekkert í. í stuttu máli eru afrekin þau að að fjölga ríkisstarfsmönnum um nokkra tugi. Síðan Sjúkrasamlag Reykjavíkur var lagt niður og hætti að annast að Reykvíkingar hefðu aðgang að heimilislækni hefur heim- ilislæknislausum Reykvíkingum fjölgað úr 6.000 í um 12.000. Er endurhæfing möguleg? Sú árátta að vera framsóknar- maður er andlegs eðlis. Þeir telja sig þurfa að lifa á öðrum, langmest af gömlum vana, fremur en af með- fæddri vangetu. Siðblinda þeirra í pólitík stafar af þessu getuleysi. Þeim er eðlilegt að trúa því að allir þurfí að lifa á styrkjum og skömmt- Ingólfur S. Sveinsson „Framsóknarmenn skilja ekki hugtökin valfrelsi og samkeppni. Skömmtun og einokun hafa löngum verið helstu aðferðir þeirra í verslun og viðskiptum. Framsóknarráðuneyti eru alltaf skömmtunar- ráðuneyti.“ un, eins og sauðfé á gjöf. Sósíalismi er nauðalíkur fram- sóknarmennsku, en sá er þó munur að sósíalismi er barnatrú, oft ein- læg, sem eldist af skynsömu fólki, nema atvinnustjórnmálamönnum. Framsóknarmenn lagast sjaldan af sjálfu sér. Það er þekkt að enginn sem er sjúkur eða fatlaður verður endur- hæfður gegn vilja sínum. Erfitt er talið að endurhæfa þann sem hefur beinan hagnað af fötlun sinni. Sé fatlaður maður á styrk og fái verri afkomu við að vera sjálfbjarga eru ekki bjartar horfur. Alkóhólisti með greiðan aðgang að ódýru vínu þorn- ar seint. Af öllu þessu virðist mér ljóst að það eina sem getur hjálpað fram- sóknarmönnum eru kosningar sem svipta þá bitlingum og skattfé, myndarleg minnkun ráðuneyta og fækkun ríkisstofnana. Þetta er hreinlætis- og heilbrigðismál fyrir allt þjóðlífíð. Þá gætu hæfileikar framsóknarmanna fyrst komið í ljós. Vafalaust myndu margir verða heil- brigðir og sjálfbjarga á sama hátt og mörg framsóknarfyrirtæki hafa orðið eðlileg síðari ár vegna eðlilegs viðskiptaumhverfis. Hvar eiga framsóknarmenn að vera? Forræðis- og forsjárhyggja er ein- faldlega misskilningur í lýðræðis- þjóðfélagi. Hún er leifar frá liðinni tíð eða hæfnisskortur þess sem kann ekki að standa sjálfur og notar stuðning annarra ýmist með því að láta ráða yfir sér eða ráðskast með aðra. Þess vegna eru hugtökin ein- staklingsfrelsi, athafnafrelsi og jafn atkvæðisréttur óvinsæl meðal fram- sóknarmanna. Þar sem kosningar nálgast er freistandi að hugsa fyrst um forsæt- isráðherra. Verði skipt um stjórn virðist mér viðeigandi að hann fengi ráðherrastólinn heim með sér, ná- kvæma eftirlíkingu af honum eða forsetastól ella. Maðurinn hefur alla sína starfsævi verið í stjórnunar- stöðu hjá ríkinu. Að öðru leyti tel ég heppilegt að Framsóknarflokkurinn haldi áfram að vera til sem minnkandi flokkur fyrir þá sem þurfa. Við hljótum að vona að fólk þroskist frá forræðis- hyggju eins og við verðum að trúa að lýðræði leysi einræði af í miðstýr- ingarríkjum. Hreinsun borgarlandsins Löggjafarþing þjóðar lögfestir siðferði hennar. Hlutverk þings er að ákveða lög samkvæmt því sem fólkið í landinu telur sanngjarnt og rétt og skilgreina hvað er rangt. Bófahasar, nýjasta tilbrigði í fram- sóknarmennsku, skemmtir e.t.v. ein- hveijum en siðferðilega, nær hann engum áttum. Það er von mín að sunnudagurinn 21. apríl verði góður dagur. Þeim mun betri verður hann sem fram- sóknarþingmenn verða færri. Hvað sem líður fyrri tíð á Framsóknar- flokkur ekki erindi lengur í íslensk- um stjómmálum. Það yrði gleðiefni ef borgarlandið í Reykjavík hreins- aðist algjörlega. Þeir þingmenn sem ná kjöri þurfa hins vegar að vita enn betur en nokkru sinni fyrr að stjórn- mál eru hvorki bófahasar né hrá- skinnsleikur. Lög mótast af siðferði þjóðarinnar. Nothæf löggjöf getur aðeins orðið ti! í höndum þeirra sem sjálfír hafa hafa siðferðilega áttun. Ilöfundur er læknir í Reykjavík og varaborgarfulltrúi fyrir Sjálfstædisflokkinn. Grillveisla Haldin verður grillveisla aldarinnar í kosningamiðstöð ungra sjálf- stæðismanna í Mosfellsbæ að kvöldi föstudagsins 19. apríl kl. 20.00. Stjórnin. Reyðarfjörður Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisfélags Reyðarfjarðar, Austurvegi 19, sími 41491. Opið frá kl. 20.00-22.00. Upplýsingar á daginn í síma 97-41378. Kaffi á könnunni. Akureyringar - Akureyringar Kosningakaffi verður í Glerárgötu 32 á kjördag. Opnum á sama tíma og kjörstaðir með morgunkaffi. Kl. 14.00 hefst glæsilegt hnallþóru- kaffi sem stendur fram eftir degi. Um kvöldið verður síðan kosninga- vaka. Fögnum sigri saman. Sjálfstæðisfélögin á Akureyri. Hafnarfjörður Kjördagur Opið hús verður í Sjálfstæðishúsinu á kjördag frá kl. 8.00. Fólk er hvatt til að lita við, þiggja veitingar og taka þátt í lokasókninni. Bíla- þjónusta veitt þeim sem þurfa. Sími i Sjálfstæðishúsinu er 651055. Fulltrúaráð. 9r ouglýsingor FÉLAGSLÍF FERÐAFÉLAG ÍSIANDS ÖLDUGÖTU 3 & 11798 1953.' Gönguferð um gosbeltið. Raðgangan 1991,1. ferð endurtekin laugardaginn 20. apri'lkl. 11.00. Margir misstu af frábærri upp- hafsferð raðgöngunnar siðast- liðinn sunnudag, en þess vegna verður gangan endurtekin nú á laugardaginn kl. 11.00, Heim- koma um kl. 16.30 síðdegis. Tvær gönguferðir: 1. Upphafsganga raðgöngunn- ar endurtekin, farið um Reykja- nestá og Krossvíkurberg yfir Háleyjarbungu á þjóðveg. 2. Ný og áhugaverð ganga í boði fyrir þá sem voru með síðast: Valahnúkar-gígaröðin, Stampar - Skálafell. Nú er tækifæríð til að vera með frá byrjun og taka þátt i öllum 12 áföngum raðgöngu Ferðafé- lagsins um gosbeltið suðvestan- lands frá Reykjanesi að Skjald- breið. Ferðagetraun í hverri ferð og ennfremur fá þeir sem fara flesta áfangana sérstaka viður- kenningu. Biðin eftir kosningaúr- slitunum verður auðveldári eftir hressandi útiveru með Ferðafé- laginu. Sunnudagsferðir 21. apríl kl. 13.00. a) Keilir. Ekið inn á Höskuldar- velli og gengið þaðan á þetta skemmtilega fjall sem flestir ráða við. b) Keifisnes - Staðarborg. Gott tækifæri til að kynnast þessari margumræddu strandlengju. Staðarborg er falleg hringhlaðin fjárborg. Brottför í allar ferðirn- ar er frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Hægt að koma í rútuna á leiðinni t.d. á Kópa- vogshálsi og við kirkjug. Hafn- arfirði. Allir eru velkomnir. Það þarf ekki að panta í dagsferð- irnar. Sérstakt afsláttarverð kr. 1000 - í allar ferðirnar, frítt f. börn m. fullorðnum. Kvöldvaka um íslenska hraunhella þriðjudags kvöldið 23. apríl kl. 20.30 i Sóknarsalnum, Skipholti 50a. Einstakt tækifæri til að kynnast undraheimi íslenskrar nattúru, neðanjarðar. Góð myndasýning og frásögn Björns Hróarssonar, jarðfræðings. Nánar auglýst í sunnudagsblaðinu. Fjölmennið, félagar sem aðrir. Sumrifagnað i Landmannalaugum. 25.-28. apríl, 4 dagar. Brottför á sumardaginn fyrsta kl. 08. Gengið á skíðum frá Sig- öldu. Kynnist Landmannalaug- um í vetrarbúningi. Gist i upphit- uðu sæluhúsi F.l. Farmiðar á skrifstofunni, Öldu- götu 3, símar 19533 og 11765. Fax 11765. Ferðafélag íslands. I.O.O.F. 12 = 1724198’/r=9.0. Stórsvig 30 ára og eldri Stórsvigsmóti í flokkum karla og kvenna 30 ára og eldri, sem frestað var vegna veðurs þann 14. apríl, verður haldið í Bláfjöll- um laugardaginn 20. apríl nk. Skráning við gamla Ármanns- skálann kl. 15.00. Mótið er opið öllu skíðaáhuga- fólki 30 ára og eldra. Flokka- skípting er: 30 til 34 ára, 35 til 39 ára o.s.frv. Nefndin, NY-UNG laaq—nania Fyrri hluti: Lofgjörð og vitnis- burður. Amadeo Werges starfar sem leiðtogi í KFUM í Sviss og mun kynna starfiö þar. Seinni hluti: Opinn deildarráðs- fundur. Umræðuefni: Sumar- starf NÝ-UNGar og aukin tengsl við annað starf i KFUM og K. Fólk á öllum aldri velkomnið. I.O.O.F. 1 = 1724198'/2 = 9.0.* Keflavík Aðalfundur Slysavarnadeildar kvenna verður haldinn mánu- daginn 22. mars kl. 20.30 í Iðn- sveinafélagshúsinu við Tjarnar- götu. Stjórnin. Frá Guðspeki- fálaginu IngótfsatnMl 22. Aakriftarslml 39673. í kvöld kl. 21.00 flytur Birgir Bjarnason erindi i húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. (Athugiö að samræður Guðrúnar og Guð- laugs Bergmann frestast um viku). Miðvikudaginn 24. apríl kl. 21.00 verður Jón Arnalds með fræðslu um sálfræði Á morgun, laugardag, er opið hús frá kl. 15.00 til kl. 17.00 með stuttri fræðslu og umræðum kl. 15.30. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. go -8ÖýIu>lHS6 .-BÍto’Kji itrir nimlYlh íi ffiirrt j-TJfil önrfKvrnult no jjni'ÍTOJluíaói'yfgtus ioi£
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.